Þjóðviljinn - 03.06.1962, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 03.06.1962, Blaðsíða 11
Frá kaiidídatamótinu Ritstjóri Sveinn Kristinsson Salo Flohr skrifar hugleið- ingar um kandidatamótið í ..Moscow News“ 12. maí, þeg- ar mótið er nýlega hafið. Flohr seg.'r, að það sé aðeins einn a.f þátttakendunum, sem telji sig öruggan með að vinna mótið í byrjun og það sé Ro- bert Fischer. Hann hafi lýst því yfir, að hann mun; vinna mótið og bað sem Flohr telur enn meira, einnig einvígið við Botv'nnik. Flohr -játdr að Fischer sé skæður keppinautur hinna sovézku stórmeistafa • og séu Sovétmenn ánægðir yfir því, að þessi ungi sn'llingur skuli hafa komið fram á sjón- arsviðið, svo að þeir fái sem harðasta samkeppni erlendis frá. Hinsvegar telur Flohr ó- líkiegt, að Fischer hafi þegar náð þeim styrkleika, sem nægi til að vinna slíkt mót sem þétta. Flohr segist alltaf hafa haft mikla trú á Tal, en þó hái það hcnum nokkuð, að honum gangi tiltölulega verr gegn Sov- étmeisturunum, en hinum út- iendu þátttakendum. Tal sé ólmur að ná einvíg; við Bot- vinnik, en í Curacao sé að- staða hans verri en á kandi- datamótinu 1959, því flefra sé af Sovétmönnum þar. ' Flohr telur að Benkö muni verða neðstur eins og 1959. V'rðast mér á bessu stigi litlar h'kur til að sá spádómur ræt- ist. Grein Fiohrs er skemmtileg, en e.'ns og fleir; rennir hann auðvitað blint í sjóinn með úrslitin á mótnu. Þó er senni- legt, að sú spá hans rætist, að einhver h.'nna fimm Sovét- meistara muni vinna mótið. Eftirfarandi skák frá Cur- acao sýnir, að enn hefur Tal ekki týnt jiiður manngangin- um áð fullu þótt honum hafi vegnað miður vel í fyrra hluta mótsinsj Hvítt: Filip. Svart; Tal. Kóngs-indverskt 1. Rf3, Rf6; 2. g3, g6; 3. Bg2, Bg7; 4. 0—0, 0—0; 5. d4, c5; 6. c3 — (6. d5 er sennilega sterkari leikur, en leiðir hins- vegar að jafnaði O hvassari ■átaka. Og Fil.'p, sem að sjálf- sögðu ber mikla virðingu fyrir Tal, velur því rólegri le'ð). 6. -----b6; — (Með þessum leik má segja, að Taj þvingi andstæðing sinn til athafna- semi, því ella næði hann í það minnsta tafljöfnun með Bb7). 7. Re5, d5; 8. a4, — (Þessi framrás a-peðsins kostar hvit- an talsverðan tíma, og þar sem hann hefur enn ekki lokið lið- skipan sinni, er hún vafasöm). 8. -----Bb7; 9. a5, Rf-d7; 10. Rxd7, Rxd7; 11. c4, — (Vel meint, en ennþá virðist þó lið- Re^riklæði handa yngri og eldri, sem ekki er hægt að afgreiða til verzlana, fást á hag- stæðu verði í • AfíALSTRÆTI 16. sk'pan hvíts ófullnægjandi til slikra aðgerða). 11.------Dc8; 12. cxd5, exd4; (Flestir menn svarts vinna nú vel saman), 13. Bg5, e6; — (Nú hugsaði hvítur sig um í 35 mínútur. Það er ekki auðvelt fyrir hann að finna út góða áætlun). 14. dxe6, fxe6; 15. Bxb7, — (15. Db3 yrði svarað með 15. ------Rc5). 15. — — Dxb7; 16. axb6. Dxb6. — (Línurnar hafa nú skýrzt talsvert. Svartur stend- ur nú betur að vigi, því lið hans er virkara, ef á heild- ina er litið). 17. Rd2, — (Eig; var nauð synlegt að fórna peðinu á b2. Betra var 17. Ha2). 17. — — Dxb2; 18. Be7 Hfc8; 19. Ha-bl, ,Db2-c2; 20 Hb7, — (Ef svártbr fe.r nú i dfottningakaup vérða hrókar hvíts of athafna-samir. Þvi tekur hann þann kostinn að reka hrókinn á brott frá 7-lín- unni). 26. — — Dc6; 21. Hb7-bl Re5; — (Ef 21.----------a5 þs léki hvítur væntanlega 22. Rf3 Svartur gæt; þá trauðla svar- að þeim leik með 22.--------e5 vegna 23. Db3t og síðan Rg5). 22. Db3, a5; 23. Ba3, a4; 24 Db4, — (Staða svarts virðist unnin, en Tal teflir næstu leikj miður vel). 24.------Dd5; 25. Hf-cl, Bf8; 26. Db2, Bh6; — (Tal óttast líklega um kóngsstöðu sína, ei hann léti biskupinn af hend'. Bezt virðist þó 26. — — Bxa3 27. Dxa3, Hc3. T.d. 28. Hxc3, dxc3; 29. Dxc3, a3 o.s.frv.). 27. f4, Rg4; 28. Hxc8t, Hxc8; 29. Hol, He8; — (Kóngsstaða svarts leyfir honum varla að fara í algjör hrókask'pti). 30. Hc5, Dd7; 31. h3, Reil; 32. Rf3, — (Nú virðist hvítur vera að fá mótvægi fyrir hið glat- aða peð, því erfitt sýnist fyr- ir svartan' að gera við öllum hótunum hans. En tímahrak er nú mikið á báía bóga). Svart: Tal. Hvítt: Filip. 32. — — e5; — Tal notfær- ir sér tímahrakið og spennuna í stöðunni til þessarar skyndi- árásar, sem á ekki að standazt ef hennj er rétt svarað. Eftir 33. Hxe5, er vandséð hvað svartur hyggst fyrir). 33. Rxe5? — (Þar flanar Filip beint í dauðann. Skyndi- atlaga Tals hefur þannig náð tilgangi sínum). 33. — — Dxh3, — (Nú er bágt t.'l biargar. Hvítur fengi ekki varizt mátinu með 33. Db7, því bá kæmi 33. — — Dxg3f; 34. Khl, De4; 35. Kh2 Bxf4f; 36. Kh3, Dg3 mát). 34. Da2t, — (Og þetta er jafn gagnslaust). 34-------Kh8; — (Og nú gafst Filip unp, þvi eftir 35. Rf7f, Kg7 er leikurjnn úti). Að nokkru stuðst við skýring- ar rússneska stórmeistarans Auerbachs. Persónuleikinn Bidstrap teiknaði íyrir Land ©g Foik Það þykir tíð.ndum sœta, ef verkamaður kveður sér hljóðs á opinberum vettvangi, a.m.k. um þjóðfélagsmál. Að áliti ráð- andi eignastéttar á verkamað- urinn aðeins að vera þægt og hlýðjð vinnuhjú og taka þegj- andi og hljóðalaust við öllu sem að honum er rétt, hversu slæmt sem það getur reynzt. Lengst af var verkamaðurinn svo réttlaus, að þótt á hann væri ráðizt að ósekju og hann barinn og brotinn við vinnu sína var honum fleygt á glæ og hartn lát.'nn „deyja drottni sínum“ í fullkomnu umhyggju- leysi. Verkamaðurinn var því réttlausari en dauð álhöld hús- bóndans; við þau var gert svo lengi sem fært þótti. Enn er það því miður svo að verka- maðurinn er lægst íaunaður af öllum launiþegum, oft fyrir erf- iðustu vinnuna os lengstan vinnutíma. Að áliti sérhags- munamannanna á verkamaður- inn að vera húsnæðislaus, klæðlaus og menntunarlaus og þræla alla ævitíð sína fyrir húsbóndann. Verkamaðurjnn á að vera ólæs og óskriíandi eins og í fyrri daga Qg húsbónda hans ieyfilegt að sparka hon- um út úr atvinnunni, jafnvel sjálfri tilverunnj, ef hann hlýð- ir ekki boðum yfirboðara síns eða skilar ekki því vinnuafli lengur sem húsbóndjnn krefst sökum ofþreytu eða slysfara við vinnuna. Þannig var boðorð auðmagns um aldir. Boðorðið „Þú skalt ekki stela“ virðist aðeins vera bann, sem verkamaðurjnn á að hlýða ef honum skyldi detta í hug að tina í sig eitthvert munngæti úr öskutunnum auð- valdsins til að seðja með hung- ur sitt, eða ónýtanlegar tuskur t'l að skýla sér með í kulda- köstum tilverunnar, þegar kaupið hrekkur ekki til að veita slíkt, þótt unnið sé meiri- hluta dagsins árlð um kring. En nú liggur næst að spyrja; Hvers vegna stela menn? — Það geta vafalaust verið marg- ar orsakir til þess eins og ann- ars. En tvær meginhliðar eru á þessu fyrinbrlgði mannlegrar náttúru, annars vegar skortur og menningarleysi, hins vegar takmarkalaus auðsýki. Nú er því svo varið, að verkamenn yfirleitt leyfa sér ekki að stela. hvork: hafnar- verkamenn né aðrir, nema e.t.v. leigð þý til þess að ko.ma ó- orði á verkamenn, svo auvirði- legt sem það er. En hvaðan hafa þeir fyrirmjmdina? væri ástæða t.'l að spyria. Skyldu þati ekki vera húsbændur þeirra sjálfir sem kenna þeim? Hversu margir þeirra eru ekki uppvísir að milljónaþjófnuð- um í æðstu stöðum þjóðarbús- ins? Svo að ekki sé minnzt á hvers konar óþarfa bruðl með almannafé, eins og á sér Stað hjá miverandi ríklsstjórn. En úr þvi að nú er vsrið aS minnast á ástandið við höfn- ina mætti lika minnast á vöru- skemmurnar sumar hverjar, sem eru engan veginn rottu- heldar, enda um 20 ára gaml- ar Bretaskemmur eða Kana- ská’ar. Hejta má, að í hverri mjölstæðu séu rottuhreiður í tugatali og svo að segja hver poki meira eða minna sund- umagaður eða með haugunt af rottuskít. Þessir pokar fara ■síðan út á land og væri sæmra fyrir heilbrjgðiseftirlitið aS iíta eftir því, að meðferð á mjölvöru sem til manneldia fer sé betri en verið hefur, því enginn veit hversu mlkið skað- ræði h'.ýzt af slíkum óþrifn- aði. Það þarf varla að lá rottun- um, þótt þær reyni að bjarga sér sem bezt þær geta. Hitt kann að vera, að annarskonar Framhald á 14. síðu. Sunnudagur 3. júrií 1962 — ÞJÖDVIL7INN — ^J^!

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.