Þjóðviljinn - 28.09.1962, Blaðsíða 6
pfðDVItilNN
Otgefandi Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaílokkurinn. —
Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Magnús Torfi Ölafsson, Sigurð-
ur Guðmundsson (áb.) — Fréttaritstjórar: Ivar H. Jónsson, Jón
Bjarnason. — Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja:
Skólavörðustíg 19. — Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr.
Uppbótakerfið — skilgetið J
afkvæmi Sjálfstæðisflokksins
J7kki batnar ritstjórum Morgunblaðsins minnisleysið!
í gær skrifa 'þeir hvorki meira né minna en tvo
leiðara, sem eiga að heita um sjómannamál. Og eins
og vant er minnast þeir Lúðvíks Jósepssonar þegar
minnzt er á sjómannamál. Morgunblaðsmenn munu
seint fyrirgefa Lúðvdk farsæla forystu í landhelgis-
málinu né heldur hitt, að þá var sjávarútvegsmálum
á íslandi þannig stjórnað að því leyti er til ríkis-
stjórnarinnar tók, að fiskifloti landsmanna var stanz-
laust að veiðum. Samanburður þeirrar stjórnar við
vesaldóm Ólafs Thors og Emils Jónssonar á þeim mál-
um er óþægilega augljós fyrir núverandi stjórnar-
flokka, enda sér þess oft merki.
\
¥jað hlálega við Morgunblaðsleiðarana í gær er sú
hugmynd Morgunblaðsins, að byrjað hafi verið í
tíð vinstri stjórnarinnar eða fyrir tilstilli Lúðvíks Jós-
epssonar að tvískipta fiskverði eftir því. hvort það var
til sjómanna eða útgerðarmanna, að Lúðvík hafi fund-
ið upp „uppbótakerfið“ sem hafi gert það að verkum
að menn hafi yfirleitt ekki vitað Ihver fékk hvað af
fiskverðinu. Hér mismínnir Morgunblaðsritstjórann
alveg hrapaliega, svo rétt er að rifja upp nokkur at-
riði, og minna á, að það var stjórn Sjálfstæðisflokks-
ins sem „heiðurinrí* á af „uppbótakerfinu", og sjávar-
útvegsmálaráðherra þess, Ólafur Thors. Bátagjaldeyr-
iskerfið var tekið upp þegar árið 1951, af samstjórn
Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins, undir
forystu sjávarútvegsmálaráðherrans Ólafs Thors. Og
það fyrirkomulag gilti undir stjórn þessara tveggja
flokka fram á mitt ár 1956, í einni eða annarri mynd.
\
TFjað var á þessu áijaþili sem Sjálfstæðisflokkurinn
kom á svo víðtæku uppbótakerfi, að það leiddi til
þess að útgerðarmenn voru farnir að fá allt annað
verð en sjómenn fyrir fisk sinn. Sjómannafélög neydd-
ust til að fara í mál við samtök útgerðarmanna, vegna
þess að sjómenn fengu miklu lægra verð fyrir afla-
hlut sinn. Sjómenn unnu þessi mál, t.d. í Vestmanna-
eyjum, og voru -útgerðarmenn dæmdir til að skila sjó-
mönnum viðibótargreiðslum. Þegar svo hafði gengið
um hríð neyddust sjómenn til þess að fara að taka
fram 1 samningum sínum við hvaða verð skyldi mið-
að á aflahlut þeirra í hverju tilfelli, vegna þess að
uppbótakerfið gerði ófært að vita fyrirfram endanlega
verðið. Allt þetta var upp tekið og blómgaðist í sex
ár undir stjórn Sjálfstæðisflokksins og Ólafs Thors í
embætti sjávarútvegsmálaráðherra.
I.
F»að sem gerðist í þessum málum í tíð vinstri stjórn-
arinnar, meðan Lúðvík fór með sjávarútvegsmálin,
var fyrst og fremst það að samið var um verulega
hœkkun jiskver.ðsins til sjómanna. Samið var um svo
mikla hækkun að Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðu-
flokkurinn létu það verða eitt sitt fyrsta verk þegar
þeir skriðu saman til samvinnu um stjórn landsins að
setja lög um lœkkun liins umsamda fiskverðs til sjó-
mannanna. Það var fyrsta framlag núverandi stjórnar-
flokkasamsteypu til þessara mála. Og síðan hefur ver-
ið haldið áfram á sömu braut, hver árásin á sjómenn
af annarri. og er skemmst að minnast óþokkabragðs
Alþýðuflokksins og Sjálfstæðisflokksins er þeir settu
í sumar gerðardómslög til að stela verulegum hluta
af samningsbundnu kaupi síldveiðisjómanna og af-
henda það útgerðarbröskurunum. Það er ekki von að
Morgunblaðsmönnum sé auðvelt . að skrifa um sjó-
mannamál af einhverjum rckum, með þessa fortíð í
huga, og grípi til minnisleysisins, svo tekin sé sú
skýring sem mannúðlegust er í garð ritstjóranna.
• Sú var tíðin að miklir vöruflutningar áttu sér stað frá hafnar-
bænum Seyðisfirði upp yfir Fjarðarheiði til Fljótsdalshéraðs og allt
upp á Jökuldal. Nú er þessu öfugt farið: allskonar varningur er flutt-
ur frá Egilsstöðum niður yfir Fjarðarheiði til Seyðisfjarðar. Einn er
þó sá varningur sem oftast fer hina gömlu, hefðbundnu flutningaleið
frá Seyðisfirði upp yfir Fjarðarheiði; hann er í aflöngum glerumbúð-
um og kemur frá ríkiseinkasö lu.
YFIR
• Ef þið trúið þessu ekki skuluð þið spyrja
Þorstein Kristjánsson, stofnanda Vöruflutn-
ingamiðstöðvarinnar í Reykjavík.
Þorsteinn Kristjánsson við einn bíl sinn.
Húm ágústkvöldsins er enn
ekki orðið að náttmyrkri þegar
yfirbyggður vöruflutningabíll
staðnæmist við hornhús á göt-
unni sem liggur næst og sam-
hliða Iþjóðveginum. Kona og
maður, enn ung, ásamt tveimur
drengjum innan fermingar taka
þegar til við að losa bílinn.
Það eru furðumargir kassar og
varningur í allskonar umbúðum
sem getur rúmazt í slíkum bíl.
Þessum flutningi fylgir farm-
skrá, og varningi á hvern stað
er hlaðið sér í geymsluna svo
sem kostur er svo greiðar gangl
að hlaða aðra bíla til fram-
haldsflutnings. Ágúströkkrið
hefur breytzt í náttmyrkur þeg-
ar því verki er lokið.
Við erum stödd á Egilsstöð-
um, hinni nýju sveitaborg
þeirra Austfirðinga. Þangað er\»
730 km frá Reykjavík, en frá
Reykjavík er bíllinn kominn,
yfir heiðarnar sjö að ógleymd-
um Möðrudalsöræfunum. Og
maðurinn og konan eru kunn-
ingjar margra Reykvíkinga:
Bryndís Karlsdóttir, gamall
Vesturbæingur og Þorsteinn
Kristjánsson, fyrrum nábúi á
Skólavörðustígnum, er eitt sinn
iék sér á sömu slóðum og dóms-
málaráðherrann. Þau eru nú
ibæði landnemar í nýju sveita-
borginni fyrir austan.
Við skulum taka þau tali.
— Hvenær byrjaðir þú á
þessum vömflutningum, Þor-
steinn?
— Það var sumarið 1959. Þá
voru engir vöruflutningar á foíl-
um hingað austur.
— Hvernig stóð á því að þér
datt í hug að fara að flytja
vörur á bílum alla leið hingað
austur?
— Við vorum tveir sem fór-
um að hugsa um þetta. Til
Austfjarða koma ekki skip
nema á um það bil þriggja
vikna fresti. Við athuguðum í-
búafjöldann á Austfjörðunum
og komumst að þeirri niður-
, stöðu að þörf my.ndi vera orðin
fyrir: flutninga á landi, einnig
þangað, en .fram ^ð, þeim tíma
foafði enginn sinn;t,þeim flutn-
ingum vegna . þea% ,hyp vega- ;
lengdin er .löng. Og svo byr>j-
uðum við flutningana.
— Hvernig ■ stendur á því að
uði seinna. Nú er ég með 4
bíla, 3 sem ég á sjálfur og 1
bíl á leigu. Eina vikuna í sum-
ar varð ég auk þess að fá 3
leigubila , til að anna flutningn-
• um.
| Hvað fíytjið þið venjui-
. léga mikið á viku?
— Mestu annavikuna munum
við hafa flutt um 55 tonn, en
fastúf flútHingur á viku er 35—
40 tonn.
- »— Hvenær stofnuðuð þið fé-
lag um vöruafgreiðsluna syðra?
nema með mikilli eftirvinnu. Á
vetrum eru afgreiðslumennirnir
ekki nema 3.
— Það eru strjálar skipa-
ferðir til Austfjarða, en nú eru
daglegar skipaferðir til Akra-
ness — og samt er mikið flutt
með bíium þangað frá Reykja-
vík, fover er skýringin á því?
— Það er tilfellið að þar sem
hægt er að koma flutningum
með bílum við á góðum vegum,
þá þola önnur flutningatæki
ekki samanburð.
Rætf við ÞORSTEIN KRISTiÁNSSON
vSíílíi* 5
stofnanda Vöruflutningemiðstöðvarinnar
ífi fe %
f r lai
il l II
i y
það getúr borgað sig að flytja
með bílúifo allá þessa Jeið?
— Menn athuga : ekki hvað
hraðinn er orðinn mikið atriði
í flutningsgjaldinu. Hér á Aust-
fjörðum líða 20 dagar milli
skipaferða, og margsk. starf-
ræksla getur ekkj beðið svo
lengi. Flugvélar neituðu t. d. að
taka súrhylki til flutnings — og
heil verkstæði voru stöðvuð
Auk þess er meðferðin á vör-
unum allt önnur í bílum en
skipum. Margar vörur þarf að
negla niður í ramgerða kassa
eigi þær að komast óskemmdar
á leiðarenda með skipum — og
gengur oft misjafnlega fyrir því.
Það er mjög sjaldgæft að vörur
skemmist í bílum, ef sómasam-
lega er hlaðið á þá.
— Og hefur flutningurinn
aukizt hjá þér?
— Við : byrjuðum: með einn
bíl, og bættum við öorum mán-
— Það var árið eftir að við
'hófum flutningana hingað aust-
úr, eðá 1960, sem við stofnuðum
Vöruflutningamiðstöðina. Stofn-
endur vöru 12, eiristakhngar og
félög; bílstjórár, kaupfélög og
bílstjórafél.
— Og nú er þetta orðin mið-
stöð fyrir vöruflutninga út um
allt land?
— Já, við tökum í 40—50
kaupstaði á landinu, allt frá
Vestfjörðum til Austfjarða.
Þrjátíu t\a fleiri bílar hafa af-
greiðslu á stöðinni nú, og ég
gæti trúað að yfir sumartímann
væru flutningaafköstin 400—500’"
tonn á viku, sem flutt er með
bílum ,;stöðvarinnar, til og frá
Rieykjavík.
Þegar ég tók við stöðinni, um
áramót 1961, var ég eihn með
stúlku hálfan daginn við af-
greiðsluna', nú vinna 5 við af-
greiðsldna, og háfa ekki undan
Flutningsgjgld með skipum
hefur hækkað mikið — og þó
er talað um að það sé lágt. En
ríkið borgar milljónir meðskip-
.unum, Við gætum. líka haft lágt
flutningsgjald, ef ríkið vildi
borga með bílunum.
— Eru ekki hærri flutnings-
gjöld með bílum?
— Flutningsgjald er svipað,
nema á lengri leiðum, þá er
það hærra.
Það sem sparast við stærri
vöruflutninga með bílum er að
bílarnir afhenda vöruna á
staðnum og eigandinn þarf ekki
að greiða uppskipun, hafnar-
gjöld og flutning frá og að
skipi
— En hvað segirðu um veg-
inn hingað austur?
— Það gengur alltof hægt að
koma áfram Austurlandsvegin-
um. Það er langur kafli, líklega
50—60 krn, sem Vegagerðin við-
urkennir ekki sem veg, heldur
sem ruðning, það er kaflinn yf-
ir Möðrudalsfjallgarðana og
Jökuldalsheiði. Sá kafli fcr af-
skaplega illa með bílana — og
ökumanninn sjálfan. Það þarf
stóra jarðýtu og nokkra karla,
þá gæti gengið fljótt að ryðja
upp yfir Möðrudals-
fjölnn.
—r En vegirnir hér niðri á
?í fjörðunum? . V
— Fagradalsvegurinn nýi, það
sem komið er af honum, er
fyrsta flokks, einnig er senn
kominn fyrsta Jlokks vegur frá
Eskifirði, út á Hnimanesið.
— En Fjarðarheiði. og Odds-
skarð?
— Það er allt í lagi með
Oddsskarð, það er breiður og
góður vegur, þó hann sé bratt-
ur. — Þeir segja að tvgggja km
göng gegnum fjallið myndu
nægja til þess að fært væri til
Norðfjarðar allt árið.
Vegurinn til Fáskrúðsfjarðar
er andstyggilegur, brattur,
hlykkjóttur og laus.
— Er ekki mjög erfitt að
vinna við þessa fiutninga?
— Jú, þetta er erfitt, en akst-.
ur hingað austur'frá Reykja-
vik finnst mér skemmtilegur.
Það er sérstaklega lestun og
losun sem er erfið og Aust-
fjarðabæirnir eru svo þröngir
að það er varla hægt að snúa
þar við stórum bílum, það þarf
oft að aka langa leið til að
geta snúið þeim við.
— Og héðan frá Egilsstöðum
dreifirðu flutningnum?
—r Bílarnir að sunnan eru
losaðir hér og vörur til einstakra
Austfjarða ílyt ég svo héðan á
minni bfl.
— Qg þú hefur trú á að þess-
ir flutningar aukist en minnki
ekki?
— Já, og með batnandi veg-
um lækkar flutningsgjaldið
, með bílum.
— Það er margháttað sem
þú flytur?
— Já, þar kennir margra
grasa. Fyrstu 2 árin voru bíl-
arnir alltaf troðfullir á haustin
af búslóðum suður, en nú flyt
ég búslóð hingað austur —
meir að segja sumt sama fólkið
og ég flutti suður!
— Og hvernig kunnið þið við
ykkur hér á Egilsstöðum?
— Egilsstaðir eru upprenn-
andi bær og samgöngumiðstöð.
Við kunnum prýðilega við okk-
ur — nema hvað! Þetta er eini
staðurinn sem ég vildi eiga
heima á hér á Austurlandi.
J. B.
Námsflokkarnir
Innkaup neyt-
námsgrein
Það er margt handtakið við losun og umhleðslu t il hinna einstöku staða á annatímanum á sumrin.
Námsflokkar Reykavíkur hefja
vétrarstarf sitt þriðjudaginn 2.
oktcber. Innritun stendur nú
yfir í Miðbæjarskólanum kl.
5—7 og 8—9 síðdegis.
í haust verður tekin upp ný
námsgre.in: Vöruþekking og inn-
kaup neytendá. Kennslan verður
í samvinnu við neytendasamtök-
in. Foreldrafræðslan, sem byrj-
að var á í fyrrahaust og var
þá rrijcg vel sótt, starfar nú
einnig í framhaldsflokki auk 1.
ílokks, sem verður með svipuðu
sniði og í fyrravetur. í 1. flokki
verður foreldrum leiðbeint um
uppeldi barna fram að skóia-
skyldualdri, fiutt verður erindi,
kenndir le’ikir og söngvar, og
samtaistímar hafðir með þátttak-
endum. 1 íramhaldsflokknum
verður fjallað um uppeldi barna
á skólaskyldualdri. Kennt verð-
ur í fyrirlestrum og samtölum.
Meðal kennara í þessum flokk-
um verða: Sigurjón Björnsson,
Sálfræðingur, prófessor Matthías
Jónasson og frk. Helga Magnús-
dóttir kennari. Nokkrar breyt-
ingar verða á kennaraliði Náms-
flokkanna, t.d. tekur dr. Alan
Bou.cher frá London við kennslu
í 5. og 6. flokki í ensku. Hann
er eldri námsflokkanemendum
að góðu. kunnur frá því hann
kenndi þar fyrir allmörgum ár-
um.
Námsgreinar í vetur verða: ís-
lenzka (2 flokkur), danska (4
flokkar), enksa (6 flokkar),
þýzka (4 flokkar), spænska (2
flokkar), franska (1 flokkur),
reikningur (2flokkar), algebra
(1 flokku.r), bókfærsia (1 flokk-.
u.r), vélritun byrjenda- og fram-
haldsfjokkur), barnafatasaumur.
kjólasaiimur, sni.ðteikning; (byrj-
endá-. . og. framhaídsflokkur'.
föndur (þyrjenda- og framhalds-
flokkúr) sálarfræði,. og. foreldra-
fræðsla (2 flokkar).
Nýjustu bœkurn
ar frá ísafold
Ný útgáfa bókarinnar Hvern-
ig' fæ ég búi mínu borgið?, 93
ostaréttir eftir Helgu Sigurð-
ardóttur og al'margar kenns'u.
bækur handa framhaldsskóla-
nemendum ery í hópi nýjustu
útgáfurita ísafoldarprentsmiðju
h.f.
Höfundur bókarinnar Hvern-
ig fæ ég búi mínu borgið? er
Orvar Josephsson, en þýðing-
una hafa gert þau Sigríður
Haraldsdóttir og Arnljótur
Guðmundsson. Segjast þau í
formála hafa gert ýmsar breyt-
ingar á bókinni til þess að hún
kæmi að sem beztum notum
hér á landi, með öðrum orðum
staðfært bókina. sem á frum-
málinu heitir ,.Hur man sköt-
er sin ekonomi".
Bókin kom fyrst út á ís-
lenzku árið 1950 og hefur á
undanförnum árum verið not-
uð við kennslu í heimilishag-
fræði við húsmæðraskólana.
Var af þeim sökum ráðizt í
að gefa bókina út aftur, þar
sem fyrri útgáfa hennar er
uppseld. í formála fyrir 2. út-
gáfu bókarinnar segir Sigríð-
ur Haraldsdóttir m.a.: — Á
efni því sem bókin fjallar um
hafa orðið allmiklar breyting-
ar á undanförnum árum. og
hef ég reynt að lagfæra það
eftir föngum. Uppsetningu á
heimi!(isbókha(ldi hefur verið'
bætt inn í bókina, og kaf’.inn
„Innkaup gegn staðgreiðslu
eða gjaldfresti“, sem sleppt var
í fyrri útgáfu. er tekinn með
að þessu sinni. Ólafur B.jörns-
son prófssor tók að sér að end-
ursemja kaflann um skatta og
álög'ur, ráðstöfun sparifjár og
tryg.gingar, og Eiríkur Briem
rafmagnsveitustjóri kaflann
um húshitun, suðu, lýsingu
o.fl. —
Hvernig fæ ég foúi minu
borgið? er 127 blaðsíður að
stærð.
93 ostaréttir er 64 blaðsíðna
bók. Höfundurinn, Helga Sig-
urðardóttir. 'ségir í formála að
toókinni sé ætlað að bæta fyrir
að enginn sérstakur kafli er
um ostarétti í „Mat og drykk“
og ..Lærið að matbúa“.
Mannkynssaga sú er þeir Ó’-
afur Hansson. menntaskó'a-.
kennari og Knútur heitinn Arn-
grímsson settu saman og no.tuð .
var við kennslu i mörg ár er i
nú komin út í nýrri útgáfu og
endurskoðaðri af þeim Magn-
úsi Guðmundssyni og Agli J.
Stardal. Er þessi útsáfa einkum
æfuð til kennslu í Verzlunar-
skóla íslands. Mannkynssaean
er i fiórum 110—140 blaðsíðna
bindum- Fornöldin. Miða’dir.
Nvia ö’din 1500—1789. Nýja
ö’din frá 1789
Af öðrum foýiúm kenns’.ú-
bókum frá ísafold má nefna
Ágrip af efnafræði eftir Helga
Hermann Eiríksson. 4. útgáfa,
og Verkefni í enska stíla handa
miðskólum eftir Önnu Bjarna-
dóttur.
íiá Sjáifsbjöig
í blaðinu Sjál.fsbjörg 1962 var
•fors'ðumynd sögð eftir Jón A.
á3jarhasórí ljósmyndara en
Bnyndlna tóK. ísák E. : Jónéson
frá * ísáfirði. R tsitjórar blaðsins
biöja þá er hlut eiga að. in,áli
velvirðingar á þessum mistök-
um.
Bæjarfréttir
Framhald af 2. síðu.
ar kl. 08.00 í dag. Væntanleg
aftur til Reykjavíkur kl. 22.40 í
kvöld. Flugvélin fer til Bergen,
Oslo, Kaupmannahafnar og Ham-
borgar kl. 10.30 í fyrramálið.
Millilandaflugvélin Skýfaxi fer
til London kl. 12.30 í dag. Vænt-
anleg aftur til Reykjavíkur kl.
23.30 í kvöld. Millilandaflugvélin
Hrímfaxi fer til Glasgow og
Kaupmannahafnar kl. 08.00 í
fyrramálið.
Innanlandsflug
í dag
er áætlað að fljúga til Akur-
eyrar (3 ferðir), .Egilsstaða, Fag-
ui'hólsmýrar, Hornafjarðar, Húsa-
víkur, Isaf’arðar og Vestmanna-
eyja (2 ferðir)!
Á morgun
er áætlað að fijúga til Akureyrar
(2 ferðir), Egilsstaða, Hornafjarð-
ar, Isafjai'ðar, Sauðái'króks,
Skógasands og Vestmannaeyja (2
íerðii').
Kvenfélag Laugarnessóknar.
1 fundur haustsins verður. rnánu-
daginn 1. október kl. 8.30 í
íundarsal félagsins í kirkjunni.
Konur, sem tóku band til að
vinna úr fyrir bazárinn,- eru sér-
staklega beðnar að mæta.
Körfuknattleiksfélag Reykja-
víkur
*
Æfingar eru hafnar að Háloga-
landi: Þriðjud. kl. 22.10—23 M
og II. fl. Fimmtud kl. 20 30—
21.20 IV. fl Laugardaga kl.
15.30—17.10 M og II. fl. Æfing-
ar fyrir III. fl. og viðbótaræf-
ing fyrir IV. fl. verða auglýstar
bráðlega.
Kvenfélag Hallgrímskirkju
Kaffisala félagsins er á sunnu-
daginn kemur, 30. þ.m., í S'lfur-
tuniglinu við Snorrabraut. Þær
félags- og safnaðarkonur, sem
hafa hugsað sér að gefa kökur
eða annað til kaffiveitinga, eru
vinsamlega beðnar að koma því
í Silfurtunglið fyrir hádegi á
sunnudaig. Treystum ykkur að
gefa rausnarlega og hjálpa til
við kaffisöluna eins og vant er.
Hausl f ermingarbörn
Frfki’nkjunnar eru beðin að
mæta í Fríkirkjunni í dag föstu"
dag kl. 6. Séra Þorsteinn
Björnsson.
Feiöafé’.ag íslands
ráðgerir . 1V2 dags ferð í Þórs-
mörk á morgun, laugardag. Lagt
veröur af stað kl. 2 frá Aust-
ui’velli. Upplýsingar í skrif-
stofu félagsins símar 19533 og
11798.
Kvenfélag Óháða safnaðai'ins
K rkjudagurinn er á sunnudag-
inn. Félagskonur eru vinsam-
lega beðnar að koma kökum
upp ‘1. Ki'ikjubæ á laugardaginn
kl. 3—7 og á mánudag kl. 10—
12 fih.
6)
ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 28. september 1962
Föstudagur 28. september 1962
ÞJÓBVILJINN
(7