Þjóðviljinn - 06.10.1961, Side 6

Þjóðviljinn - 06.10.1961, Side 6
þlÓOVIUINN Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. — Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.), Magnús Torfi Ólafsson, Sigurður Guðmundsson. — Fréttaritstjórar: ivar H. Jónsson, Jón Bjarnason. — Auglýsingastjóri: Guðgeir Magnússon. — Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðust. 19. Sími 17-500 (5 lítiur). Áskriftarverð kr. 50,00 á mán. — Lausasöluverð kr. 3.00. Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. Háskóli íslands ¥ dag minnist Háskóli íslands hálfrar aldar afmælis. Stofnun háskólans var veigamikill þáttur í sjálf- stæðisbaráttu landsmanna, og háskólinn hefur eflzt og þroskazt á þessari hálfu öld og látið æ fleiri þætti æðri mennta og rannsókna til sín taka. Margir mikil- hæfir menn hafa valizt til stárfa við háskólann og stendur þjóðin öll í mikilli þakkarskuld við þá fyrir unnin afrek. T|Æeginverkefni háskólans -hefur að sjálfsögðu orðið það að þjálfa hverskyns embættismenn og sérfræð- inga til starfa. En þótt það sé ærið verkefni og miklu skipti að það sé vel af hendi leyst, er hitt þó aðalatriði að háskólinn láti æ meira til sín taka í sjálfstæðum vísindarannsóknum, að þar sé stunduð af kappi hin eilífa leit að sannleikanum af dirfsku og víðsýni eins og beztu menn háskólans hafa gert. Þjálfun embættis- manna má aldrei verða að neinu lokatakmarki í skól- anum, né heldur mega fjáröflunaraðferðirnar verða að marki í sjálfu sér, eins og sumum virðist hætta á þegar það nýmæli er áþreifanlegast á afmæli háskól- ans, að hann heíur opnað nýtt kvikmyndahús handa bæjarbúum og varið til þess geysiháum upphæðum sem stofnanir háskólans þurftu þó mjög á að halda. ¥|að verkefni sem Háskóla íslands ber umíram allt að rækja er vísindarannsóknir í norrænum fræð- um. Það er skylda okkar, og þá skyldu eigum við að geta rækt öllum öðrum betur; á þessu sviði getur Há- skóli íslands unnið sjálfstæð afrek og verið veitandi en ekki þiggjandi í menningarsamskiptum þjóðanna. Mörg stórvirki hafa þegar verið unnin á þessum vett- vangi, en þó vantar mikið á að Háskóli íslands sé enn orðin sú miðstöð og háborg norrænna fræða sem hann þarf að verða. Nærtækasta verkefnið um þessar mundir er það að sett verði á laggirnar öflug stofnun, þar sem ynnið verði af kappi að rannsókn- um og vísindalegum útgáfum á íslenzkum handritum, hvort sem við fáum þau í hendur fyrr eða síðar. Við höfum um langt skeið barizt fyrir því að endurheimta ihandrit þau sem varðveitt hafa verið í Danmörku, en eina röksemd andstæðinga okkar sem undan hefur sviðið er sú, að hætta væri á því að vísindaleg starf- semi setti ofan ef miðstöð hennar yrði í Reykjavík. Þá röksemd þurfum við að kveða niður í verki án taf- ar, og þess er að vænta að stjórnarvöld landsins og ráðamenn háskólans sameinist um að koma slíkri stofn- un á legg í samræmi við þær hugmyndir sem mynd- arlegastar eru. Sjálfsagðári áfmælisgjöf gæti háskól- inn ekki fengið, og mikið væri hægt að gera fyrir .and- virði svosem eins kvikmyndahúss. ¥afnhliða þeim verkefnum sem tengd eru sögu okkar " og sjálfstæðri menningu þarf Háskóli íslands að fá sívaxandi aðstöðu til þess að stunda rannsóknir á náttúru íslands og náttúruauðæfum; einnig þar eru verkefni sem við íslendingar verðum sjálfir að vera menn til þess að glíma við. Einnig þarf hásikólinn að hafa tök á að fylgjast sem bezt með þeirri gerbyltingu á sviði raunvísinda og tækni sem einkennir okkar tíma, sinna sjálfstæðum verkefnum eftir því sem aðstaða okk- ar leyfir og gera íslendingum kleift að hagnýta með sem skjótustum hætti uppgötvanir annarra. Ef vel á að vera hljóta raunvísindi að verða sívaxandi þáttur í starfsemi háskólans á komandi árum. /¥11 þjóðin samfagnar háskólanum í dag og þakkar það sem vel hefur verið unnið í hálfa öld. En öllu máli skiptir að á þessum tímamótum sé horft fram á veginn. — m. I I I I I 1 I 1 1 I I 5 I I I s s I a i i i i i g i i 6 6 B I I I I I I B B B 5 I B 1 I B a B B I I B I « úr Háskólanum í dag er minnzt hálfrar aldar afmælis æðstu menntastofnunar landsins, Háskóla íslands. Skól- inn var sem kunnugt er settur í fyrsta sinni á ald- arafmæli Jóns Sigurðssonar, 17. júní 1311, en kennsla hófst 1. október þá um hausíið. Nýbyrjaöir læknanemar hlýða á fyrirlestur í I. kennslustofu Háskólans. 1 Bóksölu stúdenta er jafnan mikið að gera í byrjun skólaársins. ur við afgreiðslu þar. Hér sjást tvær ungar stúdín- Er að skrifa bók am Meðal þeirra erlendu vísinda- manna, sem sæmdir verða dokt- orsnafnbót í tilefni af hálfrar aldar afmæli Háskóla íslands er prófessor G. Turille-Petre í Oxford, sem mörgum Islend- ingum er að góðu kunnur, bæði vegna rita hans um íslenzkar fornbókmenntir og af veru hans hér á landi. Prófessor Turville- Petre kom hingað til Reykja- víkur í fyrrinótt ásamt konu sinni Joan og átti fréttamaður frá Þjóðviljanum stutt tal við þau í fyrradag að Hótel Borg, þar sem þau hjón búa meðan á heimsókn þeirra stendur. Prófessor Turville-Petre er hámenntaður maður í norræn- um fræðum og talar ágæta ís- lenzku og kona hans talar einn- ig íslenzku, þótt hún hafi ekki fengið eins mikla æfingu í mál- inu og maður hennar. — Hvað munuð þið dvelja lengi á íslandi að þessu sinni? — Við verðum í hæsta lagi tvær vikur, segir Turville- Petre. Við erum bæði mjög tímabundin. Kona mín kennir einnig við háskólann í Oxford. Ég fékk leyfi frá háskólanum, 'bæði til þess að fara hingað og vera við afmælishátíðina og einnig til að fara til Noregs, þar sem ég á að halda nokkra fyrirlestra. — Heldurðu fyrirlestra hér við háskólann núna? — Nei. Ég á • að flytja ræðu á hátíðinni, en ég flyt ekki íyrirlestra við háskólann. Ég gerði það fyrir fjórum árum. — Hafið þið komið o£t áður til íslands? — Ég hef komið hér rnjög oft, segir prófessorinn. Ég kom hingað fyrst árið 1928 til þess að læra málið. Svo dvaldi ég hér í tvö ár sem kennari í ensku við háskólann. Það var 1936-1938. Svo hef ég líka ferð- azt mikið um landið. Frú Tur- ville-Petre segist einnig hafa komið nokkrum sinnum til Is- lands og ferðazt talsvert hér um. Kom hún fyrst hingað ái’- ið 1932. — Hefurðu verið prófessór lengi við Oxfordháskóla? Setning háskólans 17. júní 1911 hófst kl. 12 á hádegi og fcr athöfnin frani í sal neðri deildar Alþingis. Boðsgestir sátu í salnum, en almenning- ur, eftir því seni inn konist, í Iiiiðarherbergjum. Klemens Jónsson landritari og Björn M. Ólsen fyrsti rektor Há- skóla Islands fluttu ræður og sungið var kvæði eftir Þor- stcin Gísiason ritstjóra. Auk rektors áttu þessir menn sæti í hinu fyrsta há- ' skólaráði: Lárus H. Bjarnason prófessor, Guðmundur Magn- ússon prófessor, Jón Iíelgason prófessor og Ágúst H. Bjarna- son prófessor. Saga Háskóla íslands verð- nr aðeins rakin hér í örstuttu máli, enda kemur nú á niark- að þessa dagana rit um sögu skólans sem dr. Guðni Jóns- son prófessor hefur samið samkvæmt ósk háskólaráðs. Er þetta 19 arka bók með mynd- um. Fyrsti vísir að háskóla hér á landi var Prestaskólinn sem tók til starfa um 1847. Þá var seííur upp Iæknaskóli árið .1876 og lagaskóli var stofn- aður 1908. Þegar Háskóii ís- Iands var stofnaður 1911 mynduðu þessir þrír skólar þrjár deildir hans, guðfræði- déild, læknadeild og lagadeild en jafnframt var bætt við heimspekideild. Háskólabyggingin á Melun- um var fyrst tekin í notkun árið 1940 en þangað til hafði skólinn samastað í Alþingis- húsinu. Með háskólabygging- unni liófst nýtt tímabil í sögu skólans, hægt var að auka starfsemi hans og fjölga kennslugrcinuni. Komið var npp rannsóknarstofum og kapellu og bókasafn skólans fékk þak yfir höfuðið. Nú er — Ég er búinn að vera próf- essor í 8 ár, ep áður var ég ritari við háskólann. Ég kénni norrænu við enskudeildina. Stúdentarnir mega taka upp í þrjár greinar í norrænu eða píún þriðja alls prófsins, ög suípir jstúdentárnir skrifa einni g ritgérðir um þéssi efni. Þeir byrja á norrænunáminu á öðru ári og stunda þau fræði í 2—3 ár. — Hvað er það, sem stúdent- arnir eru látnir lesa í þessum fræðum? — Pyrst er byrjað á málfræði og svo eru lesnir textar, tals- vert af íslendingasögum og Eddukvæðum, einnig Fornaldar- sögur og svolítið af Biskupa- sögum. Þeir sem taka þrjár greinar lesa allar helztu sög- urnar, Njálu, Eirbyggju, Gísla- sögu og fíeiri. Þeir sem aðeins taka tvær greinar lesa auðvitað minna. Höfuðatriðið er að kenna þeim málið, og þá geta þeir auðvitað sjálfir lesið meira seinna. — Eru norræn fræði kennd víða við háskóla í Bretlandi? — Éitthvað í flestum háskól- byggingin hins vegar orðin of lítil og verður hluti kennslu að fara fram í öðru húsnæði. Kennsla var hafin í verk- fræöi við skólann 1940 og verkfræðideikl varð fimmta deild Háskólans 1944. Árið 1941 var stofnuð sérstök við- skiptadeild innan lagadeildar og 1942 hófst kennsia í ýms- um greinum undir B.A. próf innan heimspekideildar. Þá var stofnuð sérstök tannlækn- ingadeild innan læknadeildar 1945 og lyfjadeild innan læknadeildarinnar 1957. í ' núverandi Háskólaráði eiga sæti þeir prófessor Ár- mann Snævarr núverandi rektor, próf. Þórir Kr. Þórð- arson forseti guðfræðideildar, próf. Kristinn Stefánsson for- seti læknadeildar, próf. Ólaf- ur Björnsson forseti laga- og viðskiptadeildar, próf. Matt- hías Jónasson forscti heim- spekidéildar og próf. Leifur Ásgeirsson forseti verkfræði- deildar. Alls cru 35 prófessorar viö Háskóla íslands. Auk þeirra kenna við skólann 22 lektorar, 8 erlendir sendikennarar og 23 stundakennarar. Stúdentaráð Háskóla íslands er kosið af háskólastúdentum. Núverandi stjórn þcss skipa Hörður Sigurgestsson formað- ur, Örn Bjarnason ritari og Jóhannes L. Helgason gjald- keri. Stúdentaráð vinnur að liagsmunamálum síúdenfa, rek- ur bóksölu, kaffistofu, skipu- Jeggur ferðir og skemmtanir og sér um vinnumiðlun fyrir stúdenta. Fáeinar svipmyndir úr starf- inu í Háskólanum birtast hér á síðunni í dag. Ljósmyndari Þjóðviljans, Ari Kárason tók myndirnar nú I vikunni. Prófessor Steingrímur Baldursson útskýrir dæmi í efnafræði. Prófessor Hreinn Benediktsson kennir ncmendum í íslenzkum fræðum gotneska málfræði. Prófessor G. Turville-Petre og frú. um bæði í Bretlandi og eins í Ástralíu og Nýja-Sjálandi. Ég hef haft mjög góða nemendur frá Nýja-Sjálandi. — Er nútíma íslenzka kennd við enska háskóla? — Það er farið að kenna hana í London. Ég hef stundum kennt stúdentum nútíma ís- lenzku í einkatímum, þeim sem hafa beðið um það. Það eru einkum þeir, sem ætla að fara til íslands, annað hvort til náms eða til þess að ferðast hér um. Núorðið koma hér um bil á hverju ári einhverjir enskir stúdentar til náms við háskól- ann hér í Reykjavík. — Er gott safn íslenzkra bóka til í Oxford? — Við höfum dálítið íslenzkt bókasafn, m.a. bækur Guð- brands Vigfússonar. — Eigið þið mikið af síðari tíma bókum íslenzkum? — Nei, ekki háskólinn. en ég á sjálfur heilmiltíð. 'Kárinski fæi' hann það eftir minn dag. — Hefurðu lagt mikla stund á síðari tíma íslenzkar bók- menntir? — Ég hef að minnsta kosti lesið mikið, kannski mest mér til ánægju. — Þú hefur ritað mikið um norræn fræði, einkum bók- menntasögu. Hver eru helztu verk þín á því sviði? — Ég hef skrifað nokkrar bækur og fjölda greina. Helztu bækurnar eru Oregins of Ice- landic Titerature, The Heroic Age of Scandinavia og Víga- Glúmssaga, sem ég gaf út og samdi skýringar við. Ég samdi b'ka og gaf út skýringar við Hervararsögu. Þá hef ég snúið nokkrum íslenzkum bókum á ensku. t.d. Guðmundar sögu góða og ,bók oftir prófessor Ein- ar ö'(af Sveinsson,., sem ekki hefur komið út á ísienzku. Núna er ég að fásí við hók um norræna goðafræði. — Verður það stór bók? — Jú, þetta á að vera mikil bók, um 140 þúsund orð. Við rpiknum al.lt út í orðum í Eng- lanrii. Bókin á að verá tilbúin í lok næstá árs. — Ég er einn- ig búinn að skrifa mikið um heimildir, heimildagildi forn- rita, t.d. ver kSnorra Sturluson- ar, Danasögu Saxa, Eddukvæð- in o.fl. — Hvenær fékkstu f.yrst á- huga fyrir þessum fræðum? — I sk.óla. Það kom af bví, að ég fór að lesa sögurnar í þýðingum eftir William Morris og fleiri. — Hefurðu ekki einnig dval- izt mikið á hinum Norðurlönd- unum? — Jú, ég hef ferðazt alimikið um þau. Hef dvalið í Danmörku til bess að lesa handrit. í Sví- þióð var ég fyrir tveim árum og ferðaðist mikið bar um. — En hefurðu verið í Fær- eyiurn? — .Tó. ég var ti’ma í Færeý.i- um. Var bar 3 eha fíóra mán- u5'i T>aö var mjög gaman að vera bar. — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur. 6. október 1961 ;.t. Föstudagur 6. október 1961 — ÞJÓÐVILJINN — (JJ

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.