Þjóðviljinn - 13.01.1962, Blaðsíða 10
2) — ÓSKASTUNDIN
ÓSKASTUNDIN — (3
i
Sagan um Wang Li
Eftir Elizabeth Coatsworth
Móðir hans lét skamm-
irnar dynja yfir hann.
vitnaði í gamla máls-
hætti og gerði allt sem
henni hugkvæmdist til að
fá hann til að skipta
um sko.ðun. þangað til
hún var uppgefin.
Wang Li, sem var vel
uppalinn, prúður o£ hátt-
vís, beið þar til hún
þagnaði, en þá rétti hún
honum glas af köldu
vatni. Eftir þetta hjálp-
aði Wang Li móður sinni
á ökrunum, en oft skrapp
hapn út í skóginn með
boga sinn og örvar. Þá
kom hann stundum með
héra í kvöidmatinn og
með tímanum varð hann
ágætis veiðimaður.
Tíminn leið og vorið
kom. Þá gerðist svo
þurrkasamt að til vand-
ræða horfði. Viku eftir
viku kom ekki dropi úr
lofti, og kornið og hrís-
grjónin og allur annar
gróður var að skrælna. í
nusterí Guðs Uppsker-
unnar var beðið um regn
nætur og daga. Eldar
voru kyntir honum til
heiðurs, trumbur voru
barðar og allskonar góð-
gæti lá i hrúgum við
fætur hans. En það kom
engin rigning.
Það var eitt sinn
snemma morguns að
Wang Li átti leið gegn-
um skóginn. Þá veitti
hann athvgli stórum fugl-
um. sem liktust mest
svönum á flugi yíir höfði
sér. Þeir flugu hægt og
settust á stöðuvatnið sem
'fnt var Spegill Him-
insins. Wang Li læddist
hljóðlega og komst alveg
að vatnsbakkanum. þar
lagðist hann í hávaxið
grasið, svo hann var ó-
sýnilegur. Þá sá hann. að
það sem hann hafði hald-
ið vera svani, voru ung-
ar og fallegar stúlkur
sem allar höfðu vængi.
Þær léku sér á yfirborði
vatnsins og skvettu
hver á aðra svo vatns-
droparnir skinu eins og
kristallar á gullnu hári
þeirra, klöppuðu sarrian
lófunum og skemmtu sér
hið bezta.
Þá vildi svo til, að fal-
legasta stúlkan kom al-
veg að bakkanum þar
sem Wang Li lá í felum.
Eins og örskot rétti
Wang Li út höndina og
náði í annan hvíta væng-
Gullna skipið
inn. Og á meðan allar
hinar vængjuðu stúlk-
urnar hófu sig til flugs,
dró Wang Li fallega
fangann sinn á þurrt
land.
Stúlkan fór að gráta,
en hætti því fljótlega og
horfði rannsakandi á
Wang Li. Hann hélt enn-
þá um annan hvíta
vænginn.
— Hvað heitir þú, fal-
!ega stúlka?- spurði hann.
— Ég er kölluð Skýja-
dís, svaraði hún. og ég
er dóttir Skýja-Drekans.
Svo hélt hún áfram; Þú
ert fyrsti maðurinn sem
ég hef nokkurntíma séð.
Ef þú vilt koma með
mér, skal ég sýna þér
allar fallegu hallirnar
sem faðir minn á hingað
og þangað uppi í skýj-
unum.
(Framhald)
Skrítla
Hvað er hægt að segja
um sköllóttan mann og
sköllótta konu?
Að hvorugt þeirra hef-
ur eitt hár fram yfir
hitt.
Toivo varð einn eftir
hjá prinsessunni og hirð-
meyjunum. Toivo skipaði
hh'ðmeyjunum að kveikja
í baðstofunni og glóðhita
steinana. Hann kallaði á
einn hirðsveinanna Og
skipaði honum að fara út
í skóg og sækja tvær
lángar. mjúkar trjágrein-
ar. Ég ætla að nota þær
til að ná hornunum af
prinsessunni, sagði hann.
Baðstofan var kynt
svo steinarnir urðu rauð-
glóandi. Vatn var borið
inn stórum stömpum,
og greinarnar voru einn-
ig börnar þar inn.
Toivo kallaði nú á
prinsessuna. ■ Hann ■ íór
með hana inn í baðstof-
una og rak hirðmeyjarn-
ar út. Hann jós vatni á
steinana svo baðstofan
fylltist af heitri gufu.
Síðan lét hann prinsess-
tiha afklæða sig og setj-
ast á bekkinn, tók grein-
arnar og hýddi hana
rækilega.
— Þetta færðu fyrir að
stela gullna skipinu, og
skilja mig eftir einan á
eyjunni þar sem ekkert
beið mín nema dauðinn.
Ég er Toivo, maðurinn
sem þú sagðist ætla að
giftast, ef ég færi með
þig til eyjarinnar, Þessi
refsing er makleg. Axlir
prinsessunnar urðu rauð-
ar undan höggunum. Hún
bar sig aumlega og kvein-
aði: Hættu áð berja mig,
ég skal útskýra þetta allt
saman. Ef bú hættir. skal
ég lofa því að vera þér
góð kona.
—- Jæja þá, ég skal
hlusta á afsakanir þín-
ar, sagði To.ivo og lét
vöndinn síga.
— Ég beið, sagði prins-
essan,. í þrjá . daga og
þrj.ár nætur,. en þú komst
ekki aftur. Ég get ekki
lýst bví hvað ég var ein-
rr.ana barna á eyjunni
úti í miðiu hafi. Ég bjóst
við að villidýr mundu
ráðast á mig og éta mig
upp til a.gna. Ég þóttist
viés um að þú hefðir yf-
irgefið mig og mér finnst
engin ástæða til að á-
fellasf mig fvrir að flýja
á skipinu heim aftur. Ég
Þessa teikningu eftir sig
hefur 5 ára snáði sent
okkur. Hann heitir Bjarui
Bjarnasoffi og á heima á
Fossvogsbletti 22.
elskaði þig, frá því ég
sá þig fyrsta sinn og ég
elska þig ennþá.
Þegar ' Toivo heyrði
þetta kastaði hann vend-
inum og félL á kné fyrir
framan prinsessuna. Fyr-
irgefðu mér, fyrirgefðu
mér, að ég skyldi láta
mér detta í hug að þú
hefðir ætiað að láta mig
deyja á eyjunni, fagra
prinsessa. Toivo fór ofan
í hægri vasa • sinn, þreif
upp eitt af bláu berjun-
um og rétti prinsessunni,
Þegar hún beit í það
duttu hornin áf höfði
hennar og hún varð fög-
ur eins og nýútsprungin
rós. (Framhald)
Litla kisa
Framhald af 4. síðu
annað og svo öll 'hin dýr-
in.. Sjálf var Litla kisa
búin að borða 6 rjóma-
karameliur svo hún gat
ekki nema rétt bragðað
á kökunni.
■ Síðan léku dýrin sér
saman allt til kvölds, að-
mál var að fara heim.
Erlend tíðindi
Framhald af 7. síðu.
vopna til að beita í væntan-
legri uppreisn. Sú saga geng-
ur í París að Godard ofursti.
einn af herforingjunum sem
dæmdir voru til dauða að þeim
ifjarverandi eftir uppreisnina í
apríl í fyrra, sé farinn frá
Alsír þar sem hann hefur
leynzt, áleiðis til Frakklands
til að taka við forustunni fyrir
OAS, og þykir þessi fregn
ekki boða gott.
Valdarán hersins í Alsír fyr-
ir tæpum fjórum árum lyfti*
de Gaulle í stjómarsess, og
síðan hefur jafnt og þétt sigið
á ógæfuhlið í frönskum stjórn-
málum. Nú er svo komið að
enginn getur verið óhultur,
hvorki í Alsír né Frakklandi,
fyrir launmorðingjum OAS.
Leynisamtökin fá að vaða uppi
vegna þess að nógu margir
menn í ábyrgðastöðum eru
annað hvort á bandi leynisam-
takanna eða halda að sér hönd-
■«m vegna þess að þeir vilja
Aafa sitt á þurru hvernig sem
fer. Vinstri flokkarnir í Frakk-
landi gera sér nú allir Ijósa
hættuna sem yfir vofir. Le
Populaire, málgagn sósíaldemó-
krata^ sem í upphafi studdi de
Gaulle, lýsir nú yfir að borg-
arastyrjöld sé í raun og veru
hafin. Christian Pineau, einn
af foringjum sósíaldemókrata
og fyrrverandi utanríkisráð-
herra, skorar á flokksbræður
sína að bíða ekki aðgerðalaus-
ir eftir því að fasistarnir í
OAS hrifsi völdin. Enn neitar
þó forusta sósíaldemókrata að=
hefja samvinnu við kommún-
istaflokkinn á landsmælikvarða
um aðgerðir til að stemma
stigu við valdaráni OAS, en
víða um landið hafa deildir
allra vinstri flokka, verkalýðs-
sambönd, kennarafélög og stúd-
entafélög, bundizt samtökum til
að hindra valdatöku fasista. Á
það kann brátt að reyna.
M. T. Ó.
Trúlofnnarhringir, stein.
hringir, hálsmen, 14 og 18
karata.
Hafnarfjörður
Símstöðin í Hafnarfirði flytur afgreiðslu
sína og skrifstofur í hið nýja hús pósts og
síma að Strandgötu 26, sunmidaginn 14.
jan. 1962. Frá sama tíma leggst ölL af-
greiðsle niður í gömlu símstöðínni að Aust-
urgötu 11,
StSðvarstfóriini
Jc Dtbreiðið
Þióðviljann
Undirrit .......... óskar að gerast áskrifandi
aö Tímaritinu RÉTTI
Nafn
Heimili
V0 Ktonr
LÁTIÐ OKKUIt
nivnda barnið
&
LAUGAVEGI 2.
Sími 1-19-80.
Heimasími 34-890.
Hekla
fer austur um land í hringferð
hinn 18. iþ.tn. Vörumóttaka í
dag og á mánudag til Fáskrúðs-
fjarðar, Reyðarfjarðar, Eski-
fjarðar, Norðfjarðar, Seyðis-
fjarðar, Þórshatnar, Raufar-
hafnar, Kópaskers og Húsavík-
ur.
Farseðlar seldír á þriðjudag.
Skjaldbreið
fer vestur um land til Akur-
eyrar 18. Iþ.m.
Vörumóttaka á mánudag til
Tálknafjarðar, áætlanahafna á
Húnaflóa og Skagafirði og Ót-
afsfjarðar.
Fanseðlar seldir á miðvikudag.
ann
vantar unglinga til blaðburðar um
Heiskólahveri! og Heiðargerði.
Afgreiðslan, sími 17-500
^Q) — ÞJÖÐVILJINN — Laugardagur 13. janúar 1962