Þjóðviljinn - 09.08.1961, Blaðsíða 6
þlÓÐVILJ
&t«efandl: Samelnlngarflokkur alþýðu — , Sósíalistaflokkurlnn. — Rltstjórar:
tóíagnús Kjartansson (áb.), Magnús Torfi Ólafsson, Sigurður Guðmundsson. —
fréttaritstjórar: ívar H. Jónsson, Jón Bjarnason. — Auglýsingastjóri: Guðgeir
kfagnússon. — Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiöja: Skólavörðust. 19.
lími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 45 á mán. — Lausasöluverð kr. 3.00.
Prentsmiðja ÞJóðvilJans h.f.
Það duga engin vettlingatök
það dregur nú til harðari átaka á íslandi en nokkru
sinni fyrr. Ósvífni þeirra ræningja, sem svikizt
hafa til valda með lognum loforðum um leið til bættra
lífskjara, keyrir svo fram úr hófi, að aldrei hefur slíkt
þekkzt fyrr á íslandi. Þeir dönsku kúgarar, er verzt
léku þjóðina fyrr, þurftu ekki á loforðum að halda til
að ná völdum, þeim dugðu ofbeldi og svik.
Ijeir eru nú frakkastir að hóta íslendingum, sem
auðnulausastir hafa verið um öll afskipti sín' af
opinberum málum. Pabbadrengur auðvaldsins, Gunnar
Thoroddsen, sem hefur verið uppdubbaður sem fjár-
málaráðherra — máski af því hann sýndi svo mikla
snilli 1 að stjórna eigin fjármálum! — dirfist nú að
hóta vinnandi fólki landsins með nýjum skemmdar-
verkum af sinni hálfu, ef það rísi upp og berjist fyrir
rétti sínum. Sjálfur lét þessi fjármálaráðherra lækka
skattana á sjálfum sér og sínum ííkum um álíka upp-
hæð og sumt verkafólk fær í árskaup. Gunnari Thor-'
oddsen finnst sjálfsagt úð minnka skattinn á sínum
eigin 250.000 kr. um einar 30.000 kr. En ef verkakona,
sem hefur 30.000 kr. í ársiaun fær hækkun um 3000
kr. á ári, þá skal gengið lækkað og allri þjóðinni vald-
ið stórtjóni, til að ræna hana því. Og síðan hótar
veizlugarpurinn Gunnar að beita harðari aðferðum ef
þessi níðingsskapur dugir ekki.
r|g hvað gerir svo þessi kjaftfori fjármálaráðherra í
þeim hneykslismálum, sem hann dylur undir sín-
um verndarvæng? Hvað líður upplýsingum fjármála-
ráðuneytisins um ólögleg lán til Axels í Rafha og inn-
heimtu á þeim? Er fjármálaráðherrann orðinn samsek-
ur um þá spillingu, sem þar á sér stað? Ætlar Gunnar
Thoroddsen tafarlaust að gefa upplýsingar um með-
ferð þess hneykslismáls — eða á að ákœra hann líka
fyrir óráðvanda meðferð á fé ríkisins? Er það nóg að
Axel í Rafha sé á laxveiðum með forsetanum, til þess
hinn kjaftfori, síhótandi fjármálaráðherra haldi sér
saman, þegar hann á að tala en ekki þegja yfir fjár-
málahneykslunum?
jpunnar Thoroddsen lætur ganga að þeim smáu, læt-
ur með fjármálapólitík sinni ræna íbúðum af
smælingjunum, sem unnu baki brotnu til að reyna að
eignast þær, í trúnni á að Sjálfstæðisflokkurinn ætlaði
að tryggja hverri fjölskyldu eigin íbúð og leið til
bættra lífskjara. — En gæðingum ríkisstjórnarinnar er
hlíft. Þeir þurfa hvorki að borga afborganir né vexti
— og fá svo smámsaman skuldirnar strikaðar út með
aðgerðum Gunnars Thor.
það er verið að binda þjóðinni óþolandi skuldabagga.
Það er verk þessarar ríkisstjómar, sem árlega stór-
lœkkar gengið. Þjóðinni er íþyngt með óþolandi vaxta-
byrði. Það er eitt af illverkum þessarar afturhalds-
stjórnar. Verkamaður, sem nú ætlar sér að eignast
íbúð, — eins og Sjálfstæðisflokkurinn hefur lofað
hverri fjölskyldu — verður að borga 2500—3000 krónur
á mánuði af íbúðinni, — eða meirihluta launa sinn.
Það er verið að svínbeygja þjóðina undir okurskatt til
auðmagnsins. Hin svívirðilega okurvaxtastefna þessar-
ar ríkisstjórnar er ætluð til þess að beygja bak íslend-
inga, venja oss við að þræla fyrir auðmagnið, erlent
og innlent. Það verður að brjóta okurvaxtapólitíkina á
bak aftur. Það verður að byrja með því að lækka taf-
arlaust vextina hér heima, — t.d. á íbúðalánum o.fl.
niður í 2V2%. Og það verður að knýja útlendu okur-
stofnanirnar, eins og Alþjóðabankann, sem nú arð-
sjúga íslendinga eins og aðrar þjóðir, til að lækka
vextina niður í a.m.k. 2l/2%. — Og þetta er aðeins lítill
þáttur úr því sem þarf að gera.
fjað duga engin vettlingatök, þegar þjóðin feykir þess-
um níðingum frá völdum, sem svikizt hafa aftan
að henni, stórskemmt fjárhag hennar og atvinnulíf með
samdrætti, spillingu, okri og óstjórn, níðzt á öllum
launþegum og öðrum vinnandi stéttum og hóta svo í
þokikabót harðstjórn og skemmdarverkum, ef fólkið
semur frjálst um kaup sitt.
I gær átti Emil Tómasson að Brúarósi í Kópavogi áttræðisafmæli. Emil er lesendum Þjóð-
viljans að góðu kunnur, því að oft hafa birzt eftir hann greinar hér í blaðinu. Hann er Eyfirð-
ingur að ætt en uppalinn í Þingeyjarsýslu. 26 ára að aldri hélt hann til Noregs og dvaldi tvö
ár í Noregi og Danmörku til þess að fullnuma sig í búfræði. Að því loltnu hvarf hann heim
og ætlaði til átthaganna en örlögin höguðu því svo, að skip lians kom að Iandi á Austfjörðum
og þar ílentist hann, kvæntist dóttur bóndans á Stuðlum í Reyðarfirði, Iiildi Þuríði Bóasdótl-
ur, hóf búskap þar eystra og bjó að Stuðlum til ársins 1935, er hann hvarf til Reykjavíkur eft-
ir lát konu sinnar.
Hér í Reykjavík gerðist þessi aldraði bóndi virkur þátttakandi í verkalýðshreyfingunni, átti
m. a. um skeið sæti í stjórn Dagsbrúnar. Gekk hann þar sem annars staðar ötullega til starfs.
Þau hjónin Hildur og Emil eignuðust 9 börn og eru sjö þeirra á lífi. Á Emil nú orðið 20
barnabörn og tvö barnabarnabörn. Emil dvelst nú hjá dóttur sinni Guðrúnu og manni hennar
Eyjólfi Kristjánssyni að Brúarósi í Kópavogi. Mun hafa verið gestkvæmt þar á heimilinu í gær.
Þrátt fyrir háan aldur er Emil enn léttur á fæti og hress í máli og kann frá mörgu að
segja. Blaðamaður frá Þjóðviljanum hitti hann hann að máli um helgina og ræddi nokkuð við
hann um uppvaxtarár hans í Þingeyjarsýslu og þátttöku hans í íslenzkri glímu, en Emil var á sín-
um yngri árum einn fremsti glímumaður landsins og hefur ætíð látið sig glímuna miklu varða,
m. a. margt um liana ritað í blöð. Því miður urðum við að staldra við þau tímamót í ævi
Emils, er hann hvarf til Noregs. Það hefði orðið efni í mörg blöð að rekja æviferil hans lengra
eða fyllra og verður að bíða að sinni. Svo gef ég honum sjálfum orðið.
„Er ekki Reykjadalur nógu
stór íyrir þig til jbess aö
liggja í honum?”
— Ég er fæddur 3 8 1881
að Hraukbæjarkoti í Krækl-
ingahlíð og ég skal byrja á
því að segja þér, að ég er svo
hrifinn af því, að ártalið má
jafnt lesa aftur á bak eins
og áfram, og eins er ég hrif-
inn aí hve 8 er falleg tala, en
hún kemur svo. oft fyrir í fæð-
ingardagsetningunni og ártal-
inu. Móðir mín hét Guðrún
Guðmundsdóttir og var frá
Stóra Dunhaga í Hörgárdal.
Það er aleyfirzk ætt. Fjórir
iangömmubræður minir í
þeirri ætt voru prestar, einn
þeirra séra Hallgrímur faðir
Jónasar skálds. Faðir m'inn
hét Tómas Jónsson frá Lauga-
landi í Hörgárdal. Það er líka
eyfirzk ætt og Tómasarnafnið
rikti í ættinni. Forejdrar mín-
ir voru ekki hjón. Móðir mín
hafði misst mann sinn frá
þrem börnum en hélt áfram
búi í Hraukbæjarkoti. Svo
fékk hún ungan mann, Tóm-
as, til þess að standa fyrir bú-
inu hjá sér. Þess vegna varð
ég til. Svo giftist hann aftur
yngri konu. Ég á engin al-
systkini en hálfsystkini til
beggja hliða.
Fyrstu árin var ég mest hjá
móður minni. Ég var aðeins
part úr ári hjá föður mínum
en frá honum fór ég að Úlfs-
bæ í Bárðardal til fósturfor-
eldra minna, Elínar Jónsdótt-
ur frá Lundarbrekku og
Kristjáns Jónssonar. Kristján
var sérstæður maður að dugn-
aði. Það stóð þannig á því, að
ég fór til þeirra, að faðir minn
hafði verið hjá þeim kaupa-
maður um sláttinn nokkur ár.
Börn þeirra voru þá kqmin
upp og fóstri minn hefur lik-
lega viljað prófa þennan
strák, hvort hann væri til
nokkurs nýtur.
Ég kom að Úlfsbæ 28. marz
1888 og fór þaðan aftur 1898.
Þá dó fóstri minn og fór ég
þá til sonar fóstdrforeldra
minna, Gisla á Ingjaliflsstöðum,
og var þar tvö ár. Síðan var
ég eitf ár hjá Elíriu systur
hans á Öxará og svo eitt ár
hjá Jóni á Ljósavatni, einu
systkininu enn. 1902 um vorið
fór ég að Einarsstöðum í
Reykjadal og er þar eitt ár
en 1903 fór ég á Búnaðarskól-
ann í Ólafsdal til Torfa. Ég
hef mörgum mönnum kynnzt
um ævina, bæði utanlands og
innan, en engan af þeim mönn I
um ber eins hátt og Torfal
heitinn í Ólafsdal. Ég hef ekkb
haft eins mikið gagn af því að;
kynnast öðrum manni. í Ól-
afsdal var ég tvö ár, 1903-^
1905.
Ég dvaldi aftur heima í
Reykjadal sumurin 1905, 6 og
7. Þá fékk ég mér búnaðar-
verkfæri og reif sundur jörð-
ina. Gekk um eins og hrepps-
ómagi. Ég tók að mér upp á
akkorð að plæja fyrir bænd-
urna. Ég átti sjálfur fjóra
hesta, tveir þeirra voru ram-
fælnir og þá gekk plæingin
vel. Veturinn 1905—1906 var
ég við símastauraakstur en þá
var verið að leggja símalínuna
austan frá Seyðisfirði til Ak-
ureyrar. Staurunum var skip-
að upp á Húsavík og bónd-
inn, sem ég var hjá, Harald-
ur Sigurjónsson á Einarsstöð-
um, tók að sér að koma þeim
á línuna frá Skjálfandafljóti
austur að Laxá. Hann dó um
veturinn og þá kom verkið á
mig. Með mér var úrvalsmaður,
Kristján Sigurðsson að nafni.
Þetta var mikið verk og bölv-
að. Við ókum fyrst staurun-
um á sleðum frá Húsavík eft-
ir Laxá og það var ágætt.
Fluttum við þá austur fyrir
Laxá að Mýrarseli og ókum
þeim síðan á línuna. Við urð-
um svo seint fyrir, að undir
vprið urðum við að draga þá
á auðu, rákum þá skeifu í
endann á þeim og létum svo
klárana draga þá. Það var erf-
itt.
— Hvað viltu
uppvaxtarárunum í Þingeyjar-
sýslu?
— Ég er fyllilega ánægður
yfir því og sæll að hafa lifað
20 seinustu ár 19. aldarinnar
og svo 60 af þessari. Það eru
svo ólíkir tímar að bera sam-
an. Æskan nú veit lítið af því.
Mér finnst ég hafa menntazt
á því að lifa tvenna tímana.
Þeir eru svo ólíkir. Auk heldur
málið er orðið öðru vísi. Við
þurfum aldrei núna að tala um
þá hluti, sem þá voru algeng-
astir. Ég hef stundum sagt við
ungt fólk, að ég kunni tvö mál,
þetta sem nú er talað og alda-
mótamál. Nú skilur æskan fátt
af því. Ég t. d. bið dótturson
minn að rétta mér reiptagls-
endann. Hann veit ekki hvað
það er. Börn nú þekkja ekki
orð eins og sili, hölgd, rófustag.
Þetta eru svo ólíkir tímar, að
það mætti margt um það
spinna. Ég er rétt byrjaður að
skrifa niður endurminningar
mínar frá Úlfsbæjarárunum.
Ég er að gera samanburð á erf-
iðleikunum, sem þá voru, og
því, sem nú er. — Hér sýnir
Emil mér handritið að þessum
endurminningum, skrifað skýrri
rithönd. Þar er margt fróðlegt
að finna. Mig grunar, að hann
eigi eitthvað fleira af slíku
efni í pússi sínu. Og hann seg-
ist ætla að halda áfram þess-
um skrifum meðan sér endist
heilsa til. Af mörgu er að taka.
— Á Úlfsbæ var farið að láta
mig sitja einan yfir á annað
hundrað ám 1891. Sumurin áð-
ur hafði ég setið yfir þeim með
öðrum. Þá var setið yfir mán-
uð til 6 vikur á vorin. Það var
ekki farið að smala ánum að
kvöldi fyrr en eftir þann tíma,
og þá var ég líka við það. Við
smalamennskuna var ég alltaf
ríðandi í bölvuðum mýrum og
móum. Það var ákaflega erfitt
að sitja yfir vegna helvítis
vargsins, mýbitsins. Ærnar
hlupu fram og aftur til þess að
fá einhvern svala og engin á
sem hélt að á neinn veg. Mý-
vetningur einn, sem þóttist vera
ákvæðaskáld hafði kveðið þessa
stöku um mývarginn:
„Af öllu hjarta ég þess bið
8) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 9. ágúst 1961