Þjóðviljinn - 14.10.1961, Blaðsíða 7
JÓÐVIUINN
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — ^ Sósíalistaflokkurinn. — Ritstjórar:
Magnús Kjartansson (áb.), Magnús Torfi Ólafsson, Sigurður Guðmundsson. —
Préttaritstjórar: ívar H. Jónsson, Jón Bjarnason. — Auglýsingastjóri: Guðgeir
Magnússon. — Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðust. 19.
Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 50,00 á mán. — Lausasöluverð kr. 3.00.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
Innlimunartækni
C'tjórnarflokkarnir halda áfram áróðri sínum fyrir því
^ að íslendingar sæki um þátttöku í Efnahagsbanda-
lagi Evrópu og nota hvert tækifæri til þess að mæla
með því sjónarmiði. Lítið fer fyrir því að þeir skýri
út hvað í slíkri aðild felst og þeir viðurkenna meira
að segja með almennu orðalagi að miklar hættur geti
verið fólgnar í þátttöku íslands, en ævinlega er álykt-
unin sú að íslendingar eigi samt að senda umsókn.
Þannig hefur Gunnar Guðjónsson skipamiðlari nýlega
flutt ræðu á aðalfundi Verzlunarráðs íslands og þar
komizt svo að orði: „Það gengur þess enginn dulinn,
að það er miklum vandkvæðum bundið fyrir fámenna
þjóð í stóru landi með ungan iðnað og stóran hluta
framleiðslunnar bundinn tvíhliða viðskiptum við lönd-
in í Austur-Evrópu að gjörast þátttakandi í efnahags-
bandalagi sem hér um ræðir. Ýmsar mikilsverðar und-
anþágur frá almennum reglum yrðu að fást og þá fyrst
og fremst trygging fyrir því, að íslendingar sætu ein-
ir að hagnýtingu fiskimiðanna innan sinnar eigin fisk-
veiðilögsögu." Þarna er semsé lauslega viðurkennt að
fámenn þjóð í stóru landi geti átt þrengingar fyrir
dyrum í bandalagi þar sem frjálsar hreyfingar á fjár-
magni og vinnuafli er eitt af grundvallaratriðunum.
Það er játað að hinn ungi iðnaður íslendinga geti orðið
að engu þegar erlend stóriðja fær hér hömlulausan
vettvang fyrir framleiðslu sína og framkvæmdir. Við-
urkennt er að þá sé illa komið hag afurðasölunnar þeg-
ar búið sé að eyðileggja markaði okkar í löndum Aust-
ur-Evrópu. Og það er meira að segj-a sagt að Islend-
ingar geti naumast unað því að erlendir veiðiflotar
fái fulla heimild til aflafanga innan landhelgi hér við
land, en slíkt allsherjar jafnrétti er aðalhugmyndin
bakvið bandalagið.
'C'n eftir þessar játningar heldur formaður Verzlun-
arráðsins áfram: „Hins vegar þarf umsókn um
þátttöku í Efnahagsbandalaginu ekki að fela í sér
neina skyldu til aðildar, en opnar leið til umræðna um
hugsanleg skilyrði af beggja hálfu. Gæfist þannig
tækifæri til þess að fylgjast nánar en ella með fram-
vindu mála og aðstaða til að hafa áhrif á fyrirkomu-
lag ýmissa þátta, sem okkur snerta sérstaklega“. Það
er þannig ákaflega meinlaust og hættulaust að senda
umsókn segir fjármálamaðurinn eftir aðvaranir sínar,
en þegar í næstu setningu játar hann berum orðum
hvað undir býr: „í náinni framtíð munu mál þessi öll
skýrast, og sá tími nálgast því óðum, að við verðum
að taka endanlega afstöðu. Það væri því hyggilegt að
nota vel þann tíma til þess að aðlaga efnahagskerfi
landsins og þá sérstaklega fyrirkomulag skatta- og
tollamála, svo að við verðum sem bezt undirbúin, ef
við ákveðum að stíga þetta skref“. Við eigum semsé
þegar að fara að framkvæma aðildina áður en við
sækjum um hana. Umtalið um hættur og fyrirvara
hefur þann einn tilgang að blekkja; stjórnarherrarnir
hafa þegar ákveðið að ísland skuli innlimað í banda-
lagið, hvað sem það kostar.
Jnnlimunartækni sú sem birtist í ræðu Gunnars Guð-
jónssonar er gamalkunn hér á landi. Stjórnarherr-
arnir þóttust einnig vera með vangaveltur þegar rætt
var um aðild íslands að Atlanzhafsbandalaginu, og þá
samþykkti Alþingi Íslendinga einróma að þeirrar sér-
stöðu skyldi gætt um alla framtíð að hér yrði aldrei
erlendur her eða herstöðvar á friðartímum, og forráða-
menn bandalagsins þóttust fallast á fyrirvarann. En
þegar eftir að ísland hafði sótt um inngöngu voru fyr-
irvaramir ekki verðmætari en pappírinn sem þeir voru
prentaðir á og hafa nú verið sviknir í meira en ára-
tug. Þvx verður það sjálf umsóknin um aðild að Efna-
hagsbandalaginu sem sker úr um örlög okkar, en af-
staða þeirra sem þykjast trúa á fyrirvara er annað
tveggja hræsni eða óleyfilegur bamaskaþur. — m.
Sr. BJARNI ÞORSTEINSSÖN:
Bjarni Þorsteinsson fæddist
að Mel á Mýrum 14. okt. 1861.
Hann var elztur 13 systkina.
Ólst hann upp með foreldrum
sínum fram yfir fermingaraldur
eða þangað' til hann fór í
Latínuskólann haustið 1877.
Hann útskrifaðist úr Latínuskól-
anum 5. júlí 1883 með bezta
vitnisburði.
Meðan hann var í 'Latinu-
skólanum stundaði hann nám
hjá Jónasi Helgasyni tónskáldi.
Einnig lærði hann að leika á
harmoníum hjá frú önnu, móð-
ur dr. Helga Péturss.
Veturna 1884—’85 og 1885—
’86 var Bjarni heimiliskennari
að Kornsá í Vatnsdal hjá Lár-
usi sýslumanni Blöndal. Þar
kynntist hann Sigríði dóttur
Lárusar, er síðar varð kona
hans.
Bjarni hóf nám í Prestaskól-
anum 1886 og lauk embættis-
prófi í guðfraeði 24. ágúst 1888.
Hann var settur prestur á
Hvanneyri 22. sept. 1888 og
starfaði þar allt til þess hann
fékk lausn frá prestskap 1. júní
árið 1935. Hafði hann þá verið
prestur í Siglufirði í 47 ár. Iiann
fluttist til Reykjavíkur sama ár
og dó þar 2. ágúst 1938.
Þegar Bjarni kom til Siglu-
fjarðar árið 1888 voru íbúar
þar 311 og árið 1900 var íbúa-
talan komin upp í 408. En upp
úr aldamótunum hófu Norð-
menn síldveiðar á Siglufirði og
síldarsöltun árið 1904. Við það
toreyttist allur hagur bæjarins
og útlit. Hann var ekki lengur
smáþorp heldur einn mikilvæg-
asti framleiðslustaður í land-
inu.
Bjarni gegndi mörgum og
mikilvægum trúnaðarstöðum á
Siglufirði. Hann var kosinn í
toreppsnefnd Siglufjarðar
nokkru eftir aldamótin og odd-
viti hennar frá 1911. Um þetta
starf hans farast Jóni Jóhann-
es-syni svo orð í riti Sögufélags
Siglufjarðar:
„Það rnátti raunar með sanni
segja að allt frá 1911 og til
þess er hann lét af oddvita-
störfum væri hann sá maður-
inn, sem öllu réð í málefnum
sveitarinnar. Og hann réð
málum hennar vel. Það voru að
sjálfsögðu ekki æfinlega allir
á sömu skoðun og hann í öll-
um málum, og til voru menn,
sem fannst hann nokkuð ráð-
ríkur, en um dugnað hans,
framfarahug og um einlægan
vilja til hagsbóóta fýrir sveit-
arfélagið éfaðist víst enginn“.
Byltingin í tónmenn-
ingu þjóðarinnar á
19. öldinni
Á fyrri hluta aldarinnar hefst
endurreisn í bókmenntum þjóð-
arinnar. Skáld og rithöfundar
aðhæfa hinn forna bókmennta-
arf nýjum fórmiim ljóða og
sagna, sem sótt voru til er-
lendrar hámenningar.
Um miðja öldina hefst einnig
mikil umbylting í söngmálum
landsmanna. En þar er ekki um
að ræða endurreisn sem byggð
er á fornum arfi, eins og í
bókmenntunum okkar, eða
eins og þá gerðist með mörgum
þjóðum er hófu að byggja upp
þjóðlega tónlist á grundvelli
þjóðlaga sinna. Slík var ekki
umbyltingin í söngmálum ís-
lendinga um miðja nítjándu
öld, heldur voru þau sönglög
sem þjóðin hafði sungið um
aldir, kannske sum allt frá
upphafi vega, lögð undir græna
torfu með þeirri kynslóð sem
var að hverfa við aldamótin
síðustu og í þeirra stað innflutt
sönglög, aðallega dönsk síðróm-
antík. 1 söngmálum þjóðarinn-
ar slitnaði þannig þráðurinn
undir lok aldarinnar. Það var
engin brú milli rímnalaganna
okkar og dön-sku dægurlaganna
sem hingað bárust •— milli
„gömlu laganna" (sem Bjarni
nefnir svo) afkomenda grall-
arasöngsins og rómantísku
dönsku sálmalaganna — miJli
hinna miúku dansk-býzku söng-
laga í dúr og moll og hinna ís-
lenzku, lydisku tvísöngslaga,
sem voru jafngömul eddu-
kvæðum og höfðu lifað með
þjóðinni alla tíð lítið breytt,
smíðuð af hinum skýra hljómi
fimmtarinnar.
Það voru líka fáir menntað-
ir íslendingar um aldamótin,
■sem skildu. hve dýran arf þjóð-
in átti, þar sem þjóðlög hennar
voru. Albýðan var að mestu
ein um að kveða sín rímnalög.
Þeir fáu sem höfðu aflað sér
tónmenntunar höfðu farið til
náms til Danmerkur og komu
flestir þaðan fullir yfirlætis og
fyrirlitningar í garð íslenzkra
þjóðlaga. Þeir hafa eflaust unn-
ið störf sín í góðri trú en af
djúpum skilningsskorti. Þess-
vegna ér ekki rétt að áfellast
bá. En íslenzk tónmenning á
Biarna Þorsteinssyni mikið að
þakka, framsýni hans, ósér-
nlægni og elju við að bjarga
frá glötun bví sem biargað varð,
oft á síðustu stundu.
Þf^ðlafiasöíiiKii
Bjan*a Þorsteinssonar
Það var komið vel á veg méð
að sannfæra þjóðina um, að
þjóðlög hennar tilheyrðu að-
eins hinni myrku fortíð og
væri vart siðuðu fólki samtooðið
að syngja þau. Þessu verður
toezt lýst með nokkrum tilvitn-
unum í ritgerðir Bjarna Þor-
steinssonar:
Um tvísöngslögin segir hann:
„Hinn nýi söngur breiðist óð-
um út um landið, bæði andleg
lög og verzleg, bæði eftir út-
lend tónskáld og innlend; en
tvísöngurinn er óðum að hverfa;
hann er svo ólíkur hinum nýja
söng í öllu sínu eðli, og hann
á svo márga andstæðinga með-. ;
al hinna yngri söngmanna, að
ekki er að búast við öðru en
að hans dagar séu þá'og þegar.
taldir. En illa þfekki ég þá fast-.
heldni vora við hið gamla, ef
ekki eimir eftir af tvísöngnum; .
um nokkra áratugi enn, einkr.
um í Húnavatnssýslu, þar sem
hann hefur lifað beztu lífi nú
um meira en hálfa öld. ,Og
einu geta vinir tvísöngsins glatt
sig yfir í þessu efni, sem ;er
það, að tvísöngurinh hverfur
án þess að aflagast.
Eldra fólkið kahn hann rétt-
an og hreinan, og með því
deyr hann út; en unga kyn-
slóðin laérif hánn ekki. hvorki
réttan né rán’gám Þégar tví-
söngurinh hverfur og deyr út
á Islandi toá hverfa þaríneð síð-
ustu leifar í álfu vorri af
þessum merkilega íornaldar- 4
söng, sem íýrirí nærfellt 1000
árum 'gíaddi hjörtu svd margra .c
í m.örgtlm teÚdtifn; meðán ekfc- :
ert bekktiSt 'betra,: ég áém um
mörg hundrúð' ára hefur verið ■
svo gott sem hin 'elriá' ’• sönglegaj 3
nautn vor fsléhdingá,' að und-
anteknum' Ivnum eínraddaða
söng. En tvfsöngslög þau sem.
mér hefur heppnazt’að’ná í .og
koma í safn be.tia. og varöveiía- ;
þannig frá glötun og gleýmsku,
sem þeim annars var bráðlega..
búin, þau munu standa fram-v.
arlega í röðinni meöal hins.
forna og bióðlega. sem safnað
er og safnað -héi'ur vérið hjá
oss, þau munú ’standa!íþar sem
mjög merkilégar bókmehntaleg-..,
ar minj ar frálöhgú' ‘ horfnum. 1
öldum.“
Bjami sýnir með nokkrunpatei . .. ,
tilvitnunum hvernig valdamenn nBi,:; . : >0 • *
kirkiunnar höfðu öld fram iaf inn’o te.ér:
öld barizt gegn rímum og kveðr .: rr.iín::. r:r ;;
skap. Þannig segir. í formála Ein af mörgum eftirminni-
Guðbrands. toiskuns Þorláksson- legum - myndum, sem H.K.L.
ar fyrir sálmabók hans 1589, að ; hefur dregið upp fyrir okkur,
þett.a sé „héiv hjá albýðufólki . er af því, þegar skáldið og
elskað og iðkað. Guði og hans barnakennarinn Ólafur Kárason
englum til stýggðar en djöflin- • kemur til klerksins í Bervík og
um og hans árum til gleðskap-; . ierekur ■ honum raunir sínar.
ar og biónustuýí I formálanum ;:.:Hr,eppsyfirvöldin höfðu neitað
fvrir kvæðabók sr. Ólafs á h.Uín mó til að hita skólann og
Söndum telur séra H-ialti Þor- hótáð honum burtreksri, og
steinsson„óskaridi að til kaldra1 ■..■ hvergi hélt hann að vera mundi
kola brenridar ;væru aljar fá- ';:;jafn . erfitt að vera skáld og
fengilegar.. fíflslegar .og hneykshí '.vrmanneskja og: í þessu afskekkta
anleear mmurv,.sem'. fyllá ætla býggðai"lagf.:.,Þá er það, sem
landið“ •«*> En • .rímnakveðskap- •■ •■prristurinn minnir hann á Korp-
urinn var óbugarrdiimeðan hann-. liri'skinnúv.' sem) var saman sett
var ein.n-isterkajdi':toátturinn .í.u iDgiférvöruaávþessari hafnlausu
andlégu -áííi íþjóðáririnar. En strönd,.,ein mest bók, sem ritin
undir lok mtiándui aldaifi hefur verið á>: Norðurlöndum.
er betta að brevtast:1. Bjamt: Ogrpresturinn tök upp sín eig-
birtir bessa ..távitnun : i Ólaf; dnrxit;:ættartölur, sagnfræði og
DayíðssorE iú rfa.vi?,fvú;>v. málvísindi til sönnunar því að
„Rfmumar háfa-isááú-ságt -lif- héh.mættirtakast að vera skáld
að sitt ifegurstaéenda þafa .þæt « :og ileerður.-maður, þótt ekki
ekkert að géra;framar'i;íslenzk'f:»i2væri:;hiægt' aðu verá manneskja.
um bókmenntuínc itoaðner kom.«I Ögö. skáldúlu, gleymdust allar
ið annað ’.ibetraui.. staðtrin, fyrír: .sinarii.i'aunirnþví að hann „sá
þær. En baaiSH.vorU'i.eiriusinni-Oiþennan', staðd í .'ljósi Korpin-
mergurinnií-kv.eðskamflsiendirigaib.Hsk'iriinu-:^ umleikinn óviðjafnan-
og .hljóta: þWuátHalItrgað vera- ítegtí-írfBiíuiðp bókmentum sem
mjög merfeilegtir: báttup; í þókt:! í muWiköf lifæoiiHeðan heimurinn
menntasögu vortí'úti. Qg hannd Sí®ndúríf‘«)v yjaík.s
(Bjarni) bsetiáJgÍðiii'fOg það sem Sík|.y«áfrja*égeni.tíég -:tóð fyrir, að
sagt er um rímurnar má einnig
að mörgu leyti segja um
rímnalögin: Þau eru á förum
og mega fram úr þessu teljast
með andlegum fornminjum vor-
um, Þessvegna hefur mér virzt
vera brýn þörf á því, að safn
mitt af íslenzkum þjóðlögum
hefði einnig inni að halda svo
rækilegt sýnishorn sem unnt
væri af .hinum þjóðlegustu
allra íslenzkra þjóðlaga, rímna-
lögunum".
Bjarni Þorsteinsson var einn-
mikilhæfasti brautryðjandi
kirkjusörigs í landinu og mörg
af verkum hans munu enn
standa lengi sem verðugur
minnisvarði um fjölbreytta
hæfileika hans og gáfur. — En
Þjó.ðlagasafnið hefur þá ’ sér-
s.töðu meðal verka hans að það
fyrnist ekki. Gildi be-ss mun
vaxa eftir því sem árin fjölga.
Það er þetta safn sem á sviði
tónmenningar bjargar þjóð
vorri frá því slysi sem er öðr-
um hörmungum sárara, því —
gð selia menningararf -sinn fyr-
i.r fánýtt glv.s.
Þjóðfélagið — tónlistarsköpun
hjnna nafnlausu kvnslóða — er
sama eðlis og þióðsagan. Það
pr sá brunnur sem listamenn
þjóðanna ausa af kynslóð fram
gf kynslóð, öld af öld. Þjóðleg
tónlist er ..óhugsandi án þjóð-
lagsins.
Það var hamingja ísJenzkrar
)ÖriU?ter að Siglufiarðarklerkur-
inp , bjargaöi,, á síðustu stundu
..fniklu .af þióðlögum okkar frá
^ötyj},; Þassvegna mun á ó-
Jfpmnuni öl.d.ij.m.verða bjart um
riúfrijér- Bjarna Þorsteinssonar.
S.D.K.
Séra Bjarni Þorsteinsson.
Siglufjörður eða sr. Bjarni Þor-
steinsson sóknarprestur þar,
hafi verið í huga skáldsins, er
hann dró upp þessar myndir.
En því kemur mér þessi sögu-
kafli í hug, er ég minnist 100
ára afmælis sr. Bjarna, að hann
var einhver glæsilegasti fulltrúi
þeirra manna, sem skópu og
varðveittu íslenzka þjóðmenn-
ingu, meðan það var erfitt að
„vera manneskja“ á íslandi.
Séra Bjarni vígðist til Siglu-
fjarðar 1888 og gegndi prests-
starfi þar í næstum hálfa öld,
eða alla sína prestskapartíð.
Eflaust hefði honum orðið auð-
sótt leið í kostameira brauð þeg-
ar írægð hans tók að vaxa, en
á fyrri prestskaparárum hans
mun Siglufjörður varla hafa
verið mikið gæðabrauð, og víða
hefðu aðstæður eflaust orðið
betri til að sinna ástfólgnustu
hugðarefnum hans, sem voru
tónsmíðar og þjóðlagasöfnun.
En tryggð sú, sem áðkomumað-
urinn Bjarni Þorsteinsson tók
við Siglufjörð og byggðina þar,
er athyglisverð um slíkan lista-
mann og fræðimann, sem hann
var. Efalaust heíur honum þó
stundum fundizt erfitt að vera
manneskja í þessu fátæka og
afskekkta þorpi. En séra Bjarni
lét sér ekki nægja að vera
listamaður og fræðimaður. Hann
virðist haía sett sér það mark,
að gera það mögulegt að lifa
manneskjulífi á Siglufirði. Alla
sína prestskapartíð var hann
meðal helztu forustumanna
byggðarlagsins jafnt í verkleg-
um sem andlegum efnum. Þau
munu vera færri framfaramál-
in í Siglufirði, sem hann ekki
átti frumkvæði að eða studdi
enda lifði hann það, að á Siglu-
firði mætti vera „mannlíf gott“.
svo að notað sé orðtak Ketils
flatnefs, og var það ekki sízt
fyrir atbeina hans.
í hreppsnefnd og síðar bæj-
arstjórn sat séra Bjarni meira^.
en þrjá áratugi, í stjórn Spari-
sjóðs Sigluíjarðar um 40 ár,
kennari eða skólastjóri var hann
á annan áratug og skólanefndar-
maður lengi eftir það. I skipu-
lagsmálum, atvinnumálum og
raforkumálum sýndi hann mikla
framsýni. Það væri víst varla
rétt að segja, að.hann hafi þjón-
að guði og mammoni og báðum
vel, því að sjálfur varð hann
aldrei auðugur maður, en það
er furðulegt hve miklu hann
gat afkastað í andlegum efnum
með öllu þessu „veraldar-
vafsti'i“.
Sá sem þetta ritar hefur ekki
skilyrði til að meta það starf
sem séra Bjarni lagði af mörk-
um í tónsmíðum og þjóðlaga-
söfnun. En ég hef orð kunn-
‘áttumanna fyrir því, að með
tónlistarstarfi sínu, einkum
þjóðlagasöfnun, hafi hann unn-
ið íslenzkri menningu það gagn
að slíkt sé ómetanlegt
Eins og drepið var á í þyrj-
un var séra Bjarni einhver
glæsilegasti og skemmtilegasti
fulltrúi þeirra manna, sem
skópu og varðveittu íslenzka
þjóðmenningu, af því að þeir
trúðu á íslenzka þjóð. Alþýð-
legur og aristókratískur í senn
ávann hann sér vinsældir og
virðingu sóknarbarna sinna.
Sjálfur hef ég ekki átt því láni
að fagna að kynnast séra
Bjarna persónulega, en þó
finnst mér ég þekkja hann
nokkuð vel af lifandi frásögn
annarra. Það liggur alltaf ein-
hver hlýja og aðdáun á bak
við allar þær sögur, sem af
honum eru sagðar hér, líka
þær, sem ekki eru óblandið
lof. Menn vita, að séra Bjarni
var svo mikið stórmenni, að
óþarft er að berja í brestina.
Það er hollt fyrir okkur að
minnast þess núna þegar alltof
margir meta lítils íslenzka
menningu, jal'nvel svo lítils, að
sumir fyrirverða sig fyrir að
fiytja íslenzk þjóðlög í ríkis-
útvarpið, af því að þau falli
brezkum togarasjómönnum ekki
í geð, að séra Bjarni Þorsteins-
son prófessor • og hans líkar
hafa sannað okkur, að við eig-
um þjóðmenningu, sem ekki
þarf að biðja neinnar afsök-
unar á tilveru sinni, ef við
þorum að kannast við hana og
viljum vera við sjálfir. Annars
verðum við ekki neitt.
Siglufirði í október 1961.
Hlöðvcr Sigurðsson.
Framhald af 4. síðu
gólfdúkur í húsinu deyfir skó-
hljóð manna nema fætur séu
beinlínis dregnir eftir gólfinu.
Til mikilla framfara í hljóm-
sveitarrekstrinum má einnig
telja að nú hefur verið gefin
út tónleikaskrá fyrir alft
starfsárið 1961—’62 og ,af henni
verður séð að verkefnaval er
fjölbreytt þótt um megi deila
eins og geneur. Áskriftarfyrir-
komulag á aðgöngumiðasölu er
líka til bóta og hefur reynslan
þegar sýnt að sú nýbreytni var
fullkomlega tímabær.
En þrátt fyrir allt hvílir
alltaf einhver skuggi yfir
rekstri Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands, skuggi óvissunnar. Rík-
isútvarpið hefur sem kunnugt
er tekið að sér rekstur hljóm-
sveitarinnar um skeið, enda
þótt sömu aðilar og áður leggi
til hennar fé. Hljómsveitin er
enn hálfgerður munaðarleys-
ingi, sem verður að gera sér
að góðu vist hjá hinum og
þessum skamma stund í senn,
þegar fokið er í flest skjól.
Hljómsveitarmálið verður að
sjálfsögðu ekki leyst með þess-
um hætti til frambúðar. Fram-
tíðarlausnin hlýtur að verða
sú að hún fái árlegt framlag
af ríkisfé, verði sannkölluð rík-
ishljómsveit og fé veitt til
hennar á fjárlögum. En ein-
hverjum kann að þykja sú
lausn fjarri, ekki hvað sízt
eftir að menntamálaráðherra
kunngerði „rausn“ ríkisstjórn-
arinnar til handritastofnunar á
íslandi. — r.
HUGLEIÐING UM AFBR0TAMENN
Mannúðaryfirvöld þjóðarinnar
eru nú sem óðast að auglýsa
'í blöðum eftir tveim ungum
mönnum, sem brotizt hafa útúr
því eina hóteli sem landið rek-
ur hér í bæ og er til húsa við
Skólavörðustíginn. Hefur mynd-
um af mönnum þessum verið
skákað á útsíður blaðanna og
fólk varað við þeim, enda séu
hættulegir menn á ferð þar sem
iþeir eru. Því til áréttingar
fylgdi sú frétt að annar þeirra
hefði í vor slegið mann einn
niður við höfn og tekið af hon-
um brennivínsflösku. Sam-
kvæmt öllu þessu auglýsinga-
flóði mætti álykta að hér sé
um að ræða svipaða tegund
stórglæpamanna og lesa má um
í „vinsælurii“ tímaritum er
kenna sig uyið sannleikann og
lífsreynsluna og álgengt er að
sjá á hinu hvíta tjaldi bíóhús-
anna. Manngerð þessi hefur
hingað til helzt notið virðingar
í Bandaríkjum N-Ameríku,
þótt allmikið hafi verið gert til
þess sumsstaðar annarsstaðar
að reyna að kenna unglingspí-
um að tilbiðja „hetjurar". Það
var líka haft eftir einum yfir-
valdsmannanna í einhverju
dagblaðanna, að ef til vill hefðu
þeir félagar aðeins ætlað að
skreppa til vinkvenna sinna og
koma síðan aftur, að afloknu
erindi, svo lítið toæri á. Ekki
mun vitað hverjar vinkonurn-
ar eru, en við skulum vona að
beir hafi ekki borið niður með
kvennafar. sítí á heimili einr
hvers ábyrðarmikils þjóðíélags-
þegns, eðá hVoBt mýridu þeir
þvkja vænlegir tengdasynir í
fjölskyldum þeirra, sem á und-
anförnum árum hafa staðið
trúan vörð um íslenzk lands-
réttindi og landhelgi og bera
hvað mesta virðingu fyrir kaup-
mætti verkamannslauna? Það
gæti reyndar orðið fagnaðar-
fundur ef íslenzkur Natóvinur
og Efnahagsbandalagselskari
fyndi slíka „hetju“ í svefnhúsi
dóttur sinnar, enda myndi
þeirri „hetju“ líklega borgið
eftir það.
Ég'hef þekkt annan þessara
auglýstu ungmenna frá því
hann var krakki norður á Ak-
ureyri, og ég held mér sé óhætt
að fullyrða að hann hefði aldrei
átt að koma innfyrir dyr
þeirra „hegningarhúsa“, sem
hér eru notuð fyrir fangageymsl-
ur. Uppeldi mannsins var mis-
heppnað frá upphafi. Hann átti
ekki kost á því f jölskylduatlæti,
sem flestir telja börnum sínum
fyrir beztu. Strax á barnsaldri
tóku uppeldisstofnanir þjóðfé-
lagsins menntun hans og upp-
eldi í i sínar hendur, og þau
mannúðarheimili hafa nær ó-
slitið síðan verið heimili hans.
Mér er ekki grunlaust að í hin-
um fræga íslenzka kennara-
skorti hafi hnefinn og svipan
stundum verið fengin til að
gegna þessu áþyrgðarmikla
embætti í hinum virðulegu
stofnunum. Jóhann Víglundsson
er af skapara sínum vel gerð-
ur maður á ýmsa lund, og má
merkilegt heita ef ekki hefur
verið hægt að gera úr honum
nýtari þegn. En hæpin aðferð
mun það vera að auglýsa hann
•sem stórglæpamann á forsíðum
dagtolaðanna, þar sem gengis-
fellingameistarar ríkisstjórnar-
innar ættu að vera. Og varla
mun það tilviljun að myndir af
þeirn félögum birtust fyrst í því
blaði, sem minnsta frægð hef-
ur hlotið af menningar- og
mannúðarmálum.
Jón frá PálmhoUi.
1 ■-jHtiimjm
jg) — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 14. október 1961
/
Láúgardagur 14. október 1961 — ÞJÓÐVILJINN
<a