Þjóðviljinn - 12.11.1961, Blaðsíða 3
1
Sparisjóóur vélstjóra hóf s'.arf-
semi sína í gaer > húsi Far-
xnannasambar.dsins að Bárugötu
11. Sparisjóðurinn er a'mennur
«g mun veita svipaða þjónustu
<og ávaxta fé með sömu kjiirum
•Og aðrar hliðstæðar stofnanir.
Stjórn sjóðsins skipu þau
Gísli Jónsson albm. formaður.
frú Jón’na Loftsdóttir og Hall-
grímur Jónsson vélstióri. Féhirð-
ir er Tómas Guðjónsson vél-
stjóri. Húsakynni sióðsins eru
cnn lítil en vistleg og hafa þeir
Jón og Grétar Björnssynir gert
veggskreytingu.
Sparisjóðsstofnun þessi á sér
langan aðdraganda. hugmynd að
henni kom fyrst fram í Vél-
stjórafélagi íslands árið 1937 en
vélstjórar voru þá innan við
200 talsins og' ekki talið kleift
Montgomery
heimsækir Kúbu
ÍLONDON — Montgomery mar-
skálkur sem nýlega heimsótti
Kína í annað sinn með , stuttu
millibili hefur þegið boð um að
koma til fundar við Fidel
Castro í Havana. Boðið fékk hann
meðan hann var í Peking.
í ræðu sem Montgomery hélt
á fundi hermanna serri börðust
við E1 Alamain í heimsstyrj-
öldinni komst hann m.a. svo að
orði; „Lykillinn að friði í heim-
inum er geymdur í Peking.“
Bókaútgáfa Menningarsjóðs
hefur gefið út safn frásagna af
mönmim og dýrum eftir Beig-
stein Kristjánsson.
Æskan og dýrin nefnist bók-
in, sem er 106 blaðsiður auk
nokkurra myndasíðna; fráságn-
irnar í bókinni eru 14 talsins.
Lítið hefti með dýrasögum
hefur áður (1943) komið út frá
hendi Bergsteins Kristjánssonar.
Safncð fé fyrir
síðari álmu
Blindraheimilis
Um síðustu áramót var hrein
eign Blindrafélagsins kr. 2.183.000
og á árinu var tekjuafgangur
kr. 404.000. Vörusala Blindra-
vinnustoíunnar á árinu nam
686.248 krónum og tekjuafgang-
ur kr. 199.762.
Þetta kom fram á nýafstöðn-
um aðalfundi, þar sem rætt var
um næsta stórverkefni félagsins,
byggingu síðari álmu Blindra-
heimilisins í Hamrahlíð 19. Fé-
lagið skuldar mikið vegna þeirra
framkvæmda sem lokið er, en
þörfin er brýn að geta tfekið á
móti aukinni aðsókn. Verða
merki seld til ágóða fyrir félag-
ið á sunnudaginn. Heitir félagið
á alla velunnara sína að bregð-
ast vel við, og telur að Blindra-
heimilið sýni að því fé sé vel
varið sem félagið fær til um-
ráða til að bæta úr þörfum
blindra.
Aðálíundurinn kaus í stjórn
Blindrafélagsins þau Margréti
Andrésdóttur, Rósu Guðmunds-
döttur, Kr. Guðmnnd Guðrhunds-
son, Guðmund Jóhannessön og-
Hanhes M.! Stephensen.
■ð hrinda henni i frnmkvæmd.
^ öndverðu ári 1959 var svo
-ambykkt tillaga frá Haftiða
Hafliðasyni um stofnun spari-
-ióðs. nefnd skinuð i málið.
regluserð samin fvrir sjóðinn og
'ékk hún siðan staðfestingu fjár-
málaráðune.vtisins.
Ábvrgðarmenn sjóðsins eru
um 100 en nú eru félagsbundnir
vélstiórar hátt á siötfa hundro-ð
nn fer ört fjölgandi. Áhuei vél-
st.ióra fvrir sparisjóðsstofnun-
mni hefur verið mikill og hafa
mi aðrar sreinar siómannasam-
isVanna óskað eftir að eisa hhit-
deitd í fvrirtækinu og er búizt
við að bað verði áður en langt
um Iður. FnarisióðQrinn mun
starfa sem lánastofnun fyrir fé-,
tapsmenn,
Stofnun þessa sparisjóðs er !
ekki eina afrekið ; fétagslegum
ve'ferðarmálum sem Vé'stióra-
félag íslands hefur unnið þau
rúmu 50 ár síðan það var stofn-
að. Fyrsti styrktarsjóður íélags-
ins var stofnaður 1915, Barna-
sióður var stofnaður 1923.
st.vrktarsióður ekkna, Valdemars-
sjóður, 1925 og 1926 bygeði fé-
lagið hús méð tvéim íbúðum
fyrir fjölskyldur fallinna félaga
og jafnframt voru bar tvær
verzlanir fyrir ekkjur sér til
framfæris. Stofnaðir hafa verið
lifeyrissjóðir fyrir fé'.agana og
árið 1915 beitti félagið sér fyrir
stofnun Vélskólans i Reykjavík
og hefur síðan haft forgöngu i
öllum meginmálum er skólann
varða. Á kreppuárunum hljóp
félagið undir bagga með þeim
heimilum sem áttu við tíma-
búndinn fjárskort og atvinnu-
'.eysi að stríða og upp úr þeirri
starfsemi fæddist hugmyndin að
sparisjóðnum.
Riistirnar
Framhald af 1. síðu.
verið notuð skamma hríð. Eitt
eða tvö klaufaleg handtök eða
óvarleg meðferð á skóflu eða
spaða getur eyðilagt allt verkið.
Roussel segir að ekkert hafi
frétzt um það að Ingstad hafi
fundið hluti í rústunum á Ný-
fundnalandi, sem aðeins geti ver-
ið komnir frá Islendingum eða
öðrum norrænum mönnum.
Þarna hafa hinsvegar að sögn
Ingstads fundist rústir af húsa-
þyrpingu, sem þeir virðast halda
að séu af hinni íslenzku gang-
húsa-gerð, þ.e. stofur, er liggja
begg.ia vegna gangs, sem liggi
hornrétt á íramhliðina. Ef þetta
er rétt skilið, geta tóftirnar ekki
staðið í neinu sambandi við
Leif Eiríksson, því hans bygg-
Ingar, ef einhverjar væru, hefðu
ekki getað haft slíkt byggingar-
lag. Því hlýtur maður að spyrja:
Hver hefur þá byggt þessi hús?
Það skyldi þó aldrei vera að
franskir sjóræningjar hefðu reist
þessar byggingar á 17. öld.
Áskorun Nehrus
Framhald af 1. síðu.
ar af með því að grafa sig nið-
ur í holur í jörðinni eins og
rottur. Heimurinn á ekki nema.
um tvo kosti að velja, annað-
hvort að banna atómvopnin eða
fórna tilvéru sinni, sagði Nehru
ennfremur.
Um bánn við kjarnavopnátil-
raunum sagði Nehru að ekkert
þýddi að treysta á einstakar á-
kvarðapir stórveldanna. Það
eina sem veitti heimsbúum ör-
yggi væru alþjóðlegir samningar
kjarnorkuveldanna um bann við
öllum kjarnavopnum undir
tryggú eftirliti. ■ >■ "■
Leikfélag Reykjavíkur mun nú sýna aftur gamanlcikinn „Sex eða
7“, en sýningar á honum hafa legið niðri um tíma, og verður 1.
sýningin í kvöld og er það jafnframt 16. sýning á leikritinu. —
Þessa skopmynd teiknaði Halldór Pétursson listmálari af þeim
Þorsteini ö. Stephensen, Brynjólfi Jóhannessyni og Guðmundi
Pálssyni í hlutverkum sínum.
Nýstárleg
barnabók
Rauði hatturinn og krummi
nefnist nýstárleg barnabók sem
út er komin á forlagi Heigafells.
Höfundur bókarinnar er Ás-
gerður Búadóttir; hefur hún
bæði samið textann sem er mjög
við hæfi hinna ungu lesenda og
gert myndirnar, sem prýða bók-
ina. einfaldar og skemmtilegar.
Til nýlundu telst að bókartext-
inn er prentaður á fimm tungu-
málum: íslenzku, dönsku, ensku,
frönsku og þýzku.
Stalingrad -
Volgograd
MOSKVA 11/11 — Borgin Stal-
ingrad hefur nú verið skýrð upp
og nefnist Volgograd, segir
Moskvublaðið Pravda í morgun.
Héraðið í kringum borgina hlýt-
ur sömu nafnbreytingu.
Annað sovézkt blað skýrir frá
því að bærinn Stalinsk í suður-
hluta Síberíu heiti hér eftir
Novokusnétsk. Iðnaðarborgin
Stalino við Don hefur fengið
sitt gamla nafn Donetsk.
Sumardogar í
annari útgófu
Sumardagar, hin vinsæla barna-
bók Sigurðar 'heitins Thorlacius
skólastjóra er komin út í 2. útg.
Það er Helgafell, sem gefur
bókina út nú, en fyrsta útgáfa
kom út árið 1939. Bókin er 87
blaðsíður í stóru broti, prýdd
fjölda skemmtilegra teikninga
eftir Valgerði Briem kennara.
Helgi Tryggveson
opnar bokamerkaS
Hinn kunni bókamaðúr og
blaðasafnari Helgi Tryggvason
opnar á þriðjudag markað í
Barkastræti 7 uppi (þar sem
verzlunin Ninon var áður). Þar
verða á boðstólum mörg hin fá-
gætustu rit, bæði bækur, tíma-
rit og blöð, sem ekki hafa ver-
ið fáanleg áratugum saman.
Helgi er löngu landskunnur
fyrir söfnun sína, og undanfarin
ár hefur hann efnt til markaða,
sem dregið hafa að sér athygli
bóka- og þlaðasafnara og bóka-
vina.
Meðal bóka á markaðinum má
nefna: Njálu útg. 1772, Norsku
lög Gulaþingslög i útg. Árna
Magnússonar, Grasafræði Odds
Hjaltalín. Sýslumannaævir o.m.
fl. Meðal tímaritanna eru; Ný
félagsrit, Fornbréfasafnið, Safn
til sögu íslands. Alþingisbækur
íslands, Landsyfirréttardómarn-
ir, Náttúrufræðingurinn, Veiði-
maðurinn o. fl.
Auk þess verðpr til sölu mik-
ill fjöldi af yngri og eldri bók-
um fyrir mjös lágt verð, þann-
ig að allur almenningúr getur
gert þarna mjög góð kaup.
Bóka- og blaðamarkaðir Helga
Tryggvasonar hafa verið fjöl-
sóttir undanfarin ár, en óhætt
mun að fulvrða að markaðurinn
að þessu sinni sé sérstaklega
girnilegur.
SEVEN UP
FÆST ALLSSTAÐAR
SEVEN UP
H.F. SANITAS - Sími 35350
Sunnudagur 12. nóvember 1961 — ÞJÓÐVILJINN — (JJ