Þjóðviljinn - 02.09.1961, Qupperneq 5
Sovézkur prófessor gagnrýnir
geimstökk Bandaríkjamanna
Hinn kunni sovézki gcimfcrða-
fræðingur, prófessor Pokrovskí,
hcfur birt grcin í tímaritinu
Ekonomitéskaja Gascta, þar scm
hartn bcr saman geimrannsóknir
Sovétríkjan'na og Bandarikjanna
og gagnrýnir tilraunir hinna síö-
arnefndu að senda menn í stutta
kúlubrautarfcrð upp í háloftin.
Pokrovskí segir m.a.: 1 fjögur
ár hai'a Sovétríkin ög Bandarík-
in nú stundað geimrannsóknir.
Það er ekki úr vegi að bera sam-
an þær niðuStöður sem þau
hafa komizt að,
Fyrstu eldflauginni með fljót-
andi eldsneyti var skotið frá
Sovétríkjunum árið 1933, þegar
menn voru ekki einu sinni farn-
ir að hugsa um eldflaugatækni
til geirm-annsókna í Bandaríkj-
unum. Árið 1957, skömmu eftir
að fyrsta langdræga flugskeytinu
var skotið, voru fyrstu sovézku
'spútnikarnir sendir á loft, en
fyrstu bandarísku gervitunglin
komu árið eftir.
Rokk-hneyksli
Bergen
I erlendum blöðum er þess oft Shepards og Grissoins ,að teljast
getið, að Bandaríkin hafi sent óveruleg. Ferð Gagarins v'ar
fleiri gervitungl á loft en Sovét- áttatíu sinnum lengri en Banda-
ríkin og þetta á að vera sönnun ríkjamannanna og ferð Títoffs
þess að þau standi framar á 1500 sinnum lengri. En fjarlægð-
þessu sviði. En í geimrannsókn- irnar segja ekki alla söguna.
um sínum feta Bandaríkin að-, Leiðir þeirra Gagaríns og Títoffs
eins í fótspor Sovétríkjanna; nið- voru þannig valdar, að geim-
urstöður þeirra hafa aðeins stað- fararnir gátu gert margvíslegar
fest þær niöurstöður sem sov-1 °S mikilvægar tæknilegar og vís-
ézkir vísindamenn höfðu þegar indalegar athuganir á ferðum
komizt að. Á það má einnig sínum. Tilgangur þeirra var m.a.
benda að enda þótt Bandaríkin sá að komast að því hver starfs-
hafi sent fjölmörg gervitungl á geta mannsins sé úti í geimn-
r
I
Bergen 24/8 ■ -ý- Skemmtun
brezka rokksöngvarans Cliff
Richards á íþróttavelli í Bergen
í kvöld endaði með ósköpum og
hneyksli. Skipuleggjendur
skemmtunarinnar ætluðu aldeil-
is að mata krókinn og reiknuðu
með að fá 70.000 norskar krón-
ur (420.000 ísl. kr.) í inngangs-
eyri. Aðgönguverðið var svo
hátt, að aðeins 1000 unglingar
keyptu miða, en 5000 stóðu fyr-
ir utan völlinn.
Skemmtunin hófst of seint.
Eftir 20 mínútur varð söng-
hetjan að leita hælis í kjallara
leiksviðsins undir lögregluvernd.
Varð að kveðja aukið lögreglu-
iið á vettvang til að verja
söngvarann og fylgja honum út
af svæðinu. í öllum bægsla-
ganginum tróðust margir ung-
lingar undir eða voru barðir
niður. Var farið með marga í
sjúkrahús, suma limlesta.
Tapið á skemmtuninni nam
sem svarar 150.000 ísl. kr.
Rokksöngvarinn tók 125.000 kr.
fyrir skemmtunina!
loft, hefur bandarískum vísinda-
mönnum ekki tekizt að leika það
eftir sovézkum starfsfélögum
sínum, að senda eldflaug til
tunglsins eða taka mýndir af
bakhlið þess.
Ekki mikið gagn af
gcimslökkum
Pokrovskí ber saman geimferð-
ir Gagaríns og Títoffs og „stökk“
Bandaríkjamannanna Shepards
og Grissoms upp í háloftin og
segir: „Það verður að líta á
þetta mál frá tveimur hliðum.
Fyrst og fremst hlióta menn að
bera virðingu fyrir hugrekki og
fórnfýsi þeirra Shepards og
Grissoms, ekki sízt þegar haft
er í huga hve óáreiðanleg geim-
tæki Bandaríkjamanna hafa
reynzt.
Athugi maður hins vegar
tæknihlið málsins og vísinda-
legar niðurstöður, hljóta afrek
um. Vitneskja sú sem aflað var
á þessum geimferðum mun
marka allt skipulag sovézkra
geimrannsókna næstu áratugi.
Þarna skiptir mestu máli hvort
tækniútbúnaður geimfara fram-
tíðarinnar á að vera miðaður við
það að hann sé fyrst og fvemst
sjálfvirkur, eða hvort gera á ráð
fyrir að geimfararnir geti sjálf-
ir stjórnað farartækjum sínum
um geiminn.
Mjög mikilsverðrar vitneskju
var aflað á ferðum þeirra Gaga-
ríns og Títoffs og staðfestir hún
að maðurinn getur verið sjálfs
■síns herra á 'ferðum .sínum um
geiminn.
Hæpnax tilraunir
„Geimstökk" Shepards og Griss-
oms stóðu aðeins í nokkrar mín-
útur og á þeim skamma tíma
var þeim á engan hátt unnt að
laga sig að hinum óvenjulegu
skilyrðum og það var heldur ekki
um það að ræða að þeir gætu
leyst nokkrar vísindagátur sem
máli skiptu. Það er því ekki
hægt að líta á „stökk“ þeirra
sem hlekk í þróunarkeðju geim-
vísindanna, og það er reyndar
hörmulegt að stjórnendur banda-
rfskra geimrannsókna skyldu
telja sig nauðbeygða til að stofna
lífi manna í hættu með slíkum
tilraunum sem eingöngu voru
gerðar í auglýsingarskyni".
Margir krssar af
handritnm Ernest
Hemingways
Tampa, Flórida 30/8 — Ekkja
Ernest Hemingways sendi í dag
marga kassa með handritum sem
maður hennar lét eftir sig til
forleggjara hans í New York.
Hún er nýkomin til Bandaríkj-
anna frá Kúbu, þar sem hand-
ritin voru geymd í bankahólfi og
í bústað Hemingways á eynni.
Enn fleiri óútgefin handrit munu
vera í Key West og í Ketchum
í Idaho, þar sem dauðinn sótti
Hemingway heim. Síðar verður
tekin ákvörðun um hvað verður
gefið út af þessum handritum.
Jakuxar frá Tíbet
til S. — Grœnlands
Jakuxinn cr ðökkbrúnn að lit með sterklegan búk og stutta fætur.
I.engdin er allt að 3,5 m og þyngðin 900 kg. Heimkynni hans eru
hásléttur Tíbets, og þar cr hann bæði notaður sem dráttardýr og
cinnig til reiðar, þótt ckki sé hann vakur reiðskjóti. Kjötið þykir
ágætt til manneldis og einnig nota Tíbetbúar mjólkina til drykkj-
ar. Gæran, sem er mjög loðin, er einnig nokkuð verðmæt. — Sem-
sagt mesta nytjaskepna.
Eyddi milljónarfjórðungi
af innistæðu Laxness
Fyrir bæjarréttinum í Kaup-
mannahöfn eru hafin réttarhöld
í máli danska lögmannsins Per
Finn Jacobscn sem ásamt félaga
sínum er sakaður um hin marg-
víslegustu fjármálaafbrot, sjóð-
þurrð, svik, skjalafals o.s.frv. Eitt
af ákæruatriðunuin er að Jacob-
sen hafi cytt 42.000 dönskum
krónum af innistæðu Halldórs
Kiljans Laxness í Danmörku sem
honum var trúað fyrir.
Mál Jacobsens er mjög flók-
- ið — ákæruatriðin eru 23 tals-
ins. — og búizt við að réttar-
höldin standi lengi. Strax í upp-
hafi þeirra boðaði saksóknarinn
að fleiri ákæruatriðum yrði bætt
við syndaregistrið bráðlega.
Saksóknárinn hefur komizt að
þeirri niðurstöðu að fjármála-1
brask Jacobsens — hann var við-
riðinn þrjú útlánafyrirtæki sem
öll fóru á hausinn — hafi kost-
að hann sjálían og umbjóðendur
hans rúmlega milljón danskar
krónur. Margir menn aðrir en
Kiljan hafa orðið fyrir skakka-
föllum vegna óráðvendni lög-
mannsins, m.a. Gunnar Gunnars-
son skáld.
Umsjónármaður tjaldstæða-
svæðis í Tessin hefur sýnt „sál-
fræðilega snilli“, eins og blöð-
in orða það. í starfi sfnu. Sum-
arleyfisgestum, sem skilið hafa
eftir tómar flöskur. dósir og
aimað rusl á tjaldsvæðinu hef-
ur verið semt þetta sama rusl
í póstkröfu og orðið að Ieysa
það út samkvæmt því verði,
sem umsjónarmaðurinn ákvað.
Ilann hafði skrifað niður h.já
sér nöfn og hehniiisföng gest-
anna og fylg/.t nákvæmlega
með umgengni hvers og eins.
Kaupmannahöfn — Akveðið
hefur verið að flytja hina síð-
hærðu jakuxa frá Himalajafjöll-
um til Grænlands, og ala þá
þar sem húsdýr.
Grænlenzka landsráðið hefur
fjallað um tilboð frá dýragarð-
inum í Kaupmannahöfn um að
sjá um að flytja tvö eða fjög-
ur dýr til Grænlands í tilrauna-
skyni. Mikill áhugi er í ráðinu
fyrir þessari tilraun, og talið er
víst að Grænlendingar muni al-
mennt fagna henni.
Forráðamenn dýragarðsins hafa
lagt til að jakuxarnir verði
sendir kunnum fjárbónda, Abel
Christiansen í Eqaluit við Juli-
aneháp, en þarna í Suður-Græn-
landi er loftslag tiltölulega milt.
Bóndinn hefur látið í ljós áhuga
fyrir því að fá dýrin, en Lands-
ráðið mun endanlega úrskurða
hvar dýrin verða stað-sett.
— Jakuxinn er a.m.k. eins
harðgerður og moskusuxinn.
Hann er miklu stærri og gefur
af sér mun meira kjöt en mosk-
usuxinn. Mikil þörf er á því að
auka kjötframleiðsluna á Græn-
landi. Tilraunir með eldi ís-
lenzks sauðfjár og taminna
hreindýra hafa gefið mjög góða
raun á Grænlandi, segir formað-
ur dýragarðsstjórnarinngr, Böje
Benzon.
Það er í raun og veru aðeins
eitt vandamál. 1 Tíbet er ekki
hlýrra en á Grænlandi, en þar
er þurrt meginlandsloftslag, en
á Suður-Grænlandi er veðráttan
rakasöm. Sennilega mun það þó
ekki haía slæm áhrif á jakux-
ana, sem þolað hafa vel rign-
ingar í dýragarðinum í Kaup-
mannahöfn.
■ ■***&&&* ■ -
lbúai; í Jþorpi einu í Adea á
Arabíu.sliiiga yoru fúrðu losí ait'
þcgar tók' aö rigua, iiskóiu jiac
í þorpinu fyrir skömmu. Sióar
kom á daginu að brezk I. ug-
vél hafði varpað 200 pörum af
, ilskóm niður handa sárfæljt-
uin brezkum hermönnum, sem
voru að elta innfa-dda upp-
reisnarmenn. Höfðu Bretarnie
gengið nlður úr skóm sínum
og 'þessvegna komust uppreisn-
armennirnir undan, þar sem
flugvélin varpaði lika ilskón-
um niður á röngum stað.
Snemnia á árinu fannst mál-
verk í Bratislava í Tékkósló-
vakíu, sem listfra*ðingum þítti
líklegt að væri eftir einhvem
kunnan meistara, en listaverk-
ið var óþekkjt. Nú hafa sér-
fræðingar kveðið upp þaun úr-
skurð að málverkið, sem er
kristsmynd, sé eftir ítalska
snillinginn Tizian (1477—1576).
1,8 milljónir króna er verðiS
sem Jolin Flemming, bóksali í
New York, borgaði fyrir fyrstu
útgáfu af „Don Qui.vole“ eft-
ir spænska rithöfundinn Cerv-
antes. Aðeins eru til rgta ein-
tök af frumútgáfu sögunnar á
spænsku, svo ekki er að furða
þótt verðið sé hátt. Flemming-
keypti hókina úr safni spánska
ritliöfundarins Cintas.
S.l. mánudag var rafstraumi
lileypt á kerfið frá stærstu
rafstöðinni í iNoregi sem fram-
leiðir. rafmagn fyrir útlönd
Kafstöðin er í Dalen á Þela-
mörk. Þetta eru raunverulega
fimm raftþöðvar. s.amanlagt
878.000 lulóvött, og hafa kost-
að um milljarð norskra króna.
I»á hafa pólskir bókmennta-
sérfræðingar fundið fyrstu út-
gáfu af .,Hamlet“ eftir Shake-
speare. Þessi fáséði gripuc
fanmjt í Wroclav (Breslau) í
I’óllandi. Bókin er metin á 20f>
þúsund dollara (8,6 milljónie
ísl. króna).
Sainkvæmt frétt frá Banda-
ríkjunum hefur bandaríslc i'lug-
vélaverksmiðja í Kaliforníu
sm'ðað fyrstu farþegaflugvél-
ina, sem flýgur liraðar en
liljóðið. Þetta er þota af gerð-
inni „Douglas DC-8“.
Uppreisnarmenn í Angóla
liafa notað apa klædda í l’öt,
til að villa um fyrir nýlendu-
herjum Fortúgala, segir í fvétt
frá portúgölsku fréttasioíunnr
í Uusitanio. Sendu uppreisnar-
menn apaua fram að víglínu
portúgala, og þegar atliygli ný-
lenduherranna beindist ein-
göngu að þeim, réðusþ upp-
reisnarmenn fram þar sem sízt
var von og litill viðbúnaðnr.
Prestur veldur
draugagangi
Belgísk blöð skýra frá ein-
kennilegum draugagangi, sem átti
sér stað í þorpinu Disón. Þriggja
manna fjölskylda, faðir, móðir og
stálpuð dóttir, varð fyrir heiít-
arlegri áreitni drauga um mið-
nætti á hverri einustu nóttu í
tvö ár samfleytt. Draugagangur-
inn lýsti sér þannig, að barið var
á dyrnar um miðnætti á svo
ofsalegan og draugalegan hátt að
fjölskyldan lá stjörf í rúmum
sínum. Að lokum áræddi fjöl-
skyldan að leita á náðir yfir-
valdanna. Lögreglurannsókn
leiddi í ljós niðurstöðu, sem
margir áttu erfitt með að trúa.
Það kom sem sé í ljós að prcst-
urinn í þorpinu, sem þótti held-
ur mikið upp á heiminn, bjó í
næstu íbúð. Fjölskyldan hafði
ekki sótt messu hjá klerki á
sunnudögum í tvö ár. Það vitn-
aðist einnig, að draugagangurinn
var langmestur á sunnudags-
kvöldum. Var nú gengið hart að
klerki en hann neitaði allri þátt-
töku í draugagangi þessum. En
eftir að lögregluvörður var sett-
ur í íbúð hans, brá svo við að
draugahöggin hættu að hrella
nágranna hans.
Laugardagur 2. september 1961 — ÞJÓÐVILJINN —