Þjóðviljinn - 28.01.1962, Page 11
Francis Clifford
reyndi að grípa hina slitnu
þræði, vitandi hað að þeir voru
\njög mikilvægir og þegar hon-
um tækist það, þá væri eitt-
hvað sem hann þyrfti að gera,
eitthvað annað en ráfa áfram
endalaust í áttina að sjóndeildar-
hringnum undir stjörnunum.
Boog spurði hvað klukkan
væri, þegar hana vantaði kortér
í eitt, og skipaði þeim að nema
staðar. Þeir stönzuðu með erfið-
ismunum eins og járnbrautar-
vagnar og það var eins o.g jörð-
in undir fótum þeirra gengi í
bylgjum.
,,Við tökum okkur hvíld.“
Drengurinn lét fallast niður þar
sem hann var kominn. Hayden
lagðist á hnén, lét stengurnar
falla og lagðisf síðan útaf við
hlið hans. Franklinn stóð kyrr
eins og uxi, starði á þá sljóum
augum undan skældu hattbarð-
inu.
„Seztu niður. gamli minn,“
sagði Boog. „Ertu bæði heyrnar-
laus og vitlaus?“
Franklinn seig niður og stundi
hátt við, svo. velti hann sér á
bakið og þreknir fæturnir teygð-
usit frá honum eins og öfugt V.
Þeir lágu þarna þrír í röð og
Boog settist á hækjur andspænis
Hayden. Fötin lögðust að þeim
og voru nú köld og þvöl. Þá fór
að verkja í lærvöðvana. Boog
reis upp á olnboga og fann
hvernig sársaukinn breiddist frá
öxlinni og útum allan líkamann.
Svitadropar stóðu á enni hans.
Hann hefði helzt af öllu viljað
33. dogur
leggjast flatur eins og hinir, en
hann þorði það ekki. Það var
ekkert lið í löggunni lengur, en
það þurfti að hafa gætur á hin-
um, meira að segja stráknum.
Hann renndi fingrunum yfir
byssuhlaupið, strauk burt vota
flyksu. Hann yrði einhvern veg-
inn að komast af án þess að sofa.
Það var ekki erfitt núna, en það
yrði það seinna. Hann þyrfti ekki
annað en dotta nokkrum sinnum
og þegar hann opnaði augun
myndi hann sjálfur horfa inn í
hyssuhlaupið.
Hann starði þrútnum augum á
hæðimar. Þær voru famar að
taka á sig fjallsmynd. Hann sá
silfraðar mishæðirnar við rætur
þeirra og ójöfnur rísa upp úr
skuggunum. Eftir klukkutíma
yrðu þeir komnir þangað;
klukkutími í viðbót og þeir hefðu
næga felustaði áður en sólin
kæmi upp. En samt var hann
ekki fullkomlega ánægður.
Hann óskaði þess núna,
að hanna hefði ekki ver-
ið svona ákafur að komast
burt frá fíakinu. Með dálítilli út-
sjónarsemi hefði hann getað lát-
ið lít-a svo út sem enginn hefði
lifað af slysið — dreift úr kest-
inum; fært stúlkuna þangað sem
hún hafði verið í stað þess að
hafa hana þarna tilbúna í lik-
kistuna. Það hefði kannski ekki
blekkt þá lengi, en hann hefði þó
fengið lengri fresit... En samt
sem áður, — þetta hefði getað
verið verra. Burtséð frá úlnliðn-
um á honum og missi bjórdós-
anna, þá hafði heppnin verið
með honum allan tímann.
Hreyfingarlausir líkamirnir
fóru allt í einu í taugarnar á
honum hvíld, sagði ég. Ekki
nætursvefn . . . Hæ, strákur; ég
er að tala við þig.“
Drengurinn settist upp með
hægð, hræddur og kvíðandi. Síð-
an hann tapaði bjórnum, hafði
hann verið enn hraeddari við
Boog en áður.
,,Ertu enn með þessa munn-
hörpu?“ Drengurinn stakk hend-
inni í skyrtuvasa sinn. „Já, ég
sé það. Jæja, spilaðu á hana.
Komdu með lag.“
„Það er sandur í henni,“ sagði
drengurinn.
„Og hvað með það? Hreinsaðu
hana og láttu okkur hafa lag.“
Drengurinn leit hræðslulega á
Hayden eins og til iað spyrja
hvort hann ætti að gera það og
Boog hló. „Svona, spilaðu sálm
fyrir hann séra Jón.“
,,Af hverju læturðu drenginn
ekki í friði?“ andmælti Hayden.
Boog tók fastar um byssuna.
Hann horfði þegjandi á Hayden
nokkra stund. Svo sagði hann
lágri röddu: ..Það kemur að þvi
að þú segir of mikið, ef þú gæt-
ir þín ekki, lagsi.. . Jæja — “
hann sneri sér að drengnum.
„Komdu nú með tónlistina.1*
„Hvað á ég að spila?“
„Hvers konar aulaskapur er
þetta!“ hrópaði Boog. „Eitthvert
andskotans lag. Og fljótur nú!“
Drengurinn hristi hárið frá
augunum og byrjaði að leika.
Eftir fyrstu tónana hætti hann
og spýtti útúr sér sandi. Svo
byrjaði hann nftur, sat álútur
og hvíldi handleggina á hnján-
um. Hann var skjálfandi af
þreytu og andstuttur, en lagið
kom, hægt og viðkvæmnislegt.
Það var lagið sem hann ha.fði
leikið í bílnum. þegar Beatson
ók honum á flugvöllinn. Þá hafði
bann spilað það vel, notað hend-
urnar til að auka á titringinn,
en nú lék hann aðeins lagið og 1
gaut augunum hræðslulega til
Boogs.
Boog hvíldi enn fram á oln-
bogana og ]ét skína í tennurnar.
„Hvaða lag er þetta, strákur?"
„Ég .. . ég veiit það ekki.“
„Það er fínt. Fínt lag.“
Beatson hafði sagt þetta sama
og tárin komu fram í augu
drengsins þegar hann mundi
hvenær og hvar. Alla nóttina
hafði hann verið að hugsa um
foreldra sína og nú var eins og
tónlistin yki á söknuð hans og
leiða. Honum leið ósköp illa og
4uglýsið í Þjóðviljanum
Fastir líðir eins og venjulega.
8.30 Létt morgunlög.
9.20 Morgunhugleiðing um músik:
„Tónlist á 20. öld“ eftir
Eric Blom II. (Árni Krist-
jánsson).
9.35 Morguntónleikar. a) Píanó-
sóniata í g-moFl op. 22 eftir
Niccí’as Medtner. b) „App-
alichian Spring", bal'ettsvita
eftir Aaron Copland. c)
Viotoria delos Angeles syng-
ur; Gerald Moore leikur und-
ir d) Sinfónía nr. 40 í gmoli
(K 550) eftir Mozant.
11.00 Messa I kirkjui Óháða safn-
aðarins: Séra Emil Björns-
son. Organleikari: Jón Is-
'teifsson.
13.15 Erindi: T'mamót i sögu is-
Iienzkrar kirkju; annað er-
indi (Jóhann Hannesson
prófes-sor).
14.00 t)tvarp frá Þjóðleikhúsinu:
Hátíða.rsamkoma vegna 50
ára afmælis Iþróttasambands
íslands. Ávörp flytja dr.
Gylfi Þ. Gíslason mennta-
málaráðherra og Benedikt
Waage forseti I.S.I.; Gísli
HalVdórsson form. l.B.R.
setur hátíðina.
14.30 Miðdegistónleikar: Þættir úr
„Petite Messa SolenneHe"
eftir Rossini.
15.30 Kaffitíminn: Jian Moravek
og félagar hans Teika.
16.00 Endurtekið efni: a) Hákon-
armál Eyvindar skáldaspijl-
u i VAicriu
is, þáttur ftuttur af Þorsteini
fr,á Hamri áður útv. 10.
f.m.) b) Slnfóníuhijómsveit
Islands leikur létt-kliassísk
ver.k eftir Suppé, Burell og
Britten (áður útv. 28. f.m.).
c) Þáttur frá b’.indraskó'a
í Boston: Frásögn Bryndís-
ar Viglundsdóttur og söngur
skólabarna (áður útv. 28. f.
_ m.).
17.30 Barnatími (Skeggi Ásbjarn-
arson kennari): a) Frá
löngu liðnum árum. „Farið
á grasafjall", Frásöguþáttur
eftir Viktoríu Bjarnadóttur
Ingihjorg . Stephensen). —
b) Fynstu bernskuárin; fyrri
hluti (Lilja Kristjánsdóttir
scgir frá). — Leikrit: „Ósk-
in“ eftir Guðmund M. Þor-
íláksson með Sjóðum eftir
Ingólf Kristjánsson.
18.30 „Eg berst á fóki fráum":
Gömlu lögin sungin og leik-
in.
20.00 Tónieikar: Hollywood Bowl
hljómsveitin Heikur göngu-
'lög.
20.10 „Láttu aldrei fánann falla":
Dagskrá á hálfrar aldar af-
mæli Iþróttasamvands Isl,
isaman tekið af Sigurði Sig-
ujrðssyni. Henni Týkur með
ávarpi forseta ísllands hr.
Ásgeirs Ásgeirssonar, fluttu
i afmaalishófi að Hótel Borg
sama kvöld.
21.20 Spurningakeppni; V. þáttur:
Menntaskólinn í Reykjavík
og Hagaskóli keppa (Guðni
Guðmundsson og Gestur
Þorgrímsson stjórna þættin-
um).
22.10 Danslög. — 23.30 Dagskrár-
lok.
Útvarpið á mánudag
13.15 Búnaðarþáttur: Dr Björn
'Sigurgeirsson talar um
kornrækt.
13.30 „Við vinnuna"
17.05 „í dúr og moll". Sígi'd tón-
list fyrir ungt fói'ik Reynir
Axelsson).
18.00 1 góðu tómi: Erna Aradóttir
talar við unga. hlustendui'.
18.30 Þjóðlög frá Spáni og Portú-
gal.
20.00 Daglegt mál (Bjarni Eina,rs-
son cand. mag.).
20.05 Um daginn og veginn (Séra
Björn Jónsson úr Keflavik).
20.25 Einsöngulr: Þuríður Pái’s-
dóttir syngur lög eftir Jór-
unni Viðar; höfundurinn
leikur undir á p:anó.
20.45 Leikhúspistiil (Sveinn Ein-
arsson fil. kand.).
21.10 „Don Juan", hijómsveitar-
verk eftir Riohard Strauss.
21.30 Út/varpssagan: „Seiður Sa-
túrnusar".
22.10 Hljómplötusafnið (Gunnar
Guðmundsson). |
23.00 Dagskrárlok.
i tr- # | í!?»WP C.
Bifreiðar til sölu
Tilboð óskast í tvæi bifreiðar, sendiferðabifreið Chevro-
let ’55, 1 tonn, og yfirbyggðan vörubíl, Chevrolet ’61,
2'/■> tonn.
Bifreiðarnar verða t:l sýnis við skrifstofur vorar, Borgar-
túni 7, Reykjavík, miðvikudaginn 31. þ. m. frá 9—16, og
verður þar tekið á móti tilboðum.
ÁFENGIS- OG TÓBAKSVERZLUN RÍKISINS.
Allsherjar-
atkvæðagreiðsla
Akveðið hefur verið að viðhafa allsherjarat.kvæðagreiðslu
um kjör stjórnar og trúnaðarmannaráðs Félags járniðnað-
armanna fyrir næsta starfsár.
Frestur til að skila tillögum rennur út kl. 18 þriðjudag-
inn 30. þ. m.
Tillögur eiga að vera um 7 menn í stjórn félagsins og
auk þess 8 menn til viðbótar í trúnaðarmannaráð og 4
varamenn þeiira.
Tillögum skal skila til kjörstjórnar í skrifstofu félagsins
að Skipholii 19, ássamt meðmælum a. m. k. 46 fullgildra
meðlima.
STJÓRNIN.
Blóm
:-3‘!
Mikið og fallegt úrval af afskornum blómum og
pottablómum. — Góð bílastæði.
Blómabúðin RUNNI,
Hrísateigi 1. — Sími 38420. Heimasími 34174.
Útsvör 1961
Hinn 1. febr. er allra síöasti gjalddagi útsvara
starfsmanna, sem greiöa reglulega af kaupi.
Athygli gjaldenda og atvinnurekenda er sérstak-
lega vakin á því aö útsvörin veröa að vera greidd
að fullu pann da.g til þess aö þau verði frádrátt-
arbær viö niöurjöínun á þessu ári.
Atvinnurekendum og öðrum kaupgreiðendum,
sem ber skylda til aö halda eftir af kaupi starfs-
manna er ráölagt aö gera þegar í þessari viku
lokaskil til borgargjaldkera til þess aö auövelda
afgreiöslu á móttöku útsvaranna.
Bocgamtaíiim.
Þökkum innilega auðr-ýnda samúð við andlát og jarðarför
GUÐRUNAR sigurjónsdóttur
Laugateigi 16.
Alveg sérs^aklega þökkum við öllum þeim, sem heimsóttu
hana á sjúkrahúsið, og sem á margvíslegan hátt réttu okk-
ur hjálparhönd í veikindum hennar.
Við munum seint gleyma góðvild ykkar og hjálpsemi.
Sigurður Þorsteinsson.
Aðalbjörg Sigurðardóttir. Sigriður Sigurðardóttir.
Valgeir Sigurðsson.
. Sunnudagur 28. japúar 1962 — ÞJÓÐVILJINN —r J JJ