Þjóðviljinn - 15.06.1962, Page 1
1
Klukkan rúmlega 3 í gærdag
barst Flugfélagi Islands skeyti
irá Nordmine námufélaginu í
Grænlandi, um að senda þegar
ílugvél fyrir sex menn, sem
Flugfélagsmönnum skildist að
væru mikið slasaðir. Þótti nú
mikið við liggja og var Skýfaxi
sendur af stað, eftir að læknir
hafði verið tekinn um borð og
birgðir blóðs. ______
Þegar á staðinn kom, varð
Ijóst að ruglingur hafði orðið i
skeytinu og staðið „six persons"
í stað „sick person“. Var hér um
að ræða fársjúka konu og var á-
ætlað að Skýfaxi lenti með hana
hér á Reykjavíkurflugvelli kl.
tæplega ellefu í gærkvöldi.
mfn iitifcl
■IUINN
Föstudagur 15. júní 1962 — 27. árgangur — 130. tölublað.
Hvalfjarðarganga
um jónsmessuna
Samtök hernámsandstœðinga efna tii mótmœla gegn
áformum um herskipahöfn og kafbátaiœgi í Hvalfirði
Miðnefnd Samtaka hernámsandstæðinga samþykkti einróma á
fundi sínum í fyrrakvöld að efna til mótmælagöngu gegn hernáms-
stefnunni um jónsmessuna. Verðiir að þessu sinni gengið frá Hval-
firði til Reykjavíkur til þess að leggja sérstaka áherzlu á and-
stöðuna við yfirvofandi áform bandarískra og íslenzkra stjórnar-
valda um herskipahöfn og kafbátalægi í Hvalfirði. Gangan mun
taka tvo daga, laugardaginn 23. og sunnudaginn 24. júní.
Áformað er að leggja af stáð
frá Hvítanesi. Þar var miðstöð
herskipahafnarinnar á stríðsár-
unum, og þar var einn fyrsti
íslenzki sveitabærinn sem her-
námsstefnan lagði í eyði. Verð-
ur lagt aí ' stað úr bænum eft-
'r hádegi á laugardag, þegar
menn hafa almennt lokið vinnu,
sn síðan gengið til kvölds og
gist í tjaldborg á Kjalarnesi.
Verður þar kvöldvaka með fjöl-
breyttri dagskrá sem nánar
verður sagt frá siðar. Á sunnu-
Stértjén af rigningu og
flééum á Siglufirði
SIGLUFIRÐI 14/6 — I morgun
gerði norðanátt á Siglufirði með
allmikilli rigningu. Fljótlega
hafði veðrið vaidið nokkru
tjóni víða í bænum, þó hvergi
alvarlegú, en upp úr hádegi á-
gerðist vatnsveðrið, jafnhliða
því 'sem veðurhæðin óx, o.g brátt
var svo komið að holræsakerfi
bæjarins megnaði ekki að flytja
vatnselginn til sjávar. Olli það
miklu flóði á evrinni, jafnhliða
því sem svokallaður Fjallalæk-
ur, sem nú er í márgföldum
vexti, brauzt út úr farvegi sín-
um og rann niður hliðina. Hef-
ur kom.'zt vátn í mikinn fjölda
húsa og valdið þar stórtjóni.
Þá hafa ’óg‘: orðíð talsverðar
skemmdir á færiböndum sí!d-
arverksmiðja ríkisins, og bau
höfðu nær fokið á hlið.'na. Tókst
þó að bjarga meirihiuta þeirra
með þvi að saga bau niður, en
skemmdir hafa þó orðið all-
miklar.
Eyrin er nú öll umfiot'n vatni
og lítið l?.t á vatnsveðrinu.
Óttast menn nú helzt skriðuföl!
úr fjallshlíðinni fyrir oían þæ-
inn.
Hin nýkjörna bæjarstjórn
Siglufjarðar sat á fundi þegar
frcttir tóku að berast af tjón:
vegna vatnsi'ióðanna. Bæjarfull-
irúar 'Alibýðubandalapsins fluttu
þá tillögu um að bæiarstjóra o?
bæjarverkfrœðingi yrði falið að
sjá um fafarlausa framræslu á
svokölluðum Fialialæk. en hann
he-f'ur oí't áður valdið m.'kiu
tjóni í vatnavöxtum. Tillaga
þessi fékkst ekki tekin til um-
ræðu á fundinum þar sem meiri-
hlut.i íhalds og krata veitti ekki
afbrigði til umræðna um tillög-
una. Sýndí hann með þessu
vítavert ábyrgðarleysi gagnvart
íbúum bæjarins, sem hafa falið
bæjarstjórn forsjá mála sinna
næstu fjög'ur ár.
dag verður siðari áfangi svo
genginn og komið til Reykjavík-
ur um kvöldið. bar sem mót-
mælagöngunni lýkur með úti-
fundi. Vegalengdin frá Hvíta-
nesi til Reykjavíkur er um 60
kilómetrar, þannig að áfangarn-
ir í þessari göngu verða mun
auðveldari en KeflavíkUrganga,
þegar 50 kílómetrar hafa verið
gengnir á einurn degi.
Harðsóttir
sáttafundir
í fyrradag hélt sáttasemjari
fund með deiluaðilum í síldveiði-
deilunni og stóð sá íundur írá
klukkan 4 sd. framundir morgun.
I gær boðaði sáttasemjari ann-
an fund og hófst hann klukkan
5 sd. og stóð enn þegar blaðið
fór í prentun í nótt.
• Skrásstnins þátttakcnda
er þegar hafin. Skrifstofa sam-
takanna í Mjóstræti 3 er opin
alla daga kl. 9—22, og símar
þar eru 2-36-47 og 2-47-01.
Eru allir þeir sem taka vilja
þátt í göngnnni að öllu eða ein-
hverju leyti beðnir að hafa
sambared við skrifstofuna sem
allra fyrst.
• Að sjálfsögðu er mikjlvægt
að sem flestir taki þátt í g'öng-
unni alla lcið, en þeim scm ekki
hafa tiik á því skal bent á að
síðarí áfanginn verður nú auð-
veldur viðfangs. Geta menn til
dæmis komið á kvöldvökuna á
Kjalarnesi á laugardagskviild,
gist þar Og tekið þátt í göng-
unni síðari daginn. Einnig
verður séð fyrir ferðum til
móts við gönguna á sunnudags-
morgun.
• Þeir sem hafa tök á að
leggja til tjöld eru beðnir að
skýra frá því á skrifstofunni,
en öðrum mun vcrða séð fyrir
tjöldum.
• Samtiik hernámsandstæð-
inga þurfa á margvíslegum
stuðningi að halda til þess að
undirbúa mótmælagönguna,
fjárhagsaðstoð og sjálfboðaliðs-
vinnu. og eru allir þeir sem á
einhvern hátt geta lag't liönd að
verki beðnir að gefa sig fram
sem fyrst.
Halldór Kfrjan Laxness
Þórbergur ÞófOnrson
Jóhannes úr Kötlum
Tólf bœkur íslenzkra höfunda íveg-
iegri útgófu Móls og menningar
• Bókmenntafélagið Mál og menning verður 25
ára á sunnudaginn, 17. júní, og héfur félags-
stjórnin ákveðið að stofna til veglegrar afmælis-
útgáfu af því tilefni á næsta hausti. í útgáfu
bessari verða 12 bækur, ný frumsamin verk eftir
nokkra helztu rithcfunda og skáld þjóðarinnar.
Er stjórnarmenn Máls og
nennitigar skýrðu blaðamönnum
rá þessu í gær sögðu beir að
élagsstjórnin vonað. að útgáí'-
m yrði l'élaginu til sóma og
illir sem hana fengju í hend-
ir myndu hafa ánægju af að
úga hana o g varðveita. Af-
nælisútgáíah vévður aðeíns i
'fí' e.ntökúm og ;se!jást al'ár
bækurnar í einu lagi til áskrif-
enda. Af bessum 500 eintökum
verða 100 í sérstak’.e.ga vönduð-
um búningí. tölusett og árituð
af höfundum.
E'n þessara 12 bóka er enn
ekki fyllilega ákveðin en verður
skáldverk íslenzks höfundar.
Aðrar bækur fmælisútgáíunn-
'ar eru þessar;
Miimingar úr Unuhúsi eftir
Þórberg' Þórðarson, skrásettar
efíir Stefáni frá Hvítadal. Þessi
bók fjallar um íbúa Unuhúss á
árunum íyrir 1910. þessa húss
sem var annað heimili margra
íslenzkra skálda og listamanna
áratugum saman.
Skriftamál uppgjafaprests eft-
ir Gunnar Benediktsson. í bók
þessari, sem helguð er 70 ára
afmælí höi'undar. eru helztu
i fyrirlestrar o,g ritgerðir Gunn-
ars, írá beim árum beear orðið
var of þröngt um hann innan
; kirkjunnar og hann hóf boðskap
s.'nn um réttlæti í þjóðfélaginu.
Pr.jónastofan Sólin, nýtt leik-
! rit. eftir Halldór Kilian Laxness.
í Þessarar bókar er þeðið með
eftirvæntingu, enda ekki síðu_'
fylgzt með leikr.'tasmíð höfund-
ar eh sagnagörð. Prjónástöfan
Sólin er sögð fióknara leikrit ea
Strompleikurinn, öldin í grímu-
búningi, heimsvlðburðir í hnot-
skurn, ragnarök gerast og. líða
hjá.
Tuttugu erlend kvæði, þýdcl og
stæld af Jóni Helgasyni pró«
fessor. Af undirtektum þeim að
dæma sem Jón hlaut þegar hann
las úr þessum Ijóðaþýðingum ú
vor, er óhætt að fullyrða' a®
bókin verðl á sína vísu annar
eins bókmenntaviðburður og
fyrsta útgáí'a frumsaminna Ijóðjf
höí'undar fyrir 23 árum.
Ný l.ióðabók eftir Jóhannes úf,
Framhald á 4. síðu.