Þjóðviljinn - 20.12.1961, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 20.12.1961, Qupperneq 5
Smásagnahöfundur i fremstu röð Xngimar Erl. Sigurðsson: Hveitibrauðsdagar. Bókaverzlun Sigfúsar Eymunds-sonar, Reykja- vík 1961. Þetta er önnur bók höfund- arins. Hin fyrri var ljóðabók „Sunnanhólmar", sem kom út hjá sama forlagi árið 1959. Ekki vakti sú bók mikla athygli, en þó mátti greina þar uppruna- legan streng, sem virtist eiga sér rætur í innhverfum per- sónuleika. Þessa sama innhverfa strengs gætir einnig í sögum Ingimars. Að vísu misjafnlega ■mikið í einstökum sögum, en allsstaðar nokkuð. í þessari bók eru 12 sögur og hafa nokkrar iþeirra birzt áður og jafn- vel hlotið verðlaun. Ingi.mar fjallar alloft um börn í sögum sínum og finnst mér hann ná þar einna beztum árangri. Sérstaklega verður sálarlíf draumljmdra og ein- mana drengja honum notadrjúgt. • Gítar Til jólagjafa leikföngum • Gítarar og gítar-ólar ® Ráfmagns-gítarar Hofner 1 Ráfmagns-bassar ® Harmonikkur, allar stærðir. ' • Tromupetar • • Fiðlur ° Og . margt Æleira. Einkaumboð á íslandi fyrir • Sclmer-Saxafóna og fl, Einkaumboð fyrir • Premier trommum Hljóðfæraverzlwi POUL BERNBURG h.f. Vitastíg 10 — Sími 3-8-2-11 Sendum um allt land. yrkisefni t. d. í einni béztu sögu bókarinnar: Snjór. Einnig í sögum einsog Regn, Rottuveið- ar og Huldumaður, en líklega eru þessar fjórar sögur einna beztar í bókinni. Er all-erfitt að gera upp á milli þeirra. Ein saga sker sig úr vegna þess hve hún er lélegri en hinar. Það er sagan Böggla-Stína. Hún er varla meira en hversdagsleg svipmynd án bókmenntalegrar upphafningar. Eina söguna, Þrjár líkkistur, samdi höfundur 15 ára gamall, og er dálítið merkilegt að hún skuli ekkert gefa eftir hinum nýrri sögum í bókinni. Mér virðist Ingimar Erlendur heiðarlegur rithöfundur. Sögur hans eru persónulegar og vand- lega unnar. Yrkisefni hans eru að vísu ekki mjög fjölbreytt, en hann þekkir vel það. sem hann skrif- ar um. Hygg ég að hann byggi sögur sínar mjög á eigin reynslu. Ingimar gerir ekki þjóðfólagsmál að yrkisefni, í venjulegum skilningi. Er einna líkast því að persónur hans lifi og hrærist í stöðnuðu þjóð- félagi, sem ekki á sér neinna breytinga von í náinni framtíð. Hann leggur höfuðáherzlu á sálarlíf persónanna, kannar þar ýmsa afkima og snertir við- kvæma bletti. Fer hann um þetta allt nærfærnum og skiln- ingsríkum höndum. Sumum kann að virðast hann koma stundum of nálægt því, sem þeir vilja ekki hafa í hámæl- um, og mun höfundur hafa átt í útistöðum við útgefanda af þeim ástæðum. Ekki fæ ég séð hvað slíkum ýfingum hefur getað valdið. Hér á landi eru nú nokkrir góðir smásagnahöfundar. Ekki treysti ég mér til þess að skipa þeim niður í röð, en vafalaust má Ingimar Erlendur teljast þar framarlega. Bókin er pTent- uð í prentsmiðju Jóns Helga- sonar og er frágangur allur mjög góður. Atli Már gerði mjög þokkalega kápu á bókina. Jón frá Pálmholti. Kœrkomnir kunningjar Álfaguli og Kóngsdótt- irin fagra eftir Bjarna M. Jónsson, 3. útgáfa. Bókaútgáía Menningar- sjóðs. j Það er eins og að hitta aft-, ur gamla og góða vini að fá i hendur Kóngsdótturina fögru og Álfagull eftir Bjarna M. Jónsson, sem hrifu mig svo mjög sem barn. Það er líka á- nægjuiegt að lesa ævintýrin að nýju og finna að þau hafa í engu tapað gildi sínu á þeim 34 árum sem liðin eru frál fyrstu útkomu þeirra. Þetta eru ævintýri, skrifuð á fallegu og eðlilegu máli, full af seiðmagni og mannviti. Manni finnst næst- um eins og þessar sögur hafi alltaf verið til og muni alltaf verða til, enda ættu þær það skilið. Hafi Menningarsjóður þakkir fyrir útgáfu þeirra. Alfheiður Kjartansdóttir. Ein Dísubókin enn Kári Tryggvason kennari í Hveragerði sendir frá sér tvær barnabækur í haust, og tvær komu í fyrra. Önnur bók beggja áranna er um Dísu á Grænalæk, og eru þær bækur þá orðnar þrjár og sú fyrsta komin í tveim útgáfum. Það mætti segja mér, að Dísubækumar hans Kára væru með vinsællj barnabókunum, og ber því ,að fagna. Málfar bókanna er hreint og látlaust og mjög við hæfi yngstu les- enda landsins. Dísa er mjög venjuleg telpa og hverju bami elskuleg leiksystir. Eftir fvrstu bók langar litla lesandann til að hitta hana aftur og kynnast henni nánar, og alltaf er hún sama skemmtilega stúlkan, þótt smámsaman togni úr henni. Ævintýri eru við hæfi barna, og mikið af bamabókmenntum er í því formi. Einstaka ævin- týri fléttar Kári inn í frásagnir sínar. En það er ekki þeirra sterkasta hlið. Hinn þátturinn er sterkari, hve höfundur hefur næma tilfinningu fyrir ævin- týri hversdagsleikans í lífi barnsins,- Þegar rnarnma verður blíð að afstöðnum ávítum, þeg- ar pabbi kemur heim með móðurlaust lamb og litla stúlk- an fær að halda á mjólkurpel- anum ,meðan það tottar, og svo ætlaf það að sjúga nefið á henni. Og þótt Dísa sé sveita- stúlka, þá er það ekki nauð- synlegt, að bömin séu í sveit- inni, til þess að dagur hver verði ævintýri. Kári hefur líka staðsett söguhetjur sínar í Hveragerði, Vestmannaeyjum og víðar, og hvergi er hörgull á ævintýrum. Hið daglega líf er hvervetna óslitið ævintýri. þar sem bamssálin er annars vegar. ísafold gefur út bamabæk- urnar hans Kára. Útgáfan er öll hin vandaðasta, letur skýrt og prentvillur útlægar. Bókin er prýdd myndum eftir Odd Björnsson, látlausum og lifandi. Gunnar Benediktsson Notum aldrci óundirlímd plastáklæði STÖÐUG Á STÍLFÓTUM / SÓLÓ-settið fegrar híbýli yðar, notið yður alla mögu- leika eldhússins, fáið yður stílfallegt SÓLÓ-eldhússétt. SÓLÓ-settin em smíðuð úr völdum stálrörum húðuðum ; slitsterkri chromehúð. Borðplatan er úr hinu kunna ARBORITE harðplasti en stólarnir fást ýmist með Tealcbaki og bólstruðu sæti eða albólstruð með hinu eftirsótta nýja „LYSTADUN“. — SÓLÓ-settin fást í | ELECTROLUX-UMBOÐINU Laugavegi 176 — Síml 36-200 | 1 '•”1 Odýr leikföng Miklatorgi (við hliðina á lsborg). \ , JÓLABÓK OKKAR jaiawÉXiir. 1 -r Á ÍSLENDINGASLÓDUM f KAUPMANNAHÖFN eftir B]örn Th. Björnsson fœr einróma lof. HEIMSKRINGLA. Miðvikudagur 20. desember 1961 — ÞJÓÐVILJINN — (5

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.