Þjóðviljinn - 06.10.1961, Side 12
I gær kom hinguð til lands mcð Gullfaxa Flugfclags Islands Jörgen Jörgensen, fyrrverandi mennta-
inálaráðhcrra Danmerkur, ásamt öðrum geslum sem eru í boði háskólans. Jörgen Jörgensen er
hcr í boði ríkisstjórnarinnar og tóku Gylfi Þ. Gíslason menntamálaráðherra og frú á móti honum á
Ilugvellinum. Myndin cr tekin af þeim er þau voru aö fara frá ílugvellinum.
Meðal mála, sem um var rætt
á fundi bæjarstjórnar Reykjavík-
ur í gær var úthlutun 108 íbúða
í bæjarbyggingunum við Grensás-
veg og Skálagerði en bæjarráð
samþykkti úthlutunina á fundi
•sínum 22. f.m. Flutti Guðmund-
ur Vigfússon bæjarfulltrúi Al-
Jiýðubandalagsins svohljóðandi
'tiUögu í bæjarstjórninni í sam-
tiandi við þetta mál:
..Bæjarstjórnin leggur fyrir
heilbrigðisncfnd og borgar-
. lækni að gcra, í samræmi við
heilbrigðissamþykkt bæjarins
og 16. gr. laga nr. 42 1957 um
húsnæðismálastofnun o. f 1.,
ráðstafanir til að þær óhæfar
og heilsuspillandi íbúðir verði
teknar úr notkun, sem flutt
verður úr í bæjaríbúöirnar við
Skálagcrði og Grensásveg.
Bæjarstjórnin felur heil-
brigðisinálanefnd og borgar-
1 lækni að sjá um, að þetta hús-
w.æði verði undir engum kring-
umstæðum tckið til notkunar
að nýju sem íbúðir, nema
frainkvæmd hafi verið að
dómi heilbrigðiseftirlitsins svo
gagngei'ð cndurbót á viðkom-
andi íbúð. að hún brjóti ekki
í bága við heilbrigðissamþykkt
bæjarins að viðgerð lokinni".
1 framsöguræðu sinni fyrir til-
lögunni benti Guðmundur á, að
íbúðir þessar væru reistar sam-
rkvæmt lögunum um útrýmingu
heilsuspillandi húsnæðis. f þeim
lögum eru hins vegar þau á-
'kvæði að taka skal úr notkun
óhæfar íbúðir, sem fólk flytu.r úr.
<er það öðlast nýtt húsnæði fyrir
Gerið skil fyrir selda miða í
atmælishappdrætti Þjóðviljans
/ Skrifstofan er að Þórsgötu 1.
tilstyrk laganna. Guðmundur
kvað bæinn hafa gert alltof lít-
ið að því að fylgja þessu laga-
ákvæði eftir. Nýju fólki væri
leyft að flytja inn í óhæfar íbúð-
ir, sem losnuðu. Síðan sækti það
einnig um íbúðir, sem reistar
eru fyrir fé, sem varið er til út-
rýmingar heilsuspillandi hús-
næði. Þannig væri það fólk úr
sömu íbúðunum, sem stöðugt
væri að sækja um þetta fé. Með
því væri verið að misnota það
og ónothæíu íbúðirnar hyrfu
ekki úr no.tkun þrátt fyrir laga-
setningu og fjárframlög. Bærinn
verður að ganga ríkt eftir því
að þessu lagaákvæði sé framfylgt
og óhæfu íbúðirnar teknar úr
notkun, nema þær séu endur-
bættar svo mikið, að þær stand-
ist heilbrigðiskröfur, sagði Guð-
mundur. Hann benti einnig á þá
erfiðleika í þessu sambandi, að
kjallara. og hanabjálkaíbúðum í
gömlum húsum verður ekki út-
rýmt með sama hætti og t. d.
bröggunum, þ.e. með því að rífa
þær. Þessvegna verður bærinn
að hafa sterkara eftirlit með því
að þær séu ekki teknar aftur í
notkun til íbúðar án nokkurra
endurbóta. Þær eru oft sízt
hollustusamari en braggarnir
vegna sagga og raka.
Geir Hallgrímsson borgar-
stjóri lagði til, að tillögu Guð-
mundar yrði vísað til umsagnar
heilbrigðis.nefndar og heilbrigð-
isfulltrúa bæjarins. Kvaðst Guð-
mundur geta fallizt á þá af-
greiðslu málsins í því trausti,
að málið fengi fljóta afgreiðslu
hjá þessum aðilum og spurði
borgarstjóra hvort hann vildi
gera gangskör að því að svo
mætti verða. Færðist Geir und-
an að gefa nein loforð um það
þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurn-
ir Guðmundar. Bendir það ó-
neitanlega til þess að bæjar-
stjórnarihaldið hugsi sér að tefja
eða svæfa málið og halda enn
áfram að virða að vettugi lög-
in um útrýmingu heilsuspillandi
og óhæfra íbúða eins og það
hefur gert hingað til.
Prófessor Richard Reck
mei kveðjur að vesfan
Fréttamenn ræddu í gær við! liðin 70 ár frá því fyrst var
próíessor Richard Beck og konu
hans Margréti Beck, sem er
dóttir Einars Brandssonar og Sig-
ríðar Einarsdóttur er fluttu úr
Mýrdalnum vestur um haf 1886.
Frú Margrét hefur lengst af dval-
ið í San Fransiskó og stundað
þar kennslustöi'f.
Þau hjónin eru hér í boði há-
skólans, en Richard verður út-
nefndur heiöursdoktor í heim-
spekideild á afmælishátíð há-
skólans. Richard Beck kvað
sér það mikið ánægjuefni að
fá að koma hingað í þessu
tilefni. Hann hefur viku viðdvöl,
en hverfur síðan ai'tur til
kennslustarfa við ríkisháskólann
í Norður Dakota, þar sem hann
hefur kennt norræn mál og bók-
menntir síðan 1929. f haust eru
byrjað að kenna norræn fræði
við háskólann og í vetúr eru um
100 nemendur er leggja stund á
norræn fræði við háskólann. þar
af finim er leggja stund ó ís-
lenzk fræ'ði. f háskólanum eru
1400—1500 nemendur við tungu-
máladeild skólans og er þá enska
ekki meðtalin. Fyrir fimm árurn
var byrjað að kenna rússnesku
við háskólann, en áhugi á tungu-
má.lum fer aimennt vaxandi með-
al nemenda í Bandaríkjunum.
Richard Beck sækir háskólahá-
tíðina einnig sem fulltrúi haskóla
síns og heí'ui' meðfylgjandi bréf-
lega kveðju forseta háskólans til
rektors háskólans hér. Richard
Beck er einnig með kveðju frá
Guðmundi Grímssyni, fyrrverandi
forseta liæstaréltar í Norður Da-
kota, en hann hefur nú látið
forða borgarastyrjöld
KAÍRÓ 5/10 — Nasser forseti
sagði í útvarpsræðu í dag að
hann myndi sjá til þess að borg-
arastríð sigldi ekki í kjölfar at-
burðanna í Sýrlantli. Hann sagð-
ist einnig hafa gefið fulltrúa
Sambandslýðveldis araba hjá
SÞ fyrirmæli um að leggjast
ekki gegn upptöku Sýrlands í
Arababandalagið.
Nasser kvaðst ekki myndu
f 15. umferð á Evrópúmeistára-
mótinu í bridge vann fsland Sví-
þjóð með 4 stigum gegn 2 en í
16. umferð tapaði fsland ■ fyrir
Libanon með 2 stigum gegn 4.
Aðéins ein umferð er eftir á mót-
inu; og hefur England þegar
t'ryggt sér sigur með 87 stigum.
Frákkland er í öðru sæti, Dan-
mörk í þriðja og ftalía í fjórða.
ísland hefur 63 stig og mun berj-
ast um 5. sætið við Noreg og
Sviss, sem munu vera með svip-
aðan stigafjölda-. f síðustu um-
ferðinni spila íslendingarnir við
Finna.
Sósíalistar
Kópavogi
Fundur verður haldlnn í Sósí-
alistafélagi Kópavogs í kvöld kl.
8.30 í Þinghól, félagsheimili ÆFK.
Dagskrá: 1. Stjórnmálavið-
horfið, framsögumaður Björgvin
Salómonsson. 2. Happdrætti
Þjóðviljans. 3. Féiagsmál. 4.
Önnur mál.
Hafnarfjörður
Fyrsta spilakvöld Sósíalistafé-
lags Hafnarfjarðar í vetur verð-
ur á morgun, laugardag, kl. 8.30
í Góðtemplarahúsinu. Verðlaun
— Kaffiveitingar — Kvikmynd.
reyna að koma í veg fyrir að
önnur lönd viðurkenndu Sýrland
sem sjáifstætt ríki, og lagði til
að Arababandalagið sendi nefnd
til Sýrlands til að leita staðfest-
ingar á bví að egypzku fallhlífa-
hermennirnir sem þangað voru
sendir hefðu haft fyrirmæli um
að skjóta ekki á Sýrlendinga.
Nasser kvaðst harma það sem
gerzt hefði, enda væri sundrung-
in aðeins gleðiefni ..fjandmönn-
um okkar, heimsvaldasinnum og
afturhaldsseggjum". Þeir hefðu
vonazt eftir bræðravígum milli
araba, en sú von hefði þó brugð-
izt, enda hefði hann stöðvað í
tæka tíð aliar hernaðaraðgerðir
sem undirbúnar hefðu verið.
19. þing INSÍ
um heðgina
19. þing Iðnnemasambands ís-
lands verður sett í „Tjarnarkaffi
á morgun. laugardag kl. 13.30, og
er áætlað að því ljúki á sunnu-
dagskvöld. Þingið raunu sitja 45
til 50 fulltrúar frá iðnnemafé-
lögum víðs vegar af landinu. —
Helztu mál þingsins verða: Iðn-
fræðslan, kjaramál iðnnema og
skipulagsmái Iðnnemasambands-
ins. öllum iðnnemum er heimilt
að hlýða á umræður, meðan
húsrúm leyfir.
(Frá Iðnnemasambandi ísiands)
Þrjú ný frí-
merki í dag
Þrjú ný frímerki verða gefin
út í dag, 6. október, í tilefni 50
ára afmælis Háskóla íslands.
Frímerki þessi eru: 1. kr. 1.40
blátt að lit með mynd af Birni
M. Ólsen, fyrsta rektor háskólans,
2. kr. 1.00 brúnt með mynd af
Benedikt Sveinssyni. 3. kr. 10.00
grænt með mynd af háskóla-
byggingunni. í dag kemur einn-
ig út minningarblokk með sömu
frímerkjum.
af störfum og er 83ja ára gam-
all. Margir aðrir einstaklingar
báðu í'yrir kveðjur heim. Richai'd
Beck mun á háskólahátíðinni
i'lytja ávarp af hálfu Þjóðræknis-
íélagsins, en hann er forseti þess.
Þá minntist Richard Beck á
hve Vestur-íslenzkar æviskrár
væri merkt rit og vildi hann
votta þökk sína þeim aðilum er
stóðu að útgáfunni og kvaðst
vonast til að fleiri bindi kæmu
út.
Að lokurn sagði Richard Beck
að heimsókn forseta Islands til
Kanada heí'ði verið óslitin sigur-
íör og hefði t.d. þjóðhöfðingja,
öðrum en Bretadrottningu, ekki
verið gert jafn hátt undir höfði
í blöðum.
Richard Beck og kona hans Margrét