Þjóðviljinn - 19.04.1962, Blaðsíða 12
Á fundi Alþýðubandalagsins •!
Hafnarfirði í gærkvöld var sam-
þykktur svo skipaður framboðs-
listi við bæjarstjórnarkosningarn-
ar 27. maí:
1. Kristján Andrésson, bæjarfull-
■trúi.
2. Geir Gunnarsson alþm.
3. Björn Þorsteinsson sagnfr.
4. Jón Ragnar Jónsson málari
5. Alexander Guðjónsson vélstj.
6. Sigríður Sæland ljósmóðir
7. Kristján Jónsson stýrimaður
8. Jónas Árnason rithöfundur
9. Bjarni Rögnvaldsson verkam.
10. Kjartan Ólafsson kennari
11. Gísli Guðjónsson húsasmm.
12. Anton Jónsson loftskeytam.
13. Stefán Stefánsson trésmiður
14. Pétur Kristbergsson fiskimm.
Listi vinstri
manna í Hnífsdal
Vinstri menn í Hnífsdal hafa
lagt fram sameiginlegan lista
við hreppsnefndarkosningar og
er hann einkum studdur af
verkamönnum og bændum. Sæti
aðalmanna á listanum skipa
þessir menn:
1. Guðmundor H. Ingólfsson.
verkamaður, Hnífsdal.
2. Hjörtur Sturluson, bóndi,
Hagrahvammi.
3. Helgi Björnsson. framkv,-
stjóri. Hnífsdal.
4. Guðm. Matthíasson. bóndi,
I’remrihúsum, Arnardal.
5. Lárus Sigurðsson, skipstjóri,
Hnífsdal.
6. Hinrik Ásgeirsson, sjómaður,
Hnífsdal.
7. Marvin Kjarval, bóndi,
Heimabæ, Arnardal.
Alþingi var
slitið í gœr
15. Brynjar Guðmundss. verkam.
16. S:gursveinn Jóhannéss. málari
17. Ester Kláusdóttir húsfrú
18. Guðmundur Böðvarsson skáld
Lagður hefur verið fram listi
Alþýðubandalagsins við bæjar-
stjórnarkosningarnar. á Húsavík
og eru 9 efstu sæti hans þannig
skipuð:
1. Jóhann Hermannsson, skrifstm.
2. Ásgeir Kristjánss., útgm.
3. Hallmar Freyr Bjarnas. iðnvm.
4. Daníel Daníelsson, læknir
5. Páll Kristjánsson, aðalbókari
6. Albert Jóhannesson verkstj.
7. Emilía Sigurjónsdóttir skrif-
stofustúlka
8. Helgi Kristjánsson, sjómaður
9. Sigríður Þórarinsdóttir, ljó-sm.
Húsvíkingar kjósa nú í fyrsta
skipti 9 manna bæjarstjórn en
hún hefur verið skipuð 7 mönn-
um til þessa. Tillaga um þetta
efni flutt af Jóhanni Hermanns-
syni bæjarfulltrúa Alþýðubanda-
lagsins var samþykkt á fundi
bæjarstjórnar 11. þ.m. og hefur
hlotið staðfesting félagsmála-
ráðuneytisins.
Verkfræðingafélag íslands er
50 ára 'í dag. Þessa merka af-
mælis mun félagið minnast á
myndarlegan hátt.
Næsta fimmtudag efnir félagið
til ráðstefnu verkfræðinga og
stendur hún í tvo daga og fjall-
ar u.m crkumál. Þetta verður 2.
ráðstefna íslenzkra verkfræðinga,
sú fyrri var haldin haustið 1960
og fjallaði um tæknilega mennt-
un og tæknilega framvindu á Is-
landi. Þriðja daginn 28. apríi
verður svo afmælishóf í Lídó. Þá
hafa þeir feðgarnir dr. Guðni
Jónsson prófessor og Jón Guðna-
son magister u.nnið að samningu
bókar um verklegar framkvæmd-
ir á íslandi í hálfa öld. Bókin
gat ekki orðið til fyrir afmælið,
en fyrsti hluti hennar hefur ver-
ið gefinn út sérprentaður og von
er á henni allri seinna á þessu
ári.
Stofnfélagar árið 1912 voru 13
að tölu, en nú eru í félaginu 317
verkfræðingar, er skiptast þann-
í.g eftir sérgreinum: 115 býgg-
ingaverkfræðingar. 52 efnáfræð-
ingar cg efnaverkfræðingar, 58
rafmagnsverkfræðingar. 57. skipa
og -vélayerkfræðingar og. ýnisir
verkfræðingar, arkitektar og iðn-
fræöingar eru 35 að tölu. .Félagið
mun því vera eitt fiölmennasta
félag háskólamenntaðrá manna.
Innan félagsins eru ýmsar sér-
de’ldir og stcfnanir og er sér-
stök ástæða til að vekja at-
hygli á gerðardóminumi en til
hans er hægt að skjóta ágrein-
ingi um tæknileg efni. Forseti
dómsins er Theódór B. Líndal
orófessor en með honum eru
hverju sinni skipaðir 2 menn í
dóminn af hálfu félagsins og
hafa þeir sérþekkingu á því
sviði sem um er fjaJIað.
Tveir af stofnendum félags-
ins eru enn á lífi. Paul Smith,
oorskur maður sem nú býr í
sínu föðurlandi og M. E. Jessen,
■sem var skólastjóri vélst.ióra-
rkólans til skamms tíma. Hann
býr nú hér í bænum.
Fyrirhuguð ráðstefna verður
haldin í hátíðasal háskólans og
er dagskráin bæði fjölbreytt og
girnileg til fróðleiks.
Nú eru í stjórn félagsins bess-
ir menn: Sigurður Thoroddsen
formaðu.r. H.iálmar R. Bárðarson
varaformaður. Gunnar B. Guð-
mundsson meðstiórnandi, Karl
Ómar Jónsson ritari og Háukur
Pálmascn gjaldkeri.
KAUPA
OAOSBRÚ^ OG
TAKIST
Á Dagsbrúnarfundinum s.l.
sunnudag var skýrt frá því
að stjórnir Dagsbrúnar og
Sjómannafélags Ileykjavíkur
hefðu að undanförnu haft til
athugunar að félögin keyptu
saman húseign fyrir starfsemi
þeirra. Fyrir fundinum Iá til-
laga frá félagsstjórn um að
Dagsbrún festi kaup á hús-
eigninni Lindargötu 9 (hús
Sanitas) í félagi við Sjó-
mannafélagið, að því tilskildu
að samningar takist við nú-
verandi eigendur og lánsfé
verði fyrir hendi. Var tillaga
þessi samþykkt á fundinum,
svo og tillaga félagsstjórnar
um að Dagsbrún sæki til AI-
þýðusambandsins um kaup á
3 sumarbústöðum í landi
jarðarinnar Reykja í Ölfusi,
sem sambandið fær undir or-
lofsheimili verkalýðsfélag-
anna. — Myndin er af Sani-
tashúsinu svonefnda, Lindar-
götu 9. (Ljósm. Þjóðv. A.K.).
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
Alþingj var slitið í gær. Hef-
Ur þingið staðið alls 148 daga,
frá 10. okt. til 19. des. og frá
1. fébrúar til 18. apríl.
Samþykkt voru 88 lög. þar af
774 stjórnarfrumvörp. Fellt var
eitt þingmannafrumvarp, 5 af-
gre.idd með rökstuddri dagskrá
úg 5 vísað til ríkisstjórnarinn-
ar. Ekkj útrædd voru 42 frum-
vörp. Bornar voru fram 73
þingsályktunartillögur í samein-
uðu þingi. þar af voru 23 sam-
þykktar sem ályktanir Alþingis,
felldar, i vísað til ríkisstjórnar-
innar en 46 ekki útræddar. Fram
voru bo.rnar 11 fyrirspurnir.
“Mál til meðfeðar í þinginu voru
alls 227.
Veikasta framboð í manna minnum
Borgfarstjórnarlisti Sjálfstæðisflokksins vakti
aimenna undrun í gær. Dómur manna er að þetta
sé sá veikasti borgarstjórnarlisti sem flokkurinn
hefur nokkru sinni sýnt Reykvíkingum.
Meðal sjálfstæðismanna ríkir
ólga og reiðj, eins og bezt sást
við atkvæðagreiðsluna um list-
ann á fulltrúaráðsfundinum í
fyrrakvöld, þar sem meirihluti
fundarmanna greiddi ekki at-
kvæði.
II
Ég kem bróðum mamma,
hann er að drep’ann"
Kl. ii í gærkvöld safnaðist<$>15. lotu, en þeir börðust aftur
hópur barna og unglinga að
glugga Húsgagnaverzlunar Aust-
urbæjar. Stillt hafði verið út
s.iónvarpstæki og var sýnd á því
fyrri heimsmeistarakeppnin i
veltervjgt í hnefaleikum milli
l>eirra Benny Parets og Emil
Griffith. Paret vann þessa
*4ceppni á teknísku rothöggi í
nú á dögunum og hafnaði Paret
þá í gröfinni.
Börnin skemmtu sér vel, og
móðir sem kom að sækja son
sinn fékk þetta svar; „Ég kem
bráðum, hann er alveg að drepa
hann.“
Áhorfendur héldu nefniíega
að hér væri um morðkeppnina
að ræða.
Hversu veikur listinn er má
marka af því að sex. af þeim tíu
mönnum sem kunnugastir voru
borgarmálefnum hverfa af list-
anum, en í stað þeirra koma að
meirihluta menn sem aldrei hafa
ikomið nærri bæjarmálum. Þegar
borgarstjóra sleppir er enginn
maður í éfstu sætum listáns sem
fær er um að fjalla af þekk-
ingu um borgarmálefni almennt
í borgarstjórn og borgarráði.
Greinilegt er að það hefur ráð-
ið vali manna í efstu sæti list-
ans að fá í borgarstjórn og borg-
armálaráð Sjálfstæðisflokksins
þæg atkvæði, menn sem ekki eru
líklegir til að hafa sjálfstæðar
skoðanir á málum.
Höfuðeinkenni listans erskefja-
-laus upþivaðsla þeirrar k-líku sem
nú hefur náð undirtökum í
fiolcknum og aukin áhrif heild-
sala og kaupmanna’ Geir Hall-
grímsson borgarstjóri í efsta
sæti listans er dæmigerður full-
trúi heildsalanna. í 10. sæti er
Sigurður Magnússon, einn staersti
kaupmaður bæjarins. í 15. sæti
er kjötkaupmaðuririn Þorbjörn i
Borg, í 16. sæti Sveinn Helgason
heiildsali, í 20. sæti mesti hús-
gagnakaupmaður bæjarins Guð-
mundur Guðmundsson og for-
fnaður Verzlunarráðs Gunnar
Guðjónsson í 22. sæti.
Hinsvegar eru sjómenn og iðn-
aðármétin algerar hornrekur.
Skipstjórinn á Gul-lfossi Kristján
Aðalsteinsson á þess engan kost
vegna starfs síns að taka þátt í
borgarstjórnarfundum. Báðum
fulltrúum iðnaðar-manna, Guð-
mundi H. Guðmundssyni og
Björgvin Frederiksen, er sparkað,
en í staðinn kemur Þór Sandholt
skólastjóri, sem iðnaðármenn í
Sjálfstædisflok-knum líta alls ekki
á sem sinn fulltrúa og sem ber
þyngsta ábyrgð á afglöpunum
sem gerð voru í skipulagsmá-lum
meðan hann var skipulagsstjóri.
Röðun á framboðslistann sýnir
að prófkosningin hefur einungis
verið hugsuð sem skr-ípaleikur af
klíku þeirra Birgis Kjarans og
Eyjólfs K. Jónssonar. Raunveru-
legum úrslitum fá engir að
kynnast. í heild utan þrengstu
klíkunnar, en óbreyttir sjálfstæð-
ismenn hafa fyrir sat-t að ■ þau
hafi verið að engu höfð þegar
höfuðpaurunum sýndist.
Ljóst er að Bjarni Benedikts-
son hefur lagt á ráðin um að
þurrka algerlega út áhrif Gunn-
ars Thoroddsen, enginn af þeim
sem hann hafa stutt er í vonar-
sætum listans.
Mjög ber á því að mönnum
þykir ekki þessi fyrsta ganga
Geirs Hallgrímssonar sem for-
ustumanns fyrir borgarstjórnar-
lista vera gæfuleg. Hefur hann
sýnt samstarfsmönnum sínum
sérstæða tegund drengskapar,
því enginn efast um að raðað
hafi verið á listann i fullu sam-
ráði við hann.
Þetta borgarstjórnarframboð
getur haft ófyrirsjáanlegar afleið-
ingar fyrir Sjálfstæðisflokkinn og
kosningaúrslitin.