Þjóðviljinn - 18.07.1961, Blaðsíða 12
Vegavinnuverkfall hófstþJÓÐVILIINN
í nótt á Suðvesturlandi
Þriðjudagut' 18. júlí 1961 — 26. árgangur
160 tölublað
»■ Verkfall í vegavinnu og
brúarvinnu á Suðvestur-
landi hófst á miðnætti í
nótt eins og boðað hafði
verið.
Verkfafssvæðið nær frá Mýra-
sýslu til Rangárvallasýslu að
báðum meðtöidum. Stöðvast þar
bæði nýbyggingar og viðhald.
en á þessu svæði er mestur
hlufi miki’.virlcustu tækja Vega-
gerðar ríkisins.
Alþýðusamband íslands boðaði
verkfallið fyrir rúmri viku, þeg-
ar Ingólfur Jónsson samgöngu-
málaráðherra bannaði Vegagerð-
inni að gera hliðstæðan samning
við Alþýðusambandið um kjörin
í vega- og brúarvinnu ög Dags-
brún hafði gert við atvinnurek-
endur í Reykjavík. Samkvæmt
þeiín samningi fá verkamenn
frítt fæði þegar unnið er utan-
bæjar, en á slíkt ákvæði um
fæðiskostnað I vega- og brúar-
vinnu vill Ingólfur ráðherra
ekki fallast.
Náist ekki samningar bráðlega
Skipin streyma
ti! Raufarhsfnar
Iíaufarhiifn, 17. júlí — Kl. 18
í kvöld byrjuðu skipin að
streyma að austan og eftirlalin
skip voru með þetta aflarriagn:
Skjaldbreið SH 650 mál. Guð-
björg ÍS 500, Júlíus Björnsson
EA 650, Ólaíur Magnússon KE
490. Muninn GK 350, Helga RE
1000. Héðinn ÞH 950, Víðir II
GK 1300. Vörður ÞH 800, Bald-
ur EA 650, Sveinn Guðmunds-
son AK 650, Gylfi II EA 500,
Fiskáskagi AK 500, Fanney SF
600.
um vegavinnukjörin breiðist verkfallið út til annarra lands- hluta. Alþýðusambandið hefur þegar boðað verkfall frá og með næstu helgi norðanlands, á samningasvæðum verkamanna- íélaganna á Akureyri. Húsavík og Dalvík.
Góð sildveiði eystra
ógœtar veiðihorfur
Seyð'sfirði, 17. júlí. — Veiði hefur almennt verið góð hér á miðunum fyrir austan í dag og sl. nótt og í kvöld er veður gott og veiðihorfur góðar. Síldin veiðist rétt hér fyrir ut- an, hún er feit og ekkert smátt í henni. Sem dæmi um veiðina má nefna, að Álftanes kom hingað inn í morgun með 150 tunnur og aftur síðdegis með Þrjú olíuskip bíða nú hér á Seyðisfirði eftir Hamrafellinu, sem á að koma hingað í kvöld. Skipin eiga að dreifa olíunni hér um Austfirðina, þar sem allt er að verða olíulaust. Neskaupstað, 17. jú’ri. ■— í nótt var lokið við að landa úr þeim bátum sem biðu löndunar í bræðslu frá síðustu viku. Veð-
300 tunnur og fór allt í söltun.
Klukkan 10 í kvöld var
Ströndin búin að salla í 5203
tunnur og Hafaldan í 4687
tunnur. Þá höfðu verið brædd
eða voru komin í þró 22 þús-
und mál og 12 skip biðu lönd-
unar með 6.300 mál. Söltun er
í fullum gangi. Von er hingað
á norsku tunnuskipi og á það
að flytja sí'd norður
Búið er að flytja hingað á
þriðja þúsund tunnur með bíl-
um frá Dagverðareyri, allt
sökum trassaskapar síMarút-
vegsnefndar að koma ekki upp
tunnulager fyrir Austurland.
Sökum kostnaðar við flutning-
inn hækkar kaupverð lunn-
ana um 10% og er lágmarks-
kostnaður við þennan flutning
áætlaður 70 þúsund krónur.
Þar fyrir utan eru þetta gaml-
ar tunnur, sem vinna þarf
mikið við.
Túnisstjórn beitir hörðu
fi! aö reka Frakka burt
ur fór batnandi á miðunum í
gærkvöld og' fóru skipin því öU
út. Góð veiði var í gærkvöld og
nótt á Seyðisfjarðardjúpi. AIl-
mörg skip komu hingað í nótt
og morgun með síld og var
saltað á báðum söltunarstöðvun-
um í dag en báðar urðu þær að
hætta söltun vegna tunnuskorts.
Framhald á 2. síðu.
Skrifstofa Loftleiða í New York er flutt j ný húsakynni. Eins
og geta iná nærri er allt iivnan stokks með myndarbrag,
en ætla niá að þessar fjórar afgreiðslustúlkur beri þó af. Ein
þeirra, sú lengst til hægri, er íslenzk og heitir Þcrunn Pálsd.
— Sjá frétt á 3. síðu.
Síldaraflinn í síðustu viku
samtals 224564 m. og tunnur
Túnisborg 17/7 — Túnisstjórn
heíur nú ákveðlð að beita
hörðu til að reka Frakka burt
úr flotastöð þeirra í Bizerte
og hefur hún ákveðið að ein-
angra síöðina algerlega.
Bourguiba forseti skýrði frá
þessu í dag. Hann sagði að
einangrun stöðvarinnar myndi
verða fyrsta skrefið til að
knýja Frakka 1 il að hverfa á
brott úr henni. Öllum leiðum
á landi til stöðvarinnar verður
lokað á miðvikudag af her-
mönnum Túnis og sjálfboðalið-
um úr stjórnarflokknum Neo-
Destour. Gerðar hafa verið
ráðstafanir til að veita viðnám
ef Frakkar reyna að brjóta sér
leið gegnum vegatálmanir.
Þá skýrði Bourguiba frá því
að sjálfboðaliðar yrðu einnig
sendir til Garet-el-Hamel, svæð-
is þess í Sahara, sem Túnis
gerir kröfu til, en Frakkar
ha’da.
Bourguiba lét þó um leið í
Ijós vonir um að þessar ráð-
etafanir myndu ekki leiða til
meiri vandræða, heldur verða
til þess að Frakkar sæju sitt ó-
yænna og hæfu samninga um
brottför úr flotastöðinni sem
þeir hafa haldið síðan 1956,
þegar Túnis fékk sjálfstæði og
þeir fluttu burt annað herlið
sitt úr landinu.
í síldveiðis'kýislu Fiskifélags Islands segir, að aflinn i síð-
ustu viku hafi verið 224.564 mál og tunnur (61.197 í fyi ra) og
mun það vera einhver mesti vikuafli um langt árabil. Ve ðiveðui'
var gott og góð veiði á svæðinu frá Langanssi að Dalatanga.
Siðara hluta vikunnar færðist síldargangan nær landi. S'íðan
segir orðrétt í skýrslunni: ,,Það dró mjög úr veiðinni, að þrær
Austfjarðaverksiniðjiiina fylltust i'ljótt. Úrðli skipin því að blða
lengi eíftir löncÍHn, eií, sum tóku þann kostinn að sigla með afl-
ánn til Siglufjarðar og Eyjafjarðarhafna. Af þessum sökum
og vegna fólkselclu töfðust skipin frá veiðum.“
í vikulokin Var heildaraflinn
í sumar orðinn sem hér segir:
I salt, upps.
I bræðslu
Fryst uppm.
Útflutt ísað
mál og tn.
264.963 ( 40.702)
300.233 (371.013)
11.234 ( 5.552)
0 ( 834)
Samtals
576.430 (418.101)
Vitað var um 215 skip (246),
er í vikulokin höfðu íengið ein-
hvern afla og af þeim höfðu
208 (213) ailað 500 mál og tunn-
ur eða meira. Sjö skip höfðu
fengið yfir átta þúsund mál og
tunnur. Hæstur er V'ðir II.
Garði rrieð 11468, Ólafur Magn-
ússon Akureyri 9457, Haraldur
Akranesi 9016, Guðbjörg ólaís-
firði 8894, Heiðrún Bolungavík
8824, Guðmundur Þórðarson
Reykjavík 8180, Gjafar Vest-
mannaeyjum 8165.
Hér á eftir fer skrá ýfir þau
skip, er höfðu fengið yílr 1500
mál og tunnur:
Aðalbjörg SK 1540
Framhald á 5. síðu.
Stéitarfélag verkíræðinga
boðar verkfall á mánudag
Stéttarfélag verkfræöinga hcf-
ur boðað verkfall frá 24. þ.m.
hafl samningar ekki náðst við
atvinnurekendur fyrir þann
tínia. Viðræður fóru fram í gær-
dag milli deiluaðila en enginn.
árangur náðist. Samkvæmt frá-
sögn Hinriks Guðmundssonar
framkvæmdastjóra Stéttarfélags
verkfræðinga miða þeir kriifur
sínar við laun þau. sem verk-
fræðingar á hinum Norðurlönd-
unum fá og ganga þær þó ekki
til jafns við það, sem gerist a.
m.k. í Danmörku og Svíþjóð.
Kröi'ur verkfræðinganna eru
þessar helztar: Laun á 1. starfs-
/ri skulu vera 9.000, 11 þús. eft-
ir 1 ár, 12 eftir 2 ár og' síðan
stighækkandi upp í 17 þús. kr.
eftir 13 ára starf. Þá er þess
krafist, að deildarverkíræðing-
ar fái 15% í ofanálag á almennt
verkfræðingakaup og yfirverk-
fræðingar 30%. Föst laun skulu
miðast við 38 klukkustunda
vinnu á viku og yfirvinna greið-
ist með 1/90 af máriaðarlaunum
verkíræðingsins á klukkustund.
í kröfum Jiessum felst mjög
mikil hækkun á launum verk-
fræðinga. Þannig eru bvrjunar-
laun þeirra nú rosklega kr. 5700
á mánuði.
Verkfræðingarnir fara einnig
fram á, að vinnuveitendur
greiðí 6% af kauDi í lífeyris-
sjóð, en sVilfir greiði þeir 4%
af launum í sjóðinn. Ýmsar
fleiri breytingar fara þeir og
fram á á ráðningarkjörum sín-
um.
Kröfur þessar eru fram born-
ar fyrir hönd almennra verk-
íræðinga, deildarverkfræðinga
og yfirverkíræðinga en nokkrir
verkfræðingar í æðstu stöðum
eru ..að sjálfsögðu fastráðnir
samkvæmt launalögum og ná
þessar kröfur ekki til þeirra.
Fóstbrœður
til Sovét-
ríkjanna
Ákveðið hefur verið, að
Karlakórinn Fóstbræður
fari í söngför til Sovét-
ríkjanna í september n.k.
og verða söngmennirnir
g'estir sovézka mennta-
máiaráðuneytisins meðan
dvalið er þar í landi. Er
boð þetta komið lyrir milíi-
göngu íslenzka rnennta-
málaráðuneytisins.
Þátttakendur í förinni
verða rúmlega 40. Söng-
stjóri verður Ragnar
Björnsson, einsöngvarar
Kristinn Hallsson óperu-
söngvari og Erlirigur Vig-
fús'^in, undirleikari Carl
Bi’lieh.
Á leiðinni til Sovétríkj-
anna áformar kórinn að
efna til samsöngva í Finn-
landi.