Þjóðviljinn - 07.02.1962, Qupperneq 10
Viðtal Adsjúbei við Kennedy
S.H. andvíg rannsókn !
Pramhald af 7. síðu.
samkomulagi um Vestur-Berlín.
Það væri mjög óráðieg stefna,
fyrir ykkur og okkur að fara
aðra leið í nafni þess að önn-
ur heimsstyrjöldin skuli til
l.vkta leidd — leið, sem iiggur
til aukinnar hættu á þriðju
heimsstyrjöldinni.
Svo ef ég væri sovézkur liðs-
foringi og vildi frið, myndi ég
telja unnt bæði að öðlast frið
og tryggja öryggi lands mi'ns.
Sovétríkin eru öflugt herveldi
með kjarnavopn, eldflaugar,
flugvélar, mikinn fiölda her-
fylkja og bandalagsríki. Enginn
mun nokkru sinni gera innrás
í Sovétríkin aftur. Það herveldi,
sem slíkt gæti gert, er ekki til.
Vandinn liggur í gerð samnings,
sem felur í sér jafna viður-
kenningu á okkar hagsmunum
sem ykkar. Það ætti ekki að
vera okkur ofvaxið.
Hvorki Krústjoff forsætisráð-
herra né ég stóðum að þeim
ráðstöfunum, sem gerðar voru
árið 1945 varðandi Berh'n. Sú
skvlda, sem á okkur hvílir
varðandi betta erfiða vandamál,
er að koma á friði og það á-
lít ég okkur unnt að gera.
I stuttu máli, ef ég væri sov-
ézkur liðsforingi, mundi mér
þykja öryggi Sovétríkjanna vel
tryggt og að nú sé það höfuð-
nauðsyn að ná samkomulagi
við Bandaríkin, bandamenn
okkar úr annarri heimsstyrjöld-
inni.
Adsjúbci: Hr. forseti. Ég fer
nú senn að hætta. Vitanlega
svöruðuð þér þessari spurningu
ekki sem gamalreyndur her-
maður, heldur sem forseti
Bandaríkjanna, og það er alveg
eðlilegt. Samt skilst mér á yð-
ur, hr. forseti, að þér séuð á
móti því, að Vestur-Þýzkaland
hafi vetnisvopn til eigin ráð-
stöfunar, eða hafi á nokkurn
hátt umsjón með slíkum vopn-
um.
Kennedy: 'Eins og ég sagði á
þingi Sameinuðu þjóðanna, þá
er það þáttur í utanríkisstefnu
Bandaríkjanna, að þau munu
ekki láta nokkru öðru landi í
té kjarnorkuvopn, og ég væri
því sérstaklega mótfallinn, ef
Vestur-Þýzkland færi fram á
kjarnorkuvopn sjálfu sér til
handa. Adenauer kanslari sagði
árið 1954, að það myndi ekki
fara fram á slíkt. Sú er enn
stafna þeirrar stjórnar, og ég
álít það viturlega stefnu.
Adsjúbei: En yður er fullljóst,
að þýzkir hershöfðingjar eru
í mörgum ábyrgðarmestu em-
bættum innan Atlanzhafsbanda-
lagsins og þér vitið að Evrópa
liggur mjög fjarri Bandaríkj-
u.num. Teljið þér ekki að slíkt
geti gengið svo langt, að þýzkir
hershöföingjar hafi of mikil á-
hrif og verði of valdamiklir
innan Atlanzhafsbandalagsins?
Kennedy: Það er þess vegna,
sem ég álít það svo mikilvægt
að áherzla sé lögð á innlimun
vesturþýzka hersins í Atlanz-
hafsbandalagið. Atlanzhafs-
bandalaginu er nú stjórnað af
Ameríkumanni; og svo lengi
sem þýzkir herir eru innan
Atlanzhafsbandalagsins, og Atl-
anzhafsbandalagið er undir
stjórn hinna 15 Atlanzhafs-
bandalagsríkja, sem engin vilja
styrjöld; svo lengi sem þessi
háttur er á hygg ég að allt sé
tryggt.
Ef hins vegar breyting yrði
á; ef Þýzkaland kæmi sér upp
eigin kjarnorkuvopnum, ef það
framleiddi margar eldflaugar,
eða stofnaði öflugan þjóðarher,
sem hótaði styrjöld, þá mundi
ég skilja áhyggjur ykkar, og
þær mundu einnig leggjast á
míg. Þegar allt kemur til alls,
höfum við átt í tveim styrjöld-
um í Evrópu engu síðu.r en þið.
En ástandið nú; það ástand,
sem framtíðin verður að byggj-
ast á, er eins og ég hef iýst
þvf. Ef það breyttist; þætti mér
sjálfsagt fyrir Bandaríkin og
Sovétríkin og aðra aðila að
meta ástandið á þeim tíma. En
því er ekki þann veg farið nú,
og hví þá að taka þá áhættu
að Bandaríkin, sem eru öflugt
land, og Sovétríkin, sem einnig
er voldugt ríki, lendi í hár sam-
an, þegar ekki er um neina
raunverulega ógnun að ræða í
Evrópu, — hvorki við ykkur né
okkur? Ég held að við ættum
að líta á málin eins og þau
eru árið 1961.
Þér hafið sagt að þið séuð
raunsæismenn. Árið í ár er
hvorki 1939, 1940 eða 1941, At-
hugið hvað hefur gerzt. f hin-
um fjarlægari Austurlöndum
var styrkleiki Japans á þeim
árum allt annar. Veldi Kína
var einnig algjörlega frábrugð-
ið því sem nú er. Lönd breyt-
ast, — horfur breytast Við
verðum að vera nægilega raun-
sæir til að sjá hvar hin raun-
verulega hætta er. Núna er hin
raunverulega hætta fólgin í því,
að við höfum báðir kjarnorku-
vopn undir höndum; tæki til að
valda gjöreyðingu hvor fyrir
öðrum — og komi stríð eigum
við mest í húfi.
Þess vegna álít ég, að ef við
tökum málin raunhæfum tök-
um, ættum við að geta náð
samningum, sem tryggðu hags-
muni beggja hinna voldugu
landa okkar, og gæfu okkur
færi á að halda áfram að bæta
lífsafkomu okkar og mæta öðr-
um vandamálum. Síðustu 14 ár
hefur hagur landsmanna í
Bandaríkjunum batnað um
40%. Og í Sovétríkjunum hefur
hann batnað stórlega. Enginn
hefur meiri hag af friði en
Sovétrikin og Bandaríkin.
Ég vildi þess vegna að við
athuguðum Þýzkalandsmálin
eins og þau eru nú, í stað þess
að reyna að tala um þau eins
og þau voru fyrir tuttygu árum.
I reynd hefur ríkt friður í Ev-
rópu síðastliðin 15 ár. Nú er
vandinn sá, að athuga hvort
við getu.m komið okkur saman
um þessi mál til næstu 15 ára.
Enginn veit hvað gerast kann
í veröldinni þegar stundir líða
fram, en við ættum í öllu falli
að geta útkljáð þessi mál um
Berlín og Þýzkaland.
Adsjúbei: Ég er yður þakk-
látur fyrir vinsemd yðar og
tíma þann, er þér hafið veitt
mér af helgarhvíld yðar.
Kennedy: Mér þykir mjög
vænt um, að þér skylduð gefa
mér, sem forseta, þetta tækifæri
til að tala til íbúa Sovétríkj-
anna, og þann velvilia yðar að
koma hingað. É.a vil leggia á-
herzlu á, að ekkert væri b.iéö
þessa lands kærara en það að
vita þessi tvö Iðnd lifa í sátt
og samlyndi við síbætta lífsaf-
komu.
Á námsárum mínum árið 1939
kom ég til Sovétríkjanna, og
ég skil að þar hafa orðið mikl-
ar breytingar og að lífsafkoma
fólksins er alltaf að batna. Lífs-
afkoma fólks í Bandaríkjunum
hefur einnig batnað. Ég vona
að viðtal þetta muni að ein-
hverju leyti stuðla að bættum
skilningi og friði, því ég vil enn
einu sinni endurtaka það, að
þjóðir okkar hafa mestan hag
af friði.
Adsjúbei: Þökk fyrir, hr.
forseti.
Framhald af 1. síðu.
miklu hærri upphæð en það
sendir heim árlega. Það er ekki
hægt að reka stóra matvæla-
verksmiðju, innpökkunarverk-
smiðju, hafa dreifingarstöðvar
úti um ÖIl Bandaríkin, sambönd
við smásala víðsvegar um land-
ið, án bess að velta gífurlegum
fjárhæðum. Og Jón Gunnarsson
er látinn vera forstjóri allrar
þessarar starfsemi í Ameríku.
En auk þess á hann að vera
aðalsölustjóri S.H. j mörgum
þjóðlöndum öðrum og í öðrum
heimsá’fum! Hann á þannig að
hafa með að gera sölur, sem
sveiflast árlega upp í nokkur
hundruð milljóna króna.
Þannig hefur stjórn Sölumið-
stöðvarinnar falið Jóni Gunnars-
syni takmarkalaust og eftirlits-
laust vald. Sjálfsagt þykir að
hverjum framkvæmdastjóra
venjulegs fyrirtækis fylgi stjórn,
eftirlit og aðhald. En það virð-
ist stjórn SjH. hafa talið óþarft
varðandi þennan framkvæmda-
stjóra.
★ Gagnrýni svarað með
brottrekstrum
1 Gífurleg óánægia hefur'nú 'gb’é-
ið upp með betta fyrirkomulag.
Þykir mjög á skorta að vel sé
um hnútana búið varðandi eign-
arhald og rekstur þessara fyrir-
tækja. Það er bví alls ekki ó-
eðlilegt að Albingi vilji athuga
hvað þarna er að gerast. Tveir
ungir starfsfmenn samtakanna,
sem unnið hafa í Ameríku, hafa
talið það skyldu sína að skýra
stjórn S. H. frá, að þeir teldu
rekstri flyrirtækjanna þar stór-
lega óbótavant, að þar væri ver_
ið að tapa iafnvel tugum millj-
óna króna. Framkvæmdastjórinn
Jón Gunnarsson rekur þessa
menn úr starfi þegar í stað!
Þetta verður Alþingi að láta til
sín taka, svo mikið er í húfi.
Við slíka rannsókn ætti að
koma fram hvort rétt var skýrt
frá eða ekki. Væri bezt fyrir
samtökin sjálf að vera ekki á
móti hlutlausri rannsókn, eins
og lagt er til með þessari
þingsályktunartillögu.
★ 9—12 mánaða greiðslu-
töf
Lúðvík sagði að frystihúsin
kvörtuðu nú hástöfum vegna þess
hve langan tíma það taki að fá
greiðslur frá Sölumiðstöðinni.
Meðaltalstíma frá því afli €r af-
hentur og þar ti] uppgjör fæst
telji frystihúsin 9—12 mánuði.
Með þessu eru frystihúsunum
bökuð gifurleg útgjöld. Taldi
Lúðvík furðulegt að heyra
stjómarmeðlim í SH halda því
fram að islenzk hraðfrystihús
hafi hagnazt meir á viðskiptun-
um við Bandaríkin en á austur.
viðskiptunum undanfarin ár.
Verðið á Bandaríkjamarkaðnum
sé óhagstæðara en á flestum öðr-
um mörkuðum þegar tekið sé til-
lit til ástandsins sem skapast
vegna greiðslufrestsins.
Dickens
Framhald af 4. síðu.
hafa tryggt sögum hans lang-
lífi. Hann átti drjúgan þátt,
bæði beint og óbeint, í marg-
háttuðum þjóðfélagsumbótum í
Bretlandi um sína daga.
Dickens var ekki hamingju-
samur í einkalífi sínu. Á miðj-
um aldri tók hann sér unga
hjákonu og kom hvorki vel
fram við hana né eiginkonu
sína. Síðasta áratuginn sem
hann lifði var hann á sífelldum
upplestrarferðalögum og gekk
bókstaflega af sér dauðum með
ofreynslu 1870. Dickens er
grafinn í Skáldahorninu í
Westminster Abbey.
★ Spurningar sem verður
að svara
Lúðvík beindi allmörgum
fyrirspurnum til Sigurðar
Ágústssonar um fyrirtæki
Sölumiðstöðvarinnar erlendis,
en Sigurður hiiðraði sér hjá
því að svara nokkrum þeirra.
Hvernig er með eignarrétt og
ábyrgð varðandi þessi fyrir-
tæki? spurði Lúðvík. Hvað
eiga aðilar, sem ganga úr S.H.
í dag, að fá út úr liinum
mik'u sameiginlegu eignum
erlendis? Ilvað gerist, ef
frystihús innan S.H. verður
gjaldþrota? Ilvernig fer ef
þessi fyrirtæki erlendis yrðu
gjaklþrota? Hver á þá að
borga töpin og í hvaða hlut-
föllum?
Allt er þetta óljóst, en hins
vegar auðsætt að stjórn Sölu-
miðstöðvarinnar liefur hrært
samaii alls óskyldum verkefn-
um á mjög óeðlilegan hátt.
Þessu verður að breyta og
koma málefnum samtakanna
á hreinf svo þau verði sem
bezt fær urn að gegna sínu
raunverulega ætlunarverki.
ir Óeðlilegt að fresta
upplýsingum
Einar Olgeirssom talaði aftur í
málinu í gær, og taldi óeðlilegt
að Sigurður Ágústsson skyldi
ætla að fresta að gefa umbeðn-
ar upplýsingar þar til tillagan
kæmi aftur úr nefnd. Það væri
bví miður ekki óalgengt að mál
sem ríkisstjórn og flokkar henn-
ar væru feimnir við, kæmu
aldrei úr nefnd. Leiðrétti Einar
ýmis atriði úr ræðu Sigurðar og
brakti m.a. ummæli hans varð-
andi austurviðskiptin.
~k Óttinm við rannsókn.
Sigurður talaði stutt og fór
undan í flæmingi. En hann lýsti
yfir þeirri afstöðu sinni að til-
lagan væri óþörf, rannsókn væri
óþörf og ætti ekki að fara
fram. Einar svaraði enn með
nokkrum orðum, en þar lauk um-
ræðunni, að ekki tóku fleiri til
máls og var umræðu frestað og
tillögunni vísað til sjávarútvegs-
nefndar.
Shald og kratar
Framhald af 12. síðu.
millj. kr. var slegið ríkinu fyr-
ir 6,6 milli. kr. Á sl. ári var
leitað aðstoðar rikisins vegna
uppgjörs óreiðuskulda bæjarins.
Fékkst þá fyrir aðstoð ríkisins
samningur við banka um 2,8
millj. kr. skuldabréf til 20 ára
og á móti kom rikið til aðstoðar
og greiddi úr jöfnunarsjóði 1
millj. 24 þús. kr., en þá var
ríkissjóður búinn að taka á
móti björgunarlaunum Brimness
fyrir björgun Keilis og fékk þá
í ríkissjóð kr. 830 þús., þótt
Brimnes væri þá enn á nafni
bæjarins.
Seyðisfjarðarkaupstaður keypti
90% af hlutabréfum Síldar-
bræðslunnar fvrir 8-falt nafnverð
og tók bærinn lán fyrir kaup-
unum. Gat hann ekki staðið í
skilum þannig að skuldin stend-
ur nú í rúml. 1 millj. og 600
bús, kr. Hefur bærinn þannig
ekki hagnazt neitt á öllum geng-
isfellingunum. Það eru aðeins
einstaklingar, sem græða á
þeim.
Aðspurður sagði Baldur Svein-
björnsson bæjarfulltrúi Alþýðu-
bandalagsins, að umræður um
sölu á Síldarbræðslunni ættu alls
ekki að koma til greina. Það er
ekki aðeins verið að selja verk-
smiðjuna heldur og framtíðar-
möguleikana.
Kaupmenn — Kaupfélög
Fyrirliggjandi:
Hvít kaki — Hvítt léreft 90 cm.
Hvitt léreft 140 cm.
Óbleyjað léreft 140 cm.
Kr* Þorvaldsson & Co.
HEILDVERZLUN
Grettisgötu 6. — Sími 24478.
Við undirritaðir höfum selt Reinhard Reinhardssyni og
Kristjáni Reinhardssyni
Efnalaug Austurbæjar
SKIPHOLTI 1.
Um leið og við þökkum heiðruðum viðskiptavinum vor-
um viðskiptin, vonum við að hinir nýju eigendur njóti
þeirra framvegis.
Virðingarfyllst
Eggert Þorlcifsson,
Magnús Andresson.
Við undirritaðir höfum keypt
Efnalaug Austurbæjar
SKIPHOLTI i
og munum kappkosta að uppfylla ströngustu kröfur við-
skiptavina vorra um vandvirkni og fljóta afgreiðslu.
Virðingarfyllst
Reinhard Reinhardsson,
Kristján Reinhardsson.
|Í0) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 7. febrúar 1962