Þjóðviljinn - 24.06.1962, Page 6

Þjóðviljinn - 24.06.1962, Page 6
I ll PIÓÐVIUINN iMalaadli ■•■•InUiKarfloKlnr alfcíBs - Mílaliataflolknrlnn. — BltcUAnui lasaú* KJartanoson (áb.), Macnúo Torfl ÓlaísBon. BlíurBur auBmnndsaon. - 'TáttarltBtJórar: ívar H. Jónsson. JOn BJameson. — Auclýslngastíóri: GuUísU fasnðsson. — Rltstjóra. aíerelðsla, auelýslnEar, DrentsmlSJa: SkólavðrSust. 18, Bml 17-800 (i llnur). AsfcrlítarverS fcr. 55.00 á mán. — LausasðluverB fcr. 3.00. Þess vegna göngum við jjess vegna göngum við, að örlögin hafa gefið okkur land sem er eitt af undrum veraldar, hvort sem það blasir við okkur í dýrð jónsmessunæturinnar eða í grimmd vetrarhörkunnar. Þetta land er hluti af okikur öllum, töfrar þess og galdur hafa mótað tilfinn- ingar okkar og skapgerð. Þessu landi má aldrei farga, allra sízt undir viðurstyggð morðtóla og vígvéla, og því göngum við. Bærinn í Hvammi og túnið sem Valgerður Guðmundsdóttir hefur grætt upp úr örtröð hernámsins. Enn valda vírflækjur og annað skran sem ieynzt hefuv írá stríðsárunum tjóni á búpeningi. j>ess vegn-a göngum við, að við heyrum til þjóð sem er einstætt fyrirbæri í heiminum. Með hagspeki- legum rökum kann að mega sanna að slík þjóð eigi ebki tilverurétt, allir draumar hennar séu tóm róm- antík sem standist ekki í hörðum heimi, en allt eðli okibar og sagan sjálf rísa gegn þvílíkum kenningum. íslendingar þraukuðu af langar kúgunaraldir vegna þess að iþeir vissu að þjóðin hlaut að eiga sér fram- tíð, að jafnvel hin hörðustu örlög einnar kynslóðar myndu skila þeirri næstu dýrmætum arfi. Eflaust hafa oft verið til menn, ekki síður en nú, sem töldu betra að deyj-a fyrir vandamál samtíðar sinnar en lifa vegna framtíðarinnar, en engu að síður hélt þjóðin ófram að lifa í trássi við öll lögmál hinnar köldu hagspeiki og hefur fært okkur sem nú byggjum land- ið nærtækari og stórbrotnari framtíðarhorfur en nokk- urri kynslóð annarri. Við viljum lifa og skila ókomn- um kynslóðum nýjum arfi, og því göngum við. • Jjess vegna göngum við, að landið og þjóðin hafa fært okikur dýrmætan menningararf, bau andlegu verðmæti sem skera úr um það hvort þjóð er sjálf- stæð. Tunga og menning eru hluti af allri vitund okkar og þeim verðmætum viljum við eikki glata með því að láta sökkva okkur í milljónamúg stærri þjóða. Islenzk menning verður ekki látin í skiptum fyrir ibandariíska sýndarmennsku og prjál, og bví göng- um við. ■Ijess vegna göngum við að hver heilbrigður íslend- ingur geymir í hugskoti sínu þá tilfinningu sem Snorri Hjartarson skáld hefur lýst: Land þjóð og tunga, þrenning sönn og ein, þér var ég gefinn barn á móðurkné; ég lók hjá þér við læk og blóm og stein, þú leiddir mig í orðs þíns háu vé. Á dimmum vegi dýrð þín um mig skein, í dögun þeirri er líkn og stormahlé og sclkn og vaka: eining hörð. og hrein, þú heimtar trúnað, spyr hver efnd mín sé. Þú átt mig, ég er aðeins til j þér. Örlagastundin nélgast grimm og köld; hiki ég þá og bregðist bý ég mér bann iþitt og útlegð fram á hinzta kvöld. ísland, í lyftum heitum höndum ver ég heiður þinn og líf gegn trylltri öld. m. Hvalfjörður er enn allur at- . aður hernámsörum. Beggjamegin fjarðar blasir enn við umrót hersins, bragga- grunnar og rústir víghreiðra og vegatálmana. Á Miðsandi stend- ur enn braggáþorp — nú byggt íslenzku fólki. En uppi á barð- inu utan þess er enn kvikt Kanahreiður, með gaddavírs- girðingu og öllu tilheyrandi, og hliði út á þjóðveginn, þar sem ýmist stendur tvífættur ólund- arlegur dáti og glápir á vegfar- endur út um gat, eða við hlið- ið stendur ferfættur hundur með loðinn belg, — og er hann sýnu glaðari með hlutskipti sitt en hinn tvífætti starfsbróð- ir hans. —O— Hvítanes var sá bærinn þar sem herinn rak bóndann í burtu einna fyrst. Þangað hefur eng- inn bóndi flutt aftur, enda er meginhluti þess svæðis er eitt sinn var tún enn stráð rústum cg steyptum braggagrunnum. Herinn rak íólkið á næsta bæ, Hvammi, einnig burt frá heimilum sínum. öll stríðsárin ríkti. herinn einn á löngu svæði í fi.rðinum. Og mörgum er enn í minni að á landleiðinni milli Suðurlands og Vestu.i'- og Norð- urlands urðu þeir á þeim árum tvívegis að ganga undir eftirlit og rannsókn. sem hvergi þekk- ist nema þar sem menn fara úr einu ríki yfir í annað. Um Hvalfjörð fóru íslendingar ekki frjálsir ferða sinna, þar réðu erlendir herir, jafnvel bænd- urnir þurftu vegabréf, útgefið af erlendum her, til þess að geta sinnt bústörfum sínum. Saga þessara tveggja bæja er mjög ólík. Hvítanes er enn í eyði, en bóndinn í Hvammi, Valgerður Guðmundsúóttir, — flu.tti þangað aftur jafnskjótt og herinn fór, enda er þar nú fagurt tún og blómlegt bú sem áður. Fyrir nckkru hi.tti ég Valgerði að máli og spurði hana u.m hernámið. — Það voru Bretar sem komu, svaraði Valgerður, og sögðust ætla að vera hérna. — Og hverju svaraðir þú? — Þeir töluðu við manninn minn, og hann samdi við þá. Ég tók svo við þeim samning- um eftir að við vorum skilin. (Valgerður og maður hennar Ihöfðu ákveðið að skilja, en bóndinn var rétt ófarinn þeg- ar Bretarnir komu, og því var hann enn „ráðsmaður" á heim- ilinu. — J.B.). — Og svo varstu áfram kyrr? — Ég var hér um sumarið og fram á veturinn, en þá voru þeir alltaf að fjölga hér mönn- um og illt að vera hér af þeim sökum, og þeim þótti ó- næði að okkur, þeir voru hræddir við okkur. Og svo varð það úr að við fórum ........ Já, það voru íslenzkir menn sem sömdu um að við færum. — Einhver hefur sagt mer að þú hafir rekið þá úr túninu hjá þér? — Já, það var um sumarið áður en ég f ór. Þeir höf ðu Höfð- ann og voru með þunga bíla og mikinn flutning og vegurinn þangað tróðst sundur, og þá fóru þeir að aka þungum bíl- um yfir túnið. — Og þá rakstu þá úr tún- inu? — Já, ég fór og sagði þeim að þeir mættu ekki aka yfir túnið. — Og þeir hlýddu? — Já, þeir þorðu ekki annað en að hlýða mér; þeim leizt ekki á mig. Þeir fóru og gerðu vi.ð veginn og fóru síðan eftir honum. Þetta er nærmynd af ferhyrndu þústinni sem sést uppi á liólnum 1 höfðu Bretar á stríðsárunum aðalfjarskiptai Um sólstöðurnar, þegar ís- lenzk sumarnótt' er björtust, þegar sól ekki hverfur af fjöllum og náttúran kann sér ekki læti fyriu. lífsfögnuði jafn- vel þar sem vetrarríki getur verið mest — einmitt þá er Þorkell Björnsson borinn í iþennan hei.m fyrir sjötíu árum. — Hann er sem sé fæddur ár- ið 1892 kl. 2 á jónsmessunótt að Hreinsstöðum í Hjaltastaða- þinghá. Segja má að Þorkell hafi., með nokkrum hætti, borið með sér svipmót hinnar björtu ör- laganætur að Hreinsstöðum á sjötíu ára lífsferli sínum. Að því er undirritaður bezt veit er iÞorkell uppalinn á Fl.iótsdalshéraði og á þar ættir sínar að rekja. — Hann kvænt- ist ungur Þóru Þóriardóttur, frá Gauksstöðum í Jökuldal, systur Þórðar bónda á Gauks- stöðum, Sigursteins, Skúla mag- isters og þeirra systkina, sem margi.r kannast við. Þau hjón byrjuðu búskap sinn á heiðarbýlinu Veturhús- um á Jökuldalsheiði. En svo ‘"rnsson s öndvert blés þar efra fyrir byrjendunum á þeim árum að íþau hjón urðu áður en langt leið að bregða búi og fluttu niður á Seyðisfjörð. Þar munu iþau hafa búið nálega aldar- fjórðung. Sá, er þessar línur ritar, kynntist Þorkeli og hinni á- gætu konu hans á Seyðisfirði nokkru eftir 1930, á kreppuár- unum, og hefur síðan haft af iþeim allnáin kynni. Á þessum áru.m þurftu verkamenn tí að heyja harða baráttu fyrir full- nægingu brýnu.stu lífsþarfa og fyrj.r tilverurétti stéttarsamtaka sinna. — 1 þá tíð stóð hann í fremstu barátturöð verkafólks- ins, gegndi um árabil for- mannsstarfi verkamannafélags- ins á staðnum. auk fjölda ann- arra trúnaðarstárfa á vegum samtakanna, að ek'ki séu upp- talin hér þau mörgu störf er hann hafði með höndum fyrir flokk verkamanna á þeirri tíð, kommúnistaflokkinn, og síðar Sameiningarflokk alþýðu — Sósíalistaflokkinn. — öll þessi 0) — ÞJÖÐVILJINN — Sunnudagur 24. júní 1962

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.