Þjóðviljinn - 01.04.1962, Blaðsíða 1
V;:;
mm
UILIIMil
Sunnudagur 1. apríl 1962 — 27. árgangur — 76. tölublað
HVAÐ VANNST VIÐ STOFN-
UN ALÞÝÐUBANDALAGSINS
Hversvegna
fór vinstri
stjórnin frá
völdum?
Á efri myndinni heldur Hannibal Valdimarsson setningarræðu á landsráðstefnunnl. Við hlið hans
sést fundarstjórinn, I,álrus Halldórsson skólastjóri á Brúarlandi. A neðri myndiinni sjást þrír fundar-
manna, f.v. Eðvarð Sigurðsson formaður Dagsbrúnar. Stcingrímur Pálsson stöðvalrstjóri á Brú og
Játvarður Jökull bóndi á Miðjanesi. — (Ejósm. Þjóðv. A.K.).
Bæjarmálz-
fundir
Æskulýðs-
fylkingarinnar
Æskulýðsfylkingin í Beykja-
vík gengst fyrir fjölþættum
fundum um bæjarmálin á
næstunni. Fundirnir verða
sem hér segir:
1. Fimmtudaginn 5. aj)ríl
kl. 8,30 s.d.: Fjármál, at-
vinnumál og rekstur bæjar-
félagsins. Slcipulagsmál.
2. Sunmid. 8. apríl kl. 2,30
sd.: Æskulýðsmál. Eppeldis-
mál. Skólamál
3. Miðvikudaginn 11. apríl
kl. 8,30 s„d.: Húsnæðiísfcnál.
Hitaveitumál. Gatnagerðar-
mál
iAindirnir verða hajdnir í
Tjarnargötu 20. TJngir sósíal-
istar eru hvattir tii að fjöl-
menna. Æ.F.B.
Hver voru tildrögin a'ö stofnun Alþýöubanclalagsins?
Hveir voru viöhorfin 1 atvinnumálum og stjórnmálum þá?
Hvaö vannst við stofnun þess og liversvegna var vinstri
samvinna rofin?
Hannibal Valdimarsson svaraði
3purningunum hér aS framan
í framsöguræöu sinni við setn-
ingu ráðstefnu Alþýðusbanda-
lagsins í fýrrakvöld.
,,Á Alþýðusambandsþingi
haustið 1954 var samþykkt mjög
ýtarleg ályktun um viðreisn at-
vinnulífsins, a’iveg sérstaklega
i þeim þremur landsfjórðungum
sem þá voru herjaðir af at-
vinnuleysi á vissum árstímum,
og flótta fólks tíl Suðvesturlands-
:ins.“ Um þetta tókst mjög víð-
tæk sa.mstaða verkaiýðsfélag-
anna, svo • og um kröfuna um
25—30% kauphækkun.
,.En þáverandi ríkisstjórn
Sjálfstæ'ðisflokksins og Fram-
ióknarfiokksins brást við hart
>g hótaði gengislækkun, ef þess-
ar kröfur yrðu knúðar fram.“
Þá gerðist þaö að fjöldi verka-
lýðsfélaga, með Dagsbrún í
broddi fylkingar, krafðist fag-
legrar og pólitískrar einingar
gégn siíkum hótunum og skor-
aði á Alþýðusambandið að
„vinna ötullega að stjórnmála-
ilegri einingu alþýðunnar gegn
gengislækkun og kjaraskerð-
iingu, en fyrir myntlun ríkis-
istjórnar sem starfi að hagsbót-
um fyrir alþýðuna, og verka-
lýðshreyfingin gæti því stutt“.
Hinn 5. marz 1955 samþykkti
þáverandi miðstjórn Alþýðusam-
bandsins að skrifa verkalýös-
flokkunum báðum, Sósíalista-
t'lokknum og Alþýðuflokknum,
svo og Framsókn og Þjóðvarn-
arflokknum með ósk um við-
ræður um vinstra samstarf. í
svari Framsóknar var spurt um
þingstyrk, en tekin jákvæð af-
staða til viðræðna. í svari Al-
þýðuflokksins var heitið að til-
nefna mann til viðræðna, en
annars rætt um hlutverk slíkr-
ar stjórnar sem ætti að vera
„að koma í veg fyrir að þær
launabætur sem verkalýðurinn
knýr fram með samtökum sínum.
séu að engu gerðar með at-
vinnuleysi, neyzlusköttum, milli-
liðaokri, gengislækkun eða
öðrum ráðstöfunum." — „Menn
beri þetta svo saman,“ sagði
Hannibal „við ávextina a£
3tj órnarsamstarfi Alþýðuf lokks-
ins nú við Sjálfstæðisflokkinn'‘.
Framhald á 11. síðii
Mundirðu eftir
að flýta klukk-
unni í nótt?
Þetta er ekki aprílgabb
Metorð Vilhjálms Þórs afturkölluð
• Enda þótt í dag sé
1. apríl er sú frétt dag-
sönn að Seðlabankinn
hefur afturkallað þá
ákvörðun sína að gera
Vilhjálm Þór að aðal-
bankastjóra, en í stað-
inn hefur tign Jóns G.
Maríassonar verið
framlengd í tvö ár, til
31. marz 1964!
Ekki eru nema fáir dagar
síðan Þjóðviljanum barst árs-
skýrsla Seðlabankans — gef-
in út eftir að saksóknari rík-
isins höfðaði málið á Vil-
hjáim Þór. Þar var skýrt
greinilega frá nýjum met-
orðum sakborningsins, og var
sú opinbera tilkynning orð-
rétt á þessa leið:
„Bankastjórnin ákvað í
april 1961 að skipta þannig
með sér verkum fyrstu þrjú
árin, að núverandi banka-
stjórar sk:ptist á að vera
f ormenn bankastjórnarinuar
hver á /ætur öðrum í aldurs-
röð og eitt ár í senn. Jón G.
Maríasson er formaður til
31. marz 1962, EN I>Á TEK-
IIR VILHJÁLMUR ÞÓR VIÐ
SEM FORMAÐUR BANKA-
ST.TÓRNARINNAR.“
★
í gærmorgun — eftir að
Þjóðviljinn hafði skýrt frá
hinum nýju nietorðum sak-
borningsins í olíumálinu —
kom allt í einu ný frétta-
tilkynning frá Seðlabanka
íslands, svohljóðandi:
„Á fundi sínum í gær 30.
marz 1962, ákvað banka-
stjórn Seðlabankans að end-
urkjósa Jón G. Maríasson
forinann bankastjórnarinnar
og er kjörtímabil hans til 31.
marz 1964.“
★
Þessi afturköllun á metorð-
um Vilhjálms Þórs er fyrsta
undanhaldið fyrir þeirri
kröfu almennings, sem aðeins
hefur þó fengið að koma
fram í Þjóðviljanum, að Vil-
hjálmi Þór verði tafarlaust
vikið úr embætti. En vert
er að veita því athygli að
einnig þetta undanhald er
framkvæmt af mikilli kurt-
eisi við Vilhjálm. Það er ekki
hlaupið yfir hann, heldur er
kjörtímabil Jóns G. Marías-
sonar framlengf Og fram-
lengingin er látin ná til
tveggja óra, þannig að einn-
ig Jóhannes Nordal er svipt-
ur hinum væntaníegu met-
orðum sínum!