Þjóðviljinn - 12.11.1961, Blaðsíða 9
Íþróttahátíð Mennta-
skólans í Reykjavík
Um fjögur hundruð
félagsmenn í IMR
Laugvetningar urðu
að lúta í lægra
haldi fyrir MR
Á fimmtudagskvöld fór fram
íþróttahátið Menntaskólans í
Reykjavík. sem nú er að verða
fastur liður í starfsemi íþrótta-
félagg skólans, og var til henn-
ar vandað. Hafði félagið boðið
fulltrúum frá Menntaskólanum
á Akureyri og eins frá Laugar-
vatni, og komu lið þaðan bæði
í handknattleik og körfuknatt-
leik.
Er þetta í fyrsta sinn sem lið
frá öllum menntaskólunum
koma saman til keppni, og hef-
ur Menntaskólinn hér sýnt mik-
inn dugnað og framtak að
koma þessu í kring.
Einar Magnússon, einn af
kennurum skólans, setti mótið
með eins stuttri ræðu og hægt
var, þar sem, hann bauð kepp-
endur frá Laugarvatni vel-
komna og bað áhorfendur að
taka undir þegar vel væri leik-
ið.
Fyrsti leikur kvöldsins var á
milli Menntaskólans í Reykja-
vík og Menntaskólans á Laug-
.arvatni, í körfuknattleik.
Keppendur Laugarvatns voru:
Hilmar Ingólfsson, Ingvi
Þorkelsson, Sigfús Elíasson,
Sigurður Símonarson, Jóhanh
\ Andersen, Hörður Bergsteins-
son og Vésteinn Eiríksson.
Keppendur Menntaskólans í
Reykjavík:
Þorsteinn Hallgr'mson, Ein-
ar Bollason, Einar Hermanns-
son, Guttormur Ólafsson, Kristj-
án Ragnarsson, Agnar Þor-
steinsson, Sigurður Ingólfsson
og Sveinn Snæland.
Þegar liðin komu inn á völl-
inn mátti sjá að í liði M.R.
voru leikmenn úr landsliði ís-
lands í körfuknattleik, bæði úr
landsliði fyrsta aldursflokks og
eins úr' unglinga-landsliðinu,
svo að þeir voru sigurstrang-
legri þegar áður en byrjað var.
Það kom líka fljótlega í ljós
að Laugarvatnsmenn máttu sín
ekki mikils í bessari viðureign.
M.R. skoraði 5 stig áður en
M.L. komst á blað.
M.R. heldur áfram og þeir ná
11:2, en M.L. bætir 2 stigum
við; 11:4. Enn fær M.R. 10
stig án þess að M.L. bæti við.
Hálfleiknum lauk með 25:6.
Síðari hálfleikur var svo-
lítið jafnari eða 19:12, en leikn-
um lauk með 44:18. Laugvetn-
ingarnir voru ekki eips leikn-
ir við körfuna, hvorki að kasta
í hana né að koma sér inn
undir hana, enda var vörn M.
R. sterk. Vafalaust hefur M.L.
mun minni keppnisreýnslu en
leikmenn M.R. og miðað við
það var frammistaða þeirra
furðu góð. Gerðu Laugvetning-
ar ýmislegt laglega. Lið
Menntaskóians í Reykjavík lék
oft mjög vel og örugglega, og
sýndi oft mikið öryggi í köst-
um, og þá sérstaklega Þor-
steinn Hallgrímsson, enda er
hann snjallasti körfuknattleiks-
maður landsins í augnablik-
inu.
MR vann Verzlunar-
skólann í hand-
knattleik 20:14
Næsta atriði var keppni í
handknattleik á milli M.R. og
nemenda frá Verzlunarskólan-
um. Lið M.R. var knálegt á að
líta og mátti sjá þar meðal
kappanna landsliðsmann og
menn úr meistaraflokkum fé-
laganna. í Reykjavík. Þeir voru
og meiri vexti en mótherjarn-
ir. sem voru ekki eins pasturs-
miklir á að sjá.
Það kom líka í Ijós áð leik-
menn M.R. náðu þegar í upp-
hafi betri tökum á leiknum og
höfðu skorað 3 mörk þegar
Verzlunarskóiamenn skoruðu
fyrst. Mátti sjá á töflunni 7:2.
Eh Verzlunarskólamenn voru
ekki á því að gefast upp, og
börðust við ofureflið og gerðu
menntskælingum skráveifur
hvað eftir annað og i hálfleik
stóðu leikar 11:7 fyrir M.R.
sem var minna en búizt var við
í byrjun. Og Verzlunarskóla-
Framhald á 11. síðu.
1 einu hléinu milli leikjanna
á fimmtudagskvöldið náði
fréttamaður íþróttasíðunnar
rétt sem snöggvast í formartn
Iþróttafélags Menntaskólans,
hinn áhugasama og duglega
Einar Bollason og bað hann
að segja svolítið frá félags-
starfseminni, þó að hann hefði
í mörgu að snúast og mörgu
að sinna bæði innan vallar og
utan. Hann sagði m.a.
Það er okkur mikil ánægja
að hér skuli hittast í fyrsta
sinn íþróttaflokkar frá öllum
þrem menntaskólum landsins,
en við höfum boðið þeim að
taka þátt í móti þessu. Erum
við að vona að það verði á-
framhald á þessum samskipt.um
í framtíðinni, og þá til skiptis
á stöðunum.
Hvað yarðar nýmæli í starf-
semi íþróttafélags skólans má
nefna að við höfum efnt til
æfinga fyrir stúlkur en það
hefur ekki verið gei't til þessa
og virðist mikil áhugi fyrir því
í skólanum. Þá höfum við efnt
til innanhússmóts í knatt-
spyrnu og voru 16 bekkir þátt-
takendur í því móti, sem fór
fram í íþróttahúsi Vals. Nú svo
æfum við handknattleik og
körfuknattleik og höfum verið
mjög sigursælir í skólamótum
undanfarið.
Auk þessarar íþróttastarf-
semi gengst félagið fyrir spila-
kvöldum allan vetúrinn og svo
hefur það eina árshátíð. I fé-
laginu eru um 400 félagar, og
er orðið mjög mikið starf að
sjá um að allt gangi. Og satt að
segja er alltaf eitthvað að ger-
ast, og alltaf eitthvað sem þarf
að undirbúa. Sem dæmi um
hvað þetta er mikið verk hefur
stjórn félagsins fengið frí í
skólanum í nokkra daga til að
undirbúa mót þetta og mót-
tökurnar.
Allir þessir gestir okkar búa
hjá skólafólki meðan það dvel-
ur hér, og skapast skemmtileg
kynning á milli með þessu
samstarfi.
Þess má einnig geta að á
föstudag förum við með þá
austui- í Skólasel og dveljum
þar nátílangt, og er þar undir-
búin kvöldvaka, og vonum við
að það verði hin bezta skemmt-
un.
Lengra varð þetta ekki. Hann
varð að fara að undirbúa sig
undir hinn örlagaþrungna leik
við kennarana. Hvort um hug-
boð hefur verið að ræða eða
ekki þá var Einar löðusveitt-
ur þegar hann gekk niður
tröppurnar!
Hið harðsnúna lið lærimeistaranna
sisraði skólameistarana með 9:8
Keppendur úr kennarahópi: *
Valdimar Ornólfsson, íþrótta-
kennari, Eiríkur Haraldsson,
íþróttakennari. Finnbogi Guð-
mundsson doktor, Þorleifur
Einarsson doktor.. Björn Sigur-
björnsson efnafræðingur, Aðal-
steinn Guðjohnsen verkfræð-
ingur, Rúnar Bjarnason verk-
fræðingur og Sverrir Scheving
jarðfræðingur.
Skólasveinar: (Stjórn. vara-
menn og endursk. íþróttafélags-
ins, og einn að láni) Einar
Bollason, Hrannar Haraldsson,
Þórður Ásgeirsson, Kristján
Stefánsson, Guðjón Magnússon,
Sigurður Þorsteinsson. Gutt-
ormur Ólafsson og Guðmundur
Matthíasson.
Það var greinilegt að hinir
mörgu áhorfendur biðu eftir
þessum „stórleik" fneð mikilli
eftirvæntingu. Skólasveinar
voru greinilega hvergi smeykir
og litu með velþóknun hver á
annan og var það fríður hópui’
með nöfnum landsliðsmanns og
manna úr meistaraflokkum R-
víkurliðanna. Sem sagt harð-
snúinn flokku.r ungra manna.
Kennarar, sem margir báru og
doktorsnafnbót, létu ekki mikið
yfir sér. Vafalaust hafa þeir þó
í hljóði huga hugsað til yngri
ára í leik þessum, þar sem
margir þeirra komu við sögu.
Þeir hafa sjálfsagt hugsað sér
að halda áfram, einnig þetta
kvöld, að þjarma svolítið að
skólasveinum.
Hófst síðan þessi skemmti-
lega viðureign. Var hraði mik-
ill í leiknum og létu kennarar
þegar í upphafi engan bilbug á
sér finna. Gripu þeir knöttinn
þétt og öruggt og áttu til að
tvíhenda honu.m í gólfið, þétt
og ákveðið, svona til þess að
vita hvort hann kæmi elcki aft-
ur. Þessar aðfarir vöktu kátínu
á áhorfendapöllum og virtist
skapa öryggi í leik kennara.
Ekki hafði leikur staðið lengi
þegar skólasveinar fengu að
kenna á því hvar Davíð keypti
ölið, því að ekki leið á löngu
þar til Þorleifur skoraði með
þrumuskoíi, og litlu síðar er
dæmt vítakast á skólasveina, en
Rúnar hafði ekki reiknað alveg
rétt út og geigaði skotið þann-
ig að markmaður varði.
Var sótt og varið af miklum
ákafa og að lokum tókst Hrann-
ari að jafna, en það stóð ekki
lengi því að Þorleifur gefur
kennurum enn forustuna, og
þannig stóðu leikar í hálfleik,
sem var sagður styttri hálfleik-
urinn!
Eftir leikhlé hélt sókn kenn-
ara áfram og lá á skólasvein-
um. Finnbogi beitti þá brögð-
um með vinstri hendi og sveifl-
um sem þeir kunnu ekki ráð
við; skoraði fljótlega 3:1. Komst
nú ákafi í kennara og héldu
þeir uppi sókn sem ákafastri og
eitt ■ sinn er lá á skólasveinum,
hefur Þorleifur sig hátt á loft
með knöttinn í hönd og sendir
óverjandi í mark skólasveina
4:1.
Þykir skólasveinum nú ekki
vel horfa og á stund neyðarinn-
ar er gefin út dagskipan: Mað-
ur á mann! Upphefst nú mikill
atgangur, og var sem gólfið
væri eitt ólguhaf. Þannig
dreifðir var sem kennarar
mættu sín miður og tókst skóla-
sveinum nú að skora 2 rnörk
4:3. En skólasveinar gerast nú
allharðir í horn að taka og
fer svo að dómarinn verður
að dæma á þá vítakast, sem
Þorleifur er ekki í vandræðum
með, að notfæra sér. Enn sækja
skólasveinar á og þar kemur
að þeim tekst að jafna, og
komast yfir -6:5, en með hár-
nákvæmum útreikningi verk-
íræðingsins Aðalsteins er jafn-
að 6:6. En þetta ætlar ekki að
duga. Sigurður Þorsteinsson
skorar fyrir skólasveina 7:6.
Geysast kennarar nú um sem
harðast og í gömlum góðum
ÍR-stíl tekst Rúnari Bjárna-
syni að jafna 7:7. Þetta hyet-
ur Eirík „hinn rauða“, ef svo
mætti segja til afreka að hætti
Þorleifs litlu áður, og tekur
hann undir sig stökk mikið, svo
að hann má sjá yfir margfald-
an mannhringinn, og sendir
þaðan knöttinn í markið hjá
skólasveinum. Stutt er örðið til
leiksloka, og allar líkur til a3
kennarar sigri í þessuni hildar-
leik. Þykir formanni íþrótta-
félags skólans, Einari Bollasýni,-
sem sinn heiður mundi rriinni
ef svo færi og vinnur að .hart,
og gengur bersérksgang um
völlinn, og talið víst að ef
skjöldur hefði verið á brjósti
til varnar hefði hann bitið í
rendur hans sem íastast. Þar
kom að hann fékk færi og jafn-
aði með föstu skoti. Skólasúeín-
ar líta nú títt til tímavarðar,
en klukkan hefur sinn vægðar-
lausa seina-gang. Hinsvegar eru
kennarar ekki á þeim buKum
að gefast upp fyrr en tíniinn
bannar að halda áfram, og svo
fer að Rúnari tekst að skora
sigurmarkið 9:8.
Eins og fyrr segir var ‘sótt
og varið á báða bóga og mátti
oft sjá að þótt skólasveinar
kæmust í gegn um vörn kenn-
ara, þá renndi Valdimar örn-
ólfsson sér ýmist á svigi eða
bruni fyrir knöttinn og dygði
það ekki tók hann stökk af
öllum gerðum.
Sem sagt skemmtilegur leik-
ur með undra góðum tilþrif-
urn í handknattleik kryddaður
með léttum „humör" og þá
var hinum góða tilgangi náð.
Dómarinn Daníel Benjamíns-
son sem dæmdi alla lefkina,
gerði einnig sitt til þéss að
fá þetta fram, og gerði það á
þann hátt að hvorki leikur ná
leikmenn biðu tjón af á neinn
hátt.
ritstjóri: Frímonn Helgason
Sunnudagur 12. nóvember 1961 — ÞJÖÐVILJINN —