Þjóðviljinn - 20.03.1962, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 20.03.1962, Blaðsíða 2
I dag er þriðjudaKurinn 20. marz. Cuthbentus. Einmánaðar- samkoma. Heitdagjur. Elnmán- uður byrjar. Árdegisháflæði kl. 5.15. Síðdegisháflæði kl. 17.30. Næturvarzla vikuna 17.—23. marz er í Beykjavíkurapóteki, sími 11760. j fiugið ; Loftleiðir j 1 dag er Þorfinnur karlsefni vænt- anfegur frá N.Y. kl. 8.00, fer til Oslóar, Gautaborgar, Kaupmanna- hafnar og Hamborgar kl. 10.30. Flugfélag fslands Millilandaflug;: Gullfaxi er væntian- legur til Reykjavíkur kl. 16,10 í dag frá Kaupmanna.höfn og Glasg- ow; flugvélin fer til Glasgow og Kaupmannahafnar kl. 8,30 i fyrra- málið. Innanlandsflusr: 1 dag er áætliað að fljúga til Akur- eyrar (2 ferðir), Egilsstaða, Sauð- árkróks og Vestmannaeyja. Á morgun er áætlað að fljúga til Akureyrar, Húsavíkur, Isafjarðar og Vestmannaeyjia. skipin Skipadeild SIS Hvassafelll er í Reykjavík. Arn- arfell er í Bremerhlaven, fer það- an í dag til Reyðarfjarðar og Reykjavikur. Jökulfeil fer frá Rieme í dag til Islands. Dísarfell fer væntanlega i dag frá Brem- erhaven' til Hornáfjarðar. Litlafell losar á Au'1 f j :irða.höfnum. Holga- fell losar á Norðurlandshöfnum. Hamrafcöl fór frá Batumi 13. þ.m. t.il Reykjavikur. Hendrik Meyer fór frá Wismar 17. þ.m. til R- víkur. •Töklar Drangajökull er á leið til Mut'- mansk. Dangjökull leijstar á Faxa- fóahöfnum. Vatnajökull fer frá Hiamborg í dag áleiðis til Rotter- dam og Reykjavíkur. Eimskipafélag 3‘ÍIands Brúarfoss kom til Dublin 13. þ.m. • fer þaðan til New York. Dettifoss i fór frá Reykja/vík 12. þ.m. til New ; York. Pjaltfoss fór frá Isafirði i t gær til Vestfjarða- ,og Paxaflóa- j hafna. Goðiafoss fer frá New York 23. þ.m. til Reykjavikur. Gullfoss kom til Reykjavíkur 18. þ.m. frá Kaupmannahöfn og Leith. Lagar- foss kom til Hamhorgar 17. þ.m., fer þaðan til Rostock, Kleipeda Ventspils og Hangö. Reykjafrhs Íkom til Hull 18. þ.m., fer þaðan til Rotterdiam, Hamborgar, Ro- stock, og Hamborgar. Tröllafoss fór frá Norðfirði í gær til Reykja- s víkur. Tungufoss kom til Grav- | arna, 17. þ.m.. fer þaðan til Lyse- kil og Gautaborgar. Zeehaan fór frá Keflavík 16. þ.m. til Grimsby. Skinaútgerð ríkisins Hekla er á Norðurlandshöfnum. Esjia er á Norðuriandshöfnum. Herjólfur fer frá Vestmannaevj- um kl. 21,00 í kvöld til Reykia- víkur. Þyrill kom til Reykjavik- ur í gærkvöld. Skjaldbreið er væntanleg til Revkja.v'kur í dag að vegtan frá Akureyri. Herðu- breið fnr frá Reykjavík á morgun austur um land í hringferð. Bókmenntafélagið flytur afmœli Fimmtugur cr í dag Sigurður Þorbiörnsson, Hiallavegi 33. Hann verður að heiman í dag. I marga áratugi hcfur Hið íslcnzka bókmenntafélag haft samastað í Dómkirkjuloftinu hér í Reykjavík, geymt út- gáfubækur sínar þar og haft afdrep fyrir bókavörð félags- ins. Nú cr félagið horfið af kirkjuloftinu, sem brátt mun vcrða tekið til annarra nota. Þessi breyting á högum Bókmenntafélagsins hefur orðið nú eftir andlát dr. Matthíasar Þórðarsonar fyrrv. þjóðminjavarðar, en hann vann, sem kunnugt er, mikið starf í þágu félagsins, var for- seti þess og þókavörður um langt skeið. Félagið hefur gert samning við Bókaverzlun Sigfúsar Ey- mundssonar um að hún ann- ist sölu og afgreiðslu á bók- um félagsins í framtíðinni. Skírnir, 135. árgangur tíma- rits Hins íslenzka bókmennta- félags, er kominn út, en í Nær eðlS- yr í skólunum Barnaskólarnir í Reykja- vík hófu starf sitt að nýju í gærmorgun eftir langt hlé af völdum flenzunnar. Heimturnar á fyrsta degi lofa góðu. Mest vantaði í Langholtsskólann eða 16.1 %. 15% vantaði í Austurbæjar- skólánn og Breiðagerðis- skólann, en minna í aðra. Heita má að heimtur í gagnfræðaskólunum séu komnar í eðlilegt horf. Fyllflngin Málfundur verður haldinn i félagsheimili ÆFR n.k. mið- vikudag kl. 9.00. Umræðuefni: Skcmmtanalíf Reykjavíkur. Fundur í kvöldskólanum fell- ur niður í kvöld vcgna vcik- inda fyrirlesarans. prentun er rit um Baldvin Einarsson eftir Nönnu Ólafs- dóttur cand mag. Einar Ól. Svein-sson próf., gegnir nú forsetastörfum í Hinu ísl. bókmenntafélagi, en aðrir í stjórn eru: Alexander Jóhannesson ritari, Einar Bjarnason gjaldkeri, Halldór Halldórsson, Broddi Jóhannes- son, Kristján Eldjárn og Stein- grímur Þorsteinsson. • Amenkamsimnn á Röðli Veitingahúsið Röðull hefur tekið upp undarlegan hátt á skemmtistarfsemi sinni. Hinn bandaríski söngvari, Harvey Árnason (sem er að einhverju leyti islenzkur) er nú orðinn kynnir hljómsveitarinnar, en sá er bara ’gallinn á að mað- urinn talar ekki stakt orð í íslenzku og vilji maður forða sér undan amerískunni á bar- inn, tekur ekki betra við. Þar glamrar yfir manni ameríska hermannasjónvarpið. Þetta er aðeins vinsamleg á- bending til forráðamanna hússins og vonum við að úr verði bætt. Sjálfkjörið Laugardaginn 17. marz rann út framboðsfrestur til stjórn- arkjörs í Bifreiðastjórafélag- inu Frama. Aðeins einn listi kom fram fyrir hvora deild félagsins og, urðu þeir þv£ sjálfkjörnir. Formaður sjálfseignar- deildar er nú sem áður Berg- steinn Guðjónsson Hreyfli, en formaður launþegadeildar er Samúel Björnsson Landleiðum. Formaður sameiginlegrar stjórnar félagsins er Berg- steinn Guðjónsson. • Fvrirsuiuri’i til útvarpsráðs Sveinþjörn Sigurðsson verkamaður hefur beðið blað- ið fyrir svohljóðandi fyrir- spurn til útvarpsráðs: — Ég varð svo hrifinn af lögunum, sem Björn Sigtryggsson valdi f þættinum „Þetta vil ég heyra“ nýlega að ég vildi óska að hann fengi að vélja aftur lög í þættinum. i félapslíf Húsmæður Kópavogi fundur miðvikudag'skvöld kl. 8.30 í félavsheimilinu. Rætt um orlof bú.sTnæðra oe; fleira. Sýndar verða skuggamyndir. Orlofsnefndin. KonhV í StyrKtarffIas;i vámrÞfinna halda fund þriðjudaginn 20.. raarz kl. 8 30 i Tiarnarsrötu 26. Fundar-. efni: Bazar oer kaffisalá 25. marz. Konur sem ætlia að gefa muni á bazarinn afhendi þá á fundinum. St.jórnin. Ásgarður, afmœlisrit BSRB sér eina fallega styttu úr gulli til minja um þetta ævin- týri. Nú var komið að skilnaðarstund — Þórður þurfti að sinna nýju verkefni og enginn vafi leikur á því að hann lendir í nýju ævintýri. ENDIR. Minningarsp.jöld styrktarfélags lamaðra og fatlaðrn fást á eftirtöldum stöðum: Bóka- verzlun Braga Brynjólfssonar, verzluninni Roða, Laugavegi 74, verzluninni Réttarholt, Réttar- holtsvegi 1 og á skrifstofu félags- ins að Sjafnarg. 14. 1 Hafnarfirði hjá Bókabúð Olivers Steins og Sjúkrasamlagi Hafnarfjarðar. Björgun fjársjóðsins gekk nú eðlilega fyrir sig og Gil- bert var í sjöunda himni yfir öllum þeim verðmætu listmunum sem fundust í flakinu. Þegar verkinu var lokið virtu vinirnir fyrir sér gripina. „Nú getur þú opnað safn“, sagði Þórður brosandi. Sjálfur valdi hann Parið hér á myntlinni, Kristíri og Ilaraldur, hafa víða sýnt tvist-dans, nú að undanförnu á miðvikudagskvöldum í Þórscafé. Komið er út 11. árgangur Ásgarðs, tímarits BSRB, þar minnist Kristján Thorlacius formaður bandalagsins 20 ára starfs þess. Að beiðni ritnefnd- ar skrifa 3 fyrrverandi stjórn- . armeðlimir afmæliskveðjur, þeir eru: Lárus Sigurbjörns- son, skjalavörður, Ólafur Björnsson' prófeSsor,' og Sig- urður Ingimundarson kennari. ® Fjölbreytt Húsfreyja komin út Húsfreyjan, tímarit Kven- félagasambands Islands, er komið út. Það er 1. tbl. 1.3. árgangs. Ingibjörg Stephensen skrif- ar um málhölt börn, minning- argrein er um Steinunni H. Bjarnason og afmælisgreinar u.m Aðalbjörgu Sigurðardóttur, Jóhönnu Egilsdóttur og kven- félagið Ósk í Suðursveit. Þá er þýdd saga og Margrét Jó- hannesdóttir skrifar um með- ferð ungbama. Margt annað til fróðleiks og skemmtunar er í ritinu, sem er 48 síður að stærð. Gunnar Thoroddsen fjármála- ráðherra skrifar um samnings- réttinn, Lúðvík Jósepsson um launalögin, Emil Jónsson um sama efni, Bjarni Benedikts- son um gagnkvæman skilning, Eysteinn Jóiisson afmælis- grein. 18 ríkis- og bæjastarfs- menn svara spurningum um starf bandalagsfélágahria. Við- tal er við Eyjólf Jónsson framkvæmdastjóra bandalags- ins, þá er vísnabálkur og við- tal við Valborgu Bentsdóttur skrifstofustjóra um launajafn- rétti kynja, loks er langur annáll. Ritið er 84 síður og smekk- iega útgefið. • Námskeið fyrir enskukennara Fræðslumálaskrifstofan hef- ur beðið Þjóðviljann að vekja athygli á námskeiði fyrir enskukennai'a, sem haldin verða í Bretlandi á vegum The British Council á tímabilinu 7. júlí til 29. ágúst í sumar. Vegna mikillar aðsóknar verða umsóknir að hafa borizt fyrir 31. þ.m. . ösrrw’c.ít 2) — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 20. marz 1962

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.