Þjóðviljinn - 21.01.1962, Side 3

Þjóðviljinn - 21.01.1962, Side 3
Hlynur Andrésson myndin var tekin er hann var 5 ára Svava Ásgeirsdóttir 12 ára Svo sera kunnugt er, var ny- lega á vegum pólska sendiráös- ins tiikynnt um úrslit í alþjóöa- sýningu á teikningum barna- skólanema scm pólska ríkisút- varpið haföi forgöngu um. í tiiefni af því að tvö börn frá Hólmavík hlutu viöurkenn- ingu á sýningunni, Hlynur Andrésson 11 ára sem hlaut gullverðlaun og Svava Ásgeirs- dóttir 12 ára, er fékk viöurkenn- ingu, þykir mér hlýða aö kynna vík, sem slíks heiðurs uröu að- njótandi. Skólastjóri barna- og ung- lingaskólans, Vígþór Jörunds- son, sem verið hefur skólastjóri hér um þriggja ára skeiö, er 29 ára gamall, fæddur og uppalinn á Hellu í Steingrímsfirði. Víg- þór er okkur Hólmvíkingum aö góðu kunnur. Hann hefur með starfi sínu við skólann náö mjög góðum árangri og í sum- hafa vorsýningar skólabarna vakiö almenna athygli, m.a. fyr- ir fjölbreytni og oft frumlega vinnu barnanna. Vígþór hefur góðu starfslíði á að skipa. Við skólann vinna fjórir fastir kennarar og tveir stundakennarar. • • • Mitt í önnum dagsins náði ég sambandi við Vígþór skólastjóra og fer samtal okkar hér á eftir: EITT AF ÞVI ALLRA NAUÐSYNLEGASTA Viðtal við VlGÞÖR JÖRUNDSSON skólastjóra á Hólmavik Víg:þór H. Jörundsson skólastjóri ■— Ég er hingað kominn til að óska þér og skóla þínum til hamingju með þann heið- ur, s.em ykkur hefur hlotnazt í sambandi við verðlaunaveit- ingu pólsku sýningarinnar á barnamyndlist. — Þakka þér fyrir þær óskir. En mér finnst ég ekki eiga neitt lof skilið. Ég hef ■aðeins reynt í þessu efni að leysa starf mitt af hendi sem ég hafði, vit til og varla það, og það er ekki þakkarvert. En hins vegar var gaman að þetta skyldi koma fyrir í svo fámennum skóla. — Kom þér það ekki á ó- vart, að þinn skóli náði þeim árangri sem raun ber vitni? — Jú, svo sannarlega. Skóli, sem telur rúmlega 80 nemendur, er varia samkeppn- isfær við stóra skóla, sem hafa a’lt að 10 sinnum fleiri nemendum á að skipa, og hafa að bióða fullkomnari starfsskilyrði kennurum og nemendum. Þess vegna eru þessi úrslit sannarlega óvænt gleðiefni svo litium skóla, og tel ég þau tvímælalaust því að þakka, hve nemendur hér tóku bessu viðfangsefni með miklum áhuga og leystu þau verkefni, sem lögð voru fyr- ir þá í þessu skyni, af stakri vandvirkni og einlægni. — Telur þú þau böm frá Hólmavik, sem verðlaun hlutu i þessari samkeppni, skara fram úr öðrum nemendum í skólanum í þessari grein? — Nei, ekki sérstaklega. Ég tel, að báðir þeir nemendur héðan, er verðlaun hlutu, séu fyrir ofan meðallag við teikni- nám. Þó held ég, að margir af nemendum skólans hefðu eins getað hlotið slika við- urkenningu, ef heppni þeirra hefði verið jafn mikil. Þetta segi ég ekki til þess að draga úr heiðri þeirra, er verðlaun- in hlutu, heldur vil ég með því benda börnum þessa skóla og annarra á, að það eru ekki alltaf snillingarnir ein- ir, sem bera hæstan hlut í siíkri samkeppni. Fiestallir hafa möguleika til að sigra, ef þeir aðeins hafa næga til- trú á sköpunarhæfni sinni og dæma sig ekki fyrirfram úr leik. Tilviljunin ræður og miklu í myndsköpun barn- anna, eins og hún gerir, að mínum dómi. í allri myndlist. — Undanfarin ár hef ég sótt allar vorsýningar á vinnu nemenda hér og veitt því at- hygli, hve myndir barnanna hafa verið fjölbreytilegar að efni og formum. f því sam- bandi langar mig til að spyrja. hvort þú hafir meiri áhuga á þessari námsgrein en öðrum kennslugreinum í skólanum. Ekki þar fyrir, Víg- þór, að ég hef séð ýmsa mjög vel gerða hluti úr tré og málmi sem gerðir hafa ver- ið í skólanum. Til gamans vil ég segja þér, að bréfhnífur, sem unninn var í skólanum úr silfri og tekkviði, var gef- inn til Bandaríkjanna og vakti þar sérstaka eftirtekt. — Það er gaman að heyra. En hvað viðkemur spurningu þinni, hvort ég hafi meiri á- huga á teiknun en annarri námsgrein, þá svara ég því Framhald á 10. síðu. Bakkabræður hlaða að merinni — Gullverölaunamynd Hlyns Andréssonar ÉG VARÐ ÁKAFLEGA „Sæll Hlynur, til hamingju með gullið“. „Sæll, þakka fyrir“. „Hvernig varð bér við þeg- ar þú fréttir' að þú hefðir hlotið verðlaun í fjarlægu landi fyrir vinnu þína í skól- anum?“ „Ég varð ákaflega hissa“. „Ertu ekki .dálítið montinn af þessu?“ „Nei, en mér finnst það voða gaman“. , Heldurðu ekki að það verði garnan þegar verðlaun- in koma heim?“ „Jú ég hlakka til“. HISSA“ „Hvað hét þessi mynd?“ „Veit ekki hvaða mynd þetta er. Ég gerði mynd af Hjálmari tudda j sýruker- inu, kannski er þetta hún. Svo gerði ég líka mynd af Bakkabræðrtim“. „Finnst þér gaman að teikna?“ „Já, en þó finnst ttiér smíðatímarnir skemmtilegri.“ „Er gaman í skólanum?“ „Já.“ „Ætlar þú að reyna að vinna til fleiri verðlauna?" „Ekki vonast ég eftir þvi.“ „Hvað ætlar þú að verða þegar þú ert orðinn stór, kannski málari?“ „Nei, ekki málari, veit þáð ekki ennþá.“ „Viltu gefa mér mynd af þér til að setja í blöðin?“ „Nei, helzt ekki. Svo. á ég enga mynd af mér nema þeg- ar ég var fimm ára, kannski máttu fá hana.“ „Hvað ertu gamall núna?“ • „Ellefu ára, verð 12 ára 21. marz.“ „Hlakkarðu til að lesa um þig blöðunum?" „Ne-hei.“ „Vertu blessaður, þakka þér fyrir myndina og sam- talið, vona að þú eigir eftir að fá mörg verðlaun í fram- tíðinni.“ Sunnudagur 21. janúar 1962 — ÞJÖÐVILJINN —

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.