Þjóðviljinn - 29.10.1961, Blaðsíða 1
1
Sunnudagur 29. október 1961 — 26. árgangur — 248. tölublað
Afmœilshófi
ÞJÓLÍ7ILJANS verður frestað
vegna anna á síðasta söludegi
1. áfanga happdrættisins. —
Auglýst síðar hvenær hófið
verður haldið. — NEFNDIN.
liii
.
Svartar hrauntungur Öskjugossins teygja sig yfir snævi þakiö landið. Myndin sýnir endann á hrauninu á annan tug kílómetra frá eldstöövunum. (Ljósm. Þjóðv. A.K.)
Hraun hœtt að leng]ast en breíSist út nœr eldstöSvunum -
Eldvarp allf aS 60 m hátt hleSsf upp sunnan við glgana
Um miðjan dag í gær var ekki annað að sjá en
eldgosið í Öskju héldi áíram aí svipuðum kraíti og
áður, sagði Tryggvi Helgason ílugmaður á Akureyri
í viðtali við Þjóðviljann í gær.
Blaðið hafði tal af Tryggva
um nón, og þá var hann búinn
að fljúga tvær ferð'r yfir gos-
stöðvarnar, aðra í gærmorgun
en hina um hádegið.
300 til 400 metra
gosstrókur
Það var ósköp svipað um-
horfs þarna og á föstudaginn,
sagði Tryggvi. Austasti gígurinn
spýtir enn hraunleðjunni 300 til
strókum. Vera má að eitthvað
hafi dregið úr gosunum í hin-
um gígunum. Fjórir þeyta
hraunleðjunni upp í loftið en í
þeim fimmta kraumar aðeins.
Hraunið virtist mér l'tið sem
ekki hafa færzt fram og ferðin
á því mjög hæg þar sem hreyf-
'ngu var að sjá. Hinsvegar
breiðir það æ meira úr sér næst
gigunum.
Glóandi hraunelfur
Dr. Sigurður Þórarinsson var auðvitað með skotthúfuna frægu á
höfði þegar hann lagði af stað í fyrradag í rannsóknarleiðangur
til gosstöðvanna í Öskju. Myndin er tekin í flugvélinni á leið tíl
Akureyrar. — (Ljósm. Þjóðv. A.K.).
fellt næst gosopinu. Erfitt var
að sjá úr lofti hvort hraunið
er farið að hlaðast verulega upp.
Hinsvegar hefur myndazt eld-
varp á hraunsléttunni sunnan
við gígana. Þar er komnn
hryggur sem ég gizka á að sé
ekki lægri en 30 metrar og get-
Ur verið allt að 60 metra hár,
sagði Tryggvi.
Vikur á Öskjuvatni
Aska og vikur frá gosinu hef-
ur borizt í suðurátt. Ekkert
hraun hefur runnið suður í
ðskjuvatn, en mikill v.kur er á
vatninu eins og svartir sótjakar
fram með öllum löndum.
Ekki var að sjá neina ösku í
gosmekkinum i gær, sem var
álíka hár og í fyrradag, en þá
mældist mér hann 12.000 fet eða
4000 metra hár. Gufustrókur-
inn stóð næstum beint í loft upp,
því vindur var hægur af suð-
vestri.
Mikil mannaferð
Allmikil mannaferð var við
gosstöðvarnar. Hópur manna stóð
á brúninni við öskjuvatn vestan
við Víti, og þar hafði verið sleg-
ið upp tjaldi. Þarna voru átta
til tíu menn.
Niðri við hraunið var margt
manna. Voru þar átta bílar og
hafði beim verið ekið suður fyr-
ir hraunið og upp með því að
sunnanverðu. Tveir bílar voru
við allra fremsta hrauntangann
og bar voru menn fast við hraun-
brúnina, að því er virtist að mæl-
ingum, sagði Tryggvi.
Eftir hádegi var flugveður ó-
fært fyrir norðan sökum dimm-
viðris, misturs og skýjafars. Tölu-
vert er um að Akureyringar aki
til gosstöðvanna og virðist færi
gott fyrir bíla með drif á cllum
hjólum.
Hér syðra var töluvert mistur
í lofti framan af degi í gær.
Grunaði veðurfræðinga að þar
væri komin aska frá öskjugosinu,
en ekki var það endanlega stað-
fest þegar blaðið átti tal við
Veðurstofuna.
Drukkinn meður
stal bíl og ók
á mann og bíla
Skömmu eftir hádegi í gær
tók drukkinn maður bíl trausta-
taki hjá Hraðfrystistöðinni og
ók honum fram með höfn nni.
Maðurinn ók utan í nokkra bíla
og vörulyftú og síðan utan í
mann sem var við vinnu við
höfnina og meiddist sá eitthvað
og var farið með hann á slysa-
varðstofuna.
Lögreglan hafði hendur í hári
drukkna mannsins er hann var
búinn að yf.’rgefa b'linn. Tók
maðurinn til fótann,a en lögregl-
an náði honum í tadka tíð.
Skemmdir af völdum mannsins
urðu talsverðar.
Færeyjar og Efua-
hagsbrndaltgið
ÞÓRSHÖFN 28/10 — Lögþing
Færeyinga hefur verið kvatt
saman til sérstaks fundar næst-
komandi fimmtudag til þess að
ræða um það hvort Færeyjar
skuli gerast aðili að Efnahags-
bandalagi Evrópu.
Sóslalistar
Fundir í öllum dcildum á
mánudagskvöld.
FRA
AFMÆLISHAPPDRÆTTI
ÞJÓÐVILJANS:
2 dagar
eftir
Allir þeir, sem hafa miða
frá happdrættinu þurfa að at-
huga að eftir 31. október n.k.
verða allir gulir miðar ógildir.
Þess vegna þurfa seljendur
miðanna að skila andvirði
þeirra fyrir þann tíma til
happdrættisins, ásamt óseld-
um gulum miðum. Aðrir hlut-
ar blokkanna gilda fyrir síð-
ari útdrætti og eiga hlutað-
eigendur að halda þeim mið-
um áfram.
Útsölumenn og aðrir utan
Reykjavíkur þurfa í síðasta
lagi á miðvikudagsmorgyninn
hinn 1. nóvember n.k., að
póstleggja til happdrættisins
alla óselda gula miða og láta
uppgjör fylgja með þeim, á-
samt andvirði hins selda.
1 dag verður skrif stof a
happdrættisins að Þórsgötu 1
opin frá kl. 14.00 til 19.00. Á
morgun — mánudag frá kl.
10.00 til kl. 22.00.
Nú verður hver og einn að
ljúka því, sem hann á ólokið
í sölu fyrir fyrsta útdrátt.
Munið eftir gulu miðunum.
Komið og gerið skil.
Afmælishappdrætti Þjóðvilj-
ans, Þórsgötu 1, sími 22396,
Box 310.