Þjóðviljinn - 03.04.1962, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 3. apríl 1962 — 27. árgangur — 77. tölublað
RÁÐSTEFNU ALÞÝÐUBANDALAGSINS LOKIÐ
Einhugur og barúttuviiji
einkenndu rdðstefnuna
• Ráðstefna Albýðubandalagsins, sem hófst sl.
íöstudag í Félagsheimili Kópavogs, lau'k á sunnu-
daginn. Stefnuskrá Alþýðubandalagsins og aðrar
samþykktir ráðstefnunnar voru gerðar einróma.
Að loknu kaffihléi á laugar-
daginn flutti Lúðvík Jósepsson
framsöguræðu um stefnuskrá
bandalagsins. Til máls tóku Ját-
varður Jökull, Alfreð Gíslason,
Halldór Bachmann, Hannibal
Valdimarsson, Sigurbjörn Ketils-
son, Einar Olgeirsson, Ásmund-
ur Sigurðsson, Rögnvaldur Guð-
Bátur strsndar
á Hellissandi
HELLISSANDI 2/4 — Það kom
fyrir hér á Hellissandi í gær-
kvöld um 10 leytið að vélskipið
Sæborg strandaði er það var að
koma inn úr róðri. Orsakaðist
strandið af því, að dautt var
á innsiglingarbauju. Var él þeg-
ar báturinn var að koma inn og
fór hann of grunnt og tók niðri
á sandbotni. Björgunarsveitin
xéri út í Sæborgu með línu og
tókst Hamri að draga skipið út
um kl. 1 í nótt. Náðist það ó-
skemmt að kalla.
Það heí'ur oft komið fyrir áð-
ur, að slokknað hefur á innsigl-
ingarbaujunni þegar hvasst er,
þótt elíki hafi það orðið að slysi
fyrr en nú.
Kvöldskóli
jónsson, Bergþór Finnbogason og
Haukur Hafstað. — Enginn kvöld-
fundur var og störfuðu þá nefnd-
ir ráðsteínunnar.
Fundur hófst aftur kl. 2 e.h. á
sunnudaginn. Finnbogi Rútur
Valdimarsson hafði framsögu um
utanríkis- og þjóðfrelsismál, Ját-
varður Jökull um landbúnaðar-
múl(. Tryggvi Helgason um sjáv-
arútvegsmál, Guðgeir Jónsson um
iðnaðarmái, Guðmundur Vigfús-
son um. kaupgjalds- og verðlags-
mál, svo og íyrir allsherjar-
nefnd.
í umræðunum tóku þútt m,.a.
Sigurður Blöndal, Geir Gunnars-
son, Björn Jónsson, Asmundur
Sigurðsson, Gunnar Jóhannsson,
Karl Guðjónsscn, Eðvarð Sigurðs-
son. Einar Olgeirsson, Kristján
Jensson, Margi’ét Sigurðardóttir,
Bergþór Finnbogason, Alfreð
Gíslasory Jón Tímóteusson og
Hannibal Valdimarsson.
Hannibal Valdimarsson sleit
rúðstefnunni með heitri hvatn-
ingarræðu um að hefjast handa
af i'ullum krafti að vinna að
þeim mörgu og miklu verkefn-
um sem framundan eru.
Stjórn Alþýðubandalagsins er
þannig skipuð: Hannibal Valdi-
marsson, Einar Olgeirsson, Finn-
bogi Riitur Valdimarsson, Eðvarð
Sigurðsson, Alfreð Gíslason, Lúð-
vík Jósepsson, Kristján Gíslason,
Guðmundur Vigfússon og Sig-
ríður Hannesdóttir.
Ráðstefnan var hin ánægju-
legasta og gagnlegasta, unnið var
af kappi og einhug meðan hún
sat að störfum; allar samþykkt-
ir voru gerðar einróma og var
einhuga baráttuvilji ríkjandi á
ráðsteí'nunni.
Einar Qlgfíirssoa
Stefnuyfír-
lýsing Al-
þtýðubanda*
lagsins -
Sjá 3. siðu
zlþýðu
Þjóðnýting togara
flotans á dagskrá
Kcnnsla fellur niður í kvöld.
í umræðum á Alþingi í
gær kom þjóðnýting tog-
araflotans á dagskrá, og
töldu þingmenn Alþýöu-
bandalagsins að það væri
réttasta svar við þeirri ó-
svífni togaraeigenda aö
setja Alþingi úrslitakosti,
neita að semja í vei'kfallinu
og hóta að leggja fogaraút-
gerð niður, ef vökulögin
verða ekki afnumin í nú-
verandi mynd!
Neðri deild ræddi í gær stjórn-
arfrumvarpið um aflatrygginga-
sjóð, en aðalefni þess er sem
kunnugt er stórfelldir styrkir af
almannafé til togaraútgerðarinn-
ar og skattlagning bátaflotans
til þess að greiða togaratöpin.
Einar Olgeirsson kvað ástæðu
til að minna á kokhreysti ráð-
herranna þegar verið væri að
lýsa því yfir að styrkir og upp-
bætur til atvinnuveganna skyldu
með öllu afnumdir. Nú væri aft-
ur gripið til styrkja og þeirra all-
ríflegra, án þess þó að tryggt
væri að með því yrði togurun-
um haldið gangandi. Hvað sem
mætti segja um gömlu styrkja-
leiðina hafi hún þó nægt til
þess að togararnir voru að veið-
Framhald á 11. síðu.
400 þúsund krónur
fyrir 1. maí
# Á fundi þeim sem hald-
inn var í Sósíalistafélagi
Reykjavíkur s.I. fimmtudag
settu menn sér það mark að
saína sem lágmarki 40« þús-
undum króna fyrir fyrsta maí.
Mjög mikill og almcnnur á-
hugi kom fram á fundinum,
Og SÖFNUÐUST Á IIONUM
OG NÆSTU TVO DAGA A
EFTIR UM 50 ÞtJSUNDIR
KRÓNA.
# Þcssi upphæð — 400 þús-
undir króna fyrir 1. maí —
cr algerlega óhjákvæmileg til
þess að standast kostnað af
breytingum þcim sem verið er
að framkvæma á Skólavörðu-
stíg 19, til þess að hægt sé
aö flytja nýju vélarnar í hús-
ið og koma þcim íyrir. Þeim
mun greiðar sem það verk
gengur þeim mun fyrr fá les-
endur Þjóðviljans nýtt og
stærra og betra blað í hend-
ur.
# Undirtcktirnar á Sósíal-
istaflokksfundinum, baíði í
orði og verki, spá góðu um
árangurinn. En markinu verð-
ur þó því aðeins náð að
stuöningsmcnn blaðsins taki
þátt í þessu starfi af Iífi og
sál. líti á það sem megin-
verkefni sitt eins og jafnan
fyrr þegar Þjóðviljinn hefur
þurft á fjármunum að halda.
# Eins og kunnugt er hef-
ur Verið tilkynnt aukning á
hlutafé Prentsmiðju Þjóð-
viljans til að standa straum
af kostnaðinum. Hvert hluta-
bréf kostar 500 kr. og marg-
ir hafa þcgar margfaldað
fyrri hlutabréfaeign sína.
Þjóðviljinn biður alla stuðn-
ingsmenn sína að íhuga gaum-
gæfilega næstu daga á hvern
hátt þeir gcti lagt fram
stuðning sinn.
# Skrifstofa söfnunarinn-
ar er á Þórsgötu 1, sími 14457.
Framkvæmdastjóri söfnun-
arinnar er Jón Grímsson.
NÝ PRENTSMIÐJA-NÝR ÞJÓÐVILJI
t*£CtSE»SSiiCS9BSS«S«>KCSSBfiKSSeiiBSK£aSBCBSUfiBESaCKESS?