Þjóðviljinn - 18.08.1961, Qupperneq 4
Föstudagur 18. ágúst.
09.00 Pósthús Reykjavíkur-
kynningarinnar opnað fyr-
ir almenning í kringlu
Melaskólans.
19.30 Sýningarsvæðið opnað.
19.40 Lúðrasveit Reykjavíkur
leikur. Stjórn.: Paul Pamp-
ichler.
19.55 Forseti íslands kemur
á sýningarsvæðið. —
Gengið í Neskirkju. Guðs-
i þjónusta í Neskirkju. —
Prédikun: Séra Bjarni Jóns-
son. vígslubiskup. Fyrir alt-
ari: Séra Jón Thorarensen.
20.20. Lúðrasveit Reykjavik-
ur leikur.
20.30 Kynningarhátíðin sett
(úti við Melaskóla, ef veð-
ur leyfir, annars í sal
Ilagaskólans).
Ávarp: Formaður fram-
. kvæmdanefndar, Björn Ól-
afsson. fyrrv. ráðherra. Af-
mæíis Rlykjavikur niýnnzt:
Vilhjálmur Þ: Gíslasoh út-
varpsstjóri. Einsöngur: Guð-
mundur Jónsson, óperu-
söngvari. Setning Reykja-
víkurkynningarinnar 1961:
Geir Hallgrímsson borgar-
stjóri. Kórsöngur: Karla-
kórinn Fóstbræður. Stjórn-
andi: Ragnar Björnsson.
21.00—23.00 Sýningin skoðuð.
Laugardagur 19. ágúst.
14.00 Sýningarsvæðið opnað.
Lúðrasveitin Svanur Jeik-
ur. Stjórnandi: Jón G. Þór-
arinsson. Skoðunarferð um
bæinn o. fl. Brottför frá
bílastæðum við Dunhaga.
15.30 Tízkusýning í Haga-
skóla í umsjá Tízkuskólans.
Stjórnandi: Sigriður Gunn-
arsdóttir.
21.40 Skemmtiþáttur í Haga-
skóla. (Svavar Gests o.fl.).
-----1---__A----------------
lngibiörg ísaksdóHir
B91 N N I K
Hinn 9. þ.m. andaðist í
Landspítalanum frú Ingibjörg
ísaksdóttir, VesturvpJÍagötu 6
eða Lindarbrekku. eins og það
hús hefur lengstum verið
nefnt.
Hún fæddist í Miðkoti í
Vestur-Landeyjum 2. marz
1884, dóttir hjónanna Guðlín-
ar Guðmundsdóttur og ísaks
Sigurðssonar, s:ðar vitavarðar
á Garðsskaga. Hún ólst upp
hjá ^oreldrum sínum, en flutt-
ist til Reykjavíkur 19 ára
gömul og giftist ári síðar Jóni
Magnússyni frá Skuld, sem
síðar varð yfirfiskimatsmaður.
Þau eignuðust tvær dætur,
Margréti Ingiríði gifta Tómasi
HaUgrímssyni bankamanni og
Guðlínu Ingiríði konu Theódórs
Skúlasonar læknis. Tvö fóstur-
börn ólu þau Jón og Ingibjörg
upp, systkin. sem misst höfðu
foreldra s'na í spönsku veik-
inni og eru nú bæði látin.
Ingibjörg var áhugasöm um
félagsmál og starfaði mikið
í safnaðarfélögum hér í bæn-
um. Mér er til efs, að hún
hafi verið það, sem kallað er
mikil trúkona, en hún gekk
hiklaust að hverju bví verki,
sem hún taldi heillaríkt, og
átti sér enga ósk heitari en þá
að láta gott af sér leiða.
Hún var höfðingi í sjón og
raun og hlaut að vekja at-
Jiygli hvar sem hún fór, há,
■þrekin, fyrirmánnleg og fas-
mikil nokkuð, en Ijúf og mild,
þegar henni þótti það við
eiga. Rausn hennar var dæma-
fá og verður aldrei tölum tal-
in, enda oftast að verki í
ikyrrþey og bak við tjöldin.
Hún bjó við rúm kjör mikinn
hluta ævinnar og var svo hepp-
in að eiga maka, sem kunni
vel að meta beztu kosti henn-
ar. drenglund og hjálpsemi við
náungann. Heimili þessara
góðu hjóna var mér og mörg-
um öðrum athvarf um langar
stundir, önnur foreldrahús,
þegar heimdraganum var
hleypt, og ekki trúi ég þvi, að
nokkur, sem, dvaldist í Lindar-
brekku, eigi þaðan aðrar end-
urminningar en góðar. Og gest-
kvæmt var bar að jafnaði.
Næturgestir komu og fóru,
aðrir stöldruðu við í viku eða
svo, enn aðrir höfðu vetursetu,
og spakmælið um hjartarúm
og húsrúm hefði mætavel get-
GARQHÐ
Ingibjörg ísaksdóttir
að átt tilefni sitt innan þess-
ara veggja. í kjallaranum
bjuggu þrenn hjón, og allir í-
búar hússins virtust ein og
sama fjölskyldan. Þessir dag-
ar eru löngu liðnir, og
sumt þetta fólk er geng-
ið til hinztu hvíldar. nú síð-
ast húsfreyjan sjálf, kempan
með silfurhárið, o.rðin þreytt
á langri göngu og mædd í
sjúkdómsstríði, en jafnan hress
í anda, þegar af h.enni bráði.
Oft hafði hún látið þau orð
falla á bezta aldri, meðan
heilsan var góð, að sú tilhugs-
un væri sér ógeðfelldust að
verða gömul og hrum, og
skömmu fyrir dauða sinn, þeg-
ar hún átti bágt og fann kraft-
ana þverra. sagði hún við mig
eitthvað á bá leið, að það
væri heimskulegt að lifa í
slíkri eymd. Þetta voru í raun-
inni ekki æðruorð, heldur rót-
gróin skoðun, sem skaut upp
kollinum einu sinni enn. Ég gaf
henni þá verkjastillandi lyf,
og þegar áhrifa þess fór að
gæta, tókum við upp léttara
hjal. Dauðinn færðist fjær —
í bili, en báðum mun okkur
hafa verið ljóst, að hann dok-
aði aðeins við.
Og nú er hún horfin. Við
kveðjum hana í dag og mun-
um ævinlega minnast hennar
með hlýjum hug og mikilli
þökk.
Þórarinn Guðnason.
22.(K) Dans við
Gömlu og nýju
Melaskófa.
dansarnir.
Sunnudagur 20. ágúst.
Æsku’ýðsdagur.
14.00 Sýningarsvæðið oonSð.
Guðsþjónusta í Neskirkju.
Séra Jón Thorarensen.
14.30 ..Skrúðfj'lking" félaga
og tómstundaflokka á veg-
um Æskulýðsráðs hefst á
íþróttavellinum á Melunum.
—• Ekið um bæinn.
16.00 ,;Skrúðfy]kingin“ kemur
inn á hátíðasvæðið. Dag-
skrá Æskulýðsdagsins hefst
af palli austan við Mela-
skóla. Lúðrasveit leikur.
20.30 Æskulýðskvöldvaka í
Neskirkju.
21.30 Varðeklur skáta á úti-
svæði austan við Mela-
skóla, ef veður Ieyfir.
Máuudagnr 21. ágúst
14.00 Sýningarsvæðið opnað.
20 30 Tónleikar í Neskirkju.
21.00 Kvikmyndasýning í
samkomusal Melaskólans, 3.
hæð. — Reykjavíkurmynd-
ir.
22.00 Lúðrasveit Reykjavikur
leikur á oalli við Mela-
skólann, ef veður leyfir, en
ella í Hagaskóla.
Þriðiulagur 22. ágúst.
14.00 Sýningarsvæðið opnað.
20.00 Lúðrasveit leikur.
20.45 í Hagaskóla: Kvöldvaka
Reykvíkingafélagsins. Ævar
Kvaran stjórnar. Flytjend-
ur: Séra Bjarni Jónsson.
Helgi Hjörvar rithöfundur.
Þórhallur Vilmundarson
prófessor og Árni Cla rit-
stjóri.
21.00 Kvikmyndasýning í
Me’.askóia. Reykjavíkur-
myndir.
22.00 Tvísöngur í Hagaskóla.
Guðmundur Jónsson og
Þorstejnn Hannesson.
Miðvikudagur 31. ágúst.
14.00 Sýningarsvæðið opnað.
20.00 Lúðrasveit leikur.
20.30 Leikþættir í Hagaskóla.
Flutt verður ..Kiljans-
kvöld“. Leikstjóri: Lárus
1961
Pálsscm
2! .00 Kýikmýndasýning í
Melask.'la. Re.vkjayíkur-
myndir.
21.30 . Reykjavíkurlög". Mela-
skóli. Einsöngur: Kristinn
Hallsson óperusöngvari o.fl.
Fimmtudagur 24. ágúst.
14.00 Sýningarsvæðið opnað.
20.00 Lúðrasveit leikur.
20.30 Tónleikar í Neskirkju.
21.00 Kvikmyndasýning í
Melaskóla. Reykjavíkur-
myndir.
22.00 Kórsöngur í Hagaskóla.
Karlakór Reykjavíkur. Stj.:
Sigurður Þórðarson.
Föstudagur 25. ágúst.
14.00 Sýningarsvæðið opnað.
20.00 Lúðrasveit leikur.
21.00 Tizkusýning í Haga-
skóla í umsjá Tízkuskólans.
Stjórnandi: Sigríður Gunn-
arsdóttir.
22.00 Kórsöngur í Melaskóla.
Karlakórinn Fóstbræður.
Stjórnandi: Ragnar Björns-
leikar:' Úrvalsflokkur : kár.la.::
úr KR sýnir undir Stjórn .:
Benedikts Jakobssohar.
Lúðrasveit leikur.
21.30 Dans á tveim svæðum
við Melaskóla. Gömíu- og"
nýju dansarnir.
24.00 Hátíðaslit,
MINJAGKIPIR
í upplýsingadeildum Reýkja-
v'kurkynningarinnar eru tiF
sölu ýmsir min.iagripir. serri -
gerðir haía verið vegna af-
mælisins, svo ,sem, nierki -
Reykjavíkurkynningarinnar á
prjóni, glasabakkar. fyrsta-
dagsumslög, miðar til a'ð líma
á umslög o.fl.
Laugardagur 26. ágúst.
14.00 Sýningarsvæðið opnað.
Lúðrasveit leikur.
15.30 Tízkusýning í Haga-.
skóla i umsjá Tizkuskól-
ans. Stjórnandi: Sigriður
Gunnarsdóttir.
21.00 Kvikmyndasýning í
Melaskóla. Reykjavíkur-
myndir.
21.10 í Hagaskóla: Kvöldvaka
unga fólksins í umsja
Hauks Haukssonar.
Sunnudagur 27. ágúst.
11.00 Guðsþjónuáta í Nes-
kirkju: Séra Jón Thoraren-
sen prédikar.
1 t.00 Sýningarsvæðið opnað.
16.00 Glímusýning á vegum
íþróttabandalags Reykja-
víkur á palli við Melaskóla.
17.00 ÁMelavelli: Handknatt-
leikur, Körfuknattleikur og
knattspyrna karla, Austur-
bær — Vesturbær. —i
Frjálsar íþróttir.
20.00 Lúðrasveit leikur.
Sendinefnd frá
Suður-Kóreu
í fyrradag kom hingað til
lands sendinefnd frá Suður-Kó-
reu, sem verið hefur að und-
anförnu á ferðalagi um Vestur-
Evrópu. Formaður nefndarinnar
er ambassador S-Kóreu í Londonj
Yong Shik Kim. Aðrir nefndar-
menn eru Dong Whan Kim,
herforingi í kóreska hernum, dr.
II Yung Chung, lagaprófessor í
Seoul og Kwang Jun Song. fyrsti
sendiráðsritari í suðui'kóreska
sendiráðinu í London,
Nefndarmenn gengu í gær á
fund forseta íslands, utanríkis-
ráðherra og viðskiptamálaráð-
herra og einnig áttu þeir stutt-
an fund með blaðamönnum.
Sögðu þeir, að fjórar slikar
sendinefndir frá Suður-Kóreu
væru nú á ferð víðsvegar um
heim til þess að kynna land sitt
og þjóð. Munu nefndirnar, alls
heimsækja 84 lond. Báðu sendi-
! meiihirnir blaðaménn að flytja
1 islenzku þjóðinni beztu kyeðjpr,,
og óskir frá þjóð-sinni,___
í fyrrinótt var framið innbrot
í Sælgætisverksmiðjuna Fjólu
Vesturgötu 29 og yöruggymslu
Silla og Valda í sama húsi-: Vap
stolið úr vörugeymslunni tals-
■n-- „£ r\cf rtrtlrlcnírn
• „Yandasöm“
veizluhöld
Viðskiptamálaráðherra, Gylfi
Þ. Gíslason, hefur undanfarið
verið að skýra frá nýjasta á-
hugamáli sínu, en það er að
tjóðra íslendinga í Markaðs-
bandalaginu svonefnda. Aðild-
arríki þessa bandalags verða að
afsala sér raunverulegu sjálf-
stæði í cfnahagsmálum í hcnd-
ur yfirstjórnar bandalagsins, en
þar sitja fulltrúar helztu auð-
hringa Evrópu.
Takmark klíku þcirrar, sem
stjórnar Markaðsbandalaginu,
cr að ná cfnahagslegu og PÓLI-
TlSKU tangarhaldi á aðildar-
ríkjunum. Prófessor Hallstein,
aðalmaður vcstur-þýzka auð-
magnsins í cfnahagssamsteyp-
unni, lýst eðli þessara sam-
taka með eftirfarandi orðum:
„Það eru alls ekki verzlunar-
samböndin sem okkur vantar,
heldur pólitíkin".
Gylfi hefur látið hafa eftir
sér, að það sé al'ar „vanda-
sanit“ að taka ákvörðun um
þátttöku Islands, og vafalaust
þarf ráðherrann að sitja fjöl-
margar „fínar“ ráðstefnur og
veizlur erlendis, áður en málið
verður afgreitt. En hitt heíur
hann þegar gefið ótvírætt í
skyn, að þátttaka Islands verði
talin „óhjákvæmileg“ að lokn-
um veizluhöldunum.
• „Hefði hann aðeins
rófu“
Eitt af hinum vandasömu
undirbúningsverkum ráðhcrr-
ans í þessu máli var að svipta
Alþingi réttinum til að skrá
gengi íslenzku krónunnar. Um
sams konar fyrirætlanir sagði
ráðherrann á Alþingi 1950: „Ég
álít, að það komi ekki til mála,
að Alþingi afsali sér þessum
rctti“.
Með jnngöngu... í markaðs-
bandalagið yrði þessi réttur
raunvcrulcga látinn af hendi
Blaðið liefur Iilerað:
A'f) fluttar hafa veáið um!
350 dráttarvélar UI lsmds-ij
■ ins jiafj seni af er árínjuL-
Flestar nuinu vt-ra gftllilav |
og uppgerðar.. •
við æðstu stjórn þcss, enda
sagði ríkisstjórnin, að þetla
væri til þess að „auðvelda“
þátttöku okkar í Markaðs-
bandalaginu. Flaður ríkisstjórn-
arinnar fyrir herrunum í Mark-
aðsbandalaginu á þannig aft
sýna, að undirgefnina mun ekki
skorta gagnvart væntanlcgum
húsbændum. — Ja, ekki vantar
nú mikið upp á alkunna lýs-
ingu á þessu fyrirbæri: —
„hann gerði allt, sem hundur
kann, hefði hann aðeins rófu“.
En samkvæmt fyrri lýsingi*
forsætisráðhcrra á viðskipta-
málaráðherra, vantar þessa
„kórónu" á sköpunarverkið.
Þcssi klausa birtist í Alþýðu1*
blaðinu s.l. sunnudag. AIls stað-
ar er sama sagan, — „viðreisn-
in“ keraur í veg fyrir nauð-
synlega endurnýjun og áiikn-
ingu framleióslutækjánna. ‘ Nú
verða mcnn að notast við
„gömul og uppgerð" ‘tæki til
þess að halda í horfinu.
í) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 18. ágúst 1961