Þjóðviljinn - 12.09.1961, Qupperneq 9
KR Islandsmeistarar í 17.
sinn, unnu IA 4 gegn 0
'
11
Björgvin Schram slítur íslandsmótinu mcð ávarpi. Hinii' nýbök-
uðu Islandsmeistarar hlýða á. (Ljósmyndir: Bjarnleiíur)
Á sunnudaginn léku til úr-
úrslita í 1. deild KR og ÍA
og figraði KR með fjórum
mörkum gegn engu. Knatt-
spyrnuunnendur höfðu beð-
ið iengi eftir Ieik þessuni
enda létu þeir sig ekki
vanta á Laugardalsvöllinn
og laetur naerri að þeir hafi
verið um 8 þúsund manns.
Leikurinn var skemmtileg-
ur. en þó ckki cins jafn og
margir höfðu búizt við því
KR-ingar áttu meira i leikn-
um og var sigur þeirra í
alla staði verðskuldaður.
i
Leikurinn.
Það voru Ákurnesingar sem
áttu fýrsta markskotið. Ingvar
skaut en Heimir varði auð-
Véldlega: Litlu 'siðSr er Ellert
í ,.dauðafæri“ á markteig en
spvrnti yi'ir. Fimm mínútúm
síðar spyrnir Örn Steinsen á
mark: knötturinn fer í Ellert
sem stýrði honum framhjá. Nú
voru liðnar 15 mínútur og var
KR-liðið ákveðnara og betur
spilandi og búið að ná undir-
tökunum i leiknum.
Fyrsta mark KR-inga kom á
24. mín. og var þar að verki
Þórólfur Beck sem fékk send-
ingu frá Erni inn við víta-
punkt og sp.vrnti Þórólfur það-
an í mark. Atináð markið ko.m
á 38. mín. en nú var að verki
Ellert Schram, eftir sendingu
frá Erni. Upphafið að marki
þessu var aukaspyrna er Krist-
inn Gunnlaugsson sparkaði aft-
an í hæl Þórólfs, svo hann
varð að fara útaf í 5 mín. til
að jafna sig en áður var Gunn-
ar Felixson búinn að yfirgefa
í 1. deild 196Í voru eftir-
taldir leikmenn sem skoruðu
5 mörk og þar yfir:
; I Mörfe;
Þórólfur Beclú j-SEÍ:’ . H).
Björgvin Daníclsson VaJ 8
Þórður Jónssbn ÍA 7
Steingrimiir Bjiirnsson ÍBA 7
Gúnnar Feiíxson KR 6 ’
Matthías Ásgeirsson Val . 6
Ellert Schram KR 6
Ingvar Elíasson ÍA 5
leikvöllinn í 5 mín. vegna
meiðsla.
í upphafi síoari háifleiks eru
Akurnesingar mun liflegri en i
fyrri hálfleik. en þeim tekst
ekki að ná tökum á leiknum.
Þriðja mark KR-inga kom á
58. mín. er Þórólfur íék á tvo
varnarmenn ÍA og komst einn
innfyrir og sköraði örugglega.
Akurnesingar fengu gott tæki-
færi á 63. mín. er Þórður
Jónsson fékk sendingu ihfifyr-
ir, Heimir kom út á mófi en
Þórður spyrnti í Heimí og
hrökk knötturinp ekki langt
frá Þórði, en þá bar að Bjarna
Felixson sem ..hreinsaði“ frá
markinu. Akurnesingar fe.ngú
annað svipað. tækifæri skömmu
s’ðar en þó ,,hreinsaði‘‘ Hreið-
ar. Fjórða mark KR-inga kom
á 79. mín. og setti Þórólfur
h»ð eftir sendingu frá .Ellerti.
Á. 83. mín. leikxins vísaði dóm-
arinn Skúla Hákonarsyni útaf
vegna óprúðmannlegrar fram-
komu á leikvelli.
90. mínúta — leiknum er
lokið, KR-ingar hlaupa til og
faðma hveriir aðra, við þeim
b'asir bikarinn sem þeir nú
unru i saut.iánda sinn. en hann
Stóð 'til hvatningar i s’ðari hálf-
íeik út við miðlínu ieikvallar-
ins.
Liðin
Lið KR náði oft mjög
skemmtilega vel saman í þess-
um leik og var þetta bezti
leikur þeirra á sumrinu. Sam-
leikur þeirra var oft mjög góð-í>
ur og hinir góðu einstaklingar
liðsins náðu oft mjög vel sam-
an. Mikill styrkur var það fyr-
ir KR að Örn Steinsen sk.yldi
leíka með þeirn á ný. en hann
skapaði oft mikla hættu og
gerði márgt laglegt. Enginn
ieikmaður KR-liðsins átti lé-
legan leik, en mest bar á Þór-
Bræðurnir Gunnar, Hörður og Bjarni Felixsynir ganga brosandi
út af vellinum ei'tir góðan sigur.
Bjarni Felixson og Þórður Jónsson liggja í valnum eftir harðan
árekstur fyrir framan mark K.R.
ólíi Beck, Garðari Árnasyni
og Bjarna Felixsyni.
Lið ÍA náði illa saman í
leiknum, enda ekki skipað jafn
góðum le'ikmönnum sem KR-
liðið hefur. Varla verður Helgi
sakaður um mörkin, þvi þau
voru öll næstum óverjandi.
Beztu mcnn liðsins voru þeir
Gunnar Gunnarsson og Helgi
Danielsson. Leynivopnið Hall-
dór Sigurbjörnss. (Donni) var
ekki jafn hættulegur og hér
áður fyrr. Dómari var Haukur
Óskarsson og dæmdi hann vel.
H.
Lokastaðan
í 1. deild
Lið: Stig: Mörk:
KR 17 33:11
í A 15 17:11
Valur 12 18:13
ÍBA 9 23:23
Fram 6 11:17
ÍBH 1 5:32
í mótinu voru skoruð 107 mörk.
Evrópumet í sundi
Gcrard Herz V-Þýzkalandi
setti á laugardag nýtt Evrópu-
met í 200 m sundi, frjálsri að-
ferð. Hann synti á 2.04.0, sem
er 7 10 betra en það sem hann
átti bezt áður.
Sagt ai
loknu móti
í ræðu þeirri sem Björg-
vin Schram formaður KSÍ
hélt áður en hann afhenti
KR-ingum sigurlaunin gat
hann þess m.a.. að bikar
sá, er nú væri keppt um
í 50. sinn, hefði verið gef-
inn aí knattspyrnufélaginu
Fram árið 1912 og var
hann keyptur frá útlöndum
og kostaði 87 kr., er hefðu
verið miklir peningar í þá
daga.
í fyrsta mótinu þegar
keppt var um bikarinn
tóku þátt þrjú lið: Fram.
Vestmannaeyingar og Fót-
boltafélag Reykjavíkur sem
síðar varð KR og sigraði
KR Fram í úrslitaleik 3:2.
Annars hefði sigur fallið til
félaganna sem hér segir;
KR 17 sinnum, Fram 13
sinnum, Valur 12 sinnurn.
Akranes 6 sinnum og Vík-
ingur 2 sinnum.
Að endingu sagði svo
Björgvin Schram þessu ís-
landsmóti slitið og bað á-
horfendur að hrópa ferfalt
húrra; ekki aðeins fyrir
KR-ingum, heldur öllum ís-
lenzkum knattspyrnumönn-
um, sem og var gert.
Silvester kastðii 64,07
Bandaríkjamaðurinn Jay Silv-
ester setti á laugardag ótrúlegt
heimsmet í kringlukásti, kast-
aði 64,07 nu,á, rnóy í Los Aúg-.
eleíV Dagínn eftir var skýrí frá
Austurríki og
Sovátríkin 1:0
Moskva 10,9 — í landskeppni
í knattspyrnu, er háð vár hér á
sunnudag vann Austurriki Sov-
étrikin 1:0. Markið var skorað í
fyrri hálfleik.
því að metið yrði líklega ckki
viðurkennt þar sem kasthring-
urinn reyndist stærri en löglegfc
,er. Sylvester kastaði kringlu. er
hann fékk að gjöf er hann
keppti í Moskvu í sumar.
Bandaríkjamaðurinn Babka'
c>g Pólverjinn Piatkowski eigsu
enn heimsmetið, 59,91, en
Silvester bíðUr eftir að met
hans, 60,72, verði staðfest.
Noregur og Belgía kepptu f
írjálsum íþróttum um helgina.
og sigruðu Norðmenn með 134
stigum gegn 147,5.
ritstjóri: Frímann Helgason
Þriðjudagur 12. september 1961 — ÞJÓÐVILJINN — (C|