Þjóðviljinn - 07.02.1962, Page 5
„Afreksverkin" uppspuni
úr Siðvœðingarmönnum
Þýzka myndablaðiS Quick, sem g i'íiö er út í Munchen, tók sér fyrir bendur ný-
lega aS rannsaka ýmis þau afrek, sem Siðvæðingarmenn hafa hrósað sér mest af
að hafa unnið. Einn af blaðamönnum þess fór til höfuðstöðva hreyfingarinnar í
Caux í Sviss og varð þar m. a. vitni að því, er Kúomintang herforinginn Ho-Ying-
Chin kom þangað og var fagnað af Peter Howard, sem er arftaki Buchmans heitins.
Nú er iþar ,til að taka, að Sið-
væðingarmenn hafa haldið því
fram, að þeir hafi leyst Mau-
Mau-vandamálið í Kenya, komið
á friði og spekt í Little Rock,
unnið ibu,g á kommúnistum í
Ruhr-héraðinu og í Keralaríki á
Indlandi.
Gronefeld, fréttaritari Quick,
var kynntur fyrir hr. Knight og
Nahashon Ngare og sagt að þar
væru mennirnir, sem ileyst hefðu
Mau-Mau-vandann. Knight hafði
Vöruskipti Noregs
og Tékkéslévskíu
OSLÓ 4/2 — Samningur um
vöruskipti milli Noregs og Tékkó-
slóvakíu fyrir árið 1962, var
undirritaður sl. föstudag. Verð-
mæti vara þeirra sem sámning-
urinn hljóðar uppá, er um 88
millj. norskra króna á hvorn
veg.
Norðmenn munu flytja til
Tékkóslóvakíu síld og aðrar fisk-
afurðir, einnig málma og efna-
vörur. Tékkar flytja Norðmönn-
um sykur, vefnaðarvörur, bíla,
ýmiskonar vélar og fleira.
3.NUN í verk-
falll í Bretlandi
Loadon 5/2. — Þrjár millj.
brezkra verkamanna, sem vinna
í véla- og skipaiðnaðinum, munu
byrja 24 stunda verkfall í dag.
Verkfallið er háð til að mótmæla
stefnu stjórnarinnar í launamál-
um.
Þetta verður mesta verkfall,
sem háð hefur verið í Stórabret-
landi síðan sömu stéttir háðu
verkfall fyrir 8 árum, 29 verka-
lýðsfélög verða aðilar og 45000
verksmiðjur og skipasmíða-
stöðvar munu bíða tjón, sem
nemur um 3000 millj, ísl króna.
verið fangabúðastjóri í Kenya og
Ngare verið fangi í þeim hinum
sömu fangabúðum. Þeir síðan
gerzt vinir miklir og Knight
-teklzt að hafa þau áhrif á fang-
ana fyrir milligöngu Ngares, að
allt féll í Ijúfa löð í landinu.
Þegar Gronefeld spurði Knight,
hvemig boðskapur Siðvæðingar-
inrtar hefði borizt til stríðandi
Mau-Mau-manna og þannig gert
enda á uppreisnina svaraði
Knight: „Þegar föngunum var
sleppt, báru þeir boðskapinn
með sér til þorpa sinna.“
„Já en föngunum var ekki
sleppt, fyrr en uppreisnin var á
enda,“ svarar þá Gronefeld.
Knight gat engu svarað.
Þá hafa Siðvæðingarmenn sýnt
mynd af Daisy nokkurri Bates,
mikilli siðvæðingarkonu að þeirrá
■sögn, einum af foringjum blökku-
manna, iþar sem hún er að hrista
hramminn á Faubus fylkisstjóra
í Arkansas og innsigla þannig
frið í skóladeilunni í Little Rock.
Gronefeld náði tali af konu
þessari og kannaðist hún ekkert
við Siðvæðinguna og sagði um-
rædda mynd tekna miklu fyrr og
við allt annað tækifæri.
Siðvæðingarmenn halda því
fram, að Koiehi Morital, ungur
Japani, sé formaður Alþjóðaráðs
stúdenta, samtaka sem telji 120
þús. meðlimi. Samtök þessi hafi
á árinu 1960 tekið þátt i óspekt-
um heim, sem urðu í Jap-
an í tilefni af fyrirhugaðri
komu Eisenhowers forseta þang-
að. Afleiðingar óspektanna urðu
þær, að forsetinn varð að hætta
við förina. Nú ferðast Koiohi
Morital um Bandaríkin, segist
vera siðvæddur og biður afsök-
unar fyrir sína hönd og þeirra
samtaka, sem hann sé formaður
fyrir.
Gronefeld gerði margítrekaðar
tilraunir til að hafa upp á þess-
um stúdentasamtökum, en tókst
ekki, hallast helzt áð því að þau
séu ekki til.
Siðvæðingarmenn halda því
fram, að fyrir þeirra áhrif, hafi
fyilgi hrunið af kommúnistunum
í Keralaríki á Indlandi. Fylgi
þeirra hafi minnkað úr 39% árið
Í957 niður í hérumbil ekki neitt
árið 1960. Nánari eftirgrennslan
Gronefeldis leiddi í ljós, að eftir
að Siðvæðingarmenn höfðu sigr-
azt á kommúnistahættunni í Ker-
ala, fengu hinir sigruðu 44% at-
kvæða í kosningunum árið 1960.
NorMönd métmæla
^SLÓ 4/2 — Norsku, sænsku og
dönsku samtökin gegn kjarn-
orkuvopnum, hafa sent Kennedy
Bandaríkjaforseta skeyti, þar
sem þau minna hann á persónu-
lega ábyrgð hans á því, að til-
raunir með kjarnorkuvopn í and-
rúmsloftinu verða teknar upp að
nýju, en kjarnorkustofnun
Bandaríkjanna er í þann veginn
að láta hefja slíkar tilraunir.
Samtökin minna Kennedy á
fyrri ummæli hans, þau er hann
viðhafði er Sovétríkin tóku upp
að nýju tilraunir með þessi
vopn í andrúmsloftinu nýlega. Þá
sagði Kennedy, að þessi ákvörð-
un Sovétstjórnarinnar sniðgengi
allar óskir mannkynsins um
kjarnorkuáfvopnun.
Þá er sagt í skeytinu, að á
atómöld þurfi stjórnmálamenn
að taka meira tillit til óska fólks
en nokkru sinni fyrr óg þeir
verði að vera færir um að leysa
öll deiiumál á friðsarhlegan hátt.
Kommúni
rr** frrzn
r*y r •Kr'íY’"^
Castro sagði, að ráðherra-
fundurinn í Punta del Este, hafi
svipt burt grímunni af samtök-
um Ameríkurríkjanna og nú væri
sýnt að þessi samtök væru ekki
annað en verkfæri Bandaríkj-
anna, til nýlenduyfirráða í hinni
rómönsku Ameríku.
Við munum nú miða varnir
okkár við það, að við iþurfum að
berjast gegn Bandaríkjunum,
sagði Castro ennfremur, og við
munum verjast þeim meðan
nokkur maður eða kona stend-
ur uppi og á meðan nokkurt
vopn er til.
Á fundi þessum var lesið upp
skeyti frá Krústjoff, forsætisráð-
herra Sovétrikjanna, þar sem
hann segir að bandarísku heims-
valdasinnunum muni ekki verða
Nýtt í dag: Bút-
ar og margskonar
efnL
AFAR ÓDÝRT
FJORIR UT-
SÖLUDAG-
AR EFTIR
HAVANA 5/2. Castro forsœtisráðherra var ínnilega fagnað, er hann á fjöldafundi í
gœrkvöld lýsti pví yfir í annað sinn, að verkalýðsbylting hafi verið ftajnkvœmd á
Kubu. Hann sagði að bandaríska ríkisstjórnin óttaðist ekki svo mjög hina kúbönsku
pjöð, heldur óttaðist hún mest pœr afleiðingar, sem kubanska byltingin kynni að
hafa í löndum hinnar rómönsku Ameríku.
látið haldast uppi að blanda sér í
innanríkismál Kúbu og er það
ítrekun á fyrri yfirlýsingum for-
sætisfáðherrans í þá átt.
Samskonar boðskapur hefur
Kúbubúum borist frá Sjú-Enlæ,
forsætisráðherra kínverska al-
þýðulýðveldisins og fjölmörgum
öðrum forystumönnum kommún-
istaríkjanna.
Klapparstíg 44,
Kuldaskór
írá ítalíu
úr leðri
Stærðir: 34—46
Verð á stærðum: 34—39.
Verð á stærðum: 40—46.
Kr. 205,-
Kr. 230,-
SKÓVAL
Austurstræti 18 (Eymundsonarkjallara)
O*
©
frá Menntamálaráði Islands
I, Styrkur tii vísinda- og fræðimanna.
Umsóknir um styrk til vísinda- og fræðimanna þurfa
að hafa borizt skrifstofu Menntamálaráðs, Hverfisgötu 21
í Reykjavík, fyrir 15. .marz n.k. Umsóknum fylgi skýrsla
um fræðistörf. Þess skal getið, hvaða %'æðistörf umsækj-
andi ætlar að stunda á þessu ári.
Umsóknareyðublöð fást í skrifstofu ráðsins.
II. Styrkur til náttúruiræðirannsókna.
Umsóknir um styrk, sem Menntamálaráð veitir til nátt-
úrufræðirannsókna á árinu 1962, skulu vera komnar til
ráðsins fyxir 15. marz n.k. Umsóknum fylgi skýrslur um
rannsóknarstörf umsækjanda síðastliðið ár. Þess skal og
getið, hvaða rannsóknarstörf umsækjandi ætlar að stunda
á þessu ári. Skýrslurnar eiga að vera í því formi, að
hægt sé að prenta þær. Umsóknareyðublöð fást í skrif-
stófu ráðsins.
Reykjavík, 5. febrúar 1962. '
MENNTAMÁLARÁÐ ISLANDS
Miðvikudagur 7. febrúar 1962 — ÞJÓÐVILJINN — (5
4-