Þjóðviljinn - 08.10.1961, Page 1

Þjóðviljinn - 08.10.1961, Page 1
1 INNI I BLAÐINU: Á OPNUNNI: Bréf úr myrkri Menningartengsl Færeyja os íslands Verkfall yfir mannc ískum skipum SAN FRANCISCO — . Verkfallid meÐal yfirmanna á kau.pskipa- flola Bandaríkjamanna á Kyrra- hafi hefur nú færzt yfir til Baltimore á austurströndinni. Þegar kaupfarið Hawaiian Tour- ist kom þar inn á fimmtudags- kvöld gekk öll áhöfnin í land. 1 Á Háskólahátíðinni í gær voru 23 karlar og ein kona sæmd heiðursdokt- orsnafnbót við mjög virðulega athöfn í sam- komuhúsi Háskólans. Fjöldi manns var við at- höfnina en þó ekki skip- að í hvert sæti eins og á hátíðarsamkomunni föstudag. Athöfninni var útvarpað. Samkoman hófst að þessu sinni með því að prófessor Sigurður Nordal flutti erindi. Þá söng Guðmundur Jónsson óperusöngvari með undirleik Fritz Weisshappels lögin Út- laginn eftir Karl O. Runólfs- son, Sigliim á sæinn eftir Dr. Hallgrím Helgason og Til skýs- ins eftir Emil Thoroddsen. Rektor Háskóla íslands, prófessor Ármann lýsti síðan ‘kjöri ora ásamt deildarforsetum guðfræöideildar prófessor Þóri Kr. Þórðarsyni, læknadeildar orófessor Kristni Stefánssyni, laga- og viðskiptadeildar orófessor Ó'afi Björnssyni og heimspekideildar prófessor Matthíasi Jónassyni. Kallaði hver deiidarforseti fram heið- ursdoktora sinnar deildar, rakti í stuttu máli starfs- og æviferil þeirra og lýsti þá doctores honoris causa. Hinir nýju heiðufsdoktorar tóku síð- an við skjali úr hendi há- skóiarek.tors og var íagnað með dynjandi lófataki af sam- komugestum. Einn þeirra, dr. Henry Goddard Leach gat ekki sjálfur tekið á móti nafnbót •■.inni sck.um skindi'egra for- faúa og tók bandaríski sendi- herrann á móti henni fyrir hans hönd. FTinir nýju heiðursdoktorar Háskólans eru: í guðfræðideild dr. theol. h. c.: Prófessor Regin Prenter, Ár- ósum Herra Sigurbjörn Einarsson, Biskup íslands í læknadeild dr. med. h. c.: Prófessor Earl Judson King. Postgraduate Medical School. University of London Prófessor Eduard Busch. Rigs- hospitalet, Kaupmannahöfn Prófessor Lárus Einarsson. Árósum Dr. P. H. T. Thorlakson Winnipeg Clinic í Iaga- og viðskiptadeild dr. jur. h. e.: Prófessor Alexander Jóhann- esson Forsætisráðherra Bjarni Bene- diktsson Hinir nýkjörnu hciðursdoktorar sátu á fremsta bekk a Ila- skólahátíðinni í gær. Á efri myndinni sjást greinilega, talið frá hægri: próf. Kcgin Prenter, Sigurbjörn Einarsson biskup, próf. E. A. King, próf. Lárus Einarsson, dr. P. T. Thoriakson, próf. Aiexander Jóhannesson, Bjarni Benedíktsson forsætisráðh., próf. K. Robberstad og próf. Nils Herlitz. Á hiiini eru í fremstu röð talið frá vinstri: próf. Anne Iloltsmark, próf. Stefán Ein- arsson, dr. Sigurður Þórarinsson, próf. S. Ó. Duilcarga, próf. Richard Beck, próf. Gabriel son landsbókav., próf. Elias próf. Christian Matras. Prófessor Knut Robberstad, Ósló Prófessor Nils Herlitz, Stokk- hólmi Prófessor Oscar A. Borum, Kaupmannahöfn Prófessor Tauno Tirkkonen, Helsinki I heimspekideild dr. phil. h. c.: Prófessor Anne Holtsmark ósló Prófessor Christian Matras, Kaupmannahöfn Prófessor Dag Strömh'ack, Uppsölum Prófessor Elias Wessén, Stokk- hólmi Turvillc-Pctre, Finnur Sigmunds- Wessén, próf. Dag Strömback og Landsbókavörður Finnur Sig- mundsson Prófessor Gabriel Turville- Petre, Oxford Prófessor Hans Kuhn, Kiel Dr. Henry Goddard Leach, American Scandinavian Fond- ation Prófessor Richard Beck, Uni- versity of North Dakota Prófessor Séamus Ó. Duile- arga, University College Dr. Sigurður Þórarinsson Prófessor Stefán Einarsson, Johns Hopkins University. Eftir að lýst hafði verið kjöri heigursdoktora söng Kristinn Hallsson óperusöngv- Framhald á 2. síðu. Leuschner og Mikojan á í A-Berlín l BERLÍN 7 10 — Varaforsætisráð- herra Austur-Þýzkalands, Bruno Leuschner, sagði á fjöldafundi á Marx-Engels-torgi í Austur-Ber- lín í dag að úrslit nálguðust í baráttunni fyrir friðarsamningum við Þýzkaland. Fundurinn var haldinn til að minnast þess að 12 ór voru liðin frá því að austurþýzka lýðveld- ið var stofnað og voru um 100.000 NAT0 verndar NEW YORK 7/10 — Utanrík- isráðherra íraks, Hachim Jawad, sagði í ræðu á allsherjarþingi SÞ í gær að Atlanzbandalagið héldi verndarhendi yfir Frökk- um í Alsír.. Það væru frönsku fjármálahringarnir sem stæðu fyrir stríðinu í Alsír og þeir nytu sívaxandi aðstoðar auð- ■ hringa í öðrum iöndum. manns á fundinum að sögn frönsku fréttastofunnar AFP. Leuschner aðvaraði hernaðar- sinna í Vestur-Þýzkalandi og sagði að sérhver tilraun til að skerða landamæri Austur-Þýzka- lands myndi leiða til styrjaldar. Mikojan, aðstoðarforsætisráð- herra Sovétríkjanna, talaði einn- ig á íundinum. Hann sagði í ræðu sinni að Sovétríkin væru fús til að veita fullkomna trygg- ingu fyrir að staða Vestur-Ber- linar sem fríríkis yrði ekki skert. Mikojan sagði að í friðarsamn- ingnum sem gerður yrði við Austur-Þýzkaland myndu þýzku landamærin endanlega ákveðin í samræmi við alþjóðalög. Við vilj- um ekki stríð. Friðsamleg sam- keppni á sviði efnahagsmála verður að ráöa úrslitum í bar- áttunni milli sósíalismans og kapítalismans, sagði Mikojan. Mannfjöldinn lét fögnuð sinn í ljós hvað eftir annað meðan á- ræðu hans stóð.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.