Þjóðviljinn - 22.08.1962, Blaðsíða 7
pJÓÐVILJINN
Otgefandi Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. —<
Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Magnús Torfi Ölafsson, Sigurð-
ur Guðmundsson (áb.) — Fréttaritstjórar: Ivar H. Jónsson, Jón
Bjamason. — Auglýsingastjóri: Þorvaldur Jóhannesson. — Rit-
stjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg 19.
Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 55.00 á mánuði.
Sá málstaður mun sigra
^jamtök hernámsandstæðinga enu nú tekin að undir-
búa landsfund sinn á haustí komanda og hafa þau
þegar haldið nokkra vel heppnaða fundi á Austur-
landi. Barátta samtakanna hefur vakið mikinn ugg
í röðum hernámssinna hér á landi eins og kunnugt
er. Fyrst var reynt að þegja samtöikin í hel, en er
það tókst ekki, var hafin ofsaleg áróðursherferð gegn
þeim. Afturhaldsblöðin hafa stöðugt reynt að ala á
tortryiggni og óeiningu innan samtakanna; þau hafa
notað kommúnistagrýluna af meira ofstæki en nokkru
sinni fyrr til þess að reyna að fæla almenning frá
starfi fyrir hernámsandstæðinga. En allar þessar til-
raunir hafa mistekizt hrapalega. íslendingar vita að
baráttan fyrir afnámi herstöðva og barátta fyrir hlut-
leysi er háð af mönnum með hinar ólíkustu skoðanir
á þjóðfélagsmálum, ekki aðeins á íslandi, heldur og
í fjölmörgum lönd-um öðrum.
Bretlandi hefur t.d. hinn kunni heimspekingur
Bertrand Russel gengið fram fyrir skjöldu í þess-
ari banáttu. í merkri grein, er nefnist Málstaður
lilutleysisins, hefur Russel sýnt. glöggt fram k hætt-
una, sem heimsfriðnum stafar af herstöðvum. Þar
segir m.a.: „Fyrir mitt leyti vildi ég, hæði sem föð-
urlandsvinur og mannkynsvinur, að Bretiand lýsti op-
inberlega yfir hlutleysi í deilunni milli Ameríku og
Rússiands. Röksemd föðurlandsvinarins er augljós.
Enginn föðurlandsvinur mundi vilja horfa upp á
land sit útmáð án þess að þeir lifshættir sem gefa
landi hans gildi séu að nokk.ru bættari. Og eins og
nú er ástatt, meðan Bretland heldur áfram að vera
ií bandalagi við Ameríku, er alvarleg hætta á að
brezku þjóðinni verði útrýmt án þess að það gagni
að neinu leyti Ameríku eða vestrænum lífsháttum.
Frá sjónarmiði alls mannkynsins er þess að gæta, að
heiminum stafar ógn af fjandskapnum milli Rússlands
og Ameríku, og allt það sem getur dregið úr þeim
fjandskap er þjónusta við mannkynið“.
Jjær röksemdir, sem settar eru fram í grein Russels
eiga vissulega ekki síður við hér á landi en í
Bretlandi. Herstöðvar leiða geigvaenlega tortímingar-
hættu yfir hvert það land, sem þær eru staðsettar í.
íslenzkir ráðamenn hafa löngum reynt að afneita þesS-
ari staðreynd, en nú er svo komið að þeir treystast
efcki lengur til þess. Er þess skemmst að mfnnast, að
núverandi ríkisstjórn flutti á síðasta þingi frumvarp
um svdkallaðar „almannavarnir“, en þar er viðurkennd
hin geigvænlega hætta, sem almenningi stafar af her-
stöðvunum. Það var að vísu eitt atriði þess þingskjals,
að nauðsynlegt væri að gera nægilega öflug neðan-
jarðarbyrgi fyrir forseta og ríkisstjórn landsins, svo
að einihver von væri til þess að þeir gætu sloppið með
líftóruna, þótt íslandi yrði fórnað í atómeldi vegna
bandarískra herstöðva.
P'runwarp ríkisstjórnarinnar um almannavarnir ger-
ir þannig eikki ráð fyrir að reynt sé að koma í veg
fyrir að slíkar hörmungar geti dunið yfir islenzku
þjóðina, heldur er ríkissftjórnin trú 'iherstöðvastefn-
unni, sem beinlínis býður þessari hœttu heim. Samtök
hernámsandstæðinga iberjast fyrir því að forða ís-
lenzku þjóðinni frá þeirri ógæfu. Hver sá sem gerir
sér grein fyrir staðreyndum þessa máls hlýtur því að
skipa sér í fylkingu hernámsandstæðinga, og starf
samtakanna undanfarin ár sýnir ótvírætt að fleiri
og flgiri gera sér þetta ljóst. Sigur þessa málstaðar
gerir hvort tveggja í senn: Að bœgja frá íslandi ógn-
um hugsanlegs stríðs og gera sitt til þess að draga úr
viðsjám í lieiminum. Þess vegna mun málstaður her-
námsandstæðinga fara sigurför um landið, áður en
lýkur. Og sá sigur geur einnig forðað forseta landsins
og núverandi ríkisstjórn frá því að grafa sig niður í
jörðina af ótta við afleiðingar eigin gerða. — b.
Árið 1960 kom út í Moskvu lítil bók um ísland „Islandía“, ferðapistl-
ar og teikningar eftir rússneska teiknarann Orest Véreiskíj. Segja má
að bókin hafi komizt í fárra hendur hér á landi, þó nokkrir tugir
eintaka hafi verið seldir hér í bókabúðum, en marga fleiri hefur lang-
að til að eignast hana þó ekki væri nema vegna teikninganna. For-
mála bókarinnar ritaði skáldið og íslandsvinurinn Boris Polevoj. — Nú
hefur Sigurvin Össurarson, sem kynntist Véreiskíj hér um árið og
ferðaðist eitthvað með honum, snarað formálanum og nokkrum smá-
glefsum úr texta Véreiskíjs á íslenzku, og birtir Þjóðviljnn hér hvort-
tveggja með tveimur teikninganna úr bókinni.
6 ESTSAUGA
á ÍSLANDI
Ein af myndum Vereiskíjs frá Reykjavík.
Boris Polevoj; Formóli
ísland — eitt af undraverð-
ustu löndum okkar gömlu jarð-
ar. Þegar þú flýgur að landinu
-í mikilli hæð, og niður undan,
í gráum einlitum víðáttum hafs-
ins, kemur í ijós þessi klettum
krýnda eyja, með ljósbiáum
jöklum og skriðjöklum er steyp-
'ast í sjó fram, með virkum eld-
glgum og óendanlegum víðátt-
um hraunflóða, með straum-
ihörðum ám, tröllauknum foss-
um og hverum, í þeirra tölu
Geysir með stórum staf, er hef-
ir gefið nafn sitt til skilgreining.
ar öllum hverum jarðarinnar;
Iþegar (þú sérð allt þetta, þá læð-
ist að þér sú hugsun, að flug-
stjóri flugvélarinnar hafi farið
villur vegar og flutt þig til ein-
hvers furðulegs, ókunnugs heims,
sem er óbyggður af mönnum.
Og íslendingar sjálfir eru
mótaðir af erfiðri náttúru lands
síns, — háir, grannir, herða-
breiðir, e’.jusamir og góðfátlega
fámálir. Þetta er ein af allra
fámennustu þjóðum heims. Á
öllu landinu eru íbúarnir miklu
færri en segjum í borgunum
Penza eða Ka’-iímn. En, þú kall-
ar þetta ekki litla þjóð, þetta
stolta, frelsisunnandi fólk, frá
barnæsku þau’.vant við erfiða
vinnu á mjög jit’.u jarðnæði.
innilokuðu milli hraunflóða og
hárra fjalla, hert í baráttu við
hafið, í sókn eftir björg í bú.
Ég ók um ísiand, eignaðist þar
ekki svo fáa vini, og ætlaði að
skrifa bók um þetta land. Ég
ætlaði, en skrifaði aldrei, — efn-
ið var alltof óvenjulegt fyrir mig
sem bý í jandi með ómælan’.egar
víðáttur. Sérkenni íslands eru
svo stórko.stleg, að svo virðiSt
sem sérhver tiiraun, hversu ljóst
sem lýst væri lífinu í Iþessu landi,
myndi ieiða til fjarstæðu. Að-
eins eitt er hugsanlegt, í raun
og veru er það aðeins á færi ís-
lendings að sgja frá íslandi. Til
þess skortir útiending hæfni.
Og nú er fyrir framan mig lít-
il bók. sem þú nú heldur í hendi
þér. Hana skrifaði, en réttara
sagt fyllti með teikningum, og
enn réttara sagt — gerði hana
á þann tvennan hátt, hinn merki
iistamaður Orest Véreiskíj. Penni
hans er sérkennilegur, skarpur,
tjáningarríkur og alltaf ná-
kvæmur. Við vitum það þó ekki
Væri nema frá myndskreytingu
hans af leyniskyttunni d ,,VaSílí
Térkín" eftir A. Tvardovski og
„Lygn streyfir Don“ eftir M.
Sjolokoff, og töfrandi teikning-
um, sem öðru hvoru hafa birzt
í tímaritinu ,,Ogonjok“. En hvað
og stórkosti?gri ,náttúru Igndsins,
óvenjulegúm litbriáðúm':iþ.ess, og
því sem mestu máli skiptir: fólki
þessa lands, lífi þess og hátt-
um.
Þetta er ekki landfræðileg rit-
gerð, ekki heldur leiðarvísjr fyr-
ir ferðamenn. Þetta er flokkur
svipmynda, myndlistar og bók-
mennta. En þó er það stundum
að yfiriætislaus vis.a, sem heyr-
ist sungin eirihvérs staðar úti
í guðs grærini náttúrunni, opn-
Oresf Vereiskíj: Frá íslancfi
Ef til viil taia engír í heimin-
um jafn mikið um veðráttuna
og íslendingar. Þetta er náttúr-
legt i IÖndum þár sem mestur
hluti íbúanna er á einn eða
annan hátt háður sjónum. . . .
Gamla sveítakonan sem vinn-
ur á bóridabýlinú, hún minnir
mig á ömmuna góðu úr „Brekku-
kotsannál", sem Laxness skrif-
ar urn, „ . . . ég man ekki eftir
ihpnni öðruyisi en lotinni og
tannlausri með dáÚtinn hósta og
rauðá hvarma at-að standa fyrir
framan ópnar - hlóðir í eidihús-
royknum Í Brekkukoti. . .
Löng. ár erviðjsvinnu hafa
beýgt bak konunnar, gert
hendur henhar hrjúfar o.g hnýtt-
ar eins og trjábörk. En þessir
bognu fingur hennar eru undra
fimir. Hversu mörg eru ekki
teppin, treflarnir og sjölin, sem
þessir vinnulúnu fingur hafa
prjónað úr íslenzkri u’.l um löng
vetrarkvöld.
Farir þú aðeins ferð útfyrir
borgina, þá er sauðfé óbreytan-
legur hluti og einkenni lands-
lagsins. Það er á beit í stórhóp-
um, í móum og bröttum fja’.la-
hlíðum, án fjárhirðis, án varð-
hunda, — yfirleitt án gæzlu. Inn-
an um grátt hraunið og gráan
mosann er erfitt að greina í
skyndi gráa ul? hreyfingarlausra
kindahópanna. Þegar rúningar-
tími kernu". er fénu safnað í
réttir, Aém gerðar eru úr grjóti
og hraunhe’.lum. Auk stóru rétt-
arinnar eru nokkrar minni —
til aðskilnaðar fjárins, þegar það
er rekið heim og rúið. Bænd-
urnir greina fé sitt eftir eyrna-
mörkum. Eftir rúningu fer sauð-
féð frjálst ferða sinna.
Eins og sjórinn er óbreytan-
. legur þáttur í landslagi ís’.ands,
svo er hann einnig óaðskiljanleg-
ur frá æyi og starfi hvaða ís-
lendings sem er. Jafnvel -bónd-
inn, sem fæst við fjárrækt,
rpætti gera ráð fyrir að væri
,.l:andkrabbi“ þessarar friðsam-
le-gu starfsgreinar; en þó er hann
-á einn eða annan hátt tengdur
sjónum. Þannig er það með
Ingva Eyjólfsson, — fyrrverandi
sjómann. Ljósmynd sem h-ang-
ir í borðsto.funni j Sviðho’.ti,
staðfestir frásögn hans. Úr
-heimagerðum ramma horfir
glaðlegur ungur sjómaður
klæddur jakka með g’.anslegum
hnöppum. Nú er Ingvi kominn
yfir sjötugt. Frá -morgni til síð’.a
kvölds vinnur hann á búi sínu.
Hann gefur skepnum sínum,
dundar við litlu dráttarvé'ina
sina. og -hreinsar út úr fjósinu,
Iþar sem kýrnar hans standa með
halann bundinn upp -í rjáírið.
Ólíkt öðrum ríkari bændúm :not-
ar Ingvi ekki aðkeypt vinnuafl.
Á býli hans vinnur aðeins hin
fámenna fjölskylda hans. Ingvi
k-vartaði um, að Ihann hefði var’a
tíma til að rifja u-pp gamlar
minning-ar. Öll hans fróun, öll
hans ánægja, er að kveikja í
pípu sinni í anddyrinu. og horfa
útá sjóinn, þar sem hann varði
æskuárum sínum.
Hafið fæðir ís’.and. Allt sem
íslendingar ekki fram’.eiða sjálf-
ir og fá frá öðrum löndum, er
fengið í skiptum fyrir fisk. En
þessi auðsuppspretta eins og ís-
lendin-gar segja, getur verið örl-át
og góð, en stundum ill, -hefni-
gjörn og undirförul. -Hyersu
margir eru ekki þeir íslending-
ar sem -búin hefur verið gröf,
ekki i grýttúm iarðvegi lands-
ins, heldur -á botni hafsins. nær
eða fjær ströndum ættlandsins.
Hversu margir éru ekki þeir
fiskimenn, sem komu ekki
heim af-tur. Hversu mörg voru
ekki islenzku ’skipin, sem sökkt.
var með, tundurskeytum fasist-
anna á stríðsárunum. Brimið
skolar stundum uppá str.önd ís-
lands ibroti úr mastri Og brot-
um björgunar-báta, ^ vitriis-
burði um harmlei-kinn, sem fram
fór á hafinu.
Á strönd landsins, alstaðar
þar sem mögulegt er, standa
dreifð fiskimannaborp. Heilir
fldtar fiskiskipa. allt ' frá göriil-
um fleytum til nútímatogara,
fara daglega til fiskiveiða við
strendur landsins. og þúsundum
milna fjærri ættlandinu.
Og ef þú spvrð ís’.ending -hvort
hann óttisf ekki sjóinn. þá anz-
ar hann rneð gamla tilsvarinú;
„Óttast þú ek-ki að hátta í rúm-
ið? Það deyja þó miljónir fólks
i rúminu.“
Fengu hval í
botnvörpu
Franski togarinn Saint
Franccis, v’ar að veiðum
skammt undan hcimahöfn
sinni, Marscillcs, nýlcga. Ein
hífingin var scrstaklega erfið
cg hélt mannskapurinn að
þei.r hcfðu sctt í’ann cinsog
þaöi er kallað. Þcgar lcysi var
frá pokanum kcm i ljás að
þeir höfðu rctt fyrir sér, þó
innihaldið kæmi þeim sann-
arlega á óvart. Það var
20 tonna hvalur, um það bil
12 metra langur, sem slengd-
ist á dckkið.
Nú eru hvalir mjög sjald-
gæfir í Miðjarðarhafinu, cn
þessi virlist eitthvað vankaður
eða jafnvel meðvitundarlaus
og bar hann merki þess að
hann hcfði l'engiö höfuðhögg.
Ekki voru kallarnir í hin-
um franska togara bjartsýnir
á að þeir gætu selt þessa ó-
venjulegu veiði, en raunin
varð sú að náttúrugripasafnið
í Marseilles keypti af þeim
hvalinn til að hluta hann í
sundur og hafa síðan beina-
grindina til sýr.is.
Broddí Jébean-
essoö skólastjóri
Kennarsskólans
Menntamálaráðherra hefur
skipað dr. Brodda Jóhannesson
skólastjóra Kennaraskóla ís-
lands frá 1. scptember n.k. að
telja. /
Broddi Jóhannesson er 46
ára að aldri. Hann lauk stúd-
entsprófi 1935 og lau-k doktors-
prófi í sálarfræði við háskól-
ann í Múnchen vorið 1940.
Hann kenndi um skeið við
Mentaskólann á Akureyri og
síðan við ýmsa skóla í Reykja-
v-ík, m.a. Kennaraskóla Islands
frá 1941.
Mynd Vereiskíjs af Ingva Eyjólfssyni.
kemur fram i þessari bók? Vér-
eiskíj er ekki ein-göngu mynd-
li-starmaður, hann er einnig
listamaður frásagnarinnar. Hann
var á Islandi við sýningu sov-
ézkra s-vartlistarmanna. Hann
varð éinnig ástfanginn af þessu
einstæða landi og þjóð þess. Ást
sína og lifandi áhuga á íslenzku
þjóðinni Ihefur Véreiskíj gert að
veruleika, í flckki nákvæmra
teikninga, og fy’gir þeim úr hlaði
með frásögn, jafn nák-væmri,
Ijósri o.g tjáandi.
Ég geri ráð fyrir, að einmitt
heppi'eg samtenging þessara
t-veggja listgreina hafi gefið höf-
undinum mö-guleika að segja frá
íslandi i lítillj bók, lands'agi
þess, sérkerinilegri, nöturlegri
ar betur aðgang að sál þjóðar
en af'burða ópera byggð á þjóð-
legum viðfangsefnum. Og það
skal viðurkennt af mér, sovézk-
um manni. sem 'hlotnaðist að
heimsækja ísland -i hópi vináttu-
sendinefndar. að að gaman var
að lesa og skoða þessa bók. ■
Við lifu-m á áriægjú'egum tim-
um þegar árangur sigra sovézkr-
ar vin-áttu o; friðarsteínu bræða
ípv'Sí kalda stríðsins. serp ha.fa
stíað þjóðunum hvorri frá ann-
arri. Þetta nýja verk O. Vér-
eiskiíjs virðist mér vera ein
þeirra brúa. sem góðviljað fólk
leggur frá landi til lands, frá
þjarta til hjarta, til á-vinnirigs
hjartfó'-gnu mále'fní okkar allra,
málefni friðar og vináttu.
Hræðilegur kuldi úti í
himingeimnum . . . hví-
líkum ótrúlegum erfið-
leikum mun hann ekki
valda geimförunum, er
þeir yfirgefa geimför
sín einhverntíma í
framtíðinni til þess að
rannsaka víðáttur al-
lieimsins.
Enginn hefur efazt um, að í
geimnúm milli plánetnanna sé
hörkukuldi. Því hafa íjölmargir
hugmyndaríkir rithöfundar lýst.
Þeir hafa látið geimfara verða
að ís jaínskjótt og rafmagnið
í geimbúningi þeirra þvarr. En
við skulum ekki treysta slíkum
rithcfundum um of. Fyrir tíu
árum komust menn að raun
um, að sólinn hitar yfirborð
tuglsins upp í 120 gráður. En
jalriskjótt og ljósgjafinn hverf-
ur undir sjóndeildarhring mán-
ans fellur hitastigið niður í
150 gráður. Hvað er það, sem
veldur þessari skyndikælingu
yfirbcrðsins? Auðvitað hin
beina snerting við himingeim-
inn, þar eð máninn hefur eng-
an verndarhjúp ekkert gufu-
hvolf.
Hitastig himingeimsins hefur
verið áætlað mismunandi, allt
frá: -fe 180 gráðum celcius til
-r- 220 og ennþá minna. En við
höfum fullan rétt til að spyrja,
hverskonar kuldi þetta sé.
Lítum á einfalda eðlisfræði.
Hitastig er eiginleiki efnis-
Ekki eins kait í himingeimn
um og
var
kenndra hluta — fastra, fljót-
andi eða loftkenndra — með
öðrum orðu.m hraði mólekúl-
anna. En hvað af slíkum hlut-
um er að finna í himingeimn-
u.m? Enga! Geimurinn er ein-
mitt geimur en alls enginn
hl.utur, og þess vegna heíur
hann ekkert hitastig. Um hita-
stig getur aðeins verið að
ræða hjá efninu milli. stjarn-
anna. en magn þess er hverf-
andi lítið. Þeir er gera tómdæl-
ur segja, að sem stendur láti
þeir sig aðeins dreyma um að
komast nlðu.r á loft, sem er t.d.
hu.ndreð sinriúm þéttara en
loftið í himingeimnum. Sovézk
geimíör haía varpað ljósi ó
þetta vandamál og hrakið fyrri
hugmyndir um „hinn hræðilega
kulda“ í himi.ngeimnum. Him-
ingeimurinn er ekki auðn og
tóm. Hann hefur inni að halda
hvsrtandi lítið magn af efnis-
eindum — en hverjar eru þær?
Mælitæki sýna að þar íinnast
ekki ,,helkaldar“ efniseindir
Þvert á móti eru þessar eindir
mörg þúsund stiga heitar.
Þannig er sveifluhraði þeirra,
sem ákvarðar hitastigið.
Hvað myndi þá verða um
þann geimfara, sem yfirgefur
farkost sinn í geimnum milli
stjarnanna? Er unnt að hugsa
sér, að hann frjósi ekki i hel,
en brenni til ösku við að kom-
ast í snertingu. við efniseindir
sem hafa hitastig, sem er helm-
ingi meira en á yfirbcrði sólar?
. Hvorugt mu.n ske. Hitainni-
haldið í etniseindum geimsins
er svo hverfandi lítið sökum
smæðar þei.rra, að hitastigið á
ytra borði búnings geimfarans
mun ekki aukast um svo mikið
sém einn þúsundasta hluta.
Hann mun heldur ekki fá lítil
bru.nasár. Kveikið á „stjörnu-
ljó,i“ og takið eftir því, að
nei.strrn'V slá cfbi.rtu í augun
en trenna ekki hina viðkvæm-
ustu húð. Og þó kemst hitastig
þessara neista upp í 1800 stig,
sem er það sama og í bráðnu
stáli. Hití'magn þessara glóandi
smástjarna er of lítið til þess
að orsaka bruna, enda þótt
fjöldi þeirra sé geysimikill
samanbori.ð við efniseindirnar
milli stjarnanna.
Við skulum nú reyna að leysa
vandamálið með kuldann í
himingeimnum í eitt skipti fyr-
ir öll. Til þess má nota hita-
brúsa. Hann hefur loftþynnt
millirúm, sem er ógætis hita-
einangru.n, enda þótt það loft,
sem eftir er í millirúminu sé
milljón sinnum þéttara en efn-
ið í himingeimnum.
Og hve umfangsmikið er
tómrúmið í geimnum? Það er
óendanlegt. Hvernig má það þá
verða, að yíirborð mánans
kólnar svo fljótt, þegar hann er
umkringdur þessari ágætu ein-
angrun? Þetta er að miklu leyti
að kenna eiginleikum sjálfs yf-
irborðsins. Allir hlutir missa
hita við útgéiislun, jafnvel í full-
k. minni einangrun. Hitamissir
mánans sökum útrauðrar geisl-
unár er gífurlegur sökum þess,
að yfirborð hans er myrkt og
tært. Hi.tabrúsi, sem þannig
væri fyrir komið, væri líka lé-
legu.r hitageymir. En innri fletir
hans eru þaktir speglandi lagi.
Tveir speglandi fletir, sem
snúa hvor mót öðrum og hafa
autt rúm sín í milli, eru næst-
um því fullvarðir fyrir hita og
kulda.
Eftirmenn þeirra Gagaríns og
Títos í himingeimnum munu fá
alla hugsanlega möguleika til
þess að notfæra sér hina sér-
stöku eðlislegu eiginleika hans.
1 himinhvolfinu þarf að hlifa
efni við geislum sólarinnar,
þá mi’.n það stöðugt missa hita
við útgeislun, þannig að hita-
stigið kemst au.ðveldlega undir
-í-200 gráður.
Ef þér þurfið að geyma hlut
heitan í himinhvolfinu skuluð
þér aðeins hlífa honum við hin-
um dimma hluta hvolfsins með
speglandi fleti og láta skína á
hann hina mildu geisla sólar-
innar, en hvítbláa geisla henn-
ar í himingeimnu.m sáu þeir
Gagarín og Títof fyrstir manna.
Það er huganlegt, að hvorki
geimför né klæðnaður geimfara
þu.rfi á sérstaklega kælandi eða
hitandi útbúnaði að halda, en
að unnt sé að bjarga sér í auðn
himinhvrlfanna með því að
snúa spegli eða dimmum fleti
gegn sólu eða myrkri.
„Hinn hræðilegi kuldi í him-
ingeimnum" var aðeins þjóð-
saga.
(Þýtt)..
gj — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 22. ágúst 1962
Miðvikudagur 22. ágúst 1962
ÞJÖÐVILJINN —
(7i