Þjóðviljinn - 04.11.1962, Qupperneq 1
'
.
- / y
Efgr'V. N
~ÍÍV
Enn verður ekki þverfótað fyrir hermönnum, vopnum og öðrum hergögnum í hafnarbæjum
Florida sem næst Iiggja Kúbu og á flugvöllum þar í fylkinu eru hvers konar herflugvélar reiðu-
búar til að hefja árás á Kúbu, cins og t.d. á MacDill-flugvellinum, en af honum cr þessi mynd.
Utgerðarmenn vilja
efheUi en ekki
lýðræðisleg málalok
Bílar sem vinnandi í happdrættinu má velja um ^sí°ð9a
★ Stjórnendur Eandssam-
bands íslenzkra útvegsmanna
virðast ekki vilja lausn síld-
veiðideilunnar eftir venjuleg-
um lýðræðisleiðum, að sjó-
menn og útgcrðarmenn al-
mennt geri út um málið.
jc títgerðarmenn hafa
hindrað slíka Iausn með al-
gjörri þrjózku í samningaum-
leitunum sem nú hafa staðið
árangurslaust vikum saman,
og er ekki annað áýnilegt en
þeir stefni að einhverri of-
beldislausn i ætt við gerðar-
dóminn í sumar. Þeir hafa
bitið sig fasta í kjaraskerðing-
arkröfuna og heimta að sjó-
menn semji um miklu verri
kjör en gerðardómurinn al-
ræmdi skammtaði í sumar.
Sjómenn neita einhuga kjara-
skerðingarkröfunni.
★ Röksemdir útgerðar-
manna, að þeir eigi að fá
til sín verulegan hlut af afla-
hlut sjómanna vegna nýrra
veiðitækja, er fjarstæða, sem
hvergi hefur þekkzt, ekki
heldur við aðrar veiðar hér
á Iandi. Útreikningar útgerð-
armanna um kostnaðarauk-
ann af nýrri tækni hafa
reynzt cinskær marklcysa.
★ Sjómenn bera ekki of
mikið úr býtum og þeir vinna
fyllilega fyrir hlut sínum á
sxldveiðum sem öðrum veið-
um, með ótakmörkuðum
vinnutíma og hinum mikla
og verðmæta afla sem þeir
færa á Iand.
Xryggvi Helgason
jc Þessi atriði og fleiri til
skilnings á síldveiðideilunni
ræðir Tryggvi Helgason í við-
ta!i, sem birt cr á 4. síðu,
en Tryggvi hefur staðið f
kjarasamningum íslenzkra
sjómanna um nær þrjátiu ára
skcið. — SJá 4. síðu.
Castro minnti á í ræðu
sinni, að Bandaríkjamenn
hefðu ráðizt á Kúbu fyrir
rúmu ári. Við höfum alltaf
farið að alþjóðalögum, sagði
Castro, en Bandaríkjamcnn
hafa fótum troðið alþjóðarétt
og siglingalög um frelsi á
höfum úti. Hvers vegna ætt-
um við að fallast á alþjóð-
Iegt eftirlit með vörnum okk-
ar frekar en aðrar þjóöir?
Og hvernig er hægt að ætl-
ast til þess, að við afsölum
okkur varnarstöðvum, sem
vinir okkar hafa hjálpað okk-
ur að koma upp, en séum
samtimis neyddir til að sitja
uppi með herstöð óvinarins í
landi okkar. Hann krafðist
þess aftur og aftur, að Banda-
ríkjamenn yrðu á brott frá
Kúbu.
Það hefur vakið nokkra at-
hygli, að í ræðu sinni minntist
Kennedy ekki einu orði á þess-
ar sanngjömu kröfur Kúbu-
manna. Þess í stað lagði hann
einungis áherzlu á það að hafn-
banninu yrði haldið áfram, þó
að hann viðurkenndi að brott-
flutningur sovézku eldflaug-
anna væri langt kominn.
Nýja brúin yfir Blöndu
Flokkurlnn
DEII.DARFUNDIR annað kvöld,
mánudag. — Sósíalistafélag
Reykjavíkur.
Félagsfundur í Sósíalistafélagi
Reykjavíkur verður á fimmtu-
dagskvöld. Á fundinum verða
kosnir fulltrúar á þing Sósíalista-
flokksins. Tillögum um fulltrúa
þarf að skila á skrifstofu félags-
ins fyrir kL 7 á miðvikudags-
kvöld. Dagskrá að öðu leyti
verður augýlst á þriðjudag.
STJÓRNIN.
orii á herstöð USA á Kúbu
WASHINGTON 3/11. — Herstöð Bandaríkjanna á Kúbu,
Guantanamo, er komin í brennidepil Kúbumálsins. Fidel
Castro hefur krafizt þess, að Bandaríkjamenn yfirgæfu
herstöðvar sínar við Guantanamo, um leið og sovézku vopn-
in eru flutt burt frá eyjunni. Nú bregður svo við, að Kenne-
dy lætur sem hann hafi ekki hugmynd um þessar herstöðv-
ar Bandaríkjamanna. í ræðu sinni í gær lýsti forsetinn þvf
yfir, að brottflutningur sovézkra vopna frá Kúbu væri haf-
inn, en minntist hins vegar ekki á Guantanamo.
Kennedy forseti hélt ræðu í
gærkvöld og sagði, að verið væri
að rífa sovézku eldflaugastöðv-
amar á Kúbu. Hann sagði, að
hafcbanninu yxði haldið áfram,
þar til Kúbustjóm hefði fallizt
á alþjóðlegt eftirlit með vígbún-
aði sínum. Með þeim orðum var
Kennedy í rauninni að svara
ræðu Castros, sem lýsti því yf-
ir í fyrrakvöld, að Kúbumenn
mundu ekki fallast á alþjóðlegt
eftirlit.
Sunnudagur 4. nóvember 1962 - 27. árgangur — 241. tölublað
Félagsdómur
Sker úr 2 stór-
málumívikunni
mynd fengum við
senda frá Blönduósi. Hún
sýnir okkur hina nýju og
veglegu brú yfir Blöndu, sem
tekin var I notkun fyrir
skömmu. Allir þeir, sem ferð-
azt hafa með rútunni milli
Reykjavíkur og Akureyrar,
muna það ugglaust, að gaml-
ar og þröngar brýr töfðu
víða ferðina. Ein þeirra var
brúin yfir Blöndu. En þær
gömlu týna óðum tölunni og
í stað þeirra koma aðrar nýj-
ar og breiðar. FyTstu bflarnir
fóru yfir nýju Blöndubrúna
27. október sl., en tveimur
dögum seinna var gamla brú-
in tckin. af. Þökk þeirri
gömlu, en heill hinni nýju.
(Ljósm.: B. P.).
Nú í vikunni fellir Félagsdóm-
ur úrskurði eða dóma sem beð-
ið er með mikilli eftirvæntingu.
Á morgun, mánudag, er búizt
við að úrskurður verði kveðinn
upp í læknamálinu svonefnda,
en málflutningur fór fram svo
sem áður hefur verið skýrt frá
sl. föstudag.
Læknamálið, sem skotið var
til dómsins eftir að mál Lands-
sambands íslenzkra verzlunar-
Eldur í Höfrungi
II. í gærdag
Laust fyrir hádegi í gær kom
upp eldur í káetu vélskipsins
Höfrungs II. frá Akranesi þar
sem það lá við Grandagarð. Er
slökkviliðið kom á vettvang var
mikill eldur í káetunni en hann
varð fljótt slökktur og breiddist
ekki út. Skemmdir urðu miklar á
káetunni. Við slökkvistarfið
brenndist einn slökkviliðsmaður
í andliti og hár sviðnaði á tveim
öðrum.
manna gegn Alþýðusambandi
Islands var dómtekið 26. fyrra
mánaðar, hefur valdið drætti á
dómsuppkvaðningu í síðamefnda
málinu, en samkvæmt upplýs-
ingum sem Hákon Guðmunds-
son hæstaréttarritari, forseti
Félagsdóms, veitti Þjóðviljanum
í gær, er þess að vænta að
dómur verði upp kveðinn síðar
í þessari viku.
Dómendur í læknamálinu eru,
auk dómsforseta, þeir Einar B.
Guðmundsson hrl., Ragnar Jóns-
son hrl., Einar Amalds yfir-
borgardómari og Theódór Líndal
prófessor.
I máli LlV gegn ASl dasma,
auk dómsforseta, þeir Ragnar (
ölafsson hrl., Einar B. Guð-
mundsson hrl., Benedikt Sigur-
Jónsson hrL og Gunnlaugur
Briem ráðuneytisstjóri.
Kenneúy mlnntist ekkí einu
Tryggvi Helgason skýrir frá
staðreyndum síldveiðideilunnar:
1