Þjóðviljinn - 29.11.1961, Side 5
ii lokaðt mál
KAUPMANNAHÖFN — Um síÖt
ustu helgi opnaöi danski málar-
inn Wilhelm Freddic sýningu á
málverkum í Kaupmannahöfn.
Sýningin var þó aðeins opin í
fácinar mínútur því aö lögreglan
koin á vettvang og fjarlægði
listaverkin og lckaði sýningunni.
Freddie sem er súrrealisti hélt
árið 1937 sýningu á málverkum
sínum í Kaupmannahöfn. Lög-
reglan fjarlægði þá myndirnar
og lagði hald á þær. Ástæðan
var sú að dómsmálaráðuneytið
úrsku.rðaði að þær væru klám.
Síðan hafa þessar myndir verið
geymdar í safni dönsku rann-
sóknarlögreglunnar.
Hefur Freddie hvað eftir annað
ikrafizt að fá myndirnar aftur og
leitað réttar síns fyrir dómstól-
unum, en kröfu hans jafnan ver-
ið vísað frá.
Tók hann sig til fyrir skömmu
og málaði myndirnar aftur og
iþað voru þær sem hann hafði
nú efnt til sýningar á. Boðs-
gestir fengu að skoða myndifnar
i friði,,, en .skömmu ádur en sýn-
ingin skyldi opnuð fyrir almenn-
ing var hringt úr dómsmálaráðu-
neytinu til sýningarsalsins og
sagt að sýningunni myndi lokað
með valdi, ef myndirnar væru
ekki teknar niður. Þegar því var
ekki hlýtt, komu lögreglumenn
á vettvang, en Freddie lýsti yfir,
að- hann myndi mála myndirnar
enn einu sinni.
Svo kann að fara að mál þetta
komi enn einu sinni fyrir dóm-
stölana. Hinn kunni danski mál-
ari, Asger Jorn, sem búsettur er
í París, hefur nefnilega keypt
eina myndina af Freddie og gefið
hana listasafninu í Silkiborg.
sem héfur þegið gjöfina. Kann
safnið nú að gera kröfu til að
fá myndina úr vörzlu lögregl-
unnar. ;
Freddie á annars einnig von
á því að verða k'vaddur fyrir
rétt. Hann var árið 1937 dæmd-
ur í tíu d.aga varðhald fyrir að
hafa. ,-brotið gegn almennu yel-
sæmi.' f'‘ '• ýf
’ ■ ’4
Viðtal við Kennedy í Isvestia
Novosibrisk, hin nýja höfuðborg Síberíu
Frá miðbiki Novosibrisk, til vinstri ráðhúsið, til hægri æskulýðsleikhúsið og á rriilli þeirra sést á
hvolfþak hins mikla sönglcikahúss.
Novosibrisk, þar sem þeir
Kekkonen forseti og Krústjoff
forsætisráðherra ræddust við í
isíðustu viku; er hirr nýja höfuð-
borg hins mikla framtíðarlands,
Síberíu. Þetta er ekkert smá-
þorp. heldur nýtízku stórborg
sem hefur 900.000 íbúa. Borgin
Framhald af 12. síðu.
í dag er í því fólgin að bæði
USA og Sovétríkin eiga kjarna-
vopn, sem geta orsakað gjör-
eyðilegg'ingu, sagði Kennedy.
Bandaríkin og Sovétríkin eru
þau lönd, sem yrðu fyrir mestu
tjóni ef til styrjaldar kæmi. Ef
við kæmum fram af raunsæi
álít ég að við gætum komizt að
samkomulagi, er tryggja myndi
hagsmuni beggja landanna og
gæfi þeim tækifæri til að ein-
beita sér betur að því að
toæta lífsafkomu fólksins og
leysa ýmis önnur vandamál.
Erigin ríki munu heldur græða
eins mikið á friði eins og Sov-
étríkin og Bandaríkin, mælti
Kennedy.
Kennedy færðist undan því að
svara hvort Bandaríkin væru
reiðubúin tl að gera friðarsamn-
ing við Sovétríkin. Vildi hann
tfyrst gera ýmsar smærri ráð-
stafanir og samninga, t.d. um
frið í Mið-Evrópu, hlutlausa
stjörn í Laos o.s.frv.
Kennedy kvað Bandaríkja-
menn ekki mundu fara með her-
lið sitt burt frá Evrópu, enda
þótt Sovétmenn færu heim með
- ílLJJjLI ►:
Enn
v-þýzka hernum
BONN 28/11 — Vesturþýzka
stjórnin tilkynnti í dag nýjar
ráðstafanir sem gerðar verða til
að fjölga í vesturþýzka hernum
á næsta ári. Verða þá komnir
375.000 manns í herinn. M.a.
verður 26.500 hermönnum, sem
áttu í rauninni að verða leystir
úr herþjónustu við áramót, hald-
ið í hernum þremur mánuðum
lengur.
það herlið sem þeir eiga enn í
sumum Evrópuríkjum.
Kennedy ásakaði Sovétríkin
fyrir að vilja að kommúnismi
kæmist á í öðrum löndum.
Viðtalið við Kennedy hefst á
forsíðu Isvestia og nær yfir
hálfa aðra síðu.
Kennedy ánægður
Pierre Sailinger, blaðafulltrúi
Kennedys, lét í ljós ánægju ýf-
ir því að viðtalið við Kennedy
hefði verið birt í heild og ekkert
dregið undan. Kennedy sagði er
hann frétti um það sem birt var
í Isvestia að hann væri glaður
yfir því að fá tækifæri til að
leggja fram skoðanir sínar fyr-
ir sovézku þjóðina á þennan hátt.
Birting viðtalsins er stórt skref
í áttina til betri skilnings milli
Bandaríkjanna og Sovétríkjanria,
Ég vona að þetta muni stuðla að
aukinni samvinnu landa okkar
á öllum sviðum, sagði Kennédy.
•Ltmmm
.Húsm
Vesturveldin andvíg því að
banna kjarnavopn í Afríku
NEW YORK 24/11 — Fulltrúi
Bandaríkjanna, Arthur Dean,
lagðist í umræðum á allsherjar-
þingi SÞ í dag gegn tillögu um
að öll kjarnavopn verði bönnuð
í Afríku, en tillaga þessi er bor-
in fram af Afríkuríkjum.
1 tillögunni er einnig gert ráð
fyrir algeru banni við notkun
kjarnavopna. Dean sagði að
simavæm
VARSJÁ — Hér hefur verið
komið upp um mesta símavænd-
ishneyksli sem um getur í Pól-
landi. Fimmtán starfsmenn í einu
stærsta gistihúsi borgarinnar hafa
verið handteknir.
Pólsk blöð skýra frá því að
í hinu sextán hæða háa Hótel
Varsjá hafi um tuttugu síma-
vændiskonur haft fasta búsetu í
langan tíma og hafi þær greitt
starfsmönnum hótelsins Stórfé
fyrir að vísa til þeirra viðskipta-
mönnum.
Stúlkurnar hafa haft geysileg-
ar tekjur af iðju sinni. Blaðið
Kurier Polski segir þannig að
sumar þeirra hafi getað greitt
starfsmönnum hótelsins um 200.
000 krónur á ári fyrir „greið-
vikni“ þeirra. Þær hafa yfirleitt
tekið um 4.000 krónur af hverj-
um viðskiptamanni sínum. Ein
stúlknanna hefur skýrt lögregl-
unni frá því að hún hafi eitt
sinn fengið greiddar 25.000 krón-
ur fyrir blíðu sína.
Bandaríkin væru andvíg þessari
tillögu og hefðu gild rök til þess
en tók þó ekki fram, hver þau
rök væru.
Dean sagði að Sovétríkin
myndu vafalaust túlka þessa af-
stöðu Bandaríkjanna á þann veg
að þau vildu heyja kjarnorku-
stríð, en allir fulltrúar á þinginu
vissu að slík túlkun væri alger-
lega út í hött. Dean sagði að
með tillögunni væri farið alger-
lega rangt í þetta mál. I henni
væri notkun kjarnavopna kölluð
glæpur, en hins vegar ekkert
tekið fram um það hvernig
tryggja mætti að Sovétríkjunum
yrði haldið í skefjum. Ríki sem
vildu tryggja öryggi sitt gætu
ekki reitt sig á slíkar yfirlýsing-
ar eins og fælust í tillögunni;
þau yrðu að eiga kjarnavopn.
KAÍRÓ 28/11 — Fyrrverandi
sendiherra Egyptalands í Frakk-
landi, Adli Andraos, hefur verið
handtekinn, sakaður um hlutdeild
í samsærinu um að myrða Nass-
ér forseta. Fjórir Frakkar voru
handteknir í Kaíró í síðustu viku,
og háfa þeir verið ákærðir fyrir
að vera höfuðpaurar samsærisins.
er ein yngstá stórborg' í heim-
inum. Það eru ekki nenia 70
ár síðan lítilí hópur leiðanaurs-
manna sló þarna upp tjöldum
sínum, við fljótið Ob, og var þá
ákveðið ,að byggja járnbrautar-
brú yfir fljótið á þessum stað.
Þar reis upp lítið þorp, en það
var elcki fyrr en iðnvæðingin
hófst í Sovetríkjunum með
fyrstu fimm ára áætlununum að
eitthvað fór að gerast í Novo-
sibrisk. Fjöldi verksmiðia var
reistur í bænum, sem fór ört
vaxandi. En mesti vaxtarkipp-
urinn hófst fyrir áratug, þegar
bygging mikils orkuvers var haf-
in skammt frá Novosibrisk. Þá
varð borgin ein af miðstöðvum
sovézka þungaiðnaðarins. Nú er
verið að byggja heila borg fyrir
vísindamenn í útjaðri Novosibr-
isk. Verður þar miðstöð visinda-
rannsókna í Síberíu. Smíði hinn-
ar miklu háskólabyggingar er
um það bil lokið, en þarna rísa
einnig 12 rannsóknarstofnanir,
fjöldi íbúðarhúsa, heimavistar-
húsa fyrir stúdenta o.s.frv.
Ákærð í 3. sinn
fyrir tólf morð
BORDEAUX — í þriðja sinn síð-
an árið 1949 hefur hin 65 ára
gamla ekkja Marie Besnard £
franska þorpinu Louden verið á-
kærð fyrir að hafa drepið tólf
skyldmenni sín á arseniki. ÖIL
þessi skyldmenni hennar, þar
með talinn eiginmaður hennar,
dóu á voveiflegan hátt. Þegar
grunur féll á frú Besnard voru
lík þeirra grafin upp og reynd-
ist þá vera mikið magn af arsen-
iki í þeim. Þótti þá víst að frú
Besnard hefði drepið fólkið á
eitri. Verjanda hennar tókst þó
að sanna að í kirkjugarðinum
þar sem líkiri voru grafin sé
mikið arsenik í jörðu og hefur
niðurstaða ekki fengizt í máli
hennar, vegna þess að sérfræð-
ingar hafa verið ósammála um
j hvaðan arsenikið sé komið í lík-
in.
LlDÓ föstudaginn 1. des. — Hefst mcð borðhaldi kl. 19.
FORSETI FLUGMÁLAFÉLAGSINS SETUR HÁTÍÐINA.
ÁVARP: Flugmálaráðherra. — Afhending gullmerkis.
SKEMMTIÞÁTTUR: Flugtak og lending Loftur Guðmundsson.
NÝR SKEMMTIÞÁTTUR: Baldur og Gimmi.
Á MIÐNÆTTI: Óvenjulegt skemmtiatriði.
DANS TIL KL. 2. Hljómsveit Svavars Gests.
<
in
fM
Flugmáláhátíðin 1961
SVAVAR GESTS stjórnar auk iþess samkvæmisleikjum og
spurningaþáttum.
Aðgöngumiðar fást á eftirtöldum stöðum: Skrifstofu flugmála-
stjóra, Reykjavíkurflugvelli, Flugfélag Islands (Guðrún Kristins-
dóttir), Loftléiðir (Islaug Aðalsteinsdóttir), Skrifstofu flugvallar-
stjóra, Keflavíkurflugvelli, Tómstundatoúðinni, Austurstræti.
FLUGMÁLAFÉLAG ISLANDS
Miðvikudagur 29. nóvember 1961 — ÞJOÐVILJINN — (5