Þjóðviljinn - 21.01.1962, Blaðsíða 4
Finnskir kjósendur votta
hlutleysisstefnunni transt
Enginn finnskur stjórnmála-
maður hefur í manna
minnum unnið annan eins
persónulegan sigur og þann
sem Uro Kekkonen forseti hlaut
í nýafstöðnum forsetakosning-
um. f forsetakosningunum 1956
fékk Kekkonen kosna 88 kjör-
menn af 300, en nú skorti
stuðningsmenn hans aðeins
sex kjörmenn á hreinan meiri-
hluta, fengu 145. Þrátt fyrir
vonzkuveður kosningadagana
var kjörsókn meiri en dæmi eru
til í forsetakosningum. Persónu-
legan sigur Kekkonens má
einkum marka af atkvæðatöl-
unum í borgunum, þar sem
Bændaflokkurinn sem hann
veitti forstöðu fyrir forsetatið
sína hefur jafnan haft lítið
fylgi. íj Helsinki fékk listi
stuðningsmanna Kekkonens nú
tuttugu sinnum fleiri atkvæði en
1956, og svipaða sögu er að
segja írá öðrum borgum. Eng-
inn vafi er á að þessi fylgis-
aukning er fyrst og fremst at-
kvæði greidd Kekkonen pers-
ónulega en stafa ekki af því
að hans gamli flokkur ha.fi allt
í einu sópað til sín fylgi borg-
arbúa.
Utanríkismálin bar hæst í
þessum kosningum. Kekk-
onen er merkisberi þeirrar ut-
anríkisstefnu sem kennd er við
Paasikivi fyrirrennara hans og
felst í því að Finnar gæti hlut-
ieysis gagnvart stórveldaátök-
um jafnframt því að kostað
er kapps um að hafa vinsam-
lega sambúð við Sovétríkin.
'Andstæðinga þessarar stefnu er
einkum að finna í forustu
hægri sósíaldemókrata og hins
íhaldssama Sameiningarflokks.
Þar vilja ýmsir áhrifamenn að
Finnland taki upp stefnu vil-
halla Vesturveldunum. f sum-
iar sameinuðust þessi öfl um
fqrsetaframboð íhaldsmannsins
Olavi Honka. Hugðust þau
hafa töluverða möguleika á að
fella Kekkonen, ekki sízt vegna
þess að Sukselainen, eftirmaður
hans í formennsku Bænda-
flokksins, hafði hrökklazt úr
forsætisráðherraembættinu sök-
um fjármálahneykslis. Honka
hafði einmitt dæmt í því máli.
Andstæðingar Kekkonens héldu
því fram að hann yrði að telj-
iast siðferðilega ábyrgur fyrir
ávirðingum sinna gömlu flokks-
bræðra, sem áttu sér stað með-
an hann var enn flokksforingi.
Hann lét þó ekki andstæðing-
Eins og finnskum
er Kckkoncn í þróttamaður og veiðimaður. Hér kastar hann fyrir
við Lötasenofoss í finnska Lapplandi
unum haldast uppi að hasla sér
völl í kosningabaráttunni, held-
ur deildi á afstöðu þeirra í ut-
anríkismálum.
Svona stóðu sakir síðastliðið
haust, þegar sovétstjórnin
sendi Finnlandi óvænt orð-
sendingu um beiðni um hernað-
arviðræður sökum vaxandi
hernaðarítaka Vestur-Þjóðverja
við Eystrasalt pg á Norður-
löndum. Kekkonen fór til fund-
ar við Krústjoff og fékk því
til leiðar komið að sovétstjórn-
in féll frá málaleitun sinni.
Jafnframt deildi Kekkonen á
stuðningsmenn Honka fyrir
háskalega ævintýramennsku í
utanríkismálum og sendi A-
bandalagsríkjunum Danmörku
og Noregi sneið fyrir þann
bjarnargreiða sem þau gerðu
Finnum með sívaxandi hernað-
arsamvinnu við Vestur-Þýzka-
land. Þegar þessar deilur stóðu
sem hæst tók Honka aftur
framboð sitt, og var þar með
úr sögunni tilraun stuðnings-
manna hans til að fella Kekk-
onen.
al hér á íslandi, sökuðu Sov-
étríkin um að beita Finna
þvingunum, kölluðu framkomu
þeirra íhlutun í finnsk málefni
og dróttuðu því jafnvel að
Kekkonen að hann notaði sov-
ézk bolabrögð sér til framdrátt-
ar í baráttunni um forsetaemb-
ættið. Finnum stendur málið
næst og menn í öðrum löndum
ættu að geta fallizt á að þeirra
dómi verði að hlíta. Hann var
kveðinn upp í forsetakosning-
unum, og var á þá leið að
Kekkonen og aðilar sem styðja
hlutleysissteínu hans unnu sig-
ur en þeir, sem hugðust styðja
Honka til forsetatignar, töpuðu.
Áður er skýrt frá aukinni kjör-
mannatölu Kekkonens frá síð-
ustu kosningum, en auk þeirra
sem buðu sig fram á listum
kosningabandalags Bænda-
flokksins munu allmargir kjör-
menn kosnir á öðrum listum
greiða honum atkvæði, svo
hann er viss um kosningu við
fyrstu atkvæðagreiðslu á kjör-
mannasamkundunni með að
minnsta kosti 199 atkvæðum.
Lýðræðisbandalag kommúnista
og vinstrisósíaldemókrata
vann einnig á í forsetakosning-
unum. Atkvæðatala þess hækk-
aði úr 354.575 við siðustu for-
setakosningar í 441.119 nú og
kjörmönnum fjölgaði úr 56 í
65. Lýðræðisbandalagið styður
utanríkisstefnu Kekkonens í öll-
um meginatriðum, og vitað var
að kjörmenn þess myridu greiða
honum atkvæði ef, úrslit for-
setakosninganna yltu á þeim.
Sósíaldemókrataflokkurinn sem
mest beitti sér fyrir framboði
Honka beið allra flokka mesti
afhroð í forsetakosningunum.
Atkvæðatala hans lækkaði úr
442.408 árið 1956 í 283,189 og
kjörmönnum sósíaldemókrata
fækkaði um helming, úr 72 í
36. Þetta er gífurlegt tap, enda
þótt tillit sé tekið til þess að
flokkurinn klofnaði árið 1958,
því flokksbrotið sem þá klauf
sig frá bauð fram eigin lista
við forsetakosningarnar og fékk
aðeins 3% atkvæða og einn
kjörmann. Sameiningarflokkur-
inn sneri við blaðinu þegar
Honka dró sig í hlé og ákvað
að láta kjörmenn sína styðja
Kekkonen, en engu að síður
tapaði flokkurinn verulega, at-
kvæðatalan miðað við síðustu
forsetakosningar lækkaði úr
372,972 í 283.312 og kjörmönn-
um flokksins fækkaði úr 57 í
38.
Þingkosningar fara fram í
Finnlandi 3. og 4. febrúar.
Forsetakosningarnar þykja
benda til að í þeim vinni
Bændaflokkurinn og Lýðræðis-
bandalagið á en aðrir flokkar
tapi. Skipting atkvæða verður
þó vafalaust töluvert frábrugð-
in því sem var í forsetakosn-
ingunum. Til dæmis er talið
víst að fjöldi kjósenda, sem nú
greiddu atkvæði kosningabanda-
lagi Bændaflokksins til að votta
Kekkonen fylgi, hverfi aftur til
flokka sinna í þingkosningun-
um. M.T.Ó.
M
álgögn A-bandalagsins á
Norðurlöndum, þar á með-
Suðurnesjamenn
Suðurnesjamenn
BARNABIN
veröur haldið 1 Samkomuhús Njarðvíkur í dag klukkan 4.
Meöal vinninga armandsúr, svefnpoki, bakpoki, gítar, íeröaprímus, úti-
sundlaug, bækur og leikföng í miklu úrvali.
í hléi veröur kv ikmyndasýning.
Aögangur ókeypis. — Spjaldið kostar 10 krónur.
Lionsklúbbur Njarðvíkur
STÓR SKÓÚTSALA
stendur yfir þessa dagana. Margskonar ógallaður skófatnaður seld-
ur á mjög hagstæðu verði, tfl dæmis:
Snorrabraut 38
Karlmannaskór kr. 621,00 Nú kr. 350,00
Karlmannaskór kr. 594,00 iNú kr. 350,00
Karlmannaskór, 470,00 Nú kr. 295,00
Karlmannaskór, kr. 381,00 Nú kr. 250,00
Barnaskór kr. 215,00 Nú kr. 125,00
Kvenkuldaskór kr. 219,00 Nú kr. 165,00
Barnainniskór kr. 74,00 Nú kr. 45,00
Kvenskór kr. 497,35 Nú kr. 250,00
Énnfremur falleg-
ir kven-nylon-
sokkar áður kr.
69.50 nú kr. 35,00.
Aðeins fóir dagar effir
“ ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 21. janúar 1962