Þjóðviljinn - 11.11.1961, Blaðsíða 12
'! tal við leikklúbb, sem ætlar að hefja leik-
« • sýningar í Tjarnarbíói eftir helgina. í kiúbb
. - þessum eru 6 menn og nefnist hann Gríma.
Klúbbfélagar eru leikararnir Erlingur Gísla-
■' son og Kristbjörg Keld, Magnús Pálssbn leik
i tjaldamálari, Þorvarður Helgason leikstjóri,
i Guðmundur Steinsson rithöfundur og Vig-
I dís Finnbogadóttir, sem hafði orð fyrir þeim
< ■ félögum.
Vigdís skýrði svo frá, að klúbburinn hefði
átt í miklurn örðugleikum með að fá hús-
næði fyrir starfsemi sína og hafa þau stað-
ið í því stríði nú um tveggja ára skeið. Þeg-
ar kunnugt varð á sl. vori, að Tjarnarbíó
myndi losna í haust, reyndi klúbburinn að
fá þar inni og fékk fyrir velvilja borgar-
stjóra húsið til afnota fyrir þessar leiksýn-
ingar, þótt ekki sé enn búið að ráðstafa
húsinu endanlega.
Leikritið sem klúbburinn hefur tekið til
flutnings, nefnist Læstar dyr og er eftir
hinn kunna franska rithöfund Jean Paul
Sartre. Þýðendur eru Þuríður Kvaran og
Vigdís Finnbogadóttir, leikstjóri verður Þor-
varður Helgason, leiktjöld málar Magnús
Pálsson og leikendur eru tveir klúbbfélagar,
Erlingur Gíslason og Kristbjörg Kjeld, og
tveir gestir, þau Haraldur Björnsson og Helga
Löve. Leikritið er langur einþáttungur en á
undan því verður fluttur forleikur, kynning
á Sartre, er Þorsteinn ö. Stephensen og leik-
endur annast. Kvað Vigdís þá klúbbfélaga
standa í mikilli þakkarskuld við þá Harald
og Þorstein fyrir aðstoð þeirra, svo og þjóð-
leikhússtjóra, sem verið hefur þeim innan
handar á ýmsan hátt.
Klúbbfélagarnir kváðust hafa ýmsa áætl-
anir á prjónunum varðandi vetrarstarfið, ef
þau fengju inni í Tjarnarbíói í framtíðinni
fyrir starfsemi sína. Talið er, að Æskulýðs-
ráð muni standa næst því að fá Tjarnarbíó
til umráða af umsækjendum um það, og hef-
ur klúbburinn hug á samvinnu við Æsku-
lýðsráð ásamt þrem klúbbum öðrum, tónlist-
arklúbb, kvikmyndaklúbb og bókmennta-
klúbb. Gæti þessum aðilum orðið gagn-
kvæmur styrkur að slíku samstarfi.
Næsta verkefni klúbbsins, ef húsnæði fæst,
er að koma á fót nokkurs konar tilraunaleik-
húsi. Er það hugsað þannig, að klúbburinn
setji á svið leikrit eftir íslenzka höfunda.
Verða leikritin ekki fullæfð, en leikararnir
lesa híutverkin upp á sviði undir stjórn leik-
stjóra. Geta höfundarnir iþannig fengið að
kynnast því, hvernig verk þeirra fara á sviði
og síðan gert á þeim breytingar í -samráði
við leikstjóra. Ætti þetta að verða til gagns
bæði fyrir leikritahöfunda og leikhúsin. Þótt
þessar sýningar séu einkum ætlaðar þeim
er að leiklistarmálum vinna verða þær
einnig opnar öðrum, er áhuga hafa fyrir
þessum málum.
Þar sem sviðið í Tjarnarbíói var aðeins
urn tveggja metra breitt hafa klúbbfélagarn-
ir orðið að byggja framan við það til þess í
að geta sýnt á því. Hafa þau unnið þetta I
sjálf sl. tvær—þrjár vikur. Er fréttamenn- \
irnir komu í gær voru þau enn að vinna j
við sviðið og sjást þær Kristbjörg og Vigdís ^
hér að störfum. Á efri myndinni er Krist- l
björg að gera við sófa en á neðri myndinni l
sést Vigdís með hamar í hönd. — (Ljósm. t
Þjóðv. A. K.). I
Síld reykt til útflutnings
hjá Bæjarútgerð Hafnarij.
• FrysS síid þídd og reykt í „kippers"
Bæjarútgerð Hafnarfjarð-
ar hefur ákveðið að gera til-
raun með reykingu síldar í
stórum stíl til útflutnings.
Heppnist tilraunin vel er
þarna um að ræða þýðing-
armikið skref til að auka
verðmæti síldaraflans og
taka upp fjölbreyttari
vinnslu. I
Samþykkt um að Bæjarútgerð-
in hefji síldarreykingu var gerð
á fundi útgerðarráðs í gærmorg-
un. Sú samþykkt er árangur
undirbúningsstarfs sem unnið
hefur verið síðustu mánuði.
Samið við Skota
Fyrir fundi útgerðarráðs lá
uppkast að samningi við 'skozka
fyrirtækið National Fish Curing
Co. Ltd. í Aberdeen. Bjóðast
Skotarnir til að leigja Bæjarút-
gerð Hafnarfjarðar reykofna og
flatningsvél til að (fletja síld í
kippers, en bað er vinsælasti
síldarréttur í Bretlandi.
Ráðgert er að framleiða í til-
raunaskyni 250 tonn af kippers
á tímabilinú 1. janúar til 15.
maí næsta ár. Auk þess að leigja
tæki til síldarverkunar sendir
skozka fyrirtækið til Hafnar-
fjarðar sérfræðinga til að fylgj-
ast með vinnslunni og kenna ís-
lendingum. Loks kaupa Skotar
framleiðsluna á föstu verði.
Fryst síld unnin,
Bæjarútgerð Hafnarfjarðar
mun síðar ákveða, hvort hún
kaupir ofnana og flatningsvélina,
eða hvort hún tekur tækin áfram
á leigu.
Við reykingu sildar á þenn-
an hátt er unnt að frysta aflann
þegar vel veiðist og vinna hann
síðan jafnt og þétt þegar hægast
er. Engin vandkvæði eru talin
á að þ’ða frysta síld og vinna
siðan í kippers.
Með þessu móti skapast föst
vinna við síldina og er það að
sjálfsögðu þýðingarmikið bæði
fyrir fyrirtækið og starfsfólkið.
Reykingin fer fram í fiskiðju-
veri Bæjarútgerðarinnar og er
þar góð aðstaða til þessarar
vinnslu.
Er gott til þess að vita að ráð-
izt skuli í fjölbreyttari nýtingu
á síldarafla okkar og hann unn-
inn í sem verðmætasta vöru,
bæði með reykingu og súrsíldar-
verkun þeirri sem nýlega var
skýrt frá hér í blaðinu.
IÓÐVILJI
Laugardagur 11. nóvember 1961 — 26. árgangur — 260. tölublað
við rikisstjom-
I næstii viku
Þjóðviljinn ræddi í gær við Þorstein Pétursson, starfsmann
Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna, og spurði hvort hafnar væru
■ýf- viðræður við ríkisstjórnina um kröfur fulltrúaráðsstjórn-
ýf- arinnar um iækkað vöruverð, lækkuð útsvör og hækkaðar
fjölskyldubætur. Þorsteinn kvað svo ekki vera; forsætisráð-
-j^- herra hefði farið af landi brott og viðræður myndu ekki fara
fram fyrr en hann kæmi aftur, væntanlega í næstu viku. Stað-
festi Þorsteinn að efnisatriði í kröfum fulltrúaráðsins væru
-jú þau sem Þjóðviljinn skýrði frá í fyrradag.
KAUPMANNAHÖFN 10/11 —
Blaðið Berliiiske Tidende og
fleiri dönsk blöð fjalla í dag um
deiluna sem komin er upp milli
Norðmanna og Dana útaf fundi
Vínlands, þ.e. rústunum af að-
seturstað Leifs heppra í Ame-
ríku er hann fann þá álfu árið
1000.
B.T. hefur í dag viðtal við
Áge Roussel, forstjóra danska
þjóðminjasafnsins, og lætur hann
í ljós undrun y.fir þv: hve norski
fornminjafræðingurinn Ingstad
var öruggur í gær er hann gaf
yfirlýsingu sína. Ingstad reiddist
þeirri frásögn Roussels að danski
fornminjafræðingurinn Meldgárd
hefði fundið aðsetursstað Leifs
árið 1956.
Roussel endurtekur þá skoðun
sína. að æsltilegt sé að fleiri
sérfræðingar geri margþætta
rannsókn, eins og gert hefur ver-
ið með ýmsar fornminjar á
Grænlandi. T.d. eru læknar
kvaddir til að rannsaka manna-
bein, sem finnast í jörðu.
Blaðið skrifar einnig sjálft
um fund bæjarrústa Leifs á
norðurodda Nýfundnalands. Þar
segir að sjálfsagt sé að norræn-
ir vísindamenn vinni í samein-
ingu. að þessum fundi. Þeir hafi
áður haft með sér góða sam-
vinnu. t.d. við útgáfu Islenzkra
handrita, og það væri hrapalegt
ef rannsókn á aðsetursstað Leifs
heppna gæti ekki farið fram í
sama anda. í gær hafði Roussel
lagt til að Ingstad fengi vísinda-
menn frá skandinavíulöndunum.
fslandi og Kanada til að vinna
ásamt sér að rannsóknunum á
Nýfundnalandi.
Kólumbus í skólabókum
Það er óveniumikill áhugi á
þessum rannsóknum, segir blað-
ið. Hér er um að ræða staðsetn-
ingu og tímaákvörðun varðandi
fund Ameríku, en í flestum
skólabókum er Kólumbusi gef-
inn heiðurinn af því að hafa
fundið þessa heimsálfu.
Þó að Dani hafi orðið fyrstur
til að benda á þann stað þar sem
Leifur heppni hlyti að hafa haft
aðsetur, og þótt Norðmaður hafi
orðið fvrstur til að staðsetja
Molótoff fer frá
Vín til Moskvu
Vín 10/11 — Molótoff, fyrrum
utanríkisráðherra Sovétríkjanna,
hélt héðan frá Vínarborg með
lest í dag, föstudag, áleiðis til
Moskvu. í för með honum var
kona hans.
bæjarrústirnar nákvæmlega, þá
gefa þessar staðreyndir hvorki
Dönum né Norðmönnum rétt til
einokunar á vísindastarfinu á
Nýfundnalandi. Allir þeir könn-
uðir og sérfræðingar, sem sér-
staklega eru hæfir til starfsins,
verða að geta myndað hóp sem
hagar uppgreftinum og rann-
sóknunum á réttan 0£ v’sinda-
legan hátt. Vísindamenn hafa
alltaf getað starfað fordómalaust
saman, hvert svo sem þjóðemi
þeirra er, og varðandi þessar
rannsóknir hlyti samstarf nor-
rænna vísindamanna að geta
orðið gott.
Spilakvöld
Sésídistafélags
Reykjavíkur
enncð kvöld
Spilakvöld Sósíalistafélags
Reykjavíkur, hið fyrsta á
þessum vetri, hefst kl. 9 ann-
að kvöld í Tjarnargötu 20.
Svo sem áður er getið í
blaðinu mun Þórbergur Þórð-
arson rithöfundur skemmta
á spilakvöldinu og mun mörg-
Þórbergur Þórðarson
um vafalaust þykja forvitni-
legt að heyra hvað hann hef-
ur fram að færa.
Spilaverðlaun verða veitt
að vanda og kaffiveitingar á
boðstólum.
Þess er að vænta að þeir
mörgu félagar sem beðið hafa
þessara spilakvöida með ó-
þreyju bregði við og tryggi
sér sæti tímanlega, því að
byrjað verður að spila stund-
víslega kl. 9, eins og áður
var sagt.