Þjóðviljinn - 23.09.1961, Qupperneq 5
DANMÖRK LÍTILSVIRÐIR
)9V ypUOJ
SJALFSTJORN FÆREYJA
Danir hafa nú forsmáð
Færeyinga með því að koma
upp hernaðarmannvirkjum
í Þórshöfn án þess að láta
svo lítið að spyrja um álit
Lögþings Færeyinga. Fær-
eyski rithöfundurinn Willi-
am Heinesen hefur krafizt
þess, að danska stjórnin
standi fyrir máli sínu vegna
þessa gerræðis.
Færeyingar hafa oft mótmælt
kröftulega hernaðarmannvirkja-
gerð á landi sínu, þ. e. radar-
stöðvarinnar, sem er hlekkur í
njósnakerfi Atlanzhafsbanda-
lagsins. Lögþingið mótmælti her-
virkjagerðinni hinn 12. maí í vor,
en danska stjórnin hefur ekki
einu sinni svarað mótmælunum.
William Heinesen hefur nú í
grein í Kaupmannahafnarb'aðinu
Information krafizt þess að
danska stjórnin geri grein fyrir
máli sínu bæði gagnvart færeysk-
um og dönskum almenningi.
Þetta er „skuggalegt og dularfullt
við Grœnlend
Lögreglustjórinn á Grænlandi
hefur verið beðinn að rannsaka
norska kæru um valdbeitingu og
rán við Grænland. Norskir sjó-
menn segja að grænlenzkur fiski-
bátur, án nafns og númers, hafi
reynt að ræna veiðarfærum
norska skipsins. Við ránstilraun-
ina hafi verið skotið tveim skot-
um frá grænlenzka bátnum, en
ekki hlautzt sa'mt tjón af því.
Norska fréttastofan NTB segir,
að svipuðum aðferðum hafi áður
verið beitt til þess að reyna að
ræna veiðarfærum norskra fiski-
skipa við Grænland.
Verri iífskiör —
msiri vígbún^iur
Haag — Júlíana drottning í Hol-
landi setti holienzka þingið 19.
þ. m. Skoraði hún á þjóðina að
láta sér lynda að færa efnahags-
legar fórnir á næstunni í þágu
vígbúnaðar Atlanzhafsbandalags-
ins.
Drottningin tilkynnti, að út-
gjöld til hermála myndu ó næsta
fjárhagsári verða tveir milljarð-
ar gyllina (rúml. 5 milljarðar ísl.
kr.). Það er hækkun um 200
milljónir gyllina frá síðasta ári.
mál,“ segir Heinesen. Færeyjar
hafa verið dregnir í hernaðarnet
Atlanzhafsbandalagsins gegn viija
færeysku þjóðarinnar og án þess
að þjóðkjörið þing Færeyinga
hafi verið spurt álits eða fengið
nok.kru um það ráðið.
Heinesen segir, að mótmælin
gegn staðsetningu herliðs og víg-
hreiðra á Færeyjum séu fram
komin af ærinni ástæðu. Fær-
eyingar óttist að land þeirra verði
gert að orustuvelli ef til vopn-
aðra átaka kemur milli stórveld-
anna. Slík vopnaviðskipti myndu
hafa í för með sér útrýmingu alls
lífe á hinu takmarkaða landsvæði
Færevia.
Lögþingið vill ógjarnan að
Færeyjar verði einnig fórnarlamb
hins briálæðislega vígbúnaðar-
kapphlauris, sem er aðalplága
vorra tíma.
— Hugsandi lesendur í Dnn-
m.örku hiíóta við lestur þessarra
lína að freistast til að gera sam-
anburð A Færeyium annarsvegar
og Danmörku oe öðrum löndum
hinsvegar. Við slíkan samanburð
ber að hafa í huga, að færeyska
Lögbirigið -er eina b.ióðkiörna
bingið í heiminum, sem hefur
haft siðferðilegan kiark til að
mótmælá bvf að land bess sé
dregið inn f hernaðaraðgerðir,
sem ekk.i geta leitt til annars en
almennrar tortímingar fyrir báða
aðila, sesir Heinesen ennfremur
í grein sinni.
Belgér Sítl vin-
sælir í Urundi
Usumbura, Urundi — Sl. mánu-
dag fóru fram kosningar í Ur-
undi, sem lotið hefur Belgíu.
„Uþrona-flokkurinn“, -sem er
mjög aridvígur Belgíumönnum,
fékk hreinan meirihluta í kosn-
ingunum.
í Ruanda fara fram kosningar
næsta mánudag. Ruanda-Urundi
er verndargæzlusvæði Sameinuðu
þjóðanna, en Belgíumenn hafa
farið þar með völd í umboði
SÞ. Landið liggur að landamær-
um Kongó, sem áður var belgísk
nýlenda.
1 kosningunum í Urundi hefur
Uprona-flokkurinn fengið 34
þingsæti af 64. Ekki eru þetta
alveg endanlegar tölur, og er tal-
ið að Uprona-flokkurinn bæti
enn aðstöðu sína þegar atkvæða-
talningu er lokið að fullu.
Eldflaugakafbátar við
Færeyjar
— Við erum ekki látnir vita
neitt um málið. Það er því ekki
und.arlegt að við hcfum smámsam-
an orðið dálítið óþolinmóðir, og á-
standið hlýtur stc-ðugt að ala. ó-
hugnanlegar getg.átur um stað-
setningu eldflaugakafbáta i fær-
eyskum fjörðum.
Er það nokkur furða þótt þeim
fjölgi stöðugt, einkum méðal
unga fólksins, -sem finnst þeir
búa við öryggisleysi. Er það
nokkuð undarlegt .þótt þessu fólki
finnist að það sem kallað er lýð- ’1'°S0 er e>tt þeirra Afríkulanda, sem fengu sjálfstæði á síðasta : ri.
ræði, sé stundum erfitt að greina Myndin sýnir minnismerki, er reist var til minnis um stofnun lýð-
frá því sem nefnt er einræði, veldis í Togo 27. apríl 1960. Það stendur á Sjálfstæðistorginu í
höfuðborginni, Lome.
skrifar Heinesen að lokum.
Bandaríkjamenn eru gjarnir á :
að sýjia afkáraskap til ln'óíða- :
brlgða. Fyrir skömmu var ;
haldin afmælisveizla á eynni J
Piuin við strönd Bandaríkj- J
arnut. Veizlan var lialdin úti !
í garði, og til að gera allt sem :
óvenjulegast átti að láta mann J
varpa sér í fallhlíf út úr flug- J
vél og svífa með gríðarstóra J
afmselistertu til jarðar. Fall- J
hTfarmaðurinn átti að lenda !
í miöjum gestahópnum með :
teiúuna. Svo óheppilega tókst J
til, að fallhlifarmaðurinn og. J
tertan lentu um 150 metra J
frá strönd eyjarinnar, og J
drukknaði máðurinn en tertán j
var aldrei borðuð.
★ j
Á rúmlega 500 milljónir doll- J
ara (rúmlega 20 milljarða ísl. [
kr.) er tjónið metið, sem felli- ;
bylurinn „Carla“ olli á strönd- j
um Mexíkflóa. Tjónið í borg- [
inni Calverston einni er metið [
á 200 milljónir lollara.
w :
Á aðvörunarskilti í spennusal J
rafmagnsstöðvar einnar f Nor- :
mandio stendur: „Lífshætta að i
snerta, liáspennuleiðslurnar og ;
er það stranglega bannað. Brot J
á þeim reglum varðar alit að J
18 mánaða fangelsi“.
*
Uppreisnarmenn í Suður-Viet- J
nam felldu í vikunni 75 af her- J
mönnnum stjórnarinuar og J
tr-rði'. 52 í orustu um borgina j
Phuoc Thanah í suðurhhita [
landsins. Uppreisnarmenn [
gerðn óvænt áhlaun á borgina J
og náðu henni á sitt vald. Eft- J
ir hervirldð héldu þeir brott. J
jgemar JohaiKson krafinn uni
eina milljón dollara í skatta
Miami 19 3 — Bandarísku skatta-
yfirvöldin kröfðust þess i dag við
réttarhöld í Miami í Flórída, að
Ingemar Johansson, fyrrverandi
heimsmeistari í hnefaleikum, yrði
dæmdur til að greiða eina
milljón do.Uara (um 43 millj. ísl.
kr.) af ógoldnum sköttum. Skatta-
yfirvöl.din segja að Ingemar
skuldi þetta af þ-eim skatti,
fll sfarfa
Nýi- baTettskóli tekur til
starfa 6. október n.k. í björtum
og rúingóðúm sal að Tjarnar-
g itu 4.
Kennarar við skólann verða
Kristín Kristinsdóttir. Liljá
Hangrímsdóttir, Katrín Guð-
jónsdóttir, Wennie Schubert og
Irmy Tcft, sem allar hafa num-
ið ballett. bæði hér og erlendis
Kenndu- verður ballett fyrir
börn og fullorðna, klukkutíma í
senn tvisvar sinnum í viku.
Fjöldi nemenda í hverjum flokki
verður mjög takmarkaður.
Finnig eru ívrithugaðir léttir
ballett-timar á kvöldin fyrir ung-
ar konur.
sem á hann var lagður vegna
teknanna af hnefaleikaeinvíg.nu,
við Floyd Patterson, núvera.idi
heimsmeistara.
Ingemar heldur því fram, ad
hann hafi undanþágu frá skatti
í Bandaríkjunu.m samkvæmt sér-
stökum bandarísk-svissneskum
samningi. Skattayfirvöldin hófu
málið til þess að fá úr því skor-
ið hvort Ingemar hefði raunveru-
lega búsetu í Sviss eða í Svíþjóð.
Bandarísk yfirvöld leggja á-
herzlu á, að Ingemar hafi byggt
sé íbúðarhús í grennd við Gauta-
borg. Hnefaleikakappinn á einnig
íbúð í Genf.
Jules Moch hættir
ud
3Minanie
París — Jule-3 Moch, fyrrverandi
forsætisráðherra Frakklands og
foringi sósíaldemókrata, hefur
skýrt frá því að hann hafi hætt
störfum sem fulltrúi Frakklands
í afvopnunarnefnd Sameinuðu
þjóðanna. Hann hefur gegnt
þessu embætti síðan 1952. Hann
sagði að ástæðan fyyrir þessu
væri -3Ú, að hann væri óánægður
með stefnu Frakklands í Bizerta-
málinu. Moch sagðist hafa í
hjjggiu að hætta alveg afskiptum
af stjórnrnálum.
YNGSTI
HÁMLET
í HEIMl
Nýlega lék sovézki leikarinn Eduard Martscvitsj, sem er
aðeins 23ja ára gamall, sitt fyrsta aðalhlutverk og þá í
harmleik Shakespcares, Hamlet, í Majakovskí leikhúsinu í
Moskvu. Hann er yngsti leikari sem falið hefur verið þetta
hlutverk. Leikur hans vakti mikla atliygli og við lá að
slegizt væri um aðgöngumiðana. Hér er mynd af Martsevitsj
og sviðsmynd úr öðrum þætti af honum og Svetlönu
Ncmolyanevu sem Ieikur Öfelíu.
Laugardagur 23. september 1961 — ÞJÓÐVILJINN — (^