Þjóðviljinn - 22.12.1961, Qupperneq 3
- s?i
mmm
<W\-
; :,V
Ja, — hvað af öllu þessu ætti ég nú að kaupa, hugsar margur, þegar hann sér fyrir scr slíkt
úrval góðgætis. — Myndina tók ljósm. Þjóðv. A. K. í kjötbúð Sláturfélags Suðurlands í gær.
Nitján ára piltur biður
bana af slysaskoti
Háttur
Morgunblaðsins
Stundum þykist Morgun-
blaðið vera á móti nýlendu-
kúgun, en þegar á reynir
verður annað uppi á teningn-
um. Þannig hamast blaðið nú
dag eftir dag gegn Nehru fyr-
ir að stugga Portúgölum úr
Indlandi eftir að hafa sýnt
þeim mikið langlundargeð.
Segir blaðið að það sé ósæmi-
legt að Nehru og Indverjar
skuli „grípa til vopna og
bióðsúthellinga til þess að ná
því takmarki. sem heilbrigð
og eðlileg þróun er auðsjá-
anlega að ná. .. Nýlendu-
skipulagið er að líða undir
lok. Sú þróun gerist svo að
segja allsstaðar uieð friðsam-
legum hætti, þar sem hlut
eiga að máli vestrænar lýð-
ræðisþjóðir og hinar gömlu
nýlendur þeirra.“
Sá ^friðsamlegi háttur“ sem
Morgunblaðið hefur slíkt dá-
læti á er væntanlega styrj-
öldin í Alsír, þar sem hinir
frönsku bandamenn okkar
hafa nú myrt sem næst eina
milljón Serkja en hrakið tvær
milljónir frá heimilum sín-
um og komið þeim flestum
fyrir í þrælabúðum. Heil-
brigð þróun birtist í portú-
gölsku nýlendunni Angóla,
þar sem hundruð þúsunda
innborinna manna hafa ver-
ið--Ætráfelld í grimmdaræði
sem á sér naumast nokkrar
hliðstæður. Eðlileg þróun
kemur fram í Kongó og er
auðvitað persónugerð í einka-
vini Morgunblaðsins, hinum
siðvædda Tsjombe. Og lýð-
ræðið á að sjálfsögðu heima-
land í Kenýa. þar sem hungr-
ið hefur nú tekið við því
hlutverki sem brezkar her-
sveitir gegndu áður.
Það er ekki von að Morg-
unblaðinu sé um málalokin. í
Góa. Þar féllu aðeins nokkr-
ir tugir manna. — Austri.
í fyrramorgun fundu menn,
sem voi'u að fara með mjólk frá
hænum Rauðuskriðu í Þingeyj-
arsýslu. 19 ára pilt frá Akureyri,
Pétur Leósson, örendan við veg-
inn inni í Skriðuhvcrfi. Hafi
hann verið með riffil og hlaup-
ið skot úr honum í höfuð piltsins.
Mun hann hafa Iátizt samstundis.
Samkvæmt upplýsingum sýslu-
manftsins á Húsavík er ekki vit-
að með hverjum hætti slys þetta
hefur borið að höndurn. Pétur,
sem átti heima á Akureyri eins
og áður segir, hafði farið austur
í Aðaldal í bifreið, sem hann
hafði fengið til umráða. Var
hann einn á ferð. Mun hann hafa
ætlað að huga að rjúpum. en
hann var kunnugur þarna fyrir
austan, hafði dvalizt um skeið
bæði í Klambraseli og að Rauðu-
skriðu. Það er síðast vitað til
ferða Péturs, að hann lagði seint
á þriðjudagskvöldið af stað
austan úr Aðaldal aftur heim til
Akureyrar og er talið, að slysið
hafi orðið þá skömmu síðar eða
snemma um nóttina. Stóð bifreið
hans á vegabrúninni og hafði Pét-
ur ekki verið korninn nema ör-
slutt írá henni. Skepti riffilsins
var brotið, én það mun hafa ver-
ið sprungið fyrir.
SíÖesta afla- ?
salafyrirjól
í gær seldi togarinn Ágaist frá
Hafnarfirði afla sinn í Grims-
by, 171 lest fyrir 12344 sterlings-
pund.
Þetta er síðasta sala íslenzks
togara í Bretlandi fyrir jó!, en
alls hafa 13 togarar selt þar í
landi í desembermánuði fyrir
122,194 pund. Tveir togarar
munu selja þar milli ióla og
nýárs.
í desember hafa 18 ís’enzkir
togarar selt afla sinn í Vestur-
Þýzkalandi, samtals fy-tr 1.626»
300 mörk. Þar af fengust 613.800
mörk fyrir síld.
Föstudagur 22. desember 1961 — ÞJÓÐVILJINN —
Eins og frá var sagt hér í blaöinu á dögunum, opnaöi Kjöt-
vcrzlun Tómasar nýja kjörbúð á Grensásvcgi 48. Sem sjá má
hér á myndinni, er búðin ákaflega smckklcg og þar fæst að
sjálfsögðu allt í jólamatinn.
ar kjötverzlanir í gær, til að
heyra hljóðið í þessari verzl-
unargrein. Fyrst kom ég í
kjöt- og nýlenduvöruverzlun
KRON á Skólavörðustíg 12.
Þar hitti ég ungan og lipur-
legan mann, örn Ingólfsson
deiJdarstjóra.
— Hér er mikið verzlað fyr-
ir jólin, við höíum aldrei
keypt eins mikið útúr aíurða-
sölunni, einsog nú. Ég get sagt
þér sem dærni, að sumir dag-
ar nú, eru 50" (l hærri í sölu,
en sambærilegir dagar í fyrra.
— Langmest seljum við af
hangikjötinu, en svínakjöt og
nautakjöt eru að sækja mjög
á það. Fólk kaupir rjúpur á
hvaða verði sem er, bara ef
þær fást, en einsog iþú veizt
Konan hcr á myndinni, cr að kaupa sér eitthvað gott á jólaborðið í verzlun KRON á Skóla-
vörðustíg 12. — Myndin var tekin í gær. (Lj ósm. Þjóðv. A. K.).
eru þær ákaflega sjaldséðar
nú.
— Líka má minnast á sæl-
gætið, salan í því hefur stór-
aukizt og eins er með ný-
lenduvörurnar, sérstaklega
niðursoðna ávexti.
Kjörbúð SlS í Austurstræti,
er án efa ein stærsta verzlun
landsins, einskonar magasín.
Þar er hægt að kaupa hérum-
bil allt sem hugurinn girnist
og gæöavöru, eftir því sem
Bjarni Grímsson verzlunai'T
stjóri tjáði mér. Annars sagði
hann að matvælaösin væri
seinni á sér en í fyrra og
byggi hann sig undir að taka
á möti miklum mannfjölda í
dag og á morgun.
— Við seljum meira af
í'uglakjöti nú en áður, sérstak-
lega endur. Hænur seljast
líka vel, en rjúpur sjást ekki
eins og þú veizt. Hangikjötið
er í sérflokki, sala á svína-
og nautakjöti hefur verið
svTpuð og í fyrra, en yfirleitt
má segja að sala á matvörum
hafi aukizt um 10" u-
★
Lárus Lýðsson verzlunar-
stjóri í verzlun ; Síáturfélags
Suðurlands Skólavörðustíg 22,
tók mér með virktum, einsog
hans var von og vísa, sýndi
mér búðina og svaraði spurn-
ingum mínum af mestu þolin-
mæði:
— Jólahangikjötið er efst á
blaði, en svínakjötið er í
hraðri íramsókn, sérstaklega
hamborgarhryggir og beinlaus
stykki framanaf hnakka. Hjá
okkur er mikil eftirspurn ei't-
ir gæsum. Rjúpur eru eftir-
spurðar en sjaldséðar.
— Mjög er orðið algengt að
fólk vilji fá læri, bæði ný og
hangin, úrbeinuð. Ég er búinn
að vera í þessu í 30 ár og
þegar ég byrjaði þekktist
þetta ekki. Af þessu leiðir að
sjálfsögðu aukna vinnu, en
aðstaðan er orðin svo miklu
betri, að það vegur upp á
móti aukinni þjónustu og
auknum viðskiptum.
— Maður verður ósköp feg-
inn, þegar þetta jólastúss er
búið. G.O.
Jólin eru hátíð heimilanna
og íátt v'eldur meiru til góðs
eða ills um jólahald, en vel
heppnað jólaborð.
Árið um kring éta íslend-
ingar fylli sína, en á jólunum
éta þeir almennt offylli sína.
Eftir því sem ég komst
næst í viðræðum við höndl-
ara í þessari grein, er hangi-
kjötið sígilt nú sem ávallt, en
svínakjötið sækir á. Nokkuð
hefur eftirspurn eftir fugla-
kjöti aukizt og þá sérstaklega
öndum og gæsum. Nú, og
rjúpurnar eru auðvitað rifn-
ar út jafnóðum og þær koma
í búðirnar.
★
Ég lagði leið mína í nokkr-