Þjóðviljinn - 03.11.1962, Síða 10

Þjóðviljinn - 03.11.1962, Síða 10
10 SÍÐA MOÐVHjJINN Laugardagur 3. nóvember 1962 eftir RICHARD CONDON enska stórglæpamanni. Eva sagði, að ef það væri í rauninni satt að spænskum listaverkum hefði verið stolið frá Cortes og markgreifinn af Villalba hefði verið myrtur í því sambandi, þá hlyti alþjóðlegur glæpaflokkur að standa bak við það. Maðurinn hennar — kunnur kaupsýslu- maður í Madrid — væri saklaus og hún yrði mjög þakklát fyr- ir allt það sem Populace gæti gert til að sanna sakleysi eig- inmannsins. Gourlay spurði hvort hún vildi taka á móti Jack j Tense. ef Populace sendi hanni til Spánar, og hún svaraði að , hún vildi gera hvað sem væri j til að flýta fyrir því að eigin- maðurinn iosnaði úr haldi. Sam sagðist hafa hugboð um að hann gæti haft eitthvað krassandi upp úr þessu og hann vonaði að það mætti verða henni að liði. að minnsta kosti myndi það afla lesenda fyrir næsta greinaflokk Jacks. Ljósmyndarar og fréttamenn, fóik af öllu' tagi, fór að streyma til Madrid. Alls ' staðar var snuðrað. en enginn fékk að siá fangana. Eva og hertogafrúin fengu ekki að finna þá heldur. Paris Match sendi árangurslaust! bænarskial undirritað af öllum frönskum blaðamönnum um að 'fá leyfi til að tala við mann- inn sem kallaður var „Calbert vinálausi". Nokkrir hinna ný- komnu settust að í anddyri gisti- hússins og fylgdust með ferðum Evu reyndu að laumast inn í hús hertogafrúarinnar. en vopnuð lögregla fjarlægði þá miskunnarlaust o.g þeir urðu að láta sér nægja að hrópa hátt um blaðamannafrelsi. Fréttakvikmyndir um ahan heim fengu nýjar upptökur sem sýndu Cárcel de Carabancheles á sólríkum degi, hertogafrúna sem gekk rösklega frá. bíl sín- um, yfir gangstéttina og inn í húsið, með blæju og dökk gler- augu, ásamt nærmyndum af Valazquez, Zurbarán og Greco — með fjálglegum skýringum Picketts nokkurs frá Illionis — og hinni glæsilégu. ungu eigin- konu hans á fjölmörgum tungu- málum. Pickett fékk mest rúm af öllu saman — meira en fangelsið, meira en Gréco, meira en morð- vopnið, meira en húsvörðurinn í morðhúsinu, meira en frú Pick- ett sjálf. Reyndar næddi talsvert um hann, þegar republikani frá Illin- ois hringdi og spurði hvern fjandann - hartn væri eiginlega að sluksa þegar hann vissi að þing- ið sæti á rökstólum. Piekett lýsti því yfir að hann væri að styrkja vináttuböndin milli Bandaríkj- anna og Spánar, auk þess væri hann afleitur til heilsunnar og ætti mikið á hættu í samtoandi við heilsuna, meðan hann væri að reyna að koma í veg fyrir að þessi erkiskúrkur að nafni Bourne eyðilegði alveg hið ágæta samband milli rikjanna tveggja. Annars mætti þessi ósvífni ná- ungi fara fjandans til, Homer Pickett fúlsaði við honum og pólitíkinni hans. Hann æsti sig dásamlega upp og lét fallast aftur á bak í stólnum með sælu- bros á vör, þegar hann var bú- inn að leggja rauðglóandi tólið á. „Ég hata svona gauragang“, sagði hann við konu sína. ,,En þetta er eina málið sem þessir hálfvitar virðast skilja. Þessi bölvaður labbakútur! Ég skal láta sparka honum úr flokknum, þótt það kosti mig minn síðasta dollar. Hann skilur ekki hvað ég vinn stjórnmálunum mikið gagn hér á þessum mikilvæga stað!“ ,.Til andskotans með hann“, sagði frú Pickett. „Hann getur ekki komið þér fyrir kattamef hve feginn sem hann vildi. Ekki lengur“. Hertogafrúin gerbreyttisf þenn- an :tíma:-AHt f einu fór hún að sækja stjórnarveizlur, sem hún hafði fyrirlitið til þessa. Hún hafði opið hús í Madrid. Hún sendi út boðskort. Mestan hluta morgunsins sat hún við sím- ann. Svo borðaði hún hádegis- verð — með stjómarráðsfulltrú- um og toppmönnum og eiginkon- um þeirra, deildarstjórum, sendi- herrum og prelátum í Madrid- heimsóknum. Hvert einasta kvöld var troðfullt í stofum hennar. f matarveizlunhi sem fylgdi á eftir fjórðu móttökunni tókst henni að fá undanþágu frá þeirri tilskipun að hvorki Bourne eða Jean Marie mættu taka á móti gestum. Hún varð lika mikil vin. kona hins qpinbera ákæranda. Eva fékk að tala við Boume í stóru, ferhyrndu herbergi sem ekkert var í nema tveir stólar. Tveir verðir leiddu Boume inn og drógu sig síðan í hlé. Eva og Bourne sátu hvort á sínum stól og horfðu hvort á annað. Hún bauð honum sígarettu sem hann afþakkaði. Hún stakk pakkanum í veskið sitt aftur án þess að fá sér sjálf. „Þetta fór alveg eins og ég sagði“, sagði hún. „Skiptir engu máli“, Hann uppgötvaði gildi þess sem hún hafði veitt honum — skyndilega eins og drengur sem áttar sig á þýðingu dáins, ný- skotins fugls í hendi sér. Hann tók andlit hennar millum hand- anna og kyssti hana. gagntek- inn þrá og iðrun vegna þess sem hann hafði ekki veitt henni. Hann dró stólinn fast að stóln- um hennar og talaði ofurlágt í eyra hennar, til þess að geta huggað hana án þess að hugga hljóðnema sem herbergið var ■sjálfsagt fullt af. „Við sleppum úr þessu. Mér er alvara. Þeir eru alveg ólmir yfir missi Goya-málverksins. ; Þeir vilja áreiðanlega eiga | kaup við okkur“. Hann horfði | á hana. Hún sneri sér við og I horfði á hann full af trausti án þess að skilja. ..Svaraðu ekki“, sagði hann. „Kinkaðu bara kojli þegar ástæða er til. Er það í lagi?“ Hún kinkaði kolli. „Blanca. Hingað. Bráðum“. Hún kinkaði kolli „Við verðum að fara hátt. Svo hátt að þeim komi ekki tij hug- ar að svíkja. Sammála?" Hún kinkaði kolli. Hann reis upp, setti stólinn aftur á gamla staðinn og greip um hendur hennar. „Aldrei framar vinna af þessu tagi. Þú mátt treysta því að ég dreg mi<* í hlé. Við opnum bókabúð i Svi- þjóð eða gistihús í Sviss“. Hún laut fram og lagði hand- legginn um hálsinn á ho.num. Varðmennimir komu inn og til- kynntu með samúð að tíminn I væri útrunninn. i Jack Tense hringdi í Evu næsta morgun. Hann kynnti sig ekki, lét röddina hafa fyrir því og spurði blátt áfram hvort hún hefði hugsað sér að borða há- degisverð á flugvallarveitinga- húsinu. Þá myndi hún trúlega fá nýjar fréttir að heiman um tvöleytið. Svo rauf hann sam- bandið einé og símaklefinn hefði allt i einu fyllzt af lögreglu- þjónum. Hún ók effir hinni glæsilegu Advenida de Americas, sem allt í einu varð andstæða sjálfrar sín. — götubútur sem sýndist hafa orðið fyrir sprengjuárás á hverjum morgni undanfarin tíu J ár. Svo lagði hún bílnum við flugvöllinn. Tense horfði gegnum hana úr , sæti sínu. Hún settist við hlið- ina á honum. „Alveg réttur, klæðnaður", sagði hann án þess að opna munninn. „Enginn man eftir þessum fötum. Dugleg stúlka". Hann sneri sér beint að efn- inu. „Hvað hefur maðurinn þinn eiginlega flækt sér í?“ Hún leyndi engu. Það var léttir að mega leysa frá skjóð- unni. Henni lá margt á hjarta og Tense hafði orðið einn af þrem beztu vinum hennar dag- inn sem hún hitti hann í fyrsta sinn. Honum líkaði vel að Boume skyldi hafa Goya í bak- höndinni, það var rétt út reikn- að. Hún vildi gjaman fá það staðfest að Bourne myndi losna úr fangelsinu og Ijómaði af á- nægju, þegar Tense sagði að kaupin yrðu áreiðanlega gerð og málið ‘strikað út strax að rétt- arhöldunum loknum. Hann spurði hvort hún gæti hugsað sér nokkurn, sem vildi koma morðinu á Munoz yfir á mann- inn hennar. Hún vissi ekki um neinn. Þau fengu paella, vín. flan og kaffi. Hann sagði að Merton á Populace hefði orðið stórhrifinn af henni þegar búið var að taka manninn hennar fastan fyrir svo vinsælt afbrot. Hann kom henni hvað eftir annað til að hlæja. Þegar þau komu að kaff- inu, spur^i bpnn hvort hún hefði ræ+*- —.’ ”‘nn sameiginlega ynrique López á þeirri spurn- sfði aldrei komið að ræða þetta við, López sem hún hafði aldrei hitt persónulega. Tense benti henni á, að López gæti áreiðanlega komizt að þvi hver væri að reyna að koma manninum henn- ar í bölvun, það væri í verka- hring skikkanlegra samtaka. Eva fvlltist áhuga og Tense lofaði að hann skyldi tala við López. Hann yrði að fara í kurteisis- heimsókn til hans hvort sem var. Hún sagðist ekki vita hvern- ig hún ætti að bakka honum, og hann sagði að ef henni væri alvara. þá gætu þau flýtt sér, heim á hótelið og háttað. því að nú þyrftu þau ekki að ótt- ast eiginmanninn. Hann veltist um .af hlátri jrfri því hve hneyksl- i uð hún varð. Þau gengu saman út Þegar Eva fór framhjá Tárþégsraf^t greiðslunni hitti hún Gomez | ofursta, yfirmann í to.llaeftirlit-' inu. Hann roðnaði og gekk fram- hjá henni án þess að mæla orð Réttarsalurinn í Dómshöllinni í Madrid var einn hinn glæsileg- asti í Evrópu Á veggnum bak við sæti dómarans hékk hið Þrátt fyrirskipanir Banks færði Þórður skip sitt aftur of hættulegt. Á meðan þessu fór fram biðu Ross og upp að ströndinni um morguninn til þess að vera stúlkurnar í nágrenni við aðalstöðvar trúfiokksins eftir viðbúinn að taka á móti Ross ef hann kæmi. Lof- tækifæri til þess að ná tali af piltunum tveimur. Það skeytamaðurinn hlustaði stöðugt eftir sendingum frá var ekki fyrr en undir morgun sem þau sáu þá koma honum en ekkert skeyti barst, enda hefði það verið út úr byggingunni ásamt fleiri mönnum. UNGLINGA vantar til blaðburðar í eftirtalin hverfr Langholt Meðalholt Hringbraut. Kleppsveg Teigar Kársnes I og II Talið strax við afgreiðsluna — sími 17500. NOKKRIR UNGIR MENN geta komizt í nám í jámiðnaði. Verkamannakaup. Vélaverkslæði Sig. Sveinbjörnssonar h.f. Aðvörun til smábátaeigenda Með tilvísun til 12. gr. Hafnarreglugerðar fyrir Reykja- víkurhöfn eru eigendur þeirra smábáta, sm legið hafa og liggja í höfninni og ekki eru í notkun, áminntir um að fjarlægja þá fyrir 15. nóvember. Að öðrum kosti verður þetta gert á kostnað eigenda. HAFHARSTJÖRI. AÐVÖRUN til gjaldenda í Kópavogi Lögtök fyrir þinggjöldum eru að hefjast. Skorað er á gjaldendur að reyna að greiða nú þegar til að ekki komi til þeirra óþæginda og þess kostnaðar sem lögtaki fylgir. Bæjarfógetinn í Kópavogi. Keflvíkingar I 0 L!U S GUDffiUNDSSON flytur erindi í samkomusalnum í Vík, Hafnarstræti 80, sunnudagskvöldið 4. nóvember kl. 8.30. Erindið nefnist: Á hverju byggist vonin um betri framtíð? Jón H. Jónsson og félagar hans syngja. ALLIR VELKOMNIK. Áskrifendasöfnunin Ég undirrit: óska hér með að gerast kaupandi ÞJÓÐVILJANS. Dags.......... 196. Tekið á móti áskrifendum í símum: 17500, 22396« 17510« 17511. 4

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.