Þjóðviljinn - 12.11.1961, Page 7
plðÐVIUINN
Útgefandl: Sameiningarflokkur alþýSu -1 Sósiallstaflokkurinn. - Ritstjórar:
Magnús Kjartansson (áb.). Magnús Toríi Ólaísson. Sit'urSur Guðmundsson. -
Fréttaritstjórar: ívar H. Jónsson, Jón Bjarnason. - Auglýsingastjóri: Guðgelr
Magnússon. — Ritstjórn, afgrelðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðust. 19.
Siml 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 50,00 á mán. - Lausasöluverð kr. 3.00.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
Leppmennska og lcgleysur
ITndirlægjuháttur núverandi ríkisstjórnar við erlént
vald hefur komið fram í mörgu og mun íslend-
ingum þar minnisstæðust svikin í landhelgismálinu,
þar sem sigri íslendinga í miklu hagsmuna- og sjálf-
stæðismáli var snúið í uppgjöf fyrir erlendu ofbeldis-
ríki, eins og rækilega hefur verið minnt á hér í blað-
inu undanfarna daga. Áróðurinn fyrir innlimun Is-
lands í Efnahagsbandalag Evrópu sannar, hve langt
Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðuflokkurinn hyggjast
ganga í því að misnota knappan og illa fenginn þing-
meirihluta til hinna mestu óhæfuverka gagnvart ís-
lenzku þjóðinni og sjálfstæði hennar.
¥\æmi um undirlægjuhátt ríkisstjórnarinnar og ein-
47 stæða misnotkun embættismanna á valdi sínu er
leyfið sem Bandaríkjaher hefur verið gefið til þess að
stórauka sjónvarpsrekstur og útvarpsrekstur sinn úr
Keflavíkurherstöðinni og gera hernum fært að ná til
sem flestra íslendinga með áróðurstækjum sínum. Að-
almálgagn Framsóknarflokksins, Tíminn, segir um
þetta mál í leiðara í gær að slíkt leyfi til áróðursút-
varps erlends hers mundi hvergi í heiminum leyft
nema um leppríki herveldisins væri að ræða. í>að fer
því ekki milli mála að þessi ákvörðun, sem utanríkis-
ráðherra Alþýðuflokksins segist hafa tekið í samráði
við póst- og símamálastjóra, sem aftur hefði talað við
útvarpsstjóra um málið, er gert í andstöðu við mik-
inn meirihluta þjóðarinnar og fordœmt sem undir-
lægjuháttur er hvergi gœti átt sér stað nema þar sem
ríkisstjórn hefur leppafstöðu gagnvart erlendu ríki.
\ llur útvarpsrekstur og sjónvarpsrekstur á Keflavík-
urflugvelli er brot á'íslenzkum lögum um útvarps-
rekstur, eins og Einar Olgeirsson lágði áherzlu á í
mótmælum sínum á Alþingi. Engum kemur til hugar
að telja hermannaútvarpið á Kéflavíkurflugvelli menn-
ingartæki, heldur mun það eihróma talið eitt af meiri-
háttar afsiðunaröflum íslenzkrar æsku í dag. Og þó
gengið hafi og gangi á ýmsu með þá lagaskyldu ís-
lenzka ríkisútvarpsins að gæta hlutleysis í málflutn-
ingi, þá kemur engum í hug að hermannaútvarpinu á
Keflavíkurflugvelli sé sétlað að vera hlutlaust útvarp
og á það sama við um sjónvarpið. Þetta útvarp úr her-
stöðinni í Keflavík er að sjálfsögðu beinlínis áróðurs-
tœki ríkisstjórnar og herstjórnar Bandaríkjanna. Og
stækkun þá, sem nú hefur verið ákveðin með þeim
furðulega hætti og ólöglega sem lýst var á Alþingi í
fyrradag, er ekki einu sinni reynt að afsaka með því
að þar sé um „þarfir“ Bandaríkjahersins á íslandi að
ræða, heldur gengur ósvífnin svo langt að stækkunin
er rökstudd með því, að eftir hana geti hermannasjón-
varpið náð til fleiri íslendinga en hingað til!
Ijáttur útvarpsstjóra og póst- og símamálastjóra er
sérstakt atriði sem þarf skýringa og upplýsingar
: við. Svo virtist eftir upplýsingúnum sem fram komu á
Alþingi, að þessir embættismenn hafí ásamt ráðherr-
anum framið þau herfilegu embættisafglöp að gera
þessar löglausu ráðstafanir varðandi hermannaútvarp-
ið svo að segja eða alveg á sitt eindæmi. Það kerjaur
fram að útvarpsstjóra hefur ekki þótt ástæða til að
bera slíkt stórmál undir hina, þingkjörnu stjórn ríkis-
útvarpsins, útvarpsráð. Því skal ekjcþ trúað, að út-
varpsráð hefði látið lögleysurnar og léppmennskuna
ihafa framgang í þessu máli, nema það eigi eftir að
ikomá í ljós. Ilitt "er staðreynd, að álits þess var ekki
leitað áður en ákvörðunin um lögleysurnar var tekin.
gðliíegt er, að mál þetta verði allt tekið upp að nýju,
og það er áreiðanlega krafa mikils meirihluta þjóð-
arinnar að bundinn verði endi á hið löglausa áróðurs-
útvai’p og sjónvarp Bandaríkjahersins á Keflavíkurflug-
velli, og þeir embættismenn látnir svara til saka er svo
gálauslega fara með vald sitt sem hér hefur gerzt.
AUSTFIRÐINGUR RIFJAR UPP LIÐNA TlÐ
Verzlanirnar áttu
bátana, iiskinn
Það fór mjög saman a5 mig
bar að garði og hann kom
heitur og breyttur af nætur-
vakt úr vélasvækjunni í síld-
arverksmiðjunni. Hagskýrslur
og blaðafregnir uppfræða okk-
ur nokkuð reglulega um pen-
ingagildi þess sem landað er af
síld og flutt út í skiptum fyrir
benzín, olíur, hveiti, kaffi, fatn-
að o.s.frv. Það er jafnvel
stundum reynt að segja okkur
ofurlítið um göngur síldarinn-
ar; að ekki sé talað um mála-
fjöldann í þróm verksmiðjunn-
ar þarna við voginn þar sem
hjól snúast látlaust dag og
nótt. En í hita áhugans fyrir
peningaupphæðum, hektólítr-
um og tunnufjölda gleymum
við oftast fólkinu sem gerir það
mögulegt að hjólin snúast,
tunnuhlaðarnir hækka og talna-
dálkarnir stækka. Er það
kannski svo að fólkið við véla-
hjólin og síldarkassana sé ó-
merkilegra en peningainnstæð-
ur, málafjöldi, vélagnýr og
tímgunarreisur síldarinnar?
Hvað um fólkið sjálft, hvernig
er líf þess, hver er saga þess?
Vitanlega eru sögurnar jafn-
margar og fólkið; hver einn á
sína sögu. Eigum við að „taka
eina stikkprufu“ (eins og við
segjum hér í Reykjavík, höf-
uðborg íslenzkrar tungu) og
spjalla við manninn sem situr
hér á móti okkur fáklæddur en
heitur, enda nýkominn úr verk-
smiðjusvækjunni? Það verður
þó ekki hálfsögð saga; ævi
manns verður aldrei fullsögð í
blaðagrein.
— Ekki munt þú vera „inn-
fæddur“ hér á Raufarhöfn,
Einar?
— Nei, ég
Búðakaupstað
— Hvenær,
ertu kominn?
—• Það gerðist 11. apríl 1907.
Móðir min var Anna Stefáns-
er fæddur við
á Fáskráðsfirði.
og af hverjum
dóttir og faðir Jóhapnes Magn-
ússon sjómaður.
:— Uppvaxinn á Fáskrúðs-
firði?
—, Já. ég var þar hjá for-
eldrum mínum. Á sumrin var
ég á Hafranesi við Reyðarfjörð
og sat bar yfir kvíám tvö sum-
ur... Já, það voru dásamleg-
ir dagar. Sérstaklega var til-
komumikið þegar maður var
kominn með féð upp í dalinn
og fjöllin og klifraði upp um
alla tinda og sá hvernig þok-
an lá eins og haf yfir lág-
lendinu og upp í miðjar hlíðar
en glaðasólskin þar fyrir ofan.
Það var mjög merkilegt heim-
ili á Hafranesi þá.
— Hvað byrjaðirðu gamall
að vinna fyrir þér?
— Ég hef víst verið á 11.
og 12. ári þegar ég sat hjá. en
15 ára byrjaði ég að róa á
mótorbátum heima á Fáskrúðs-
firði. Það voru 8—10 tonna
bátar þá. Róðrar voru hafnir í
fyrrihluta febrúar, farið suð-
Ur í Lónsbugt og suður undir
Hornafjörð. Við vorum allt að
•30 tíma í íóðri þegar allt gekk
vej... Já, oft varð að leita af-
dreps á Berufirði, Djúpavogi
eða komizt var í Papey, en ég
man ekki eftir neinu sérstöku
vondu veðri sem ég lenti í, en
oft var dimmt og ærið vont að
taka fjörðinn, og margur var
barningurinn vondur.
Það gerðist dálitið smá-
skemmtilegt atvik í sambandi
við það þegar ég byrjaði að
róa. Pabbi hafði byggt stein-
hús, fengið lán hjá Öruum og
Wulf og skuldaði þar enn, en
dó svo úr hjartabilun þegar ég
var 15 ára. Mamma yfirtók
húsið. Á þeim tíma var at-
vinnulíf Fáskrúðsfjarðar þann-
ig að verzlanirnar áttu bátana.
Verzlanir þar voru þá Öruum
og Wulf, Túliníus og Marteinn
Þorsteinsson & Co.., og áttu
a’lar verzlanir báta og gerðu
þá út. Fólkið vann hjá þeim
og átti að heita staðbundið, á-
nauðugt hjá þeim kaupmanni
sem það skipti við. Heimilis-
feður fengu ekki peninga fyr-
ir vinnu sína heldur úttekt
hjá verzluninni.. . Menn voru
upp á hlut, 1/14 af afla bát-
anna. og stundum höfðu menn
auk þess einn streng sem kall-
að var.
Mamma skuldaði hjá Öruum
og Wulf — og auðvitað fór ég
á bát hjá þeim en hafði fram-
færi mitt hjá mömmu. Það tal-
aðist svo til að ég mátti hafa
streng (60 faðma langan, 65
króka). Aflann af honum átti
ég sjálfur. Við vorum þrír
systkinungar á bátnum. Brátt
hafði ég orð á því við félaga
mína að við tækjum stubba-
fisk okkar, söltuðum hann
sjálfir og verkuðum hann þeg-
ar stórstraumur væri. — á
Austfjörðum var ekki hægt að
róa nema í smástraum, — því
J
þannig fengjum við meira fyr-
ir hann. Til þess urðum við að
fá salt hjá verzluninni. Ég fór
því og talaði við verzlunar-
stjórann. Jú, við gátum fengið
salt. Við höfum fengið nokkuð
mörg skippund af fiski þegar
komið var fram í júlí. Þá
kvað ein verzlunin uppúr með
saltfiskverð sitt, og okkur kom
saman um að líklega væri bezt
að selja fiskinn upp úr salti.
Við vildum náttúrlega gefa
okkar kaupmanni færi á að fá
fiskinn, fórum og spurðum
hvað hann ætlaði að gefa'fyr-
ir fisk úr salti, hvort það-yrði
jafnhátt og hjá hinum. Hann
kvaðst ‘ekki vita það, en hann
væri ekki vanur að gefa
minna. Ég segi honum að ég
aetli að vigta minn fisk og
selja uppúr salti. ítreka spurn-
inguna hvað hann ætli að gefa
fyrir slíkan fisk. Hann svarar
Einar Jóhannesson
enn fálega að hann viti það
ekki — en félagar mínir ætli
að leggia sinn fisk inn hjá sér.
Ég segist ætla að selja fiskinn
og fá hann borgaðan strax.
Hann svarar að ég taki fiskinn
ekki, mamma eigi að ráða hon-
um. Ég' fæ því skektu óg bróð-
ur minn til að hjálpa mér að
flytja fiskinn til annars kaup-
manns. Eftir hádegi förum við
og hittum verkstjórann og
spyrjum hvort hann vilji opna
fyrir okkur fiskhúsið, sem var
Iokað. Hann segist ekki gera
það því kaupmaðurinn hafi
bannað sér það, ég hafi enga
heimild til að taka fiskinn úr
húsinu. Ég bar mig mannalega
eins og strákum er títt, sagði
mér fyndist það helvíti hart
— eða hvort þeir .ætluðu að
stela fiskinum! Svo sé ég hvar
lyklarnir hanga á púlti á af-
greiðsluborðinu. Ég var léttúr
á mér þá, stekk upp á borðið.
gríp lyklana, svo förum við,
opnum fiskhúsið og tökum fisk-
inn. Svo fer ég til verkstjóraris
og lýsi sök á hendur mér, seg-
ist hafa tekið lyklana án þess
hann fengi að því gert — óg
þegar tekið fiskinn úr húsinu.
Við hömumst við að tína
Séð yfir Raufarhöfn. Löndunarbryggjur, bátafans, tunnustafla r og í baksýn húsin í síldarþorpinu mikla á Melrakkaslcttu,
fiskinn upp í skektuna. Þegar
við erum að láta síðustu fisk-
ana um borð, sjáum við til
verkstjórans uppi á bryggj-
unni. Það var ekkert blíðutil-
lit sem hann sendi ökkur þeg-
ar við ýttum frá um leið og
hann kom fram á bryggjuna.
Við rérum svo yfir til Tanga-
verzlunarinnar svokölluðu, það
var Túliníusarverzlunin. Við
lögðum fiskinn inn, og fór ég
svo með innleggsnótuna upp í
skrifstofu. Jón Davíðsson verzl-
unarstjóri, sem jafnframt var
hreppstjóri, var þar fyrir.
Hann borgaði mér fiskinn taf-
arlaust. En begar hann var að
enda við það hringdi síminn,
þar var útgerðarmaður minn
að tala og fyrirbýður Jóni að
borga mér fiskinn því hanni eigi
allan rétt á honum! Jón svarar
að þetta sé of seint, hann hafi
þegar borgað fiskinn! Við það
sat. En betta er lítið dæmi um
vald verzlananna í þá daga.
Þær áttú vörUrnar, bátana,
fiskinn, oft húsin og — fólkið
raunverulega líka! Verzlunin
borgaði nauðsvnlegustu út-
giöld fyrir fólkið svo. það
skrimtí, en það fékk aldrei
peninga sjálft heldur vörur og
milliskrift, og var séð um að
það átti aldrei inni í verzlun-
inni um áramót heldur skuld-
aði og væri háð verzluninni
svo hún gæti haldið áfram að
ráða yfir því. Lausamenn voru
þeir einu sem fengu peninea.
Og vildi einhver fá brennivín
var sjálfsaet að láta það eins
og hver vildi hafa.
— Varstu svo lengi hjá þessu
verzlunarvaldi?
— Þarna var ég nokkrar ver-
t’ðir, líklega tvö til þrjú ár.
Eftir það fór ég á vertíð til
Vestmannaevja . . . ég var allt-
af á sjó, aldrei landmaður,
Þegar ég kom fyrst til Eyja
sem- vertíðarmaður, voru bát-
arnir enn litlir. fiskinum var
hent í skjöktbát og síðan úr
Framhald á 10. siðu.
Eftir aö þetta allt var skeð
í austurveginum þarna,
stóra bomban og meira með,
mengað helvízkum kjarna,
upp í Snobbhill meö angrátt geð
arkaöi ég til Bjarna,
harmandi birta hug minn réð
húsföður landsins barna.
Meðan lifi ég minnast kann
mínar hve raunir bætti
foringinn í þeim fríða rann,
frí af svindli og slætti,
sá yndismaður ört fyrir sann
anda minn hryggan kætti,
orðræðu klára inna vann
eftir röklegum hætti:
„Flest hefur Krúsi fólslega gert,
furtur sá er mér gáta,
hann hefur Stalín sjálfan svert,
svívirt úr öllum máta.
Aldrei skal gera opinbert
axarskaft pótintáta,
og margt gerði Stalín mikilsvert,
mun ég það glaður játa.
Víst er skítt að sá vinur kær,
— sjá Vísi og Morgunblaðið —
útreið slíka hjá föntum fær,
fyrr má nú vera baðið,
hann átti ei skuld, það vitum vær,
var þó troöinn í svaðið.
Mínu hugprúða hjarta nær
hafa þeir fáir staðið.
Eins fór Krúsi með illa vél
atómbombum að skjóta,
syndug mannkindin hreppir hel,
hvergi finnst örugg gjóta,
póllinn kominn í mask og mél,
mér verður á að blóta,
yfir oss dynur eitrað él,
úldnir golþorskar fljóta.
Nú er hér tæpast sól að sjá,
sígur að kolsvört gríma,
öðruvísi mér áður brá,
uppi var fögur skíma
þegar Kanar með blíðri brá
brenndu á Hírósíma.
Enginn maður sig meiddi þá,
man ég þá dýröartíma.
Aðdáun vakti aöferö sú
íhalds hjá frómum lýöum,
eins er Nató af ást og trú
aldeilis fráhverft stríðum;
framganga læt ég fögur hjú
í friðarins klæðum síðum,
stend og sannlega nærri n,ú
Nóbelsverðlaunum fríðum.
Stokkhólmsávarpið ástargjörn
aðhylltist sál mín ríka,
sannleiksmegin í sókn og vörn,
sumir þeim dyggðum flíka,
ekki voru það eintóm börn,
sem undirskrift frömdu slíka:
man ég að séra Sigurbjörn
setti þar nafn sitt líka.
Allmargt fór kannski á annan veg
en upphaflega ég spáði,
— Eysteins-kind er í taumi treg,
tæpast með réttu ráði.
Víst skal þó hefjast vegsamleg
viðreisn á þessu láði.
— Dreymir mig bert þann draum
dollarafræjum sáði.
að ég
Læt ég nú blað mitt lon og don
lyfta vanþroska sálum,
alfær stendur á Óðinskvon
Eykon í heimsins málum,
sá hefur ljúflega landsins son
leitt að sannleikans skálum,
íhaldsréttlætis alskír von
á örlagavegi hálum.
Allt í frá bernsku boðorð slétt
blessaður trú ég eigi:
ástunda gott og gera rétt
svo guðsríki eflast megi,
— hefur og löngum lygafrétt
■lagt út á beztu vegi.
Mikið hátt hefur markið sett
maðurinn elskulegi.
Því munu á eilífu íhaldstré
ávextir fagrir skína,
víða, fyrir utan víl og spé,
viðinn brumhnappar krýna:
Herlegt mannblóm er Hannes Pé,
hann þarf nú ekki að brýna,
sá lætur aldrei fyrir fé
fala lífsskoðun sína.
Hrist af þér, bróðir, hugarins slen,
haf þig til vegs og dáða.
Enn er hjá Krúsa skömmin skén,
skal nú krep^t að þeim snáða:
Jökul.minn og Johannessen
ég mun til vika ráða,
— sé ég nú í þeim gengna igjen
Grím og Matthías báða.-----”
Þannig hjalaði þykkur mann
því nær í einum spretti,
huggun fög-ur hér finnast vann,
furða var þó mér létti,
brákaðan reyr með sælum sann
svo til fulls við hann rétti,
að íhaldskrafturinn í mér brann
eins og rafmagn í ketti.
Jón Keflvíkingur.
— ÞJÓÐVILJINN r- Sunnudagur 12. nóvember 1961
Sunnudagur 12. nóvember 1961 — ÞJÓÐVILJINN — ['Jj