Þjóðviljinn - 23.09.1961, Page 12

Þjóðviljinn - 23.09.1961, Page 12
23. september 1961 — 26. árgangur — 217. tölublað Myndin er tekin á slysstaðnum við Ndola þar se m fiugvél Dags Hammarskjðlds fórst. Umferðartruflanir víða MOSKVU 22/9 — Krústjoff, for- ssetisráðherra Sovétríkjanna, seg- ir í bréfi til Nehrus, í'orsætisráð- herra Indlands, að sovétstjórnin sé i'ús til að taka upp hvers kon- ar samningaviðræður sem gætu leitt til lausnar á heimsvanda- málunum og þó einku.m viðræður IfJ' íí C.'.J STOKKHÓLMI 22 9 — Frestað hefur verið að senda heim jarð- neskar leifar Dags Hammar- skjölds þar til einhvern tímann í næstu viku. Læknar þeir sem komnir eru þangað til rannsókn- ar hafa ekki lokið henni. Útför Hammarskjölds verður gerð frá dómkirkjunni í Uppsölum, stærstu kirkju á Norðurlöndum, og er nú gert ráð fyrir að hún verði næsta föstudag. um friðarsamninga við Þýzkaland ' og framtíðarstöðu Berlínar. | Sendiherra Sovétríkjanna í ! Nýju Delhi afhenti Nehru bréí'ið j í gær og TASS-fréttastofan birti það í dag. Bréfið er svar við þeim tilmælum sem Nehru flutti sovétstjórninni frá ráðstefnu hlutlausu ríkjanna í Belgrad. Krústjoff segir í bréfi sínu að það myndi auðvelda lausn deilu- málanna í Evrópu ef öll ríki sem enn hefðu ekki viðurkennt bæði þýzku ríkin gerðu það og tækju upp eðlilegt samband við þau. Sama máli myndi gegna um upp- töku beggja þýzku ríkjanna í SÞ. Þá segir í bréfinu að sovét- stjómin líti sömu augum á á- standið í alþjóðamálum og ráð- stefna hlutlausu ríkjanna gerði og hún virði mjög samþykktir hennar um nýlendustefnuna. Samhljóða bréf hafa verið send öðrum stjórnarleiðtogum sem sátu ráðstefnuna í Belgrad. af völdum bifreiðasala Eifreiðasölur spretta nú upp eins og gorkúlur á haug hér í Reykjavík og valda víða miklum umferðatruflunum, sagði Alfreð Gíslason bæjarfulltrúi Alþýðu- bandalagsins, er bílasölur í bæn- um komu til umræðu á bæjar- stjórnarfundi í fyrradag. Bílasölurnar í bænum urðu um- ræöuefni á bæjarstjórnarfundin- um vegna eins töluliðar í fundar- gerð bæjarins frá 15. september sl., en á þeim í'undi var lagt fram bréf umferðarnefndar vegna umsóknar Ragnars Aðalsteinsson- ar og. Svans Vilhjólmssonar uih leyfi til að reka bifreiðasölu við Lindargötu, þar sem áður var bifreiðastöðin Bifröst. Umferðar- nefnd gerði það að tillögu sinni að veitt yrði bráðabirgðaleyfi til sölunnar með skilyrðum og var sú tillaga samþykkt í bæjarráði með 3 atkvæðum gegn 2. Á bæjarstjórnarfundinum í fVrradag benti Alfreð Gíslason á að við Líndargötuna innst, við Frakkastíg, væri þegar fyrir bif- reiðasala og því varhugavert að leyfa fleiri slík fyrirtæki á þessu svæði. Einar Thoroddsen, bæjarfulltrúi íhaldsins sem sæti ó í umferðar- nefnd, viðurkenndi að bifreið- asala sú sem Davíð Sigurðsson ræki við Frakkastíg og Lindar- götu væri þar án þess nokkurt leyfi hefði verið veitt fyrir henni, en umferðarnefnd hefði séð yfir þétta leyfisleysi, eins og Einar orðaði það, ekki talið rétt að amast við bifreiðasöiu mannsins þarna meðan hann væri að kom- ast yfir samastað til frambúðar annarstaðar. Tveir íhaldsfulltrúar til viðbót- ar tóku til máls við umræðurnar, Björgvin Frederiksen og Páll S. Pálsson. Björgvin lýsti sig mót- fallinn því að leyfð yrði staðsetn- ing nýrrar bifreiðasölu við Vita- torg eða þar í grennd, enda hefði annað mótatkvæðanna í bæjar- ráði verið sitt. Páll taldi orðið fulla þörf á að sett yrði löggjöf um bifreiðasölu og þá sem hana stunduðu. Misjafn sauður virtist vera í þessari sölumannastétt. Samþykkt var að loknum um- ræðum að fresta ákvörðun bæjar- stjórnar eða staðfestingu á leyf- inu til bifreiðasölunnar á fyrr- greindum stað. NEW YORK 22 9 — Allsherjar- þing SÞ hóf í dag hinar almennu umræður sínar um alþjóðamál og minntust flestir ræðumanna á tilraunirnar með kjarnavopnin og lýstu yfir andstöðu sinni við þau. Fulltrúar Brasilíu, Japans og Kambodsja kröfðust þess allir að tilraunirnar væru stöðvaðar og •samningar teknir þegar í stað upp aftur um bann við þeim. Adúla segist^ taka til sinna ráda móti Tshombe í Katanga LEOPOLDVILLE 22/9 — Sambandsstjórn Adúla í Leo- poldville lýsti yfir í dag aS hún teldi sig nauöbeygöa til jaö taka til sinna eigin ráöa til aö binda endi á skilnaö Katangafylkis frá öörum hlutum Kongó. Adúla hefur sent æðsta manni SÞ í Kongó, Svíanum Sture Linn- er bréf þar sem hann gagnrýnir samning SÞ við Tshombe um vopnahlé í Katanga. Adúla leggur áherzlu á það í bréfi sínu til Linner að stjórn hans hafi skuldbundið sig til að halda uppi lögum og rétti í land- inu öllu og því hljóti hún að taka til sinna eigin róða til að binda endi á skilnað Katanga- fylkis frá öðrum hlutum lands- ins. Fyrr um daginn hafði Adúla gefið Kongóher fyrirskipun um að vera við öllu búinn og væri stjórn hans staðráðin i að láta hart mæta hörðu í Katanga. Kongóþing kom saman á lok- aðan fund í dag. Adúla forsætis- ráðherra, Gbenye innanríkisráð- herra og Bomboko utanríkisráð- herra gerðu grein fyrir ástand- inu í Katanga. Vestrænir heimsvaldasinnar áttu sölt á dauða Hammarskjölds Ráðhcrrai^ í Kongóstjórn fara ekki dult með þá skoðun sína að ve-strænir heimsvaldasinnar hafi valdið dauða Hammarskjölds. Lögreglumenn Tshombe í El- isabethville beittu kylfum og öðrum vopnum til að hrinda á- hlaupi mörg hundruð manna af Kasaistofni sem leituðu inn í borgina í leit að mat. Þeir hafa hafzt við í búðum sem SÞ hafa komið upp fyrir utan borgina og hafa þar verið um 30.000 manns. Hið hungraða fólk réðst á mat- vöruverzlanir og rændi þær. Margt af því kvaðst reiðubúið að borga fyrir matinn. O’Bricn kvaddur frá Kongó? Orðrómur gerigur urn það að fulltrúi SÞ í Katanga, írinn Con- or O’Brien, sem talinn er hafa átt mestan þátt í að gæzluliðið lét til skarar skríða gegn Tshom- be, hafi verið kallaður tii New York. Talsmaður framkvæmda- stjórnar SÞ í New York hefur Framhald á 3. síðu. stoina járnið Manna á milli hefur verið umtal um það hvér hafi keypt stolna járnið sem skýrt var frá í blöðum í gær. Hefur Þjóðviljinn frétt að það hafi verið Einar í Sindra sem keypti stolna járnið, en vegna þess að lögreglan gaf það ekki upp gætu fleiri fyrir- tæki vérið grunuð um það. Kjarnzsprenging í Sovétríkjunum WASHINGTON 22/9 — Banda- ríska kjarnorkumálanefndin til- kynnti í dag að Sovétríkin hefðu •sprengt enn eina kjarnasprengju við Novaja Semlja, og væri það 15. kjarnasprenging þeirra sfðan tilraunirnar með kjarnavopn hóf- ust aftur. Styrkleiki sprengjunnai var um eitt megatonn. Afmœlishóf í tilefni fimmtugsafmælis Egg'- erts Þorbjarnarsonar hefur Æskulýðsfylkingin ákveðið að gangast f.yrir fagnaði í Tjarnar- café þriðjudaginn 26. septem- ber. og hefst hann kl. 20.30. ÁskriítaJistar liggja frammi í skrifstofum Æsku'lýðsfylkingar- innar og Sósíalistafélags Reykja- víkur, s'mar 17513 og 17510, og í Bókabúð Máls og menningar, sími 15055. HÁSKÓU ISLAN0S UNIVERSITAS fSLANDIAE f,h' < i c < - ' " i ' ,' ; ; '• i'i.JiMti" ; i:/'///'!;1;/: á.;.i ; ÞRJÚ HÁSKÓLAFRÍMERKI VERM GEFIN ÚT 6. OKTÓBER n. k. I tilefni af því, að 50 ár eru iiðin frá stofnun Háskóla Íslands mun póst- og síma- málastjórnin gefa út þrjú ný fr'merki hinn 6. október n.k. Eitt frímerkið er með mynd af Benedikt Sveinssyni, brúnt að lit, verðgildi 1 króná. Upplag er 2 milljónir. Annað merkið er með mynd af Birni M. Olsen, fyrsta rektor Háskóla íslands, biátt að lit, verðgildi kr. 1,40. Uppiag þess er 1,5 milljónir. Þriðja frímerkið er með mynd af háskólabyggingunni, grænt að lit, verðgildi 10 krónur. Upplag þess er 750 þúsund. Sama dag og hin nýju frí- rnerki koma út. verður gefin út minningarblokk í 500 þús- und eintökum. í blokkinni (sjá mynd) verða ofangreind frímerki og söluverð hennar samanlagt verð frímerkjanna, kr. 12,40. Nýju frímerkin eru prent- uð í Sviss.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.