Þjóðviljinn - 31.01.1962, Blaðsíða 3
>roff¥ikning Kúbu effi
ráiherraii
PUNTA DEL ESTE 30/1 — Eftir
fimm daga látlausar leynivið-
ræður á fundi utanríkisráðherra
Ameríkuríkjanna eru horfur á að
Bandaríkjunum takist að koma
saman meirihluta fyrir brottvís-
un Kúbu úr bandalagi Ameríku-
ríkja. Hins vegar er búið að
leggja á hilluna upphaflegar fyr.
írætlanir Bandaríkjastjórnar um
að fá þar samþykkt allsherjar
slit á stjórnmálasambandi og
viöskiptabann á eyna.
Ráðsteinunni átti í réttu lagi
að ljúka á mánudag, en umræð-
ur eru. ekki einu sinni hafnar.
Hefu.r gengið á ýmsu í óformleg-
um viðræðum fulltrúa, en í gær
taldi Rusk, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, fengin þau fjór-
tán atkvæði sem þarf til sam-
þykktar tillögu með því að
Kúbu verði vikið úr bandalaginu.
í>au ríki sem síðust fengust til
að styðja brottvikninguna voru
Haiti og Uruguay.
öflugustu ríki Rómönsku Ame-
ríku, svo sem Brasilía, Argen-
tína og Mexikó, telja að ráð-
stefnan í Punta del Este sé< ekki
bær að gera bindandi sarViþykkl-
ir heldur aðeins ráðgefnadi.
Dorticos, forseti Kúbu. sagði að
ráðstefnan hefði sýnt að banda-
lag Ameríkuríkjanna væri í upp-
lausn, og hún hefði því mis-
heppnazt fyrir forgöngumennina
hvaða málamyndasamþykkt sem
gerð kynni að vera.
20-27 atkvœði
gegn 11-16 í
Hveragerði
Björgvin Sigurðsson
Aðalfundur Verkalýðsfélagsins
Bjarma á Stokkseyri var haldinn
sl. sunnudag. Var fundurinn
mjög íjölmennur og ríkti mikill
áhugi á málefnum verkalýðs-
hreyfingarinnar. Stjórn félagsins
var öll endurkjörin en hana
skipa: Björgvin Sigurðsson for-
maður, Helgi Sigurðsson vara-
formaður, Gísli Magnússon rit-
ari, Frímann Sigurðsson gjald-
keri og Guðmundur Ingjaldsson
LR frumsýnir
laikrii effiir
Anouilfa í mzrz
i næsta mánuði mun Leikfélag
Reykjavíkur væntanlega hefja
sýningar á gamanleiknum
„Taugastrið tengdamömmu", en
seint í marz verður leikritið „Vals
nautabananna" eftir Jean Anou-
iih frumsýnt í Iðnó.
„Taugastríð tengdamömmu“ er
framhald hins vinsæla leiks
„Tannhvassrar tengdamömmu".
Leikstjóri er Jón Sigurbjömsson,
en aðalhlutverkið, tengdamömm-
una, leikur Arndís Björnsdóttir,
sem nú kemur í fyrsta skipti, síð-
an Þjóðleikhúsið tók til starfa
fyrir 12 árum fram á sviðinu í
Iðnó.
Jón óskar þýðir leikrit Anou-
ilhs en 'leikstjóri verður Helgi
Skúlason. Þorsteinn ö. Stephen-
sen leikur aðaihlutverkið.
Sclfosri, 30. jan. — Sunnudaginn
28. janúar var boðaö til stofn-
íundar filmíuklúbbs á Selfossi að
frumkvæði áhugamanna þar. Til-
'gangur klúbbsins er að skapa
aöstöðu til útvegunar og sýningá
á úrval’skvikmyndum, er tor-
fengnar eru, í samvinnu við
hliöstæðan félagsskap utanlands
og innan. Fund þennan sóttu um
40 manns og voru þar samþykkt
lög fyrir félagið að mestu sniðin
eftir lögum Filmíu í Reykjavík
og kom þar fram mikill áhugi
fyrir þessu máli.
Fyrsta sýningin verður næst-
komandi miðvikudagskvöld í Sel-
fossbíói og hefst hún kl. 23 og
verður þá sýnd amerísk mynd
The Sun Shines Bright, sem
John Ford hefur gert, og verða
félagsskírteini afhent sýningár-
kvöidið frá klukkan 22 í Selfoss-
bíói. í stjórn klúbbsins eru
Hjalti Gestsson, Magnús Hall-
freðsson, Árni Guðmundsson,
Benedikt Bogason og Hörður
Óskarsson.
Siguröur Árnason.
Nýlega fór fram stjórnarkjör í
Verkalýðsfélagi Hveragerðis. Sig-
urðúr Árnason var kjörinn for-
maður, Sigmundur Guðmundsson
varaformaður, Rögnvaldur Guð-
mundsson ritari, Jón Guðmunds-
son í Saurbæ gjaldkeri, Þorvald-
ur Sæmundsson fjármálaritari og
meðstjórnendur Magnús Hannes-
son og Stefán Valdimarsson í
Þorlákshöfn.
Stillt var á móti þrem efstu
mönnum, er hlutu 20—27 atkv.
en hinir fengu 11—16 atkvæði.
norræna
ffiskimálastofnnn
OSLÓ 29/1 — Fiskimálaráðherrar
Norðurlanda ræddu á fundi sín-
um hér um að koma á laggirnar
norrænni stofnun til að fjalla um
fiskveiðimál. Einnig ræddu ráð-
herrai’nir vandamál Norðurlanda
varðandi fisksölu vegna stofnun-
ar Efnahagsbandalagsins. Loks
var fjallað um sameiginlegar
slysavarnir Danmerkur, Noregs
og Svíþjóðar.
Húsavík 29/1 — Tíð hefur verið
stirð hér á Húsavík í janúarmán- |
uði. Afli hefur hinsvegar verið
sæmilegur þegar gefið hefur á
sjó.
Nú fyrir helgina var allt útlit
fyrir að vegir væru að teppast
hér í innsveitum, en færðin hef-
ur skánað mikið, enda komin
hláka.
Frá æfingu í Iðnó á leikriti Priestley „Hvað er sannleikur?“. Lcik-
stjórinn Indriði Waage gel'ur leiðbeiningar. Tveir af leikendum
sjást einnig á myndinni: Sigríður Haga-lin og Helgi Skúlason.
•iidriði Waage aítur á íjölum Iðnó gömlu
’r 12 ára íjarveru
4 stórir bátar og fleiri
smærri róa frá Olafsvík
Ólafsvík 29/1 — Fjórir bátar eru
byrjaðir róðra héðan með línu.
Bátarnir eru: Jón Jónsson sem
verið hefur á línuveiðum síðan
í haust og leggur upp afla sinn
hjá Kirkjusandi, Jökull sem
leggur upp hjá Hróa, Þórður
Ólafsson leggur upp hjá Hrað-
frystihúsi Ólafsvíkur og Jón á
Stapa, sem er á útilegu og legg-
ur upp aflann hjá Hróa.
Brcytingar á frystihúsi
Nokkrir smærri bátar leggja
upp afla hjá hraðfrystihúsi
Kirkjusands. Þar hefur að und-
anförnu verið unnið að miklum
breytingum, en frystihús þetta
var áður rekið af Kaupfélagi
Ólafsvíkur.
Unnið er að smíði mikillar
skemmu til fiskverkunar og er
beitt nýrri verktækni við húsa-
smíðina. Þetta verður allmikið
hús eða um 800 fermetrar að
grunnfleti og er gert ráð fyrir
að í skemmu þessari verði tekið
á móti öllum fiski sem til
frystihússins berst og hann
ílokkaður þar eftir vinnsluað-
ferðum.
Þá hefur frystivinnslusalnum
verið breytt og hann stækkaður.
Unnið við höfnina.
I vetur hefur aHtnikið Verið
unnið við hafnarframkvæmdir
hér á Ólafsvík. Er vei’ið að
„IÞ
leikri
Priest v ‘im Leikfélag Reykja-
víkur f rumsýnir í Iðnó n.k.
fimnú- ' "-“vökl.
sannleikur?“ nefnist ið 1932 og vakti þá þegar athygli4
el ’ir brezka skáldið J. B. j enda enn talið eitt af beztu verk—
um Priestleys.
Inga Laxness þýddi leikritið
á íslenzku, leikstjóri er Indriði
Waage, leiktjöld gerði Steinþór
Sigurðsson, en leikendur, 7 tals-
ins, eru: Helga Bachmann, Sig-
ríður Hagalín, Guðrún Ásmunds-
dóttir. Guðrún Stephensen, Guð-
mundur Pálsson. Birgir Brynjólfs-
son og Helgi Skúlason.
í Iðnó eftir 12 ára fjarveru
„Hvað er sannleikur?“ er fyrsta
leikritið, sem John B. Priestley
samdi og hið síðasta af þrem
dýpka höfnina inn með norður- ] svonefndu tímaleikritum, sem
garðinum og fæst við þessar Leikfélag Reykjavíkur tekur til j Þjóðleikhúsið tók til starfa vorið
aukið sýningar eftir þennan fræga höf-j 1950 réðst Indriði bangað og þar
1 und. Leikritið var fyrst sýnt ár-í hefur hann starfað síðan.
Hin fyrri tímaleikrit Priestleys
sem Leikfélag Reykjavikur hefur
sýnt eru: ,.Ég hef komið hár áð-,
ur“, sem sýnt var 1944, „Tíminn
og við“, sýnt 1960. Gísli Halldórs-
son stjórnaði sýningum á síðar-
nefnda leikritinu, en Indriði
Waage á því fyrrnefnda. Indriöi
lék jafnframt aðalhlutverkið og
þótti sýningin mjög minnisstæð.
Svo skemmtilega vill til að á
þessu ári eru liðin 40 ár síðan
Indriði Waage hóf leikferil sinn
hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Ind-
riði var um áratugaskeið sem
kunnugt er einn aðalkrafitur fé-
lagsins og setti fleiri leikrit á svið
í Iðnó en. nokkur annar. Þegar
framkvæmdir töluvert
legupláss fyrir bátana.
Leiðin
til nýrra sigra
Á sunnudaginn birti Al-
þýðublaðið forustugrein undir
fyrirsögninni „Skiptum um í
Dagsbrúrí', og á tveimur
stöðum í blaðinu var lögð á-
herzla á það að nú væri „til-
valið tækifæri“ til að „fella
stjórn kommúnista í Dags-
brún“. Þessi skrif sýna að
aðstandendur B-listáns hafa
gert sér vonir um að fá 1100
til 1200 atkvæði í félaginu,
þar sem minna atkvæðamagn
nægði ekki til þess að fella
kommúnistana, Vonbrigðin
hljóta því að hafa verið mjög
sár, þegar aðeins rúmur helm-
ingur af vonaratkvæðunum
kom upp úr kössunum.
Stjórnarblöðin sleikja sár
sín í gær og reyna að harka
af sér. Er Alþýðublaðið þó
'þeim mun framlægra en
Morgunblaðið sem það var
steigurlátara á sunnudaginn
var Þó segir það að það
verð: -ð telja alvarlegt áfall
f.vrij. kommúnista í Dagsbrúrí1
að ná kosningu með meira en
tveimur þriðju atkvæða. Og
Morgunbiaðið segir að það sé
„mikill ósigur“ að fá næst-
hæstu atkvæðatölu sem nokk-
ur stjórn í Dagsbrún hefur
fengið frá upphafi vega.
Minnir Morgunblaðið á það í
þessu sambandi hvílikar hrak-
farir það hafi verið fyrir
kommúnista að sigra einnig í
Vörubílstjórafélaginu Þrótti.'
Stjórnarblöðunum skal þól
sagt það að kommúnistar eru
mjög ánægðir með það að
verða fyrir þvilíkum ósigrum
og slíkum áföllum, og er þá
vel ef allir eru glaðir.
Morgunblaðið grípur einnig
til prósentureiknings máli sínu
til framdráttar. Segir það að
29 atkvæða aukning B-listans
sé hvorki meira né minna en
4,4%. Prósentusigrar verða
sem kunnugt er þeim mun
stórfenglegri sem viðrpiðunin
er minni, og því hafa stjórn-i
arflokkarnir tækifæri til að
vinna einstæða sigra á næst-
unni. Láti þeir sér til dæmis ,
nægja að fá eitt atkvæði í 1
næstu Da-gsbrúnarkosningum
en fari síðan upp í 100 at- |
kvæði, nemur fylgisaukning
þeirra hvorki meira né minna
en 9.900%. — Austri.
3;
Miðvikudagur-31r-janúar 1963 —ÞJÓÐVILJINN — (J’