Þjóðviljinn - 07.02.1962, Page 4

Þjóðviljinn - 07.02.1962, Page 4
Uppgðtvun draumsam- bands og útsýni poðan ' „Það er mjög líklegt að sum- ir draumar séu þann veg til- orðnir" (þ.e. fyrir samþand við draumgjafa, éins og dr. Helgi Pjeturss kenndi), „en áreiðan- ,'ega ekki nema lítill hluti þeirra“. Þetta segir Björn Franzson í grein í Þjóðviljanum um hina nýútgefnu Drauma og dulrúnir Hermanns Jónassonar, og fer honum þar líkt og manní, sem neitaði því að vísu ekki, að sumt af þeim hreyfing- um og fyrirbærum sem eiga sér stað í lofti og legi jarðarinnar, eigi rætur að rekja til sólar. en áreiðanlega þó ekki nema líti.11 hluti þeirra. Þegar He.lgi Pjeturss fór að athuga drauma sína, þá gerði ' hann það, sem draumfræðing- ar hafa ekki gert nægjanlega vel, en það var að gera sér fulla grein fyrir því, hvað draumar í rauninni eru. — Það er að vísu mjög eðlilegt, að mönnum verði fyrst fyrir að leita í eigin huga að frumorsök drauma sinna, því að í fljótu bragði virðist annað naumast geta komið til greina. En þegar þess er gætt, að draumarnir eru einmitt ekki hugsanir fyrst og fremst, heldur hreinar og bein- ar skynjanir og þátttaka í at- burðum, þá verður sú leið alveg ófær. Og í stað þess að þyrla upp slíkum órökstuddum heila- spuna sem Freud gerði og aðrir slíkir, komst dr. Helgi að þeirri niðurstöðu, að draumskynjanir hins sofandi manns væru ekki annað en þær virðast vera, raunverulegar skynjanir. Niður- staða hans var sú, að hinn sof- andi maður fái þátt í vökulífi annars, og að draumskynjanir hans séu það meira og minna aflagað, sem ber fyrir vakand- ann, og er sannast að segja, að margbreytni draumanna gefur enga ástæðu til að ætla að sú kenning geti ekki staðizt. Og þegar gætt er nú að þeirri út- sýn eða þeim aukna skilningi, sem verður af þessari niður- stöðu. þá ætti mönnum að geta horfið allur efi um réttmæti hennar. — Með því að halda sig við það, að draumskynjanir hins sofandi manns séu með enhverjum hætti einungis hug- sköpun hans, hafa menn ekki komizt að neinni þeirri niður- stöðu, sem færði þeim aukinn skitning á nokkru öðru. Þannig hafa draumaskýringar þeirra Freuds og Jungs ekki einusinni fært menn neitt nær skilningi á því, hvað svefninn er eða hversvegna menn skuli endi- lega þurfa að sofa. En séð út frá kenningunni um drauma- sambandið liggur það hinsveg- ar alveg ljóst fyrir. Þegar dr. Helgi hafði gert sér ljost, að lífsamband á sér stað við íbúa annarra hnatta, iþá fór að liggja alveg ljóst fyrir, að svéfninn er ástand til að taka á móti lífmagnandi krafti. — Það má nú gera sér Ijóst, að án þess heimssambands, sem Newton uppgötvaði, gæti enginn hlutur hafa orðið til né verið til. En hér fór nú einnig að blasa við, að án heimssambands lífsins hefði hvergi getað átt sér stað lifnun né líf. Kraftur sá sem magnar og endurnærir hinn sofandi mann fram til aukins lífs, var þannig sá hinn sami, sem forðum vakti nokkurn hluta hinna líflausu jarðefna til lífs. Og hér er ekki einungis að við blasir undirrót lifnunar á hverjum stað, heldur fer nú einnig að blasa við hvað lífið í rauninni er. Fyrir uppgötvun lífssambandsins eða lífgeislun- arinnar liggur það í augum uppi, að lífið er aðeins ákveðin niðurskipan efnis og orku. — Hér skal ekki um það rætt hvað geislan er eða hvernig kraftur flytzt frá einni stjörnu til ann- arrar. En hitt ætti að geta legið ljóst fyrir, að geislan eins er viðleitni hans til að koma fram eða framleiða sitt eigið ástand á öðrum stöðum, framleiða þar sál sína. Eða með öðrum orð- u.m, geislan er ævinlega við- Jeitni eins til að koma þeirri skipan á hjá öðrum,’ sem er í sjálfum honum, og verður þeirri viðleitni að vísu lítillega fram- gengt, nema þegar sérstaklega stendur á, svo sem á milli út- varpsstöðvar og útvarpstækis eða draumgjafa og draumþega. Og enn verður hér ljóst það, sem ekki hafði ljóst orðið áður. Hér verður það fyrst ljóst, Framhald á 7. síðu. Málverk af Dickens í vinnustofu sinni frá 1859. 150 ór frá fœðíngu mesta sagnaskálds Englands 1 dag er þess minnzt víða um heim að liðin eru 150 ár frá fæðingu eins vinsælasta og mesta skáldsöguhöfundar sem uppi hefur verið, Englendings- ins Charles Dickens. Han/i íæddist 7. febrúar 1812 í smá- bænum Landport nærri flota- stöðinni Portsmouth, en faðir hans var starfsmaður í flota- málaráðuneytinu. Bemska Charles Dickens var hamingju- söm, en þegar hann var tíu ára fluttu foreldrar hans til London og ógæfan dundi yfir fjölskylduna. Faðir Dickens var afaróhag- sýnn í fjármálum og var hnepptur í skuldafangelsið Marshalsea. Móðir Dickens pantsetti búslóð þeirra og flutti í fangelsið til manns síns með börnin. Charles litli var látinn fara að vinna 12 ára gamall erfið og óþrifaleg verk í skósvertuverksmiðju við illt -4> M I N N I N G Una Pétursdóttir r Fyrir og eftir síðustu aldamót bjuggu að Króki á Akranesi hjónin Þuríður Jónsdóttir og Pétur Sigurðsson formaður. Þau eignuðust tvö börn, dreng, er dó ungur maður 1900 og stúlku sem skírð var Una, f. 29. jan. 1884. Hún ólst upp og dvaldist með foreldrum sínum svo lengi sem þau lifðu, en faðir hennar dó 1914. Eftir það bjó hún með móður sinni, fyrst á Akranesi og síðan her í*, $:féý\crjávík""tií' 1928 að móðir hennar dó. Það er því víst að hún hefur í orðs- ins bezta skilningi haldið fjórða boðorðið og kunnað að heiðra föður sinn og rnóður og sýnt þeim í hvívetna ást og um- hyggju, er þau þurftu þess með enda fengið fyrirheit þess upp- fyllt að verða langlíf og vegna vel í landinu. Árið 1930 giftist Una eftirlif- andi manní sínum, Guðmundi Jónatanssyni, ættuðum frá Stað- arfelli á Fellsströnd í Dölum og Jifðu þau saman í hamingju- sömu og ástríku hjónabandi í rúm 30 ár. Virðist eins og ör- lagadísirnar hafi geymt þeim sameiginlega þann helgireit, sem sambúð þeirra var, er hann sem gestur kom hingað heim 1930 frá Vesturheimi, kynntist og kvæntist Unu í staðinn fyrir að snúa við aftur út í heiminn. Guðmundur hefur víða í skáldskap sínum látið í ljós á- nægju sína og aðdáun á kon- unm og heimilinu. A einum stað segir hann: Húsið smáa hæfir mér, hérna má • ég Iþreyja, hvítt og fágað allt það er eins og sjáleg meyja. Skipað rétt í röð og stað ræstuð teppi’ um palla. Höndur nettár hirða það, hér sést blettur varla. Vel hvar þannig vani grær —velferð sannar blessun. — Verkamanni verður kær vist í ranni þessum. Þannig var líka Una Péturs- dóttir. Umhyggjusöm húsmóðir, alúðleg en uppgerðarlaus, við- mótsþýð og gestrisin við þá, sem að garði hennar bar, og snyrtimenni í verkum sínum og framgöngu. Hjálpfús nágrönn- um sínum og bar með sér birtu og hressilegan blæ, og þess vegna aufúsugestur hvar, sem hún kom. Una Pétursdóttir var ein þess- ara alþýðukvenna, sem mynda hornsteina þjóðfélagsins. Hún var grandvör í orði og verki. trygglynd og vinföst, hrein og falslaus í viðskiptum sínum við aðra menn, góðhjörtuð og um- hyggjusöm, og elskaði það, sem var hreint og fagurt. Mest allan sinn búskap ibjuggu þau Una og Guðmundur hér í Laugarásnum og undu glöð við sitt. Nú er hún, þessi fjörlega og hugstæða kona, horfin.af sjón- arsviði þessa jarðneska lífs. Hún lézt 16. janúar síðastliðinn, eft- ir langt veikindastríð, er hún bar með ibjartsýni og hugprýði til hinztu stundar. Hún var kvödd af eiginmanni sínum, frændum og vinum í Fossvogskirkju 23. s. m. og lögð til hinztu hvíldar hjá móð- ur sinpi, er hún hafði svo lengi átt samleið með og saknað. Við þá athöfn kom í Ijós að Una Pétursdóttir var vinmörg og hafði ibúið við vinsældir meðal nágranna sinna. 1 hugum okkar, sem þekktum Unu mun minning hennar lengi lifa og við óskum henni þeirrar blessunar, er hún hefur unnið til í hinum nýja heimi, sem ihún hefur nú gist. Guðjón Bj. Guðlaugsson. atlæti. Þessi reynsla á ungum aldri af tillitslausri samkeppni og miskunnarlausu arðráni hins hreinræktaða auðvaldsskipu- lags mótaði Dickens alla ævi. Heldur rofaði til fyrir fjöl- skyldunni þegar húsbóndanum tæmdist arfur, svo hann gat losað sig úr skuldafangelsinu. Dickens komst aftur í skóla, réðst aðstoðarmaður á lögfræði- skrifstofu, tók að skrifa fréttir úr lögregluréttinum fyrir blöð og gerðist þingfréttaritari. Um það leyti var föður hans varp- að í skuldafangelsi í annað sinn. Fyrsta bók Dickens var safn tímaritsgreina sem hann skrif- aði undir nafninu Boz, en sig- ur vann hann með „Skjölum Pickwick-klúbbsins“, sem komu út í heftum árin 1837 til 1839., í fyrstu átti sagan aðeins að vera texti með myndum úr lífi veiði- og veðreiðamanna, en Dickens fór sínar eigin götur, með þeim árangri að tífalda varð upplag sögunnar áður en henni lauk. Síðan kom „Oliver Twist“ og hver bókin af ann- arri, nýjar bækur eftir Dickens voru helztu bókmenntaviðburðir í Englandi næstu áratugi. Hér þýðir ekki að þyl.ia nöfnin, þvf varla getur heitið að nokkur bók Dickens önnur en „Oliver Twist" sé til í sómasamlegri ís- ienzkri þýðingu. Aðrar sögur hans hafa komið út á íslenzku hroðéjiega limlestar, styttar svo- þær eru ekki annað en svipur hjá. sjón. Af beim mun skást leikin „David Copperfield", sem öðrum þræði er sjálfsævisaga Dickens á yngri árum. Um þessar mundir flytur Ríkisút- varpið eina af sögum skáldsins í formi framhaldsileikrits. Samúð Diokens með við- kvæmura og veikbyggðum sögu- het.jum andspænis grimmum og skilningslausum heimi snýst ekki ósjaldan upp í tilfinninga- semi, en fyndni hans, persónu- sköpunargáfa og þjóðlífslýsingar Framhald á 10. síðu. — ÞJÖÐVILJINN —; Miðvikudagur 7. febrúar 1962

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.