Þjóðviljinn - 13.01.1962, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 13.01.1962, Blaðsíða 3
BETRA AD FA F/ERR! KILO EN I ÞESS STAÐ BETRI Fréttaí’itari Þjóðviljans í Vestmannaeyjum lagði þá spurningu fyrir nol^ra menn í Eyjuni í gær, hvernig ver- tíðin legðist í þó. Fara svör þeirra hér ó eftir: Jóhann Pálsson, skipstjóri, útgerðarmaður og eigandi Hannesar lóðs, sagði, að hon- um litist illa á allar ókomn- ar volrtíðir, ef ekki væru gerðar viðeigandi ráðstafanir til tryggingar fiskislofninum og lögð niður öll rányrkja, en hjá okkur væri stefnt að of- veiði. Hánn sagði, að tvær síðustu heimsstyrjaldir hefði fiskistofninn fengið vissa frið- un en skipuleggja þyrfti veið- ar betur til hagsældak’ fyrir okkur sjálfa, því hagkvæmara væri að veiða færri kíló en fá í þess stað betri fisk. A SI krefst kjarabóta Framhald af 1. síðu. tryggt, að vaxtalækkun til at- vinnuveganna komi öll fram í hækkuðum launum. 2Söluskattar og tollar verði • feildir niður á öllum nauð- synjavörum, og ríkinu í staðinn tryggðar auknar tekjur með fullkomnara skattaeftirliti. Skattar og útsvör verði inn- heimt hjá launþegum jafnóðum og tekjur falla til. 3Niðurgreiðsiur á aðalneyzlu- • vörum almennings verði eigi rýrðar frá því ’.sem nú er. 4Aðflutningsgjöld og vátrygg- • ingagjöld verði lækkuð og tryggt, að sú lækkun komi öll fram 'í lækkuðu vöruverði. • 5Numið verði úr gildi bann • við greiðslu verðlagsupp- bóta á laun og tryggt, að samn- ingafrelsi og sjálfsákvörðunar- réttur verkalýðsfélaganna verði ekki skert. i 6Átta stunda vinnutími verði • lögfestur sem hámarks vinnu- tími í þeim atvinnugreinum, sem fært þykir og yfirvinna takmörkuð sem allra mest að öðru leyti allt án skerðingar heildarlauna. Jafnframt verði yfirvinna barna og' unglinga innan 16 ára umfram 8 stundir á dag bönnuð með öllu. i 7Að lokum var sú krafa bor- • in fram við ríkisstjórnina. að hún tryggði varanleik þeirra kjarabóta, sem samkomulag kynni þannig að nást um. • • • Ennfremur var það fram tek- ið af Alþýðusambandsins hendi, að þessar kröfur, ef framkvæmd- ar yrðu, væru metnar til jafns við beinar kauphaekkanir, og Störf gjaldkera og innheímtumanns eru laus til umsóknar. Umsóknarfresiur er til 25. þ.m. Rafveita Hafnarfjarðar Sigurður Bjarnason, skip- stjóri, útgerðarmaður og eig- andi Bjarna riddara sagði að vertíðin legðist vel í sig en sagðist hræddur við stræk á vertíðinni. Valdimar Kristjánsson, hús- gagnasmíðameistari sagði, að sér litist mjög vel á vertíðina eftir kvenfólkinu, sem komið væri í bæinn. tekið yrði til gaumgæfilegrar at- hugunar hvort ekk'i væri hægt, að kröfunum fullnægðum, að falla frá kauphækkunum fram til 1. júní 1962, er 4% kaup- hækkun á að ko.ma til fram- kvæmda. Samkomulag varð um að ræð- ast við aftur mjög fljótlega. Fjórtán ára drengur sek- ur um árás Rannsóknarlöerreglan hefur nú haft upp á piltinum. er réðist á telpuna st. miðvikudag. eins og sagt var frá hér í blaðinu í gær. Reyndist þetta vera 14 ára dreng- ur. Hefur hann tvívegis áður gerzt sekur um árásir á telpur, í bæði skiptin um miðjan desember sl. Réðist hann f annað skiþtið á 9 ára gamla telpu en í hitt skipt- ið á 10 ára gamla telpu. Hvor- ug, þeirra varð þó fyrir meiðsl- um af hans völdum og hafði að- eins verið kært yfir annarri þeirri árás til lögreglunnar. Drengurinn er nú hjá foreldr- um sínum en mun verða falin barnaverndarnefnd til umsjár. Hafnarf jöröor Það er í kvöld klukkan 8.30 sem spilakvöld Alþýðubanda- lagsmanna í Hafnarfirði hefst í Góðtemplarahúsinu. Verð- laun. Kvikmyndasýning. Kaffi veitingar. Þér sparið rafmagn með því að nota fluorecent-pípur Fluorecent-pípur okkar endast að jafnaði 1000 klukkutíma. RAFMAGNSPERUR 1 MIKLU ÚRVALI Venjulegur peruháls E27 eða B22 frá 15 til 2000 W o.g allar tegundir smá- pera, bílaperur, reiðhjólaperur o.s.frv. VANDAÐAR VÖRUR • HÓFLEGT VERÐ « FLJÓT AFGREIÐSLA. Myndá- og verðlistar sendir þeim sem þess óska. Einkaútf lytjendur: POLISH FOREIGN TRADE COMPANT FOR ELECTRICAL EQUIPMENT Ltd. W » £léktttm “ t Warszawa 2, Czackiego 15/17 — Poland. P.O.BOX 254 Umboðsmenn: Trans Oceaa Brocerage Co., Ltd. Hólavailagata 7, Reykjavík. FÉLÖG - STARFSHÖPAR Höfum oprað skemmtikraftaskrifStoíu. — Ui’váls skemmti- kraftar á boðstólum: Eftirhermur, töfrabrögð, . búktal, gilnþættir, músíkþáttur, gamanvísur, aklrobatik, söngv- arar, hljóðfæraleikarar og fleira. Reynið viðskiptin. Óskum ennfremur eftir nýjum skemmtikröftum. > Skemmtikraftaskrifstofaii, Vand- lifað Skrif Tímans um áramóta- tjrein Lúðvíks Jósepssonar í Austurlandi eru eitt hið furðu- legasta sem sézt hefur í al- mennum umræðum héi’lendis. Tíminn byrjaði á því að álasa Lúðvík fyrir að skrifa alltof mikið um Rússa: „Hann gefur Einari ekkert eftir um Rússa- dekrið, gengur meira að seg.ia svo langt og veður þvílíkan reyk, að flestum hlýttT að blöskra. Lúðvík ræðir allmjög heimsmálin, telur Rússa hina einu sönnu friðarpostula og stefnu þeirra og aðgerðir hina einu sönnu lausn. .. Aðdáunin er svo fölskvalaus, að þar ber engan skugga á. Rússar eru algóðir“. Þegar Þjóðviljinn benti á þá einföldu staðreynd að ekki d ■ að finna eitt auka- tekið orð um Rússa í grein Lúðvíks, neyddist Tíminn til að viðurkenna firrur sínar og sagði í fimmtudagsblaðinu: „Rök Þjóðviljans erú þau að Lúðvík hafi hvergi minnzt á Rússa í grein sinni. Það kann að vera rétt.“ í gær fitjar Tíminn svo upp á nýrri rök- semd: „Tekur Lúðvík skamm- nr um Vesturveldin upp úr ái’óðursritum kommúnista, en minnfet ekki einu* - orði á Rússa.“ Þannig er blaðið nú komið í hring. Fyrst álasar það Lúðvík fyrir að skrifa alltof mikið um Rússa og syngja þeim lof; nú er sök hans sú að hafa ekki minnzt á þá. Það er vandlifað. Furðulegast er þó, að öllum er þessum skrifum ætlað að sanna að ekki sé hægt að vinna með Alþýðubandálaginu að íslenzkum innanlandsmál- um. Það er því í senn skil- ýrði fyrir vinstrisamvinnu að •Lúðvík slcrifi um .Rússa og að hann skrífi ekki Um Rússa, og ætti þá að vera tryggilega frá því gengið að slík sam- vinna komi ekki til greina. HluT- leysi Annað árásaref-ni T-írBans á Lúðvík Jósepsson er það að hann skuli hafa ákveðnar skoðanir á ýmsum heimsmál- um — slíkt samrýmist ekki kröfu hans um hlutleysi ís- lands. Þama reynir Tíminn að halda því fram að stjórn- afrfarslegt hlutleysi sé sama og afstöðuleysi. Ætti blaðinu þó að vera ljóst hversu fjarri því fer að hlutlausu þjóðim- ar í 'heiminum hafi enga skoðun á deilumálum: þvert á móti er afstaða þeirra hlut- lausu innan Sameinuðu þjóð- anna orðin svo áhrifarik að nýlenduveldi eins og Bretar hafa við orð að segja sig ú'r samtökunum. Hlutlaus er sú þjóð sem neitar að láta fjötra sig í hemaðarsamtök en tek- ur sjálfstæða og frjálslega af- stöðu til deilumála hverju sinni samkvæmt skoðunum sínum og hagsmunum, án þess að þuria að lúta boði eða banni annarra ríkja. Þótt Island væri stjórnarfarslega hlutlaust myndi séfe’hver ríkis- stjóm að sjálfsögðu taka af- stöðu til vandamála, jafnt á vettvangi Sameinuðu þjóð- anna sem annarstaðar. Og ■þótt Tíminn styddi hlutleysi Islands gæti hann haldið á- fram að toirta vitlausustu greinarnar um alþjóðamál sem Þórami Þói’arinssyni tekst að finna í bandarískum tímaritum. — Austri. Laugardagur 13. janúar 1962 — ÞJÓÐVILJINN —

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.