Þjóðviljinn - 06.10.1961, Síða 9
Það vakti ekki ,litla athygli
um daginn þegar það fréttist
að sundmaður frá Brasilíu hefði
blandað sér alvarlega inn í
baráttuna um toppárangur í
sundi. Þó nefnd hefðu verið
nöfn eins og Didi, Pele, Garr-
ineha eða Gilmar í sambandi
við knattspyrnu, hefði enginn
orðið hlessa eða undrandi.
Þessi ungi maður sem hsit-
ir Manoel dos Santos setti sem
sé heimsmet á 100 m skriðsundi
og var árangurinn 53,6 sem er
frábær árangur.
Sportsmanden segir þannig
frá afreki þessu og mannin-
um:
Hinn frábæri sundmaður frá
Brasilíu, Manoel dos Santos,
Dos Santos
setti í gærkvöldi nýtt heimsmet
á 100 m skriðsundi á hinum
ágæta tíma 53,6.
Gamla metið var 54.6 og var
sett af Ástralíumanninum John
Dewit. Siðan hefur Bandaríkja-
maðurinn Steve Clark synt
vegalengdina á 54,4, en þessi
árangur hefur ekki verið stað-
festur sem met. Aðeins 200
menn voru viðstaddir þegar
metið var sett. Blaðið segir að
þessi tími 53,6 virðiát ótrúleg-
ur, en um mann þennan sem
stendur á bak við þetta nýja
met, er það að segja að hann
er ekki nýr sem toppmaður í
sundi.
f undanrásum í Róm í fyrra
svnti Manoel 100 m á 56,3 —
Lance Larson synti á 55,7 og
John Dewitt á 56,0. í undan-
úrslitum var röðin sú sama, og
í úrslitunum voru þessir þrír
fyrstir lika: 55,2 55,2 — og
55.4.
Þá þegar hafði þessi ungi
Brasilíumaður sýnt að hann
var einn af snjöllustu sund-
mönnum heims. Þessu fylgdi
hann eftir sama ár með því að
komast í fyrsta sæti á meist-
aramótinu í Japan.
í úrslitunum var dos Santos
aðeins 2/10 úr sek. á eftir í
keppninni í Róm, en samt sem
áður munu það ekki hafa ver-
ið margir sem veittu honum at-
hygli. Keppnin milli hinna
tveggja sem unnu hann varð
hin sögulegasta í öllurh leikj-
unum. og eru þá allar íþrótta-
greinar meðtaldar.
Þegar keppninni lauk og
storminn kringum sundlaugina
hafði læg't. var ekki neinn á-
horfandi í vafa um það að
Bandaríkjamaðurinn hefði
unnið, Dewitt óskaði Larson
til hamingju. og hann lá í vatn-
inu og synti fram og aftur og
beið eftir hinni opinberu til-
kynningu um sigurinn.
En þá skeði það ótrúlegasta.
Dewitt var dsemdur sigurinn;
og dómi þessum hefur aldrei
verið breytt, þrátt fyrir það að
kvikmyndir sem framkallaðar
voru síðar sýndu að hann var
í öðru sæti.
En bak við þessa tvisýnu
keppni, maður gegn manni,
hafði ungur suðurameríku ■
maður fylgt eftir eins og
skuggi, og í dag stendur hann
sem sigurvegari, sem hefur
stórbætt heimsmetið.
Listinn yfir 10 beztu sprett-
sundmenn til þessa litur þann-
ig út;
1. 53,6 Manoel dos Sandos
Brasih'a 1961.
2. 54.4 Steve Clark Banda-
ríkin 1961.
'3. 54.6 Dewitt Ástralía 1957.
4. 54,3 Jeff Farell Bandarík-
in 1960.
5. 55,0 Lance Larson Banda-
ríkin 1960.
6. 55,0 Dave Lyons Banda-
rikin 1961.
7. 55.1 Joe Alkirk Banda-
r’kin 1960.
8. 55.1 Jim Spreizer Banda-
ríkin 1961.
9. 55.4 John Henricks Ástr-
alía 1956.
10. 55,4 Fu Ta-Shin Kína
1961.
Sundæfingar Í.B.K. í Kefla-
vík hefjast fimmtudaginn 5.
október. Hinn kunni sundmaður
1R, Guðmundur Gíslason mun
verða þjálfari fyrri hluta vetr-
ar, og er þess vænzt, að þeir,
sem hafa hugsað sér að sækja
sundæfingar i vetur, mæti þá
strax.
Æfingar verða, sem hér segir:
Mánudaga kl. 6,30 til 8,00
Fimmtudaga — 6,30 — 8,00
Föstudaga — 6,30 — 8,00
Iþróttabandalág Keflavíkur.
Sundæfingar [R
Sundæfingar sunddeildar ÍR
hefjast mánudaginn 9. október.
Þjálfari verður eins og áður,
Jónas Halldórsson.
Æfingar verða á:
Mánudögum kl. 6,45 — 8,15
Miðvikudögum kl. 6,45 — 8,15
Föstudögum kl. 6,45 — 7,30
Mætið vel og stundvíslega.
Nýir félagar eru beðnir að
mæta til skráningar, ekki seinna
en fimmtán mínútum fyrir aug-
lýstan tíma. Sunddeild ÍR.
Glíma er víðar stunduð en hér á íslandi. Þessi inynd sýnir kór-
eyska æskumenn glíma og í skýringum með myndinni er sagt að
glíma sé mjög vinsæl íþrótt meðai unga fólksins í Kóreu.
j • Moskva 4/10 — Valerij
■ Brumel stökk 2,22 m í há-
• stökki á íþróttamóti í Tbilsi
> í gaer. Hann hafði litla
■ keppni. Baltusjinkas vann
■ kringlukastið 57,93 og er það
: nýtt sovézkt met. Sjelkanova
| stökk 6,56 m í langstökki og
j er það 8 cm styttra en heims-
; met hennar.
■
■
■
■ ® Listinn yfir hnefaleikarana
j í þungavigt í dag: heimsmeist-
■ ari Fioyd Patterson. síðan
j koma: 1. Henry Cooper Eng-
: land. 2. Ingemar Johannson
■ Sv.'þjóð, 3. Eddie Machen
j USA, 4. Lavoranta Argentína,
■ 5. Cleveland Williams USA,
: 6. Cleoux Kanada. 7. Folley
■ USA, 8. Erskine England, 9.
■
■ Chuvalo Kanada og í 10.
j sæti er Tom Mcneeley USA
■ en hann á að keppa við Patt-
: erson í Toronto 4. desember.
Scnny Liston er fallin út af'
skránni, þar sem hann er í
keppnisbanni.
í gær og 1 fyrradag fór fram>
tugþrautarkeppEi MÍ og lauk
Valbjörn Þor'.áksson einn
keppni, hlaut 6670 stig og var
219 stigum frá meti Arnar
Clausens. Keppni hófu einnig
Itarl Kólni og Einar Frimanns-
son en báðir heltust úr lest-
inni.
Valbjörn lilaut 3639 stig cítir
fyrri dag: 100 m hl. 10,9, Iang-
stökk 6,37, kúluvarp 12,23, há-
stökk 1,80 og 400 m hlaup 51,9.
Siðari dagur; 110 m grhl. 16,0,
kringlukast 38,40, stangarstökk
4,20, spjótkast 60,79 og 1500 m
hl. 5.01,6.
Utan keppni kastaði Guðjón
Guðmundsson KR kúlu 14,05.
ritstjóri: Frímann Helgason
Hviða fyrfrmæll fengu
bilstjórar Ferrari?
Grunur um að gróðasjónarmið eigi sinn
þátt í kanpakstursslysinu
Ráðgerð stórfelld lækkun á
fargjöldum til náms í Ameríku
Eins og lesendur minnast varð
nýlega hryllilegt slys í ítalska
Grand Prix kappakstrinum ’i
Monza sem kostaði fimmtán
áhorfendur lífið auk þess sem
hinn vinsæli kappakstursmaður
von Trips greifí fórst. í sambandi
við þetta slys hefur nú komið
fram spurning sem vakið hefur
mikla ólgu í Italíu:
Hvað hafði eigandi hinna stóru
bílaverksmiðja — Enzio Ferrari
skipað faílstjóra sínum áður en
keppninn hófst?
Tveir bílstjórar Ferrari-bíla-
verksmiðjanna, von Trips greifi
sem var þýzkur og Bandaríkja-
máðurinn Phil Hill, höfðu tækni-
lega séð möguleika á að fá
heimsmeistaratitilinn. ;Af. þejm
tveim var Trips sigurstranglegri.
íí'ftm' blóSBabið'"-’ víð'’ Vendano
beygjuna varð hins vegar kunn-
ugt að það væri gróðavænlegra
fyrir Ferrari að Bandaríkja-
maðurinn bæri sigur úr býtum
þar sem það skapaði fyrirtækinu
betri aðstöðu til auglýsinga á
sclu í Bandaríkjunum.
Itölsk blöð þykjast hafa fyr-
ir því góðar heimildir að von
Trips greifa hafi fyrir keppnina
veríð skipað svo fyrir að hann
mætti alls. ekki verða til að sigra
HilL
„Allir geta vottað, að Trips
var taugaóstyrkur og æstur- í
skapi þegar hánn hóf keppniria“,
segir eirin af kunningjum Trips
sem hafði talað við hann rétt áð-
ur en hann lagði af stað.
Þeir fimmtán, þar á meðal
nokkur börn, sem fórust í keppn-
inni, voru því ekki aðeins fórn-
ardýr þeirra samvizkulausu
manna sem stóðu fyrir henni
heldur að öllum líkindum einn-
ig utanríkisverzlunar Ferrari-fyr-
irtækisins.
Sú staðreynd, að ómögulegt
reyndist að fá keppnina stöðvaða
þrátt fyrir slysið styður þessa
skoðun. Hér var um að ræða
heimsmeistaratitilinn og sölu-
möguleika í Bandaríkjunum.
Phil Hill sigraði í kappakstr-
inum. Keppninni um heimsmeist-
aratitilinn var haldið áfram af
fullum Ivrafti eins og ekkert hefði
í skörizt þó að sjúkrabílarnir
þytu á slysstaðinn með hvínandi
fláutur.
Viðskiptin voru tryggð, myndin
af ■ Hill var send til blaða um
allan heim. Og þá fyrst var til-
kynnt hvað gerzt hafði í Vend-
ahdbeygjunni.
Undanfarin ár hafa flugfélög-
in boðið námsmönnum fjórðungs
afslátt þeirra íluggjalda, sem
gilda á flugleiðunum innan Ev-
rópu. Enda þótt námsmönnum
hafi orðið að þessu verulegur
styrkur þá hafa þessi sérstöku
kjör þó verið ýmsum þeim ann-
mörkum háð, sem misræmi ollu,
og komu þau af þeim sökum
ekki að því haldi sem æskilegt
hefði verið, auk þess, sem þeir
námsmenn, er fara þurftu milli
Islands og Bandarikjanna, gátu
ekki notið þeirra.
Nýlega fóru Loftleiðir. þess á
leit við íslenzk stjórnarvöld, að
þau heimiluðu fyrir sitt leyti, að
félagið byði námsmönnum hag-
stæð kjör á flugleiðum félagsins
I milli íslands ' og Bandaríkjanna,
og að fengnu þessu leyfi var sam- ■
komskonar beiðni komið á fram-
færi við bandarísk sljórnarvöld..
Er nú beðið eftir fullnaðarsvari
frá Washington; en veröi það já--
kvætt, sem vorár standa til, er?
gert ráð fyrir, að reglurnar urri
nýju námsmannagjöldin gangi i
gildi 4. nóv. n.k.
Þar sem reglur þessar eru urri
margt frábrugðnar þeim, serri
nú gilda um námsmannafargjöld-
in innan Evrópu er rétt að rifja
upp hinar helztu þeirra:
1. Áður en ívilnunin er veití
verður námsmaður að sýna skil-
ríki þess, að hann hafi fengið
skólavist, þar sem hann hyggst
stunda nám a.m.k. eitt kennsluá-
misseri (semester). 1
Framhald á 10, síðu- !
Föstudagur 6. október 1961 — ÞJÓÐVILJINN — {tji