Þjóðviljinn - 27.04.1962, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 27.04.1962, Blaðsíða 12
Frá ráðsteínu íslenzkra verkíræðinga: Orkan ekki þýðingarmest I erindi um orkunotkun og þjóðhag eftir Gunnar Böðvars- son, sem flutt var á ráðstefnu verkfræðinga í gærdag, komu fram mjög athyglisverðar upp- lýsingar um iþátt orku í iðn- aði, en því hefur löngum ver- ið haldið fram, að hin ódýra orka hér á landi væri grund- völlur undir stóriðju. Um þetta segir Gunnar m.a. í er- indi sínu: „Kostnaður hreyfiorku í há- þróuðum iðnaði er tiltölulega mjög lítill liður í heildar- kostnaði. Það má því full- yrða, að verðlag og framboð innlendrar hreyfiorku hafi lítil eða hverfandi áhrif á iðnaðar- staðal. Þannig reka Danir og Hollendingar háþróaðan iðnað, enda þótt lönd þeirra séu snauð af orkulindum. Hins vegar hafa Norðmenn gnægð ódýrrar innlendrar hreyfiorku, en ekki verður fultyrt, að iðn- aðarstaðall þeirra sé hærri en Dana og Hollendinga. Segja má, að háþróaður iðnaður byggist fyrst og fremst á við- skiptaaðstæðum og tækni- kunnáttu iðnaðarmanna og verkfræðinga. Hér á landi hefur því oft verið haldið á lofti, að ódýr raforka gæti aukið ýmsan minni háttar iðnað og bætt at- vinnuskilyrði. En staðreynd er, að önnur atriði eru þýðingar- meiri en orkan.“ Síðan ræðir Gunnar um stofnfjárþörf iðngreina og fyr- irtækja og nefnir athyglisvert dæmi. Annars vegar, að al- úmíníumverksmiðja, sem byggja myndi á virkjun Þjórs- ár við BúrfelJ og rætt er um að notiaði 80 MW (MW=1000 kwh) og framleiddi 40000 lest- ir á ári, myndi kosta 2500 millj. króna virkjun og vinnsluver en ársvinnslan nema um 850 millj. króna. Heildarkaupverð 5 DC-6B flugvéla Loftleiða er hins veg- ar aðeins um 150 millj. kr. en áætlaðar árstekjur 1962 400—500 millj. króna. „Annars vegar er háþróað samgöngu- fyrirtæki, sem byggir á tækni- menntun og framtaki, en stofnfé er óverulegt. Hins vegar er mjög stofnfjárþungt fyrirtæki, sem íslendingar munu ekki ráða við að koma upp af eigin rammleik,“ seg- ir Gunnar. Og enn heldur Gunnar á- fram: „Eins og málum er nú hátt- að er augljóst, að Islendingar geta ekki tekið að sér upp- byggingu stóriðnaðar. Og þótt nokkuð fjármagn væri fyrir hendi verður að spyrja, hvort þes-si stofnfjárþungu fyrirtæki væru eðlilegur liður í íslenzku athafnalífi. Uppbygging stór- iðnaðar á Islandi verður að verulegu leyti að vera í hönd- um útlendinga, a.im.k. um sinn. Við þessar aðstæður getur hann ekki orðið nein megin- stoð athafnalífs landsmanna. Slíkan iðnað, eða öllu heldur þær orkulindir, sem hann byggir á, yrði frekar að telja til landshlunninda en til þýð- ingarmeiri þátta athafnaiífs- ins. Að minnsta kosti fyrst um sinn verða íslendingar að byggja búskap sinn á annarri stoð. Við uppbyggingu athafnalífs framtíðarinnar virðast Islend- inguim frekar nauðsyn að fylgja almennri tækniþróun og byggja fyrst og fremst á eigin tækniþekkingu og getu. Leita ber að stofnfjárléttum atvinnu- og þjónustugreinum og stuðla sem bezt að fram- vindu þeirra með rannsóknum og þjálfun." pJÓÐVIUINII Föstudagur 27. apríl 1962 — 27. árgangur — 93. tölublað Buenos Aires 26/4 — Jose Guido Argentínuforseti tók sér í nótt alræðisvald fyrir tilstuðlan hersins. Guido tók við forsetaembættinu fyrir fáeinum vikum eftir að herinn hafði hrifsað völdin í landinu. Guido gaf út yfirlýsingu um einræðisvald sitt, og segir þar m. b. að kosningamar til þjóðþings- ins, sem fram fóru 18. marz, séu gerðar ógildar með lagaboði. I þeim kosningum unnu perónist- ar mikinn sigur. Einnig er lýst yfir þv£ að forsetakosningamar verði ekki látnar fara fram fyrr en 27 október á næsta ári. Per- ónistum er bannað að taka við þeim ríkisstjóraembættum, sem þeir voru kosnir til. Þjóðþing- ið verður leyst upp og herinn ræður lögum og lofum í landinu. Mikil ólga er nú í Argentínu, einkum í Buenos Aires, en ekki ISAFIRÐI — Nýlega opnaði kaupfélgið hér á Isafirði nýinn- réttaða vefnaðarvöru- og skó- verzlun. Verzlunin er í sömu búsakynnum og áður, en þeim hefur verið gjörbreytt og færð í nýtízku snið. hefur komið til neinna átaka ennþá. Lögreglan hefur ráðist inn í skrifstofur perónista og lokað þeim víðast hvar. f þirtgkosningunum fengu per- ónistar um 30 prósent atkvæða og 47 þingmenn. Auk þess unnu þeir meirihluta og fengu ríkis- stjóra kosna í nokkrum fylkjum, m.a. í Buenos Aires-fylkí. Fjöldi þingmanna hefur opin- beí-lega mótmælt einræði hers- ins, og valdbeitingu Guidos, sem þeir segja að herinn noti sem lepp að vild sinni. Andúðin gegn 'einræði Guidos og hersins er sögð mjög almenn og fari vax- andi. Framboð Alþýðubandalags- ins í Keflavík, Akranesi, Sel- ffarnarnesi og Seyðisfirði Hernaðareinrœði er komið ó í Argentínu Stuðningskonur Alþýðu- bandalagsins: Munið fund Kvenfélags sósíalista í kvöld ★ Fundtír Kvenfélags sósíalista um borgarmálastefnuskrá Al- þýðubandalagsins í Reykjavík hefst kl. 8,30 í kvöld í Tjarnargötu 20. Frummælendur verða: Guðmundur Vigfússon borgarráðs- maður og Alfreð Gíslason Iæknir, ir Félagskonur eru hvattar til að sækja fundinn og taka með sér gesti, en aðgangur er heimill öllum stuðttingskonum Alþýðu- bandalagsins. Framboðslisti Alþýðubanda- lagsins við bæjarstjórnarkosn- ingarnar í Kefiavík 27. maí er þannig skipaður: 1. Kr.'stinn Revr Pétursson, bóksali 2. Gisli Þorsteinsson, verkam. 3. Karl Sigurbergsson, skipstj. 4. Magnús Bergmann, skipstj. 5. Ágúst Jóhannesson, verkam. 6. Hafsteinn Ólafsson, húsa- smiður 7. Guðmundur Guðnason, verka. maður 8. Ólafur Sigurðsson, sjómaður 9. Haukur S. Bergmann, skip- stjór; 10. Baldur Sigurbergsson, skipa- sm’ður 11. Alexander Jóhannesson, sjó- maður 12. Einar Franz Ingólfsson, verkamaður 13. Gunnlaugur Jóhannesson, sjómaður 14. Sigurður M. Brynjólfsson. verkamaður. Listi Alþýðubandalagsins við bæjarstjórnarkosningarnar á Akranesi er þannig skipaður: 1. Sigurður Guðmundsson, hús- gagnasmiður 2. Ársæll Valdimarsson, bif- reiðastjóri 3. Halldór Bachmann húsa- smíðameistari 4. Brynjólfur Vilhjálmsson vél- virki 5. Árn; Daníelsson, verkamaður 6. Jón Z. Sigurðsson verkam. 7. Unnur Leifsdóttir, húsfreyja 8. Gunnar Bjarnason, verkam. 9. Knútur Gunnarsson, hús- gagnabólstrari 10. Hafsteínn Sigurbjörnsso.n, .iðnnemi 11. Guðmundur Pálmason, sjóm. 12. Þórður Valdimarsson, bif- reiðastjóri 13. Hafliði Stefánsson, verkam. 14. Árni Ingimundarson; húsa- smiður 15. Gunnlaugur Bogason, sjó- maður 16. Einar Kristjánsson, sióm. 17. Páll Jóhannsson iðnnemi 18. Ásgrímur Sigurðsson, verka- maður. Framboðslisti Alþýðubanda- lagsins til hreppsnefndarkosn- inga á Seltjarnarnesi er skipað- ur þegsu fólki: 1. Konráð Gíslason, kompása- smiður 2. Auður Sigurðardóttir, húsfrú 3. Styrkár Sveinbjarnarson, prentar; 4. Tómas Einarsson, efnarann- sóknamaður 5. Hjálmar Helgason, sjómaður 6. Stefán Jónsson, verkamaður 7. Sigurður Benediktsson, múr- ari 8. Sveinn Vigfússon, verka- maður 9. Magnús Norðdahl, múrari 10. Valur Sólmundsson, hús- gagnasmiður. Til Sýslunefndar; Styrkár Sveinbjarnarson og Kon- ráð Gíslason. Lagður hefur verið*-fram listi ' Alþýðubandalagsins við bæjar- : stjórnarkosningarnar á Seyðis- firði og er hann skipaður eftir- töldum 9 mönnum: 1. Steinn Stefánsson, skólastjóri ' 2. Gísli Sigurðsson, skrifstofu- maður 3. Sigmar Friðriksson, bakara- meistari 4. Sveinbjörn Hjálmarsson, verkamaður 5. Ragnar Nikulásson, múrara- meistari 6. Hjálmar Níelsson, vélvirki 7. Emil Bjarnason, sjómaður 8. Margrét Þorsteinsdóttir, verkakona 9. Einar H. Guðjónsson, ver'ka- maður. AFMÆLISHAPPDRÆTTI ÞJÓÐVILJANS • ÞÁ KEMUR árangurinn eftir fyrsta daginn, en hann varð 2% að markinu. • ÍMSIR HAFA brugðið fljótt og vel við. Sem dæmi má nefna Þórð Jónsson, Sam- túni 30. Um leið og hann greiddi 4 heimsenda miða bað hann um einn I viðbót. „Það er ekki hægt að hafa þá 39“, sagði kona hans, Jóhanna Benediktsdóttir, til skýringar, því að þetta var fertugasti miðinn sem þau kaupa. Hafi þau sómahjón þökk fyrir sinn rausnarskap og erum við sér- staklega ánægðir að geta sagt frá því um leið, að um dag- inn fengu þau aukavinning. • NC ERU aðeins 10 dag- ar eftir tii 6. maí. Þá verður dregið um 2 volkswagenbíla að verðmæti 1/4 milljón kr. • MUNIÐ 300 aukavinning- ana sem enn eru eftir. Komið í skrifstofuna og gerið skil, en hún er opin frá kl. 10—7. Afmælishappdrætti Þjóðviljans, Þórsgötu 1, sími 2 23 96.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.