Þjóðviljinn - 27.04.1962, Page 5
rður dauðadómnum yfir
iekkij
PARÍS — Frönisk íhaldsblöð hafa hafið ákafan áróður^
fvrir því að Jouhaud hershöföingi, sem tvívegis hefur ver-
ið dæmdur til dauða fyrir tilræði við öryggi ríkisins og
vopnaða uppreisn, verði náðaöur og þykir ýmislegt
benda til þ'ess að líflátsdómnum veröi ekki fullnægt.
I grein í L’Aurore er komizt
þannig að orði: „í landi eins í
Frakklandi er maður eins og
Jouhaud ekki tekinn af lífi. Það
er óhugsandi. Það er útiilokað".
Æðstu menn kaþólsku kirkj-
unnar og sendimenn Páfastóls
hafa þegar beðið honum griða og
sama máli gegnir um fyrri fé-
laga hans í æðstu stjórn hers-
ins.
EKKI SÍÐAN NEY
Enginn heldur því fram að
Jouhaud hafi ekiki unnið til saka
eða að dauðadómurinn yfir hon-
ium sé ekki lögum samkvæmt,
heldur er bent á að hátf önnur
öld sé nú liðin síðan háttsettur
foringi í hernum hafi verið tek-
inn af lífi, en það var Ney
marskálkur sem varð að gjalda
með lífi sínu að hafa gengið í
,,Viitdlðkveik|ari
djöfulsins"
GASSKI TOULL, Sahara —
Franskir verkfræðingar vonast
til. aö geta með aðstoð banda-
rískra sérfræðinga slökkt þann
mikia eld sem ~nú hefur logað
-samfleytt síðan 6. nóvember í
borholu í Sahai’a.
Gizkað er á að frá því eld-
urinn kviknaði þar til nú hafi
brunnið um 10 milljón tenings-
metrar af jarðgasi. Hinn mikli
logi stendur 120 metra upp í
loftið og að nóttu sést hann í
allt að 160 km fjarlægð.
„Vindlakveikjari djöfulsins".
en það nafn hafa olíuleitar-
mennirnir frönsku gefið eldin-
um, hefu.I’ hingað tii hindrað
nvtingu hinna auðugu jarðgas-
náma sem fu.ndizt hafa í miðri
Saharaeyðimörk, u.þ.b. 1.100
km frá Algeirsborg.
Margar tilraunir hafa verið
gerðar til að siökkva eldinn.
en þær hafa allar mistekizt.
Nú hefur verið safnað miklum.
birgðum af sprengiefni og er
vonazt til að hægt verði að
loka borhnlunni og þannig
■slökkva eldinn.
lið með Napóleon þegar hann
kom frá Elbu. Það var árið
1815.
Síðan hafa ótalmargir franskir
herforingjar unnið til sömu refs-
ingar fyrir landráð og drottin-
svik, en enginn þeirra verið líf-
látinn. Þrír hershöfðingjar, að-
míráll og marskálkur, voru
dæmdir til dauða fyrir sam-
vinnu við Þjóðverja í síðasta
stríði og var Petain marskálk-
ur einn þeirra en engum dóm-
anna var fullnægt.
ANNAR MÆLIKVARÐI
Ritstjóri L’Express, Servan-
Sehreiber, ræðir þetta mál í síð-
asta tclublaði. Hann bendir á að
herinn, og þá fyrst og fremst
hinir háttsettu herforingjar, ha,fi
Ssamt 'kirkjunni verið styrkosta
stoð hins borgaralega samfélags,
sem ríkisvaldið hafi • þess vegna
ekki kært sig um að hrófia við.
En hann bendir einnig á að aðr-
ir franskir menn hafi verið tekn-
ir af Mfi fyrir afskiptj sín af
stríðinu í Alsír án þess að máls-
snjallir blaðamenn eða yfirboð-
arar kirkjunnar hafi talið ástaeðu
til að biðja þeim lífs, Þanhig
hafi árið 1957 verið hálshöggv-
inn Fernand Yveton, félagi í
kommúnistaflokknum í Alsír.
Sök hans var sú að hann hafi'
komið fyrir sprengju í mannlausri
gasstöð í Alsír, sem sprakk þó
bkki og olii því engu tjóni.
BARÁTTAN HELDUR ÁFRAM
Hann ræðir aðra röksemd' sem
borin hefur verið fyrir því að
náða Jouhaud og þá að sjálf-
sögðu aðra handsamaða leiðtoga
OAS„ sem sé þá að baráttunni
við morðsveitirnar sé brátt lok-
ið. Hann ber á móti henni, seg-
ir að „meginorustan sé framund-
an“ og náðun verði að
gins ijúlkuð sem enn eitt undan-
hald stjórnar de Gaulle.
En hann bendir um leið á að
hafi Jouhaud unnið til lífláts,
þá sé það vegna þess að hann
hafi framið bað níðingsverk gegn
þjóð sinni að beita hervaldi til að
steypa stofnupum lýðveldisins.
En svo vilii til að sá maður
Framhald á 11. síðu
BfiC méðgaSi
sænska
diplémata
LONDON — Brezka útvarpið 1
(BBC) hefur beðið sænska (
sendiráðið afsökunar vegna J
þess að nöfn margra sænskra |
diplómata voru notúð í sjón- ]
varpskvikmynd þar scm sagt
var frá skemmdarverkum t
skandinavískra manna á \
brezkuin flugvélum. ^
Myndin scm sýnd var 2.
apríl átti að gerast í ónafn-)
greindu Norðurlandi og fjail-
aði m.a. um skemmdarverk i
sem ollu því að fimm brezkar í
orustuþotur fórust. Spell- j
virkjarnir voru f jórir og hétu i
Hagglöf, Luthman, Pripp og
Hammarling, en þetta eru allt'
heldur sjaldgæf nöfn.
„Hins vegar heitir Sendi-|
herra Svía í Lohdon cinmitt i
Gunnar Hagglöf, vararæðis-,
maðurinn heitir Gösta Luth-
man og núverandi sendihcrra!
Svía í Perú, Malthe Pripp, (
gegndi störfum í London þeg- j
ar myndin var samin. Fyrr- (
vcrandi blaðafulltrúi við,
sænska sendiráðið heitir Vil-
got Hammarling.
Heimssýningunni
í Moskvu frestcð
)
MOSKVU — T ASS-f réttastof an
skýrði frá því að ákveðið hafi
verið að fresta hinni miklu
heimssýningu sem ætlunin hafði
verið að halda í Moskvu áricf
1967. Þess er ekki getið hvenær
Skyldi þessi vera nógu namm-namm til að duga á Iandhelgisbrjóta? verði haldin,_
Haag - úrskurður harðlega
gagnrýndur ó Danaþin
Færeyskur prestur spyr hvort meiningin sé að nota eigi myndir af hálf-
strípuðum stelpum til að handsama brezka iandhelgishrjóia við Færeyjar
K AUPMANN AHÖFN —
Ekin af þingmönnum Fær-
eyja á danska þinginu, séra
Johan Nielsen, hefur harð-
lega gagnrýnt úrskurð sem
alþjóðadómstóllinn í Haag
kvað nýlega upp út af land-
helgisbrotj brezka togarans um
Red Crusader sem í fyrra
var staðinn að ólöglegum
veiðum við Færeyjar.
Málsatvik voru þau að danska
herskipið Niels Ebbesen varð vart
við togarann að veiðum í land-
helgi og. setti raenn um borð í
hann. Skipstjórinn hafði fyrir-
mæli þeirra að engu, heldur hélt
til hafs. Niels Ebbesen veitti hon-
eftirför og skaut nokkrum
skotum að honum, en brezk her-
skip komu honum til hjálpar og
fylgdu honum í brezka höfn.
Til starfa í sveitum á komandi sumri, ráðum við karlmenn
og konur til almennra bústarfa, og til ráðskonu-hlutverka. —
Fjölskyldufólk getur komið til greina á vissum stöðum. —
Unglinga yngri en 12 ára getum við ekki vistað. — Viðtals-
tími kl. 9 til 12 og 1 til 5, nema laugardaga kl. 9 til 12.
Ráðningarstofa landbúnaðarins
Búnaðarfélagshúsinu.
Stjórnir Danmerkur og Bret-
lands urðu eftir no-kkurt þóf
ásáttar um að skjóta málinu til
alþjóðadómstóísins og vítti hann
Dani fyrir að hafa s-kotið föst-,
,um skotum að togaranum.
Séra Johan Nielsen spurði í
ræðu á þingi, hvernig þá ætti
að handsama landhelgisbrjóta.
Eigum við kannski að festa
myndir af hálfstípuðum stelpum
upp á borðstokkinn og vona að
landhe’gisbrjótarnir komi þá af
sjálfum sér eða eigum við
kannski að veiða þá í snörur?
spurði hann.
Dómstóllinn hafði tekið rnark
á þeim framburði skipstjórans á
Red Crusader að hann hefði alls
ekki \ærið að veiðum, iþótt hann
hefði verið í landhelgi. — Þétta
er sannast sagna hlægilegt, sagði
hi.nn færeyski þingmaður. Þegar
við hinir höfum línuna, netin eða
önnur veiðarfæri úti, iþá er þa§>
af því við erum' að fiska en
ek-ki að spila biljarð.
Tapað fundið
Tobaksponta úr silfri fannst
á götu í gær. Réttur eigandi
vitji hennar á auglýsingaskrif-
stofu Þjóðviljans gegn greiðslu
þessarar auglýsingar.
Föstudagur 27, apríl 1962 — ÞJÓÐVILJINN —* j[|j|