Þjóðviljinn - 25.10.1961, Side 12
iiiil
SííSíð?!
Gamdl kynningi á flokksþingi
Á 22. flokksþingi Kommúnistaflokks Sov-
étríkjanna eru margir kunnir lista- og vís-
índamenn. Einn þeirra er góðkunningi Islendinga, söngvarinn Pavel Lisitsían við Stóra leikhúsið í
Moskvu, sem ltom hingað til ísiands um árið og „söng sig inn í hjörtu“ allra sem til hans hlýddu.
Hann sést hér á myndinni (annar frá hægri) í hópi annarra listamanna sem eru fulltrúar á þing-
ínu, þeirra Tsaréff ieikara og leikstjóra, Ioganson Iistmálara og Gerasimoff kvikmyndastjóra.
þlÓÐVILIINN
Miðvikudagur 25. október 1961 — 26. árgangur — 244. tölublað
r
Aburdarverk-
smiðjan til um-
rœðu á Alþingi
1 gær kom Áburðarverksmiðjan enn einu sinni til umræðu á Al-
þingi í sambandi við stjórnarfrumvarp um að leggja niður Áburð-
arsölu ríkisins og fela Áburðarverksmiðjunni innflutning tilbúins
áburðar, svo og um að heimila verksmiðjustjórninni að hækka
fyrningarafskriftir. Hefur frumvarp þetta verið flutt tvívegis áður
en ekki hlotið afgreiðslu. í umræöunum benti Einar Olgeirsson m.
a. á eftirfarandi atriði.
Er lögin um Áburðarverksmiðju ríkisins voru -sett, var svo til
a;tlazt, að verksmiðjan yrði hrein eign rfkisins. Á síðustu stundu
var það ákvæði knúið inn í lögin af Marshallstofnunnni, er veftti
fé til byggingar hennar, að verksmiðjan yrði rekin sem hlutafélag.
Hefur því ætíð leikið vafi á um eignaréttinn yfir verksmiðjunni,
hvort heldur ber að skoða hana sjálfseignarstofnun, eða eign
hlutafélagsins. Hefur Einar oft flutt frumvarp á Alþingi til þéss
STOKKHÓLMI 24/10 —Skrifstofa Norðurlandaráðs hef-
ur lokið við að semja drög að samningi um samvinnu
Norðurlandaþjóða allra sem væri sá fyrsti slíkur sem
þær hafa gert með sér. Stockholms-Tidningen segir að
samningnum sé ætlað að vera grundvöllur að sameigin-
legri afstöðu Norðurlanda í samningum um aöild eða
tengsl við Efnahagsbandalag Evrópu.
Samningurinn sem heiur um
40 ákvæði verður lagður fyrir
forsætisráðherra Norðurlanda
þégar þeir h.'ttast í Hangö í
Finnlandi 11. og 12. nóvember.
Samningurinn nær yfir eftir-
talin svið: Samvinnu um laga-
setningu, menningarsamvinnu,
«fnahagssamvnnu, samvinnu í
feiagsmálum, viðskiptasamvinnu
■óg samvinnu í utanríkismálum.
Kaflinn sem fjallar um efna-
hagssamvinnu Norðurlanda
skiptir meginmáli. Þar segir að
samningsað'lar skuli tryggja þá
samvinnu sem þegar hefur tek-
ízt milli þeirra í því skyni að
ryðja úr vegi tálmunum fyrir
■verzlun miili Norðurlanda. Bæði
hver um sig og all.r í sameiningu
skulu samningsaðilar reyna að
■efla samvinnu sína gagnvart
óðrum löndum. Þeir skulu hver
'um sig gefa hinum sem bezt
tækifæri til að fylgjast með af-
stöðu sinni í viðsk:ptamálum.
Mál sem varða önnur lönd en
snerta hagsmuni tveggja eða
íleiri samningsaðila skulu rædd
af þeim öllum.
Þá skuldbinda samningsaðilar
sig t'l samvinnu og samráðs á
mörgum öðrum mikilvægum
sviðum efnahagslífsins, einkum
hvað snertir framleiðslu og fjár-
festingu, gjaldeyrismál, aðstoð
við fátæk lönd, einnig hagskýrsl-
ur og tollamál. Varðand: fram-
leiðslu og fjárfestingu er þannig
tekið fram að unnið skuli að því
að bein samvinna geti tekizt með
fyrirtækjum í tveim eða fleiri
samningslöndum.
Þá skuldbinda aðilar sig til
að vinna að því að auðvelda sem
mest flutning fjármagns milli
Norðurlanda. Þá segir að að.lar
skuli hafa viðræður sín á milll
varðandi sameiginlegar aðgerðir
til að takmarka áhrif frá alþjóð-
legum viðskiptasve.flum.
Gert er ráð fyrir að segja
megi upp samningnum með sex
mánaða fyrirvara.
árðsum mei eldflaugum
MOSKVU 24/10 — Það hefur
vakið hvað mesta athygli í út-
drætti þeim sem birtur hefur
verið hér úr ræðu Malínovskís
landvarna.ráðherra á fiokksþing-
inu að hann skýrði frá Því að
Sovétríkin ættu nú eldflaugar
sem skotið gætu niður óvinaeld-
flaugar á lofti, segir fréttaritari
AFP í Moskvu, Edmond Marco.
Það er ekki vitað með hvaða
orðum Malínovskí skýrð:' þing-
inu frá þessu. en TASS-frétta-
stofan hefur eftir honum að bú-
ið væri að leysa það vandamál
hvernig hægt sé að skjóta niður
fjandsamlegar eldflaugar á lofti.
Hins vegar hefur það spurzt
að einn tilgangurinn með til-
raunum sovézkra vísindamanna
á Novaja Semlja væri einmitt
sá að finna lausn á slíku vanda-
máli, og Marco segir að í
Moskvu sé talið að eldflaugum
með kjarnahleðslum hafi verið
Framhald á 9. síðu.
að taka af allan vafa um eignaréttinn yfir verksmiðjunni, en þau
aldrei fengið afgreiðslu. Var frumvarpi Einars, er hann flutti um
þetta mál á síðasta þingi vísað til ríkisstjórnarinnar til athugun-
ar, en hún hefur en.i ekkert látið frá sér heyra um það.
£ Hlutafé Áburðarverksmiðjunnar var 10 milljónir króna og átti
rikið 6 milljónir en einstak.lingar 4. Nú mun verðmæti verksmiðj-
unnar orðið yfir 300 milljónir króna. Á síðasta þingi flutti einn
af elztu og reyndustu þingmönnum Sjálfstæðisflokksins tillögu um
að selja hlutabréf ríkisins á nafnverði. Er það ætlun Sjálfstæðis-
flokksins, að stela verksmiðjunni af ríkinu og afhenda einstakling-
um á þennan hátt hundruð milljóna?
0 Sl. tvö ár hefur stjórn Áburðarverksmiðjunnar brotið lögin
um leyfilega fyrningaafskrift á eignum verksmiðjunnar. 1959 námu
fyrningaafskriftir hennar 14.9 millj. kr. — Ef farið hefði verið eft-
ir lögum hefðu þær numið um 8 milljónum. — Mismunurinn, um
7 millj. kr. eru raunverulega hreinar tekjur, sem verið er að fela
á þennan hátt. 1960 námu fyrningaafskriftir 18.7 millj. kr. — Ef
farið hefði verið að lögum hefðu þær numið um 10 millj. króna.
— Mismunur um 8.5 milljónir faldar tekjur.
0 !959 greiddi verksmiðjan í vinnulaun 4.9 millj. kr. og í vexti
4.7 millj. 1960 voru vinnulaunin 4.9 millj. kr. og vextirnir 5.9
millj. Hreinar tpkjur verksmiðjunnar 1959 voru um 4 millj. kr.
og 1960 um 2.2 millj. þegar frá eru taldar 15.5 milljónir samtals
bæði árin, sem faldar voru með ólöglegum afskriftum. Sýna þess-
ar tölur vel hlutfallið milli vinnulauna og þeirra skatta, sem
fjármagnið sjálft tekur, lr/ílíkur ofsagróði er á sumum atvinnu-
fyrirtækjum á Islandi og hve vinnulaunin eru orðin litill þáttur
í reksturskostnaðinum.
0 Tveir Framsóknarþingmenn gagnrýndu einnig frumvarp stjórn-
arinnar. Benti Skúli Guðmundsson á, að lögum samkvæmt væri
' érksmiðjunni heimilt að afskrifa 2'/2% af kostnaðarverði húsa og
mannvirkja og 7V2% af kostnaðarverði véla og áhalda. Sl. tvö
ár, 1959 og 1960 hefðu afskriftirnar hins vegar verið 3% á fyrri
liðnum og 12V2% á seinni liðnum og snemma á þessu ári samþykkti
stjórn verksmiðjunnar enn hærri afskriftir á þessu ári.
MOSKVU 24/10 — Enn í dag
var haldið áfram gagnrýni á þá
miðstjórnarmenn sem urðu í
minnihluia sumarið 1957, þá
Malenkoff, Molotoff og félaga.
Nikoiaj Svérnik, sém er for-
xnaður eftivlitsnefndar nviðstjórn-
arinnar. lagði að sögn TASS-
fréttastofunnar, fram skjöfl á
ifundinum í dag. sem sanna glæp-
Æamlegt atferli þessara manna.
ÍLeonid Iljitséff, sem er for-
anaður áróðursdeildar miðstjórn-
arinnar, sagði að flokkurinn
hefði komið fram við þá af meiri
göfugmennsku en þeir ættu skil-
ið.
Rithöfundurinn Mihail Sjólo-
koff sagði að að þeim bæri að
refsa stranglega en af réttlæti. I
TASS-fréttastofan hefur birt j
skeyti sem Siú Enlæ sendi i
Krústjoff úr fiugvélinn: sem
flutti hann heim. Þakkar hann
fyrir góðar viðtökur í Sovétríkj-
unum og minnist á ..hina miklu
og órjúfanlegu vináttu þjóða
Sovétríkjanna og Kína“.
Serkir fluttir hein
Frakkar halda áfram að flytja Serki nauðuga frá Frakklandi til
Alsír, en þúsundir þeirra hafa verið handteknir síðustu daga.
Myndin er tekin á Orlyflugvelii við París, vopnaðir verðir gæta Serkja sem eru á leið í flugvélina.