Þjóðviljinn - 03.11.1962, Síða 1
Laugardagur 3. nóvember 1962 - 27. árgangur — 240. tölublað.
Læknadeilan í Félagsdómi
Löglegar uppsagn-
ir eða verkfall?
í
fyrir
gærdag var tekið
í Félagsdómi mál
fjármálaráðherra gegn
BSRB vegna læknadeil-
unnar. Páll S. Pálsson
hrl. flytur málið fyrir
hönd ríkisstjórnarinnar,
en Guðmundur Ingvi
Sigurðsson hrl. fyrir
hönd sfefnda. Félags-
Á fegurðar-
samkeppni í
Lundúnum
Þessi mynd var tekin á Lundúna-
flugvelli sl. þriðjudag. Stúlkan á
myndinni er íslenzk, heitir Rann-
veig Ólafsdóttir og tekur þátt í
alþjóðlegri fegurðarsamkeppni
(L'ngfrú heimur) sem fram fer
þar í stórborginni þessa dagana.
FBokkurinn
DEILDAFUNDIR verða í öll-
um deildum n.k. mánudagskvöld
ki. 8.30.
FORMANNAFtt-v..- - - -
6
dómur skyldi skera úr
um það, hvort uppsagn-
ir læknanna væru lög-
legar og hvort brott-
ganga þeirra úr starfi
samrýmdist lögum um
kjaramál opinberra
starfsmanna, sem sett
voru í vor. (Gengu í
gildi 16. maí.) Og ermál-
ið höfðað samkvæm!
ákvæðum þeirra laga.
Kjaminn i málflutningi stefnda
er sá, að Félagsdómur sé ekki
bær um að fjalla um málið, þar
eð uppsagnir læknanna voru
dagsettar rúmum mánuði áður
en fyrrgreind lög tóku gildi. —
(Nánar tiltekið 12. og 13. apríl.)
Það sé grundvallarregla á Islandi
að lög verki ekki afturfyrir sig
og þvi geti tilgreind lög ekki átt
við mál læknanna nú og BSRB
sé ekki aðili að málinu. Krafðist
stesfndi þess að málinu værí vís-
að frá á fyrrgreindum forsend-
um.
Ekkert gert til að leiða
málið til lykta
Verjandi stefnda rakti nokkuð
gang þessa máls og lýsti því
hvemig ríkisstjórnin hefur sofið
á verðinum og naumast gert
nokkuð til að leiða málið til
lykta. Bréfum Læknafélags Rvík-
ur til ríkisstj ómarinnar var tíð-
um ekki svarað og aðrar undir-
tektir eftir því. Kvað hann lög-
Viðræðufund-
unum lokið
Utanríkisráðuneytið sendi frá
sér fréttatilkynningu seint í gær-
kvöld þess efnis, að tillögur þær
sem rætt var um á viöræðu-
fundinum í Washington um end-
urskoðun loftferðasamnings Is-
lands og Bandaríkjanna verði nú
lagður fyrir rikisstjórnir beggja
landa og nýjar umræður muni
síðar fara fram eftir því sem
samkomulag verði um.
gjafann gera ráð fyrir því að
menn geti losnað úr opinberri
þjónustu og uppsagnir læknanna
því fyllilega lögmætar.
Páll S. Pálsson hélt því fram
að svo víðtækar uppsagnir hlytu
að skoðast sem verkfallsboðun,
en verkfall opinberra starfs-
manna er ólöglegt hér á Islandi.
Vitnaði hann í ýmsa fræðimenn
í því sambandi. Þá hélt hann því
fram að túlkun laganna hlytí að
miðast við það ástand sem ríkir
í dag, það er þá staðreynd að
29 læknar í opinberri þjónustu
hafa hætt störfum allir í einu
á sama degi, hinn 1. þ.m. Um
mál þeirra yrði að fjalla eftírj
gildandi lögum, það er lögum
nr. 55 frá 16. maí 1962.
Krafðist hann þess að málið
yrði tekið til efnisúrskurðar.
Nokkrar orðahnippingar urðu
milli lögmannanna, þar sem
Guðmundur ítrekaði enn atriði, j
sem hann kvað Pál hafa alger-|
lega gengið framhjá, að lög virki
ekki afturfyrir sig og því hljótí
uppsagnir sem dagsettar og send-
ar eru fyrir gildistöku laga nr.
55 1962, að vera fyllilega lög-
mætar og málið ekki í lögsögu
BSRB.
Er þetta það sem koma skal?
Það er mikið rætt um læknadeiluna þessa dagana og að vonum.
Ýmis sjónarmið eru uppi; t. d. hefur heyrzt sú spurning, hvort
ætlun íslenzkra stjórnarvalda sé sú að innleiða aftur tíma „bart-
skeranna” — þá' hefðu rakarar ærið starf. Á myndinni sést einn
þeirra beita hnífnum af kunnáttusemi. — Ljósm. Þjóðv. A. K.
Hlaut 230
þús. kr. sekt
ÍSAFIREtl 2/11 — í dag, föstn-
dag, var kveðinn upp dómnr f
máli skipstjórans á brezka tog-
aranum Lincoln City, sem varð-
skipið Ægir tók á dögunum að
ólöglegum veiðum í landhelgL
Var skipstjórinn dæmdur í 230
þús. króna sekt og afli og veið-
arfæri gert upptækt. Skipstjóri
áfrýjaði dóminum. Ilann hefur
alla tíð neitað harðlega að hafa
framið lögbrot og við töku tog-
arans ætlaði hann að þrjózkast
við en lét sig þegar sýnt var
að varðskipsmenn myndu beita
hörðu. Þess má geta, að skip-
verjar á Ægi settu út miðunar-
dufl þegar varðskipið kom að
togaranum, en þegar átti að
gera mælingar við það var dufl-
ið komið á rek. Hélt skipherr-
ann á Ægi því fram í réttar-
höldunum. að brezki togaraskip-
stjórinn hefði Iátið skera á
duflstrenginn.
Krani slítur
rafleiðslur
Það óhapp vildi til í Hafnar-
firði í gærdag þegar verið var
að flytja löndunarkrana frá
höfninni upp ReykjavíIairvegmiVí
að bóma kranans rakst á rai-
leiðslur og sleit þær. Jafnframt
lagðist bómann aftur á húsið á
krananum, en ekkert slys varð
á mönnum. Nokkur umferða-
truflun varð meðan þessu var
kippt í lag.
Castro krefst þess að banda-
rískir hermenn fari frá Kúbu
• Óvinir okkar, Banda-
ríkjamenn, sitja með her
manns á Kúbu í trássi
við vilja þjóðarinnar, en
Sjómenn hafna
kjaraskerðingu
@ Útgerðarmenn hindra enn alla samninga í síldveiðideilunni,
forystumenn Landssambands íslenzkra útvegsmanna hafa bitið sig
með steinbítsþrjózku í kjaraskerðingarkröfuna, þeir virðast ekki
vera til viðtals við sjómannasamtökin um nokkra þá samninga
á síldveiðunum í vetur sem ekki þýði stórkostlegt launarán og
kjaraskerðingu sjómanna, og heimta miklu mcira en fékkst með
gerðardómslögum Emils og íhaldsins og gcrðardómnum alræmda.
@ Sáttafundurinn í fyrrakvöld varð með öllu árangurslaus, þar
sem útgerðarmenn hvika ekki frá kjaraskerðingunni og SAMN-
INGANEFND SJÓMANNA STENDUR EINHUGA A MÓTI.
@ Þessum ljóta leik lítillar klíku i LlU sem stöðvar allan síld-
veiðiflotann með ósvífinni árás á sjómannakjörin verður að ljúka,
svo síldveiði geti hafizt að eðlilegum hætti.
samtímis vilja þeir
þvinga okkur til að taka
niður vamarstöðvar, sem
vinir okkar hafa byggt
eftir beiðni okkar, sagði
Fidel Castro í útvarps-
ræðu í fyrrakvöld.
• Yið erum reiðubúnir
að taka niður öll strat-
egísk vopn, sem Sovét-
vafa látið okkur
hafa, en við krefjumst
þess líka að Bandaríkja-
menn fari burt úr her-
stöðinni við Guantan-
amo!
• Við getum ekki fall-
ist á alþjóðaeftirlit með
vömum okkar, sagði
Castro. Hvers eigum við
að gjalda? Bandaríkja-
menn hafa gert árás á
okkar land, en við höf-
um látið þá í friði! Við
höfum alltaf farið að al-
þjóðalögum, en Banda-
ríkin hafa fótum troðið
alþjóðarétt og siglinga-
lög um frelsi á höfuxn
úti
sjá síðu 0
Yetrarmynd
fró Akureyri
Hérna er mynd frá Akur-
eyri í vetrarbúningi, tekin
við höfnina og sér upp eftir
Kaupvangsstræti. Ýmsar
byggingar munu kunnugir
þekkja á myndinni. Fremst
til vinstri t.d. er hús Prent-
verks Odds Björnssonar,
fyrir miðri mynd er stór-
hýsi Kaupfélags Eyfirðinga
og til hægri vörugeymslur
skipafélaga. Uppi á hæð-
inni í baksýn blasir Akur-
eyrarkirkja við og í næsta
nágrenni hennar sjást
barna- og gagnfræðaskól-
arnir. (Ljósm. Þ. J.)
4