Þjóðviljinn - 16.08.1961, Page 5

Þjóðviljinn - 16.08.1961, Page 5
Kristilegi demókrataflokkurinn í Vestur-Þýzkalandi hefur enn cinu Sinni orðið sér til skammar fyrir ósmekklegan og kjánalegan kosn- ingaáróður. Flokkurinn hefur gefið út kosningabækling mcð glans- inyndum af Adenauer kanzlara og eru „afreksverk" lians dýrkuð |)ar á barnalegan hátt og rcynt að stæla amerísk hasarblöð. Pésinn heitir „Æsilcgasta saga okkar tíma“. I fyrsta sinn í sögunni hafa kristilegir Vesturþjóðverjar nú dregið Bretlandsdrottningu inn í jjólitískan áróður og hefur þetta valdið fádæma hneykslun í Brct- landi og utanríkisráðuneytið þar scnt mótmæli. Þar cr birt tcikn- ing af Adenauer og Elíabetu eins og þau séu nýtrúlofað par, og a myndinni stendur „samherjar hins frjálsa heirns". Myndin efst til vinstri hcfur eftirfarandi texta: Hann var gcrður heiðurshöfð- ingi indiána! Við myndina að neðan til vinstri stendur: Traust í Þýzkalandi, og til hægri: Heimurinn stendur okkur aftur opinn. I-essi ósmekklegi áróður hefur mælzt svo illa fyrir, að kristilegir hafa ákveðið að taka pésann úr umferð. Fó blökkumenn LSverðlaun r Utrýmingarstrið Sænskir þingmenn hafa lagt til að suðurafríska negraleiðtogan- um Albert Luthuli verði veitt friðarverðlaun Nóbels í ár. Til- liiguna hafa þeir sent norska Stórþingipu, , sem veitir verð- launin. Beiit er á að Luthuli liafi lengi bárizt fyrir réttindum hins réttindalausa blökkufólks í Suður-Afríku, og hanti situr nú í fangelsi hinna fasistísku stjórn- arvalda landsins fyrir baráttu sína. Sænska blaðið Steckholms Tidningen tekur undir þessa til- lögu, og leggur jafnframt til að bókmenntaverðlaun Nóbels verði veitt negrarithöfundi í ár, enda sé til þess ærin ástæða. Blaðið nefnir sérstaklega sém verðuga höíunda þá Aimé Césaire frá Madagaskar og Leopold Sedar Senghor írá Senegal. Sá sið- arnefndi er ljóðskáld og er nú forseti Senegal. Sænski rithöfundurinn Artur Lundkvist skrifaði nýlega grein þar sem hann kynnir rithöfund- inn Romulq G.allegos frá Venez- uela og segir hann mjög verð- ugan þess að fá Nóbelsverð- launin. Gallegos er nú 77 ára, og hafa bókmenntamenn í Suð- ur Ameríku margsinnis lagt til á undanförnum árum að hann fengi verðlaunin. Auk þess eru nefnd n all- margra annarra höfunda í sam- bandi við verðlaunin í ár. Þeir sem oftast heyrast nefndir eru auk áður talinna: Ivo Andrie frá Júgóslaviu, Graham Greene frá Bretiandi, Heinrich Böll frá Þýzkalandi og danska skájdkon- an Karen Blixen. Sænska akademían á eftir að koma saman til að fjalla um til- lögur bókmenntafræðinga. Á- kvörðunin verður tekin í lok októberrnánaðar. MUNIÐ AFMÆLISHAPP- DRÆTTI ÞJÖÐVILJANS Pféttir þær sem ’ berást frá portúgölsku nýlendunni Angóla vekja stöðugt meiri athygli. Portúgálir reyna með öllum ráðum að bæla niður uppreisn þjóöarinnar gegn kúgun og ofbeldi NATO-hers Portúgals. A.m. k. 50 þúsundir innfæddra í Angóla hafa verið myrtir í fjöldafangabúöum PIDE, sem er Gestapo-lögregla þeirra Portúgalá. 128.000 Angólabúa hafa flúið til Konoó. Portúgalir nota nú orðið napalm-sprengjur gegn innfæddum, og allt er þetta gert með samþykki og stuðningi bandalagsríkja Portúgala. í Atlanzhafs- bandalaginu. Nú er 20.000 manna herlið úr NATO-her Portúgals í Angóla til að rejma að bæla niður upp- reisn þjóðarinnar þar. Reynt hefur verið að reka uppreisnar- menn frá bækistöðvum þeirra með því að kveikja skógar- elda, en það hefur ekki dugað. Mörg brezk blöð skýra um þessar mundir frá miklum birgð- um af napalm-sprengum, sem íjuttar hafa verið til hafnar. í höfuðborginni Luanda, og síðan eru notaðar gegn uppreisnar- mönnum. Læknar, sem skoðað hafa sár fióttafólks, sem flúið hefur til Kc>ngó, hafa oft fengið sjúklinga með 2. og 3. gráðu brunasár, sem ekki geta verið eftir neitt annað en hin djöful- legu napalm-vopn, sem Portú- galir nota til að brenna upp heila bæi svertingja og ibúana með. Hér er um að ræða i- kveikjusprengjur með þykkum benzínvökva, sem festist við öll efni, einnig fatnað og manns- likama, þannig að allt brennur upp. Flóttafólkið, sem ekki hefur áður haft kynni af drápstækni Atlanzhafsbandalagsins, segir stundum að Portúgalir hafi varpað niður logandi oliu úr flugvélum yfir bæi þeirra. Útrýming AP-fréttastofan hefur nýlega birt margar upplýsingar frá trú- boðsstöð baptista í Angóla. Þar segir að hersveitir Portúgala hafi lagt stór svæði í Angóla í eyði og útrýint öllum íbúunum í hegningarskyni. Einkum beina hinir portúgölsku fasistar árás- um sínum gegn þeim Angóla- búum, sem bezt eru upplýstir, en það er einmitt sú aðferð sem nazistar beittu í Austur-Evrópu á sínum tíma. í skýrslum trú- boðanna segir: Það eru sannanir til fyrir því að mikill fjöldi fólks hefur ver- ið bandtekinn og skotinn til "brfn'a. SHkar útrj'miiígarherferð- ir beinast einkum gegn leiðtog- um í bæjum og þorpum, og gegn þeim sem hlotið hafa menntun af einhverju tagi. Þetta er gert með þeim beina ásetningi að út- rýma allri forystu meðal hinna innfæddu blökkumanna. Pyntingar Trúboðafhir gáfu upplýsing- ar um -margskonar pyntingar sem Portúgalir beita. Á einum stað var þeldökkur mótmælenda- klerkur notaður sem ..brúða“ við bysstustingjaæfingar portú- galskra NATO-hermanna. í þorpinu Samukulae hafði þjóðflokkshöfðingjanum láðst að tilkynna bústaðaskipti eins íbúa. Yfirvöld Portúgala hjuggu fyrst af honum hendur og fætur, og eftir að honum hafði blætt út, var Hkið limað sundur og kast- að í fljót. Þrír ættingiar hans, 'sem^reyndu að bjarga leifunum, voru gripnir og þeim misþyrmt harkalega. Flóttamenn Nú hafa komið nær 130.000 ílóttamenn frá Angóla til trú- boðsstöðva í Kongó. í Angóla eru íbúar aðeins 4,5 milljónir að tölu. Flest flóttafólkið er í hinu NAT0- ömurlegasta ástandi þegar ]:að kemur yfir-.landamærin, og marg- ir bera merki eftir misþyrm- ingar og morðárásir nýlendu- herranna. 35 prósent af þeim. börnum, sem komizt hafa til Kongó, voru svo illa leikin af gárum, þreytu eða sjúkdórnum að þau dóu. Portúgal og NATO Portúgal hefur verið aðiii að Aflanzhafsbandalaginu síðan það var stofnað. Nýlendustefna Portúgals og fasisminn þar í landi er ekki nýtt af nálinni. Og nú þegar þolinmæði Angóla- þjóðarinnar er á þrotum og liún gerir uppreisn gegn kúgurum sínum, þá fellur gríman alger- lega af andliti fasista- stjórnar Salazars í Portúgal. Enginn neitar því, að Portúgöl- um væri gjörsamlega ókleift að heyja útrýmingarstyrjöld sína i Angóla, nema því aðeins að öll Atlanzhafsbandalagsríkin væru því áamþykk og veittu þeim beinan stuðning. Það hafa þau líka "gert. Það eru portúgalskir NATO-hermenn sem nú ráðast gegn Angólabúum, og það eru: vopn frá Atlanzhafsbandalaginu sem notuð eru til að reyna að berja niður uppreisn Angólaþjóð- arinnar. Tilkynning Nr. 11/1961. | Verðlagsnefnd hefur ákveðið eftirfarandi hámarksverð á benzíni og gasolíu og gildir verðið hvar sem er á landinu: 1. Benzín, hver lítri ............... Kr. 4.20 2. Gasolía, hver lítri ............... — 1.50 Heimilt er að reikna 5 aura á líter áf gasolíu fyrir út- keyrslu. Heimilt er einnig að reikna 16 aura á líter af gasolíu í afgreiðslugjald frá smásöludælu á bifreiðar. Sé gasolía og benzín afhent í tunnum, má verðið vera 2 '/2 eyri hærra hver olíulítri og 3 aurum hærri hver benzínlítri. Ofangreint hámarksverð gildir frá og með 16. ágúst 1961. Söluskattur er innifalinn í verðinu. ;i Reykjavík, 15. ágúst 1961. '• I VERÐL AGSST JÖRINN. j Skyndihappdrætti Fóstbræðra Vegna sönglarar tO Sovétikjanna og Finnlands í næsta mánuði. Vinningar: Húsgögn kr. 25.000,—. Flugferð fyrir tvo Rvík—Kbh.—Rvík eða Rvik—London—Rv-ík kr. 13.000,—./15.000,—. Hljómplötur eftir eigin vali kr. 1.500,—. Næstu daga verður leitað til styrktarfélaga og annarra velunnara kórsins, og þeim boðnir happdrættismiðar, er jafnframt gilda sem aðgöngumiðar að samsöngvum í Austurbæjarbíói 4. og 5. september n. k. — Miðarnir verða einnig til sölu í Leðurverzlun Jóns Brynjólfssonar, Austurstræti 3. Miðvikudagur 16. ágúst 1961 -r ÞJÓÐVILJINN — (3

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.