Þjóðviljinn - 28.10.1961, Síða 1

Þjóðviljinn - 28.10.1961, Síða 1
Sósíalistar Fundir í öllum deildum á mánudagskvöld. Formannafund- ur kl. 6 síðdegis í dag. ELDUR r I ÖSKJU Aðaleldarnir ery 3. Hraun- straumar usu ðskjcop aSlt að 12 km langir — Sjá myndirog frásögn á 3. síðu íxyíxS^fesjx-íAWí: :; . . mmm ÍPíÉíÉÍ; AWiíVíwíW::; Ísiílli íiii i i mmá I:. iillll llllllii ÍO-vili.'x- iil-vilil: :- illiiii Afstaða Alpýðubandalagsins: Fordæming allra kjamorku~ sprenginga Stjórnarflokkarrtir fella að ekki megi hafa kjarn- orkuvopn á fslandi né gera kjarnorkuárásir héðan Þau tíðindi gerðust á Alþ:ngi í gærkvöld að meirihluti Alþing- is felldi að mótmæla öðrum kjarnorkusprengingum en rúss- neskum. og stjómarflokkarnir felldu iað því yrði lýst yfir að ekki megi staðsetja kjarnorku- vopn á íslandi né beita þeim vopnum héðan. Þetta gerðist er felldar voru tvær breytingartillögur er Lúð- vík Jósepsson og Hannibal Valdi- marsson fluttu fyrir lnngflokk Alþýðubandalagsins við mót- mælat'llöguna sem til umræðu var allan daginn í gær og gær- kvöld. Lögðu þeir til að upphaf tillögunnar orðist þannig: „Alþingi ályktar að mótmæla eindregið öllum kjarnorkuspreng- ingum, þar með ta'ið spreng'ngu Sovétríkjanna á risakjarnorku- sprengju og skorar á kjarnorku- veldin að hætta nú þcgar kjarn- orkusprengingum sínum“ o.s.frv. eins og í upphaflegu tillögunni En hún byrjar svo: „Alþingi á- lyktar að mótmæla eindregið spreng.ngum Sovétríkjanha á risakjarnorkusprengju" o.s.frv. Þessi breytingartillaga var felld með 45, atkv. gegn 10. Hin tillagan var viðbótartil- laga: „Alþingi lýsir ennfremur yfir því, að það muni aldrei leyfa staðsetningu neinskonar kjamavopna á íslandi n,é að slíkum vopnum verði nokkurn- tíma beitt frá stöðvum hér á landi“. Þessa tillögu felldu stjómar- f'okkarnir, hver einasti við- staddur þ'ngmaður þeirra, gegn atkvæðum Alþýðubandalagsins og Framsóknar, tillagan var var felld með 30 atkv. gegn 26. Rúrsneskum sprengjum mót- mælt Tillaga stjórnarflokkanna um mótmæli gegn rússneskum kjarn- orkusprengjum var síðan sam- þykkt af öllum viðstöddúm þing- mönnum stjórnarflokkanna og Framsóknar. Enníremur greiddu Framhald á 11. síðu. MeiriBiluti Alþingis fellir að mófmæla öðrum kjarnorkusprengjum en rússneskum • Afstaða Alþýðubandalagsins er ah eg skýr, hin sama og áður. Þingflokk- ur þess er reiðubúinn að standa að tillögu þar sem mótmælt er öllum tilraunum kjarnorkuvelda með kjamorkusprengjur, hvort sem er í vestri eða austri. • Á þessa leið mælti Lúðvík Jósepsson, formaður þingflokks Alþýðubanda- lagsins á Alþingi í gær, og voru þau ummæli ítrekuð af öðrum þing- mönnum Alþýðubandalagsins. Eftir stuttan fund sameinaðs þings á venjulegum fundartíma í gær boðaði forseti, Friðjón Skarphéðinsson nýjan fund og var þar tekin fyrir með afbrigð- um þingsályktunartillaga sem Sveinn Einarsson og Benedikt Grcndal flytja um „mótmæli gegn risasprengju Sovétríkjanna". Lauk fyrri framsögumaður Sveinn Einarsson bragðdaufri framsöguræðu, með þe:rri kröfu að tillögunni yrði ekki vísað til nefndar, heldur yrði hún afgreidd á þessum sama fundi. Spratt Eysteinn Jónsson þá upp og lýsti fyllsta stuðningi sínum við tillögu stjórnarflokka- [ þingmannanna. Fór hann hörðum orðum um kjarnorkusprengingar Rússa. 1 Næstur talaði Lúðvík Jóseps- i son, formaður þingflokks Alþýðu- bandalagsins. Ræddi Lúðvík fyrst um hásk- ann af kjarnorkusprengjum, sem ljós hefði verið frá því í stríðs- lokin, að sprengjum var varpað á japanskar borgir. „Við vitum það, fslendingar, að mál þetta skiptir okkur engu síður en aðra í heiminum. Því var það að við fulltrúar Sósíalistaflokksins á Alþingi fluttum árið 1953 þingsályktunar- tillögu, þar sem lagt var til að Alþingi skoraði á Bandaríkin, Sovétríkin og Bretland að koma sér saman um að stöðva tilraun- ir með kjarnorkuvopn, og þar sem þeirri áskorun var beint til Bandaríkjanna sérstaklega að þau stöðvuðu þær sprengingar sem þau voru þá að gera. En þá voru rædda'r mjög afleiðingar af sprengingum Bandaríkjamanna í Kvrrahafi. En þar hafði heilum eylöndum verið sökt. af slíkum sprengingum og stór hafsvæði, þar sem mesta fiskveiðiþjóð í heimi stundaði veiðar, verið stór- lega spillt með eitrun. Við litum svo á, fulltrúar Sósíalistaflokksins á Alþingi 1953, að við íslendingar ættum að leggja okkar litla lið til þess að vara þjóðir heimsins við í þessum efnum og reyna að stuðla að því að reglur yrðu settar til að koma í veg fyrir slíkar sprengingar sem þessar. 1953 mátti ekki métmæla! En þá kom fram á Alþingi að ráðandi f'okkar, og þá fyrst og fremst þingmenn Sjálfstæðis- flokksins, tcldu ekki rétt að gera samþykk't á Alþingi til kjarn- orkuveldanna, har sem skorað Framh. á 10. síða

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.