Þjóðviljinn - 11.11.1961, Síða 1
lflLIIMM
vimihii
I-augardagur 11. nóvember 1961 ;— 26. árgangur — 260. tölublað
Hafa þrír embœttismenn gert ráð-
stafanir til stórfelldra lögbrota?
KrafizS á Mþing'i a3 hið ólöglerra útvarp og
sjánvarp Bandaríkfahers verði stöðvað
'A' Samkvæmt upplýsingum, sem íram komu
á Alþingi í gær, virðast tveir embættismenn
ríkisins, útvarpsstjóri og póst- og símamálastjóri
haía gert ráðstafanir til að þverbrjóta lögin um
úfvarpsrekstur á íslandi og feng'ið til þess sam-
þykki Guðmundar í. Guðmundssonar utanrh.
'jV Þessir þrír menn hafa leyft sér að afnema
þær hömlur er settar hafa verið á áróðurssjón-
varp og útvarp Banaaríkjahers á Keílavíkurflug-
velli, en allur sá rekstur er í trássi við íslenzk
lög og reglugerðir.
HÖGG OG SLÖG
★ Á Alþingi kom fram eindregin krafa um
að þessum lögbrotum yrði hætt og útvarps- og
sjónvarpsrekstur í herstöð Bandaríkjanna á
Keflavíkurflugvelli verði stöðvaður.
Áður en gengið væri til dag-
skrár á fundi neðri deildar Al-
bingis í gær kvaddi Þórarinn
Þórarinsson sér hljóðs, oa spurði
hvort rétt væri frean um að af-
numdar hefðu verið takmarkan-
ir þær er verið hafa á sjónvarpi
og útvarpi Bandaríkjahersins á
Kef 1 a v' kurf 1 ug velli.
Utanríkisráðherra Guðmundur
í. Guðmundsson játaði þetta rétt
vera og hefði hann leyft þetta
eftir samráð við ríkisútvarpið
og póst- og símamálastjóra. Las
ráðherrann bréf fpá hinum síð-
arnefnda embættismanni um
málið og kom þá reyndar í ljós
að samráðið við Ríkisútvarpið
hafði verði fólgið í þv: að hann
t.alaði við útvarpsstjóra Vilhjálm
Þ. Gíslaso.n! Staðfesti Þórarinri.
sem sæti á i útvarpsráði, að
ekki hefði verið minnzt á málið
þar.
★ Afg’öp embættismanna
Einar Oleeirsson deildi fast á
þessa ákvörðun utanríkismála-
ráðherra og taldi þess fulla þörf
að Alþinci léti málið til sín taka.
„Það er upplýst hér“ sagði Ein-
ar, .,að einn embættismaður í
r.'kisbákninu hafi talað við ann-
' an embættismann. Og síðan hafi
þessir embættismenn með sam-
þykki utanrikisráðherra gert
í ráðstafanir, sem þverbrjóta í
bág við íslenzk lög op atlan þann
; hátt sem hafður hefur verið á
| útvarpsrekstri hér á landi til
I þessa. Samtímis er upplýst að
(málið hafi aldrei verið borið
undir hina þingkjörnu stjórn út-
varpsins, útvarpsráð“.
Það er tími til þess kominn
að embættismönnum sé gert það
skiljanlegt að beim sé óheimilt
að ráðskast með stofnanir ríkis-
ins eins og bær væru prívateign.
Þingkjörnar stjórnir rikisfyr-
irtgekja, í þessu tilfelli útvarps-
ráð, eru til bess settar að varð-
veita lög og reglur um hlutað-
eigandi stofnun, og þá ekki sízt
hlutleysi útvarpsins, en allt þetta
Framhald á 3. síðu.
Þessi laglega unga stúlka vir.amr
í Fiskiðjuverinu og hún var að
pakka karfa þegar við komum
þangað í heimsókn fyrir skömmu.
Fleiri myndir og frásögn eru í
OPNU.
Ný sáttatillaga um Berlín
og Þýzkalandsdeilumálin
Moskvu, Bonn, London 10/11
— Sovétstjórnin hefur lagt
Þýzkaland fyrr en náðst hefur
samkomulag um fyrri liði tillög-
fram nýjar tillögur til lausn- un"ar' „
, ' ' , , . Þessi tillaga er onkust fyrri til-
ar a Berlmardeilunm og
Þýzkalandsvandamálinu. Er
í þeim gengi'ö í áttina til
samkomulags viö stefnu
vesturveldanna í málinu.
Afstaöa vesturveldanna til
nýju tillagnanna var ekki
kunn í gærkvöld.
Kylfubarsmíð og fantatökum var óspart beitt í Amsterdam, þegar
bollcnzku yfirvöldin skipuðu Iögreglunni að ráðast á 200 manna
hóp sem safnazt hafði saman við frönsku ræðismannsskrifstofuna
í borginni. Fólkið var að mótmæla blóðsúthellingunum í Alsír og
I-arís, þar sem franskt herlið og lögregla brytjaði Serki niður þeg-
ar þeir efndu óvopnaðir til hópgangna til að krefjast sjálfstæðis
Alsír til handa og afnáms kynþáttaniisréttis.
Báfernir byrjaðir að fá
siSd snemma í gærkvöld
Er fréttamaður blaðsins hafði
samband við Akranes í gær-
kvöld var honum tjáð, að gott
uðu að kasta fyrir kvöldmat og
má búast við að þeir hafi verið
að fram yfir miðnætti. Bátarnir
veður væri á síldveiðimiðunum voru að athafna sig um 12 —
og bátarnir væru að fá ein- 18 mílur undan Jökli og voru
hvern afla, sumir búnir að fá ekki allir jafn heppnir að hitta
100—400 tunnur. Bátarnir byrj- á síld.
Tillögur Sovétstjórnarinnar eru
í stuttu máli á þessa leið:
1) Hernámsveldin fjögur í Ber-
lín skulu ganga frá nýju sam-
komulagi um stöðu Vestur-Berlín-
ar, þannig að tryggt verði sjálf-
stæði borgarhlutans og öruggar
samgöngur milli Vestur-Berlínar
og Vestur-Þýzkalands.
2) Sovétríkin gangi frá samn-
ingi við Austur-Þýzkaland, sem
felur það í sér að austurþýzka
stjórnin viðurkenni stöðu Vestur-
Berlínar og viðurkenni samning-
ana sem hernámsveldin gera um
stöðu hennar skv. 1. lið.
3) Vesturveldin, þar á meðal
Vestur-Þýzkaland, lofi að viður-
kenna sjálfstæði og fullveldi
Ausfur-Þýzkalands. Ekki er vitað
hverskonar viðurkenningu farið
er fram á.
4) Sovétstjórnin lofar að gera
ekki friðarsamninga við Austur-
lögum Sovétstjórnarinnar að því
leyti að áður hefur síðasti liður-
inn — friðarsamningar við Aust-
ur-Þýzkaland — ætíð verið hafð-
ur fyrstur.
Ambassadorar á fundi
Ambassadorar Bandaríkjanna,
Bretlands, Frakklands og Vestur-
Þýzkalands í Moskvu höfðu fund
með sér í dag til að ræða nýju
sovézku tillögurnar.
Talsmaður brezku stjórnarinnar
sagði í dag, að það hafi vei'ið
krafa vesturveldanna frá upphafi
að framtíðarskipulag Vestur-
Berlínar yrði ókveðið áður en
friðarsamningar yrðu gerðir við
Þýzkaland.
Krústjoff forsætisráðh. mun hafa
átt viðræður við sendiherra vest-
urveldanna í Moskvu undanfarið.
Nýju tillögurnar munu ekki hafa
borizt ríkisstjórnum vesturveld-
anna í dag, en tilkynnt var að
þær væru komnar áleiðis.
Kópavegur
Aðalfundur Sósíalistafé-
lags Kópavogs verður
haldinn í félagsheimilinu
Þinghól mánudaginn 13.
nóvember n.k. kl. 8.30.
Dagskrá: Venjuleg aðal-
fundarstörf. Stjórnin.
Sósíalisfar
Fundir í öllum deildum n.
k. mánudagskvöld. Formanna-
fundur kl. 6 síðdegis í dag.
Sósíalistafél. Reykjavíkur.
Flugslys í gær á
Suðurskauts-
landönu
MEMURDO SOUND 10/11 —
Fimm menn biðu bana þegar
flugvél frá bandaríska flotanum
fórst á Suðurskautslandinu. Fjór-
ir aðrir menn, sem í flugvélinni
voru, sluppu með meiðsli. Véiin
var að koma úr heimsókn frá
sovézku visindastöðinni Mirnij.
Meðal þeirra sem fórust var
kunnur bandarískur jarðeðiis-
fræðingur, dr. Edward Thiel.
Hann var aðeins 33 ára og hafði
ábyrgðarmiklu starfi , að gegna
í þágu alþjóðlega jarðeðlisfræði-
ársins. Hann hafði dvalið fimin
sumur og eitt heilt ár á Suður-»
skautslandinu.
1