Þjóðviljinn - 13.09.1961, Page 4
BIRTA OG LOFT
Eins og fvrr hefur verið get-
ið hér í blaðinu eru ákvæðin
í Heilbrigðissamþykkt Reykia-
víkur. sem iiaha um heilbrigð-
ishætti vinnustaðanna. ákaflega
ioðin og ófullkomin. Heilbrigð-
isnefnd bæjarins er það í
sjáifsvald sett f flestum tilfell-
um. hvaða kröfur hún vill gera
um vinnuskilyrði og hollustu-
hætti. Er þá mest undir því
komið. hvaða menn veljast til
þessara starfa, hvernig þau
eru rækt og hversu strangar
kröfur eru gerðar. Og þannig
er það einnig annarsstaðar í
landinu. Hér er heilbrigðissam-
þykkt Reykjavikur lögð til
grundvallar, þar sem engin
reglugerð hefur enn verið gef-
in út um þessi efni samkvæmt
lögum um öryggisráðstafanir á
vinnustöðum, sem samþykkt
voru á Alþingi 1952.
í 44. og 45. gr. heilbrigðis-
samþykktarinnar eru ákvæði,
sem fialla um birtu og and-
rúmsloft vinnustaða í iðju og
iðnaði. Þau hljóða svo.:
44. gr.
Séft skal fyrir hentugri og
nægilcgri birtu lianda hverj-
um einstökum starfsmanni
eftir því sem heilbrigðis-
nefnd telur fullnægjandi, og
nægileguni hita, eftir því
sem við á um tegund vinn-
unraar.
i
45. gr.
í vinnustöðvum, þar scm
rekin er atvinna, sem mikið
ryk fylgir, skal vera sér-
stakur útbúnaður til að
soga burtu rykið, enda get-
ur heilbrigðisnefnd þá kraf-
izt meira loftrýmis en á-
kveðið er í 43. gr. (10 rúm-
metrar á mann). Auk þess
getur heilbrigðisnefnd fyrir-
skipað, að starfsfó'.ki sé séð
fyrir sérstökum verjum
gegn óvenju miklu eða skað-
vænu ryki, eða hættulegum
Iofttegundum.
Varðandi þessar greinar
hljóta fyrst og fremst að
vakna þær spurningar, hvað
heilbrigðisnefncj teiur nægjan-
lega birtu, hita og loft handa
hverjum starfsmanni. Eftir
hvaða mati fer hún, bar . sem,
engin samþykkt Víéglugérð er
til að fara eftir í þessu efni
nema heilbrigðissamþykktin
svo ófullkomin sem hún er.
Þegar launamenn i iðju og
iðnaði hugleiða ástandið í hin-
um ýmsu greinum, renna augu
til hinna mörgu og misgóðu
vinnustaða, sem þeir þekkja,
munu margir telja mikilla
breytinga þörf á heilbrigðis-
eftirlitinu. Þeir munu lika
spyrja: Er það talin nægileg
birta á vinnustöðum, sem ein-
göngu hafa málaða eða matta
glugga. svo ekki verður hjá
því komizt að vinna við ljós
um hábjartan sumardaginn?
Eru svotil gluggalausir bíl-
skúrar eða kiallarar með
glusrgaborum neðst við jörð
taidir uppfylla skilyrði um
..nægjanlega birtu handa hverj-
um einstökum starfsmanni“?
Og mundi orðalagið um nægj-
anlegan ,,hita, eftir því. sem
við á um tegund vinnunnar“
merkja það. að hér eigi þörf
verkamannsins sem minnstu að
ráða, heldur. fyrst og fremst
tegund vinnunnar?
í 45. gr., er talað um sér-
stakan .útþúnað. þar sem mik-
ið ryk sé samfara vinnu. Þessi
útbúnaður er að sjálfsögðu vél-
knúin loftræsting, þar sem sér-
fræðingar í þeirri grein hafa
rannsakað og ákveðið hvernig
haga skuli. Auk þess getur
heilbrigðisnefnd gert kröfu tíl
að starfsfólkinu sé séð íyrir
sérstökum vörnum, þar sem
ennþá meiri hætta er á ferð-
um. Hér -er það sem fyrr al-
gerlega á valdi heilbrigðis-
nefndar að ákveða hvort þörf
sé á slíkum útbúnaði og hve-
nær hann skuli tekinn í notk-
un.
Það er augljóst á þessum
ákvæðum og fleirum að þörf
er fullkominnar reglugerðar
samkvæmt lögum frá 1952 og
það sem f.vrst. Auk þess ná-
kvæmrar endurskoðunar á heil-
brigðissamþykktum bæjar-
stjórna, að þv: er snertir holl
ustuhætti vinnustaðanna. Um
þetta geta launþegar miklu
ráðið. En þar til svo skipast
málum, að, reglugerðir þessar
hafa verið út gefnar, geta laun-
þegar þó miklu orkað til bóta
með þv{ að hafa daglegt vak-
andi auga með því að þeim
ákvæðum, sem til eru sé fylgt,
t.d. um að allt, sem að holl-
ustuháttum vinnustaðanna lýt-
ur sé skoðað „ekki sjaldnar en
einu sinni á ári“. Þá fæst úr
því skorið hvað heilbrigðisyfir-
völdin telja sig bera ábyrgð á
í þessum efnum.
Siðar munu tekin til athug-
unar ákvæði heilbrigðissam-
þykktar Reykjavíkur um fata-
geymslur, matstofur, ræstingu
á vinnustöðum o.fl.
st.
Keppinautar guðs
c AUT A VILJA ÞEIR
GLEÐJA
„Harðsperrurnar auka á-
nægjuna“ heitir grein, sem
Morgunblaðið biríi um hús-
næðismál í síðustu viku. Með
greininni voru myndir af hús-
um við Gnoðavog ásamt börn-
um og konum, sem voru þar
að útivinnu. Þar segir líka í
hlakkandi tón: „Karlarnir
þurftu ekki að fara úr vinnu-
göllunum í kvö!d — og raun-
ar ekki sl. mánuð“.
í þessum orðum er ein
sannasta Iýsing, sem gefin
hefur verið á húsnæðismálaá-
standi reykvískra launa-
manna síðustu árin. Þeir sem
af brýnni nauðsyn hafa ráð-
izt í að kaupa eða byggja
hús, hafa margir hverjir
naumast getað farið úr vinru-
gallanum ánun saman. Að
afloknum fu'Ium vinnudegi
hafa þeir orðið að eyða frí-
síundum sínum (illum í húsið,
auk ríflegs hluta svefntímans
oft og tíðum. Þeir hafa svo
sannarSega ekki farið var-
hluta af ánægjunni, sem
Morguisblaðið telur samfara
harðsperrunum. Og þessi á-
nægja hlýtur að dómi Morg-
unblaðsins að fara sívaxandi.
því alltaf fjölgar þeim vinnu-
stundum, sem launamenn
þurfa að vinna fyrir brauði
sínu. Og hinum fjölgar ekki
síður, sem þeir þurfa til þess
að koma húsinu upp eða
ha’da því. Aldrei liafa nein
stjórnarvöld gefið Iaunafólki
tækifæri til slíkrar ofsagleði!
© DÓMUR ÍHALDSINS ER
— DUGLEYSI
í sömu grein segir Morgun-
blaðið: „Bærinn hjálpar þeim,
sem hjálpa sér sjálfir“ og
liefur það eftir gamalli konu,
sem bjó í bragga. Og „það
má til sarms vegar færa“
bæt-ir blaðið við. Naumast
verða þessi unrmæli skilin
öðru vísi en svo að í fyrsta
lagi sé Morgunblaðið að líkja
bæjarstjómarihaldinu við guð
almáttugan og myndi kannski
þykja í djarfara Iagi hjá öðr-
um. Hinsvegar geta þeir sem
búa í bröggum og öðru óhæfu
húsnæði, ekki skilið þessi um-
mæli blaðsins öðru vísi en
svo, að það sé fyrir dug-
leysi og skort á sjálfsbjargar-
viðleitni, sem bærinn hefur
ekki skapað þeim skilyrði til
þess að komast undir heil-
brigt þak. Þá vita þeir það,
og emafremur hitt að ekki
hefur í áratugi breytzt sá
hugur, sem íha'.dið ber til
þeirra, sem lifa á handbjörg
sinni. Og hætt er við að
mörgum trúmanninum þætti
lítill styrkur að guði sínum,
hefði hann aldrei fengið þar
betri úrlausnir tnála en bæj-
arstjórnarihaldið veitir al-
menningi. st.
■ ' ■- • *> U*i**v
■' ■■ 'ii'.'coIA * t\'ii í,i-
■ 'Zfi Mfiðloa ..
• Eru þeir) ? nienn táiinþess?
■ »!A f'ÓÍKCTh:- ;;.
. 1 öllum þeim.y.ej[:ka^ðs£élög-
um, -,sem alþý.#ui|lo^j-}ipfin
stjórna eða þaft.sewi þejv.,S*fa
aðild að stjóvnar£<w.:ii^,ufl.,.sam-
þykktu þeir. að segja -upp
samningum í vor. og.faotfr^m
á þær kauphæWí;aisK,.„.§gm
samþykktar voru. Hvergi varð
þess vart að’. þeir ‘teFdtr'kaup-
kröfurnar of Haar.'“'S'ú’ “h'ála
fulltrúar þeilra! [ V' ifk’ílsijörn
rofið samninga verkalýosfétág-
anna á ný og.sviþf Munþcgana
öllum þeim fiækmjnúm' sem
naðust og hyggja þo jféimlega
á meira. Hvernig ætíalilbýðú-
flokksleiðtogar verkaiiianná að
■ ,, , - r:- ,
verja það fyrir Jaunpegum, að
slíkt ofbeldi sé fiamið'a þeim
og samtökum . þ^írra?, 'ítða
kannski er réttara að . spyrja:
Hvenær ætla leiðtogar verka-
lýðsfélaganna, s.em eru al-
þýðuilokksmenn að ,5þgja við
pólitísku leiðtogaiia: Hingað
og ekki lengra? Hveuær ætla
þeir að stöðva þá geigvsenlegu
þróun, sem nú á ser stað
vegna stefnu Alþýðuflokksins?
Verkalýðsfélagamennirnir hafa
valdið til þess. í sínum hönd-
um. Og það sem almeqningur
spyr um í dag er.þetta: Eru
þeir menn til að beita því til
hagsmuna fyrir Jaunþegana í
landinu? Hörður.
★
• Færeyskir verkamenn
fá Iaunahækkun
Frá 1. júní sl. fengu fær-
eýskir verkamenn 10% launa-
hækkun. Þá gekk í gildi ný
samþykkt um breytta dýrtíð-
arvísitölu. Undanfari þessa
voru verkföllin í fyrrasumar,
málaferli Verknrnannáféíagsins
og barátta Þjóðveldisfíokksins
í Lögþinginu. sem lyktáði með
því að það samþýkkti launa-
hækkunina.
» i
• Of dýr „s:æði“
Eftir 16 ára íbúðai’not her-
bragganna i Reykjavík búa
ennþá 220 fjölskyldur í brögg-
um. Allan þennan tíma hefur
íhaldið lofað útrýmingu bragg-
anna. En nú, þégar bærinn
býður til sölu íbúðir við
Skálagerði og Grensásveg með
hagstæðari lánum en áður þá
eru innan við 20 af íbúum
bragganna. sém sækja. — Það
er of dýrt að njóta „gæða'*
íhaldsins fyrir þá sem ekkert
eiga.
• Húsnæðisokrið er
þyngsti bagginn
í bréfi, sem forseti Alþýðu-
sambandsins ritaði norska Al-
þýðusambandinu fyrir nokkru,
spurði hann m, a. um, hve stór
upphæð af launatekjum iðn-
verkamanns í Noregi færi að
meðaltali í húsaleigu, miðað
við þriggjá hérbergja íbúð.
Svarið var: „Vér viljum á-
ætla að um það bil 15% af
tekjunum fari til húsaleigunn-
ar.“
Á Islandi ei’ hins vegar al-
gengast að 35—50n'o af launa-
tekjunum fari til húsaleig-
unnar. Það væri því hægt
að hækka laun alls þorra laun-
þega um allt að 35% með þvl
að leysa húsnæðis- og bygg-
ingarmálin ipeð hagsmuni al-
mennings fyrir augum, líkt og
gert hefur verið í nágranna-
löndunum.
ij) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 13. september 1961