Þjóðviljinn - 09.08.1961, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 09.08.1961, Blaðsíða 12
Miövikudagui' 0. ágúst 1961 26. árgangur — 178. tölublað. Þessi fallega mynd er tekin á þjóðhátíðinni í Vestmannaeyjum og sýnir vel tjaldborgina, er var sú stærsta, sem þar hefur verið. Á myndinni sést einnig hluti af samkomusvæöinu og mann- fjöldanum, er hátíðina sótti. — (Ljósm.: P. H.) Það hefur verið núidll fögn- uður í þorpinu Sjilino í Altai- héraði í S'iberíu síðustu daga, en þar fæddist Hermann Step- anovitsj Títoff 11. september 1935, sonur skólakennara á staðnum. Slepan faðir hans kenndi bókmenntasögu, rússnesku og ýzku og Hermann lilli vand- ist snemma á bóklestur, var námfús og iðinn di'engur, seg- ir faðir hans, en einkum gef- inn fyrir vélar og lækni. Hann smíðaði módelflugvélar smá- og átti enga ósk heit- en að verða flugmaður. Sú ósk hans rættist. Áhugi snemma Hann tók stúdentspróf átján ára gamall og átli þá kost á að lialda áfram námi í háskóla, en kaus he'dur að fara í flug- :skóla. Hér hlaut hann hina beztu menntun og tók próf með ágætiseinkunn. Hann gegndi síðan þjónustu í einni deild sovézka flughersins við Lenin- grad. | Tíloff er kvæntur 24 ára igamalli stúlku sem heitir Tam- ara- Þau misstu barn sitt þegar það var sjö mánaða gamalt. T.toff er mikill íþróttamað- ur og vann þannig mörg verð- laun í lijólreiðakeppnum á. námsárum sínum. Faðir hans sem nú .er 51 árs að aldri hefur fengið ellilaun. Móðir hans er 47 ára gömul. Títoff 'hafði sótl um upptöku í kommúnista- flokkinn, en hann var í æsku- lýðshreyfingunni Kcmsomol- Með afreki sínu hefur hann unnið til þe.ss að vera tekinn í flokkinn. FÁRÁNLEGT STJÓRNLEY Islenzkum slldveiðiskip upp afla sinn i norsk um sagt að leggja sildveiðiskip Stjórnleysið á framleiðslu ís- lendinga verður fáránlegra með hverjum degi sem líður. f gær tilkynntu stjórnarvöldin að þau hefðu heimilað að íslenzku síld- veiðiskipin legðu afla sinn upp í norsk síldveiðiskip. • Með þessari ráðstöfun eru stigin stór skref afturábak. Það hefur verið mesta nauðsyn ís- iendinga að vinna sem bezt úr afla sínum. En núverandi ríkis- stjórn lætur sér ekki nægja að Hólmvíkingur hlcut fyrsta vinn- inginn utan Rvík Sala happdrættismiða í Af- mælishappdrætti Þjóðviljans er hafin úti á landj og í gær bár- ust fregnir af fyrsta vinningn- um utan Reykjavíkur. Fyrsta blokkin sem seld var á Hólma- vík hafði að geyma vinning — 500 króna vöi-uávísun. Einu vinningsnúmeri enn var framvísað á skrifstofu happ- drættisins Þórsgötu 1 og var það einnig 500 krónu vöruávís- un. Enn sem komið er hefur eng- mn-hlotið vinning í þeim flokki þar sem 50 verðmætir hlutir standa- til boða-, en það getur varla liðið á lönngu.þar til vinn- ingur kemur í. þeim flokki. ■ Allar upplýsingar um happ- drættið eru gefnar á skrif- stofunni Þórsgötu 1, sími 22396 og á afgreiðslu Þjóðviljans, feími 17500. banna sildarsöltun, einmitt þeg- ar sildin er bezt; hún er nú einnig að takmarka bræðsluna og afhenda Norðmönnum hrá- efnið svo að þeir geti unnið úr því heima hjá sér. • Stjórnarvöldin bera það fyrir sig að þau eigi erfitt með að fá síldarflutningaskip til þess að korna hráefninu í verksmiðj- urnar fyrir norðan. Það er þannig óviðráðanlegt vandamál fyrir ríkisstjórn íslands að flytja síldina milli staða á land- inu — á sama tíma og Norð- nienn láta sig ekki muna um að flytja síldina héðan og alla Ieið lieim til sín. Og á sama t’ma og ríkisstjórnin telur sig ekki hafa nein úrræði til að flytja síld úr stað er rnegin- þorri togaraflotans bundinn, þar á meðal báðir Siglufjarðar- togararnir. • Norðmönnum er seld síld- in fyrir 116 kr. málið. Sjálfir greiða beir sinum síldveiðiskip- um 100 krónum meira fyrir mál- ið; það borgar sig þannig mjög vel fyrir norsku síldarverksmiðj- urnar að láta sín skip hætta veiðum og nota aðeins afla ís- lendinga! • Norðmenn eru látnir greiða óbreytt verð í íslenzkum krón- um, þrátt fvrir gengislækkunina. Gengislækkunín kemur þannfg fram sem hrcinn gróði fyrir Norðmenn í þessum viðskiptum, en íslendingar fá aðeins aukinn tilkostnað og nýia óðaverðbólgu. • Búizt er við að þessi ráðs- mennska hafi þau áhrif að síld hætti alveg að berast i verk- smiðjurnar fyrir norðan. Er mik- il reiði meðal almennings yfir þessum makalausu vinnubrögð- um, sem munu rýra tekjur verkaíóiks stórlega og draga til muna úr gjaldeyristekjum þjóð- arheiidarinnar. Pravda segir um þá Títoff og Gagarin að þeir gætu verið Ivíburabræður, svo líkir séu þeir. Þeir séu svo til jafn gaml- ir, jafn háir, jafn þungir, og' ýmislegt annað sé líkt með þeim. Títoff var líka sá mað- urinn sem 'hlaupa átti í skarð- ið ef Gagarín hefði af ein- hverjum ástæðum helzt úr lest- inni 12. apríl. Líkur Gagarín Tamara, kona Títoffs, flúði undan blaðamönnum þegar frétzt hafði um hina vel heppn- uðu ferð manns hennar út í geiminn. Enginn var heima í íbúð þeirra hjóna. Pravda birt- ir mynd af henni ásamt konu Gagáríns og tveimur börnum þeirra hjóna. • * m og funnur í skýrsl'u Fiskiielags íslands um síldveiðal'nar segir, að all- góð veiði hafi verið á miðunum fyrir Austurlandi alla vikuna en engin fyrir norðan. Vikuaflinn nam 159.660 málum og tunn- um (92.460 í fyrra), í vikulok- in var heildaraflinn sem hér segir: í salt upps. t. 342.860 (105.690) í bræðslu m. 834.955 (563.323) í frystingu t. 19.710 ( 13.755) Útflutt ísað 0 ( 834) 1.197.525 (683.602) Aflahæsta skipið er enn sem. fyrr Víðir II. GK með 17.747 mál og tunnur en næst eru Guðrún Þorkelsdóttir SU 16.462, Ólafur Magnússon EA 15.777 og Guð- mundur Þórðarson RE 15.062. Alls eru 33 skip með yfir 10 þús. mál. Aílaskýrslan verður birt í heild í blaðinu á morgun. Friðrik mii sigursæil I finimtu umferð svæða- mótsins í Tékkóslóvakíu fóru leikar svo, að Friðrik vann Ljungquist, Filip Bobosoff, Szabo Sliwa og Perez Gragger. Jafntefli gerðu Johannesen og Uhl- mantn, Barendregt og Ghit- escu, Blom og Ciric, Milic og Niemela. í sjöttu umferð vann Friðrik Uhlmann, Filip Barendregt, Joliannesen Niemela, Gitlieseu Blom og Bobosoff Sliwa. Jáítnlefli gerðu Ljungtiuist og Perez, Szabo og Gragger. Ciric og Milic. Eftir sex umferðir cr staðan þannig; 1. Friðrik 514 vinning,# 2. Filip 5, 3. Uhlmaius 4. 4—6. Johann- esen, Szabo og Ghitecu 314, 7.—9. Perez Ciric og Milic 3, 10.—13. Bobosoff, Barendrcgt, Blom og Sliwa 2V4, 14.—15. Niemela og Gragger 1(4, 16. Ljungquist 1 vinning. — Myndin var tekin, er Friðrik tefldi við dr. Filip í Mariáuske Láz- né. Jafntefli varð í skák- inni.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.