Þjóðviljinn - 22.03.1962, Síða 3

Þjóðviljinn - 22.03.1962, Síða 3
„Þarf ég að vera með rokkinn. Ég er búin að reyna og það er alveg ómögulegt“. „Við skulum sjá til hvort ekki er hægt að laga hann“. segir snaggaralegur ungur maður á blárri peysu. Hann heitir Klem- enz Jónsson, er leikari og mælti þessi hughreystingarorð til ungr- ' ar upphlutsklæddrar stúlku, Sig-1 rúnar heimasætu í Hlíð. Allt í kringum þau er fólk á stjái, íklætt mórauðu vaðmáli, sauð- skinnsskóm og svellþykkum föð- urlandsbrókum. Kvenfólkið er með skuplur hyrnur og köflóttar svuntur ásamt skotthúfum sumar. ! Þarna eru líka stertimenni mik- Sviðsmynd úr 1. þætti. Talið frá vinstri: Hallvarður Hallsson (Jón A. Hallgrímsson), Sigga vinnu- kona (Inga Ilclgadóttir), Þórdís húsfreyja (Helga Kjajran), Sigrún (Asthildur Rafnar) og Sigurðuc bóndi leikinn af Guðbjarti Ölafssyni. — ^Ljósm. Þjóðv. A. K.). Hcrna eru þau skötuhjúin Sigrún í Hlíð (Ásthildisr Rafnar) og Þórarinn (Hjörtur Iiansson) Fyrirspnrn um fæingarorlof Margrét Sigurðardóttir flytur á Alþingi fyrirspurnir til félags- málaráðherra varðandi fæðing- arorlof, svohljóðandi: ^il með pípuhatta, signor og með- hjálpari, séra Sigvaldi og Hjálm- ar tuddi, það á nefnilega að fara að sýna okkur höfuðstaðarbúum Mann og konu, leikrit eftir skáldsögu Jóns Thoroddsens. Nú skyldi maður halda að slík- an bita bæru oss einhver hinna viðurkenndu og gamalreyndu leikflokka höfuðstaðarinsj. en það er nú aldeilis ekki, heldur eru þarna að verki landsprófsnemar 1. Hvað hefur félagsmála- róðuneytið gert til undirbúnings löggjöf um fæðingarorlof eða til íyrirgreiðslu því máli|, sem vís- að var til þess með samþykkt Alþingis 16. marz 1961? 2. Er þess að vænta, að ráðuneytið leggi frumvarp fyrir Alþingi um málið ó þessu þingi? Hjólaði aftan á Fyrir hádegi í gær hjólaði drengur á reiðhjóli aftan á lög- reglubíl á gatnamótum Hafnar- stræt.'s og Pósthússtrætis. Lenti hann með höfuðið á bílnum og skarst nokkuð en ekki alvar- Iega. Var hann fluttur í slysa- vaxðstofuna. vestur í bæ, nánar tiltekið í Hagaskóla. Og við komum á æf- ingu til þeirra í gær. Þetta er einsog maður komi í annan he'm, þessi vaðmáls- og sauðskinnsstemning grípur mann og þegar maður heilsar fólkinu munar litlu að það gerist, að góðum og gömlum sveitasið, með kossi. „Þetta er einsog í réttum, fólk- ið er svo áhugasamt", segir Klemenz, en hann er leikstjóri. Einsog fuglabjarg, hugsa ég. Leik- ararnir skvaldra og blaðra, hlægja og fussa, taka ofan pípu- hatta og parruk gerandi mikið grín að náunganum, enda er þetta fyrsta æfing í búningum og þessum atómaldarbörnum ný- næmi af múnderíngunni. jMann klæjar svo af þessari uli“, segir ung stúlka og ekur sér allri. Ég geng að Grími meðhjálpara, pota blýantinum í bumbuna á honum og segi: „Er hún ekki ekta?“ „O, nei,“ segir hann hik- andi en Bjami á Leiti er nær- staddur og gellur: „Jú, mikið af henni, sumt er handklæði en mest ekta.“ Nú er sviðið tilbúið og tjöld- in dregin fyrir. „Byrjið að hrjóta, krakkár", og það drynur við á sviðinu. „Ekki yfirdrífa,“ kallar þá leikstjórinn og tjöldin eru dregin frá. Þuríð- ur gamla, kengbogin, gigtveik, 16 ára kelling rekur burt sinn fræga skratta, sem enginn hefur nokkumtíma fengið að sjá annar en hún. Hana leikur Vilborg' Árnadóttir. Þórdís húsfreyja í Hlíð kemur til að ræsa fólkið, hún er leikin af Helgu Kjaran 14 ára. Sigurður bóndi í Hlíð, er leikinn af Guðbjarti Ölafssyni 14 ára. Sigrún heima- sæta af Ásthildi Rafnar og svo er guðað á gluggann og þar er kominn sá mikli skúrkur og krít- ari Hallvarður Hallsson úr Kjósinni eða hvaðan það nú var. Hann er leikinn af Jóni Ármanni Hallgrímssyni. „Þetta er nú meira dressið maðurj. ég er alveg að drepast úr svita,“ varð Karli Kristensen að orði. Hann var skrýddur ökla- síðu föðurlandi og svellþykkri lopapeysu og leikur smalann í Hlíð. Hjálmar tudda leikur Þór- hallur Sigurðsson 15 ára, Vilhelm Kristinsson leikur Grím með- hjálpara hann er 14 ára, Þórarinn unnusta Sigrúnar leikur Hjörtur Hansson 15 ára og séra Sigvalda leikur Jón öm Marinósson og er hann jafnframt formaður skólafélagsins, hann er 15 ára. Hallgrímur Snorrason leikur þann virðulega höfðingsmann Bjama á Leiti. Sigrún Gunnarsdóttir, Jón Magnússon, Þórunn Helga Krist- jánsdóttir og Inga Helgadóttir leika vinnufólk og* afbæjarper- sónur. Bjarni á Leiti segir: „Það verð- ur generalprufa á föstudaginn og frumsýning á laugardaginn. Við höfum æft síðan 9, febrúar, bún- inga og sviðsbúnað fengum við Vilborg Árnadóttir í hlutverki Þuríðar gömlu. að mestu hjá Þjóðleikhúsinu. Leiktjöldin gerðu handavinnu- kennarar okkar þeir Jón Jó- hannesson og Björn Kristjánsson. „Flensan?“ „Hún tafði okkur auðvitaði en æfingar féllu aldrei niður. Við höfum æft á nær því hverjum degi 4—6 tíma á dag.“ „Skelkúð?" „Ég held að það sé nú meira spenningur en hræðsla annars hafa flest okkar staðið á sviðinu áður í árshátíðaleikritum og svo- leiðis. Þetta hefur yfirleitt geng- ið nokkuð vel og við höfum haldið áætlun.“ „Þetta er mikið fyrirtæki hjá svona ungum krökkum", segir leikstjórinn", en þau eru áhuga- söm og vandvirk og skemmta sér konunglega og vonandi komast þau vel frá þessu“. Við tökum heilshugar undir það og iþó okkur langi auðvit- að mikið til að sjá alla æfing- una verðum við að snara okkur uppá blað, því þetta á að koma núna. G.O. Hæg | i ■ , • .•■.-*. eru heimatökin Forustugrein Alþýðublaðs- l ins í gær er samfelld siða- prédikun í tilefni af hinu I ömuriega , smyglmáli þre- menninganna á Goðafossi. Segir blaðið að mál þetta megi rekja til þjóðfélagslegra meinsemda sem vaði uppi á ísiandj. „í áratugj hafa veiga- miklir þættir íslenzkrar lög- gjáfar verið sniðgengnir af fjölda landsmanna, en ríkis- valdið ekki haft vilja eða getu til að framfylgja lögun- um. Þannig hefur verið með skattalög, áfengislög, gjald- eyrislög o,g smygkð'', segir blaðið. Þá víkur það að því að „bingo er tal’nn barnaleik- ur“, þótt það sé annarsstað- ar „kallað réttu nafni og bannað eða haft undjr eftir- liti sem hvert annað fjár- hættuspál“. Enn víkur blaðið að „slappleika í dómsmála- stjórninni“: „Alþýða manna trú.ir því ekki, að hinir „stóru“ þurfi mikið að óttast eða sitji nokkru sinni af sér, þótt þeir verði dæmdir.“ Og loks segir blaðið að eins og dæmin sanni sé „íslenzkt þjóðfélag rotið af fjárhags- legri spillingu, sem fram kemur í öllu því sem að ofan var nefnt. Þegar ungir menn, sem hafa alizt upp við hugs- unarhátt þessa ástands, ætla að reyna íslenzka „sjálfs- bjargarviðleitni“ í öðrum löndum eru þeir skyndilega orðnir sakamenn. Lækningin verður að byrja hér heima hjá okitur sjálfum.“ Þetta er áhrjfamikil préd- ikun, ekki aðeins vegna þess að hún er sönn, heldur og sökum þess að hún birtist á þvílíkum stað. Og nú er þess eins beðið að athafnir fylgi orðum. Félag ungra jafnað- armanna ætti tafarlaust að gefa til þjóðþrifaverka gróða þann sem félagið hirt: á ó- svífnasta bíngóbraski sem hér hefur verið iðkað og var á sínum tíma varið af tilfinn- ingahita í Alþýðublaðinu. Alþýðublaðið sjálft ætti þvi næst að skila aftur þe m fúlg- um sem til þess run-nu úr sjóðum Gagnfræðaskóla Aust- urbæjar, en menntamálaráð- herra hefur allt til þessa dags láðst að gera kröfu um end- urhe'mt þess fjár. Þá er þess að vænta að blaðið styðji . kappsamlega kröfuna um <?p- inbera rannsókn á skiptum Ax- els Kristjánssonar og Guð- mundar í. Guðmundssonar við ríkissjóð, Qg það þeim mun frekar sem, þeir félagar hafa einnig annazt fjárreiður Alþýðublaðsins um langb skeið. Og síðast en ekki sízfc hlýtur blað:ð að taka undir þá kröfu að Gylfi Þ. Gíslason bankamálaráðherra víki Vil- hjálmi Þór þegar úr embætti seðlabankastjóra til þess að vinna gegn þeirri rökstuddu trú almenn.'ngs að þeir stóru þurfi ekkert að óttast. Þessar ráðstafanir myndu hreinsa andrúmsloftið tjl mik- illa muna. Og eins og rit- stjóri Alþýðublaðsins segir rétt'lega: „Lækningin verður að byrja hér heima hjá okk« ur sjálfum". ,— Austri. Fimmtudagur 22. marz 1962 — ÞJÖÐVILJINN — (3

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.